Morgunblaðið - 29.12.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.12.2008, Blaðsíða 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2008 Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is NOKKUR breyting verður á flokkun vega með nýrri Vegaskrá. Hún er sú fyrsta sem gerð er samkvæmt nýjum vegalögum sem tóku gildi í byrjun ársins. Vegaskráin mun taka gildi um næstkomandi áramót. Gunnar Gunn- arsson, aðstoðarvegamálastjóri, seg- ir að vegfarendur muni væntanlega ekki finna fyrir neinni breytingu þótt vegir skipti um flokk. Stærsta breytingin við gildistöku nýju vegaskrárinnar er að rúmlega 1.000 km af svonefndum tengivegum færast í flokk héraðsvega, sem áður hétu safnvegir. Almennt talað eru þetta vegir að sveitabýlum, heimreið- ar o.þ.h. Sveitarfélög hafa átt þess kost að fá svokallaðan helminga- mokstur á tengivegum. Þá hefur Vegagerðin greitt fyrir snjómokstur veganna að hálfu. Hún hefur ekki tekið þátt í snjómokstri safnvega, sem nú heita héraðsvegir. Snjó- mokstur Vegagerðarinnar mun því væntanlega minnka eitthvað. Óbreytt þjónusta á hálendinu Stofnvegir eru flestir þeir sömu og voru áður. Nokkrir umferðarmiklir vegir, sem áður flokkuðust sem tengivegir, eru nú orðnir stofnvegir. Þá verða fjórir fjölfarnir hálendis- vegir, sem áður voru landsvegir, framvegis flokkaðir sem stofnvegir um hálendi. Þetta eru Sprengisands- leið, Kjalvegur, Fjallabaksleið nyrðri og Kaldadalsvegur. Þrátt fyrir breytta flokkun verður engin sérstök breyting á þjónustu við þessa vegi, opnunartíma þeirra, eða hvað varðar rekstur eða viðhald. Þar verður áfram árstíðabundin umferð og munu hálendisvegirnir njóta minna viðhalds en aðrir stofnvegir. Rúmlega 200 km af götum í eða við þéttbýli, sem áður töldust til þjóð- vega, munu færast á forræði viðkom- andi sveitarfélaga. Þetta á t.d. við um Gullinbrú, Hallsveg, Nýbýlaveg og Vífilsstaðaveg á höfuðborgarsvæð- inu. „Yfirfærsla þessara vega til þétt- býlissveitarfélaganna fer ekki fram fyrr en með samkomulagi við þessi sveitarfélög. Við munum leitast við að skila þeim í viðhaldshæfu ástandi,“ sagði Gunnar. Vegagerðin mun ganga til viðræðna við þéttbýlissveit- arfélögin um yfirfærslu þessara vega. Morgunblaðið/Júlíus Mokstur Breytt flokkun vega gæti haft áhrif á hver borgar snjómokstur á tilteknum leiðum. Vegirnir flokkaðir  Þjóðvegir í þéttbýli færast til sveitarfélaga  Margir tengi- vegir verða héraðsvegir  Hálendisvegir verða stofnvegir Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is KULDI og myrkur. Oft rok, snjór eða að minnsta kosti hálka. Þetta eru aðstæðurnar sem hlauparar á Íslandi eiga að venjast að vetri til. Hlaupararnir í skokkhópi ÍR láta svoleiðis smámuni ekki stöðva sig og hlaupa sperrtir frá Breiðholts- sundlauginni alla laugardags- morgna. Gunnar Páll Jóakimsson, þjálf- ari hópsins, segir að það sé sér- stök áskorun fólgin í því að hlaupa að vetrarlagi í allskyns veðrum. Alltof margir líti svo á að ekki sé hægt að stunda útivist nema í góðu veðri en það sé reginmis- skilningur. „Það hefur aldrei fallið niður æf- ing hjá okkur vegna veðurs.