Morgunblaðið - 29.12.2008, Síða 17

Morgunblaðið - 29.12.2008, Síða 17
Fréttir 17INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2008 Vatnaskógi. Tillaga um forvarna- og framfarasjóð Reykjavíkur- borgar var samþykkt í borgar- ráði nóvember 2007. Markmið með stofnun sjóðsins er að stuðla að árangri í forvarnastarfi, efl- ingu félagsauðs, auknu öryggi íbúa og bættri umgengni í borg- inni. Ennfremur er það hlutverk sjóðsins að gefa einstaklingum, félagasamtökum og fyrirtækjum tækifæri til frumkvæðis og ný- sköpunar á sviði forvarna og framfara. HANNA Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri hefur úthlutað styrkjum úr forvarna- og fram- farasjóði Reykjavíkurborgar til 12 verkefna og nemur heildar- upphæðin um 25,5 milljónum króna. Alls bárust 88 umsóknir. Verk- efnin sem styrkt eru að þessu sinni eru fjölbreytt og má þar nefna klúbbastarfsemi fyrir heyrnarskert börn, opið hús fyrir íbúa í Grafarholti sem hafa ný- lega misst vinnuna, myndlistar- verkið Guttorm og gauraflokk í Um 25 milljónir úr for- varna- og framfarasjóði Styrkþegar Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri ásamt þeim er hlutu styrki úr forvarna- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar.  PAOLO Gar- giulo verkfræð- ingur varði dokt- orsritgerð við verkfræðideild Tækniháskólans í Vínarborg 25. nóvember síðast- liðinn. Andmæl- endur voru Prof. Rudolf Freund, Prof. Frank Rattay og Prof. Winfried Mayr. Leiðbein- endur voru Prof. Frank Rattay, Prof. Winfried Mayr og dr. Þórður Helgason. Ritgerðin sem ber titilinn „3D Modelling and Monitoring of De- nervated Muscle under Functional Electrical Stimulation Treatment and Associated Bone Structural Changes“ fjallar um gerð þrívíðra líkana af aftauguðum vöðvum í raf- örvunarmeðferð og meðfylgjandi breytingar á beinvef. Í verkefninu er aðferð þróuð til að fylgjast með raförvunarmeðferð vöðva, rýrnun þeirra og uppbyggingu, form- og þéttnibreytingum. Einnig þéttni- breytingum lærleggs og hnjéskelj- ar. Er aðferðin notuð til að fylgjast með meðferð þverlamaðra ein- staklinga með úttaugaskaða í neðri limum. Paolo er fæddur í Napólí á Ítalíu 19. maí 1973. Hann er sonur hjónanna Ciro Gargiulo skrifstofu- manns og Elvira Primativo in Gar- giulo húsmóður. Hann lauk prófi í tækniskóla í Napólí, lagði síðan stund á heil- brigðisverkfræði við Háskólann í Napólí, Federico II þar sem hann lauk meistaragráðu 2001. Paolo hefur síðan starfað við Rannsóknar- og þróunarstofu heil- brigðistæknisviðs Landspítalans og er kennari við heilbrigðisverk- fræðideild Háskólans í Reykjavík. Paolo er giftur Helenu Finn- bogadóttur snyrtifræðingi og eiga þau dæturnar Sigmundínu og Elv- íru. Doktor í verkfræði  HREFNA Ró- bertsdóttir varði doktorsritgerð í sagnfræði við sagnfræðideild Háskólans í Lundi í Svíþjóð hinn 18. október síðastliðinn. Tit- ill ritgerðarinnar er Wool and Society. Manufact- uring Policy, Economic Thought and Local Production in 18th- century Iceland. Bókin er gefin út af bókaforlagi í Svíþjóð en Sögu- félag dreifir henni hér á landi. Í ritinu er tekin fyrir hagræn hugsun á Íslandi og í Danmörku og velt upp stöðu Íslands innan dansk-norska ríkisins á 18. öld. Með Innréttingunum í Reykjavík var verið að innleiða vefsmiðju- vinnslu ullar og áhrif þeirra eru könnuð. Auk þess er ullarfram- leiðsla í sveitum á Norðaust- urlandi og Suðvesturlandi rann- sökuð. Sýnt er fram á hvernig efling handiðnaðarins á seinni hluta 18. aldar var hluti af hag- rænum nýjungum á tímabilinu. Hrefna starfar nú við rann- sóknir á Þjóðskjalasafni Íslands auk þess að sinna stundakennslu við Háskóla Íslands. Hún er fædd 6. september 1961, dóttir Kol- brúnar Gunnarsdóttur sérkennara og Róberts Páls Péturssonar arki- tekts. Eiginmaður Hrefnu er Ei- ríkur Kolbeinn Björnsson, kennari við Verzlunarskóla Íslands, og eiga þau dæturnar Kolbrúnu Þóru, bókmenntafræðinema við Háskóla Íslands, og Hallveigu Kristínu, nema í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Doktor í sagnfræði Ný uppbygging, nýtt efni, nýjar æfingar! Átaksnámskeið Hreyfingar hafa aldrei verið betri. Leiðbeinendur sem búa yfir áralangri reynslu hafa fengið sérþjálfun til að leiða hin nýju og árangursríku námskeið sem skila þér pottþéttum árangri. Fjölbreytt 6-vikna námskeið. Mismunandi áherslur eftir því hvort þú ert byrjandi eða lengra komin. Hvort þú vilt meira aðhald eða meira dekur. Lestu umsagnir ánægðra þátttakenda á hreyfing.is Ágústa, Anna og Guðbjörg hafa sett saman ný 6-vikna námskeið sem tryggja þér þann árangur sem þú vilt ná í heilsu- og líkamsrækt Álfheimar 74 Sími: 414 4000 hreyfing@hreyfing.is www.hreyfing.is P L Á N E T A N Öll Árangurs námskeiðin eru byggð upp á svipaðan hátt nema með mismunandi áherslum. Allar nánari upplýsingar á hreyfing.is Veldu þér námskeið sem hentar þér: Árangur Árangur/elítan Árangur framhald • Komdu þér út úr röngu fæðumynstri og byrjaðu að borða fæðu sem gerir þig granna • Losnaðu við eilífa sætindaþörf • Mataræðið tekið í gegn – fylgt eftir nokkrum einföldum reglum - örugg leið til árangurs • Lærðu að borða til að næra vöðvana þína og svelta fitufrumurnar • Einfaldar æfingar sem miðast við að tryggja hámarks fitubruna • Þú losar þig við aukakílóin • Þú minnkar fitufrumurnar og styrkir og mótar vöðvana • Þú minnkar ummál um mitti, læri og mjaðmir • Þú eykur orku þína, þrek og vellíðan Láttu skrá þig strax í síma 414 4000 eða á hreyfing@hreyfing.is HEFST 12. JANÚAR ÁRANGUR Á NÝJU ÁRI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.