Morgunblaðið - 29.12.2008, Side 1
M Á N U D A G U R 2 9. D E S E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
353. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Leikhúsin
í landinu >> 41
DAGLEGTLÍF
KÁTIR KARLAR
Í DRENGJAKÓR
VÉSTEINN HAFSTEINSSON
Umhverfið á Íslandi
ekki afreksvænt
95
ára
mbl.is
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
EINSTAKLINGAR úr eigendahópi
Kaupþings, eða félög á þeirra vegum,
eru á meðal þeirra sem liggja undir
grun um að hafa hagnast á samning-
um sem Kaupþing gerði við valda við-
skiptavini og eru taldir hafa fært
hópnum gríðarlegan fjárhagslegan
ávinning.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru samningarnir sem gerðir
voru, nokkrir talsins og er heildar-
andvirði þeirra talið vera yfir 100
milljarðar króna. Samningarnir eru
taldir hafa verið þess eðlis að viðkom-
andi einstaklingar hafi ekki getað tap-
að á þeim. Efnahagsbrotadeild ríkis-
lögreglustjóra hefur haft málið til
skoðunar síðan um miðjan desember
þegar henni barst nafnlaus ábending
um athæfið. Efnahagsbrotadeildin
hefur nú óskað eftir því að Fjármála-
eftirlitið (FME) taki málið til frekari
skoðunar og kanni hvort rökstuddur
grunur sé um refsiverða háttsemi. Þá
ber FME að kæra málið aftur til efna-
hagsbrotadeildar.
Gátu ekki tapað | 4
Eigendur taldir hagnast
Einstaklingar úr eigendahópi Kaup-
þings taldir hafa hagnast á samningum
Í HNOTSKURN
»Grunur leikur á því að um-rædd háttsemi geti talist
vera umboðssvik eða jafnvel
fjárdráttur. Refsing vegna
slíkra brota getur verið allt að
sex ára fangelsi.
»Bæði þeir sem gerðu samn-ingana og þeir sem græddu
kunna að hafa brotið lög.
BÖRN halda á myndum af fórnarlömbum loftárása Ísraela á Gaza-svæðið á
mótmælafundi fyrir utan skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Manama, höfuð-
borg Barein. Hernaðinum var mótmælt í borgum víða um heim í gær þegar
árásirnar höfðu kostað nær 300 manns lífið á tveimur dögum. | 19
Blóðsúthellingum á Gaza mótmælt víða
AP
FRIÐRIK Gunnarsson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu, segir að lög-
regla hafi aðeins leyft innflutning á
rúmlega 500 tonnum af skoteldum í
ár. Það sé mun minna en í fyrra,
þegar 1.275 tonn af flugeldum voru
flutt til landsins. Aftur á móti eigi
margir seljendur enn birgðir frá
fyrri árum sem þeir selji núna.
Flugeldasalan hófst í gær á flest-
um stöðum og eru flugeldasalar
þokkalega vongóðir um söluna,
þrátt fyrir efnahagsástandið.
Hafa þeir bryddað upp á ýmsum
nýjungum til að glæða söluna í ár,
m.a. getur almenningur skotið út-
rásarvíkingum og bankastjórum út
í veður og vind. »6
Mun minna af flugeldum
ÉG TEK þessa
dóma nærri mér
og er ekki sáttur
við þá,“ segir Jón
Ásgeir Jóhann-
esson, stjórn-
arformaður
Baugs, í grein í
Morgunblaðinu í
dag sem ber yf-
irskriftina „Setti ég Ísland á haus-
inn?“. Þar segist hann hafa verið
kallaður óreiðumaður, glæpamaður,
fjárglæframaður, „þúsundmilljarða-
maðurinn“ og sagt hafi verið að
hann hafi komið Íslandi á hausinn.
„Þessa viðhorfs virðist gæta víða í
þjóðfélaginu, meira að segja á Al-
þingi og í Seðlabankanum. Þessi við-
urnefni og upphrópanir byggjast
ekki á mikilli yfirvegun eða ígrund-
un, en eru að einhverju leyti skilj-
anleg í andrúmslofti reiði og örygg-
isleysis,“ segir Jón Ásgeir og segist
reiðubúinn að axla þá sanngjörnu
ábyrgð sem honum beri. »20–21
Tekur dóma nærri sér
og er ósáttur við þá
Liverpool fór hamförum í ensku úr-
valsdeildinni um jólin, skoraði átta
mörk og er á toppnum um áramót, í
fyrsta skipti í tólf ár.
Liverpool mætir nýju
ári í toppsætinu
Ein besta handknattleikskona Ís-
lands, Anna Úrsúla Guðmunds-
dóttir, er á leiðinni til eins af sterk-
ustu liðum Danmerkur.
Anna er á leiðinni
til Danmerkur
Guðjón Valur Sigurðsson meiddist
illa á kálfa og leikur ekki með
landsliðinu á mótunum í Svíþjóð og
Danmörku í næsta mánuði.
Guðjón Valur frá
keppni í 4-6 vikur
Fram vann öruggan sigur á Hauk-
um, 35:29, í úrslitaleik deildabikars
karla og Stjarnan vann Hauka,
28:27, í úrslitunum í kvennaflokki.
ÍÞRÓTTIR
Fram og Stjarnan
kræktu í bikarana