“ Sífellt fleiri stunda markvissar hlaupaæfingar að vetri til eins og sést vel á þátttöku í þeim mörgu keppnishlaupum sem haldin eru að vetrarlagi. Gríðargóð þátttaka hef- ur verið í Powerade-hlaupunum sem hlaupin eru frá Árbæjarlaug í Reykjavík í hverjum mánuði og nýlega hófust Powerade-hlaup á Selfossi sem haldin eru laugardag- inn eftir Reykjavíkurhlaupin. Þá er Gamlárshlaup ÍR afar vinsælt og þátttakan eykst ár frá ári. Mikilvægi dagbóka Gunnar Páll gefur út Hlaupa- dagbókina sem nú kemur út í sjötta sinn. Hann segir mikilvægt fyrir alla hlaupara að halda hlaupadagbækur, hvort sem það er gert með því að skrifa í bækur, með færslum á netinu eða í tölv- unni. Í hlaupadagbókinni er m.a. að finna æfingaáætlanir fyrir byrj- endur og lengra komna, viðtöl og heilræði fyrir hlaupara. Gunnar mælir með að fólk skrái ekki einungis niður upplýsingar um hlaupaæfingar heldur einnig hvernig líðanin var, hvort fólk hafi haft næga orku til hlaupanna eða verið þreytt. Hlauparar geti síðan farið yfir hvað það var sem olli þreytunni og lært af mistökunum. Í þessu felist ákveðin saga sem hlauparar læri auk þess sem af- skaplega skemmtilegt sé að fletta í gömlum hlaupadagbókum. Margir endurupplifi keppnishlaup með því að lesa gamlar lýsingar á líðan, hugsunum og tilfinningum sem bærðust með þeim í hlaupinu. Kuldi, snjór og myrkur nær ekki að stöðva hlauparana Morgunblaðið/Árni Sæberg Hlauparar Skokkhópur ÍR fer reglulega af stað frá Breiðholtslauginni og lætur veðrið svo sannarlega ekki aftra sér. HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest farbann yfir fyrrverandi fram- kvæmdastjóra Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna í ellefta sinn. Gildir farbannið til 29. janúar nk. Framkvæmdastjórinn fyrrver- andi hefur verið í farbanni í frá 13. apríl 2007. Hann er grunaður um stórfelld efnahagsbrot, sem felast í útgáfu tilhæfulausrar ábyrgðaryf- irlýsingar upp á 200 milljónir banda- ríkjadala. Talið er að ábyrgðir vegna athæfis mannsins geti fallið á þrotabú Verðbréfaþjónustunnar. Hæstiréttur staðfesti framlengt farbann yfir manninum á Þorláks- messu og skilaði einn dómari, Jón Steinar Gunnlaugsson, sératkvæði og vísaði til rökstuðnings í tveimur fyrri sératkvæðum sínum frá 22. september og 27. nóvember, þar sem hann taldi að fella ætti far- bannsúrskurðinn úr gildi. Einsdæmi í sögunni Í sératkvæðinu frá 22. september kom fram að maðurinn sem í hlut ætti hefði þegar sætt farbanni í meira en sautján mánuði, sem sé lengra en önnur dæmi séu um í ís- lenskri réttarframkvæmd. Í því sér- atkvæði kom jafnframt fram að lík- legast yrði nauðsynlegt að óska enn framlengingar farbannsins. Með staðfestingu Hæstaréttar frá 23. desember hefur það verið fram- lengt tvisvar til viðbótar og ellefu sinnum í heild. Hefur maðurinn ver- ið í farbanni samfleytt í rúma tutt- ugu mánuði. Maðurinn krafðist þess aðallega að úrskurður um farbann yrði felldur úr gildi. Farbann framlengt í 11. sinn Álfheimar 74 Sími: 414 4000 hreyfing@hreyfing.is www.hreyfing.is STOTT PÍLATES 6-VIKNA NÁMSKEI HEFST 12. JANÚAR STOTT PILATES HÓPNÁMSKEI Verð 22.900 kr. REFORMER BYRJENDUR Verð 29.900 kr. REFORMER FRAMHALD Verð 29.900 kr. Stott Pilates æfingakerfið þjálfar flata og sterka kviðvöðva. Jafnvægi á milli styrk- og teygjuæfinga framkallar langa, granna vöðva og auðveldar hreyfingar. Stöðug áhersla á öndun bætir súrefnisflæði í blóði og bætir blóðflæði til heilans sem eykur einbeitingu og vellíðan. Í Reformer pilatesnámskeiðinu er þjálfað á sérstökum Reformer bekk. Það skilar einstaklega góðum árangri og hentar öllum sem vilja bæta þjálfun sína enn frekar. Innifalið: • Lokaðir tímar 2x í viku, 15 manna hópar í Stott Pilates námskeiðin • Lokaðir tímar 2x í viku, 4 manna hópar í Reformer námskeiðin • Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum • Aðgangur að glæsilegri útiaðstöðu – jarðsjávarpotti og gufuböðum Láttu skrá þig strax í síma 414 4000 eða á hreyfing@hreyfing.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.