Morgunblaðið - 29.12.2008, Síða 6

Morgunblaðið - 29.12.2008, Síða 6
Spyrja má hvort skotleyfi hafi verið gefið út á bankastjóra, helstu útrásarvíkingana og stjórn- málamenn þessi áramótin, en björgunarsveitirnar selja þetta árið tertu með myndum af helstu banka- stjórunum og aðra tertu með mynd af ýmsum stjórnmálamönnum. Almenningur hefur því tækifæri til að láta í ljós gremju sína með stöðu mála með því að sprengja myndir af þessum mönnum í loft upp. Hugmyndin er þó ekki ný af nálinni, því fyrir nokkrum árum var hægt að kaupa rakettu með mynd af stjórnmálamanni og senda viðkomandi út í veður og vind. „Við höfum fengið mjög góð viðbrögð,“ segir Jón Ingi, sem vill taka fram að allt sé þetta í gamni gert. „Þetta er hugsað til [gamans], en ekki til að særa einn eða neinn,“ bætir Jón Ingi við, en þess má geta að allar persónurnar eru auðþekkjanlegar á mynd- unum á tertunum. Loks er einnig seld terta með mynd af íslenskum almenningi. Einhver kann að velta fyrir sér hver vilji Skotleyfi á bankastjóra og stjórnmálamenn? sprengja upp íslenskan almenning. Þannig má spyrja hvort heppilegt væri ef til dæmis fyrrverandi banka- stjóri sæist sprengja íslenskan almenning upp á þennan hátt. 6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2008 Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opið í dag 29 desember frá 9 til 18 Patti húsgögn landsins mesta úrval af sófasettum Slappaðu af yfir hátíðirnar 2-jasætasófar frá159.900,- 3-jasætasófar frá199.900,- oghornsófar frá 299.900,- Bjóðum upp á hægindastóla í mörgum útfærslum. kr.89.900,- verð nú Verð áður 119.900,- Eftir Andrés Þorleifsson andresth@mbl.is „ÞAÐ komu inn í ár rúm 500 tonn [af skoteldum],“ segir Friðrik Gunn- arsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæð- inu, um innflutning á flugeldum. Er það mikill samdráttur frá fyrri ár- um, en árið 2007 veitti lögreglan leyfi fyrir innflutningi á 1.275 tonn- um og 800 tonnum árið 2006. Friðrik bendir þó á að margir selj- endur eigi birgðir frá því í fyrra, þannig að samdrátturinn í sölunni sé ekki endilega jafnmikill og innflutn- ingstölurnar gefi til kynna. „En það voru vandræði með innflutninginn, þannig að hann er minni,“ bætir hann við, og vísar þar sérstaklega í gjaldeyrisóvissu. Björgunarsveitir bera sig vel „Sem mest,“ var svar Jóns Inga Sigvaldasonar hjá Slysavarnafélag- inu Landsbjörg við því hversu mikið björgunarsveitirnar gerðu ráð fyrir að selja, en flestir sölustaðir voru opnaðir í gær. Hann segist ekki geta séð af fyrsta söludeginum hvort mikil breyting sé á sölunni, en taldi þó að fleiri hefðu komið við hjá flugeldasölum fyrsta söludaginn í ár en á síðustu árum. „Það er eins og fólk sé að horfa á þetta aðeins fyrr,“ segir hann til útskýringar, en mesta flugeldasalan sé einatt 30. og 31. desember. Jón Ingi giskar á að markaðs- hlutdeild björgunarsveitanna á flug- eldamarkaðinum sé á milli 60 og 65%, en markaðnum deila þeir með ýmsum félagasamtökum og einkaað- ilum. Margar björgunarsveitir eru fjár- hagslega háðar flugeldasölunni og koma 80-90% rekstrarfjár sumra sveitanna úr flugeldasölunni. Því er ljóst að til mikils er að vinna fyrir þessar sveitir að salan gangi vel. „Við gerum okkur grein fyrir því að það er aðeins farið að hægja á samfélaginu, en við búumst við því að fólk komi og styðji björg- unarsveitina sína,“ segir Jón Ingi. Hann bendir á að jólasalan hjá versl- unum hafi gengið vonum framar, og er greinilega vongóður með að sama verði upp á teningnum í flugeldasöl- unni. Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upp- lýsinga- og kynningarfulltrúi Slysa- varnafélagsins Landsbjargar, segir að björgunarsveitunum hafi tekist að afla gjaldeyris til innflutningsins. „Ég held þeir geri sér grein fyrir því hjá Seðlabankanum og ríkinu hversu mikilvægt þetta er fyrir björg- unarsveitirnar og hversu mikilvægt straf björgunarsveitanna er fyrir samfélagið. Þessi sala er grundvöll- urinn fyrir því starfi,“ segir Ólöf. Minna flutt inn af flugeldum  Seljendur flugelda eiga þó oft nóg frá fyrra ári  Stór tekjulind hjálparsveita Í HNOTSKURN »Einkaaðilar sem og björg-unarsveitir selja flugelda. »Um 70 útsölustaðir eru áhöfuðborgarsvæðinu í ár, auk nokkurra tuga á lands- byggðinni. »Öll sala á skoteldum tilbarna yngri