Morgunblaðið - 29.12.2008, Síða 18

Morgunblaðið - 29.12.2008, Síða 18
18 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2008 Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is EFNAHAGSVANDINN í Banda- ríkjunum veldur því að fjölmargir eigendur gæludýra neyðast til þess að selja eða gefa dýrin, aðrir láta deyða þau. Talið er að það kosti að meðaltali um 1400 dollara, um 170 þúsund ísl. krónur, á ári að eiga hund, um 1000 dollara að eiga kött. Einkum er um kostnað vegna fóð- urs, læknisaðstoðar og annarrar umönnunar að ræða. Mel Bail, 23 ára gömul kona í Worcester í Massachusetts, á fatl- aðan eiginmann og tvö börn. Hún var atvinnulaus og farin að ala kett- ina sína þrjá, Rory, Ozzy og Mud- pie, á leifum eftir máltíðir fjölskyld- unnar en ákvað loks að gefa þá. „Þegar ég gat ekki lengur borg- að gasreikninginn vissi ég að ég varð að finna köttunum annað heimili,“ segir hún. En það reyndist ekki auðvelt, öll dýraathvörfin voru yfirfull. Svo fór að Bail setti auglýs- ingu á netið til að útvega þeim nýtt heimili. Samtök í Virginíu sem berjast gegn grimmilegri meðferð á dýrum hafa nú hrundið af stokkunum áætlun um að útvega mat, lækn- ishjálp og bráðabirgðaheimili handa gæludýrum fólks sem á við fjárhagsvanda að stríða. Sumir af þeim sem biðja um aðstoð hafa aldrei fyrr þurft að líða neyð og sama á þá við um dýrin þeirra. „Þetta er hræðilegt,“ segir Amy McNally, talsmaður áætlunarinnar sem nefnd er HOPE. „Að þurfa að segja: Ég hef ekki efni á að ala hundinn minn – þetta er mikil nið- urlæging.“ Örþrifaráð að láta aflífa dýrið Bandaríkjamenn eru rösklega 300 milljónir og í landinu mun vera um 231 milljón gæludýra, fiskar ekki meðtaldir. Oft eru tilfinn- ingalegu tengslin milli eiganda og dýrs mjög sterk og áfallið því mikið fyrir báða aðila þegar dýrið er gef- ið eða selt. Enn grimmilegra er fyr- ir eigandann að láta deyða alger- lega heilbrigt dýr löngu fyrir tímann af fjárhagsástæðum. Mikil fjölgun hefur orðið í dýra- athvörfum í Connecticut, Ne- braska, Texas, Utah og fleiri sam- bandsríkjum, segir í AP-skeyti. Þykir þetta sýna vel hve margir þurfa að losa sig við gæludýrin sín en einnig að orðið hefur fækkun í röðum þeirra sem vilja taka að sér dýr. Ekki bætir úr skák að á sama tíma hafa framlög frá opinberum aðilum og félagasamtökum til at- hvarfanna lækkað. Sex til átta milljón hundar og kettir eru að jafnaði sendir í athvörf á hverju ári. Er helmingur þeirra aflífaður, hin- ir teknir í fóstur, að sögn talsmanns samtakanna Mannúðlegt samfélag, Adam Goldfarb. „Þetta er svo sannarlega ekki uppörvandi,“ segir Goldfarb. „Eitt af helstu markmiðum okkar er að ýta undir og fagna tengslunum milli manna og dýra. Það er hörmu- legt þegar fjölskyldur eru orðnar svo illa staddar að þær hafa ekki lengur efni á því að ala önn fyrir gæludýrunum sínum.“ AP Athvarf Kona í dýraathvarfi í Norð- ur-Karólínu sinnir tveimur hundum. Hafa ekki lengur ráð á gæludýrum Fjöldi Bandaríkjamanna neyðist til að gefa dýrin sín eða láta aflífa þau Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is STARFSFÓLKI hjá Novator í Bret- landi hefur verið sagt upp störfum frá og með næstu áramótum. Til stendur að fækka fólki um helming næstu sex mánuði. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins hafa um 35 manns starfað í starfsstöð fjárfestingarfélagsins í London. Þetta þýðir að 17 missa vinn- una hið minnsta. Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar, aðal- eiganda Novators, segir minni umsvif í Bretlandi endurspegla þróun á al- þjóðlegum mörkuðum. Fjárfestingar- verkefnum hafi fækkað og viðskipti dregist saman á flestum sviðum. Því sé ljóst að hægjast muni á allri starf- semi Novators í náinni framtíð. Ekki sé ástæða til að halda úti öflugu grein- ingarteymi þegar verkefnin séu fá og samstarfsaðilar haldi að sér höndum. Því hafi sú stefna verið mótuð að draga úr umsvifum í takt við fækkun verkefna. Björgólfur Thor hefur lýst sjálfum sér sem umbreytingafjárfesti. Aðal- eignir Novators núna eru Actavis, tvö farsímafélög í Póllandi og eitt í Finn- landi. Auk þess á Novator fasteignir og rekur tvo sjóði; fjárfestingarsjóð (Private Equity Fund) og vogunar- og skuldasjóð (Novator Credit Fund) sem einbeitir sér að lánamörkuðum. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins hafa um tíu starfsmenn Novator Credit Fund misst vinnuna frá áramótum vegna færri verkefna. Þessir starfsmenn og aðrir sem sagt hefur verið upp hafa mislangan uppsagnarfrest. Því er það verkefni næstu sex mánaða að skrúfa niður starfsemina. Ekki þykir ástæða til að hafa dýra yfirbyggingu í núverandi árferði þegar félagið haldi á tiltölu- lega fáum eignum og færri tækifæri fyrirfinnast á markaðnum. Novator Credit Fund hlaut 10. september síðastliðinn verðlaun tíma- ritsins Creditflux sem besti tækifær- issjóðurinn. Fram kom í tilkynningu að Novator Credit Fund var stofnað- ur árið 2005 og sýslar með 46 millj- arða króna. Hann var eini sjóðurinn af þeim sem tilnefndir voru í fyrr- nefndum flokki sem skilaði hagnaði á fyrri hluta ársins 2008. Meginstarfsemi Novators er í London en félagið er einnig með skrifstofu í Reykjavík. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Í brúnni Björgólfur Thor Björgólfsson hefur ákveðið að draga úr umsvifum skrifstofu Novators í London í kjölfar hruns á alþjóðamörkuðum. Færri verkefni þýðir að ekki þarf eins margt starfsfólk til að sinna daglegum störfum. Novator segir upp starfsfólki í Bretlandi Minni umsvif kalla ekki lengur á fjölmennt starfslið Í HNOTSKURN »Novator er fjárfesting-arfélag sem Björgólfur Thor Björgólfsson stjórnar. »Helstu eignir Novators eruActavis og símafélög í Pól- landi og Finnlandi. GUÐMUNDUR A. Birgisson, fjár- festir sem kenndur er við Núp í Ölf- usi, hefur selt 2,2% hlut sinn í MP banka. Guðmundur vill ekki upplýsa að svo stöddu hver kaupandi bréfanna