en 12 ára er óheimil og öll meðferð barna á þeim skal vera undir eftirliti fullorðinna. »Jón Magnússon alþing-ismaður hvatti landsmenn í sjónvarpi í gær til að kaupa ekki flugelda í ár. Morgunblaðið/G.Rúnar Flugeldakaup Þessi snáði keypti flugelda fyrir um tvö þúsund krónur hjá flugeldasölu Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík. Dýraverndunar- samband Íslands vill minna á þá ógn sem dýrum stafar af flugeld- um, sprengingum og tilheyrandi loftmengun. Segir í tilkynn- ingu frá sam- bandinu að flest dýr hræðist slíkt umrót, og skipti þá engu hvort um sé að ræða gæludýr eða villt dýr. Á síðustu árum hafi hundar og kettir leitað skjóls, farið í felur og jafnvel týnst. Sömu sögu sé að segja um hross á útigangi, sem hafi tryllst og hlaupið langan veg, lent í sjálfheldu eða hrapað í klettum. Af þessum sökum er þeim til- mælum beint til dýraeigenda að þeir hafi sérstaka gát á dýrum sín- um þessa daga ársins, sérstaklega á gamlárskvöld. Þannig megi m.a. hafa ljós í húsum til að minna beri á leiftrunum og loka gluggum svo mengunin berist ekki inn. „Munum að dýrin eru skyni gæddar tilfinn- ingaverur eins og við,“ segir loks í tilkynningunni. Sýna þarf dýrum tillits- semi á næstu dögum FRÁ og með aðfangadegi til gær- dagsins var lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu tilkynnt um 39 innbrot. Að sögn Péturs Guðmundssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni, er um að ræða nokkra aukningu. Þó beri að hafa í huga að innbrot auk- ist alltaf í kringum jólahátíðina. „Þetta eru innbrot af öllu tagi. Þetta eru heimili, stofnanir, versl- anir, vinnuskúrar og nýbygg- ingar,“ útskýrir Pétur, sem bætir síðan við að enn fleiri þjófnaðir hafi verið tilkynntir lögreglu. Þá hafi lögreglan haft hendur í hári nokk- urra innbrotsþjófa um hátíðirnar. Lögregla brýnir fyrir fólki að ganga vel frá gluggum og hurðum á húsnæði sínu. Eins beri að forðast að skilja eftir verðmæti í bílum. andresth@mbl.is Fólk gæti að eigum sínum um hátíðirnar ÚTLIT er fyrir að ágætt veður verði til að kveðja gamla árið með brenn- um og flug- eldaskotum og fagna nýju. Það er helst að Vest- mannaeyingar verði útundan vegna hvass- viðris en ekki var alveg útséð með það í gær- kvöldi. Veðurstofan spáir því að um miðjan dag á gamlársdag verði hæg austanátt með éljagangi sunn- anlands, nokkuð samfelldri slyddu eða snjókomu. Á miðnætti er reikn- að með stöku éljum með austanátt- inni. Helst er að úrkomulaust verði norðaustanlands. Veður ætti því að vera til að skjóta upp flugeldum um allt land um áramótin. Ágætt veður til að brenna Áramót Styttist í flugeldaskothríðina. MAÐUR slas- aðist á vél- sleða innar- lega í Skaga- firði á öðrum tímanum 26. desember sl. Ökumaður féll af sleðanum og var í fyrstu óttast að hann hefði hlotið nokkur höfuðmeiðsl. Hann var því fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri, og þaðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Reyndust meiðsl mannsins ekki jafn alvarleg og talið var í fyrstu, en í ljós kom að hann hafði hlotið minniháttar beinbrot, og skrámur í andliti. Slasaðist á vélsleða Slys Maðurinn féll af vélsleða í Skagafirði. MIKIL mildi þykir að ekki fór verr þegar bifreið valt í Öxarfirði á tólfta tímanum aðfaranótt sunnudags. Slysið átti sér stað skammt frá af- leggjaranum að Ærlækjarseli. Tvær stúlkur innan við tvítugt voru í bíln- um. Virðast tildrög slyssins vera þau að bílnum var ekið út í kant og reyndi ökumaður að rífa bílinn inn á veginn með þeim afleiðingum að bíllinn valt tvær og hálfa veltu. Ökumaður kastaðist út um hlið- arglugga og hafnaði um 12 metra frá bílnum. Slapp hún þó tiltölulega lítið slösuð. Að sögn lögreglunnar á Húsavík er málið enn í rannsókn, en bifreiðin er talin ónýt. andresth@mbl.is Mildi að ekki fór verr Ingvar Haf- bergsson keypti fyrsta skammtinn í flugeldasölu íþróttafélags- ins Fylkis í gær. Alls taldi hann sig mundu eyða svipuðu í skotelda og í fyrra, eða milli 12 og 15 þúsund krónum. „Ætli ég fari ekki á gamlársdag og kaupi mér þrjár fjórar stórar [rakettur] og eina litla tertu,“ sagði Ingvar, sem taldi sig ekki eyða miklu í skotelda og hefði þar ástand efnahagsmála lítil áhrif. Ingvar Hafbergsson Svipað milli ára

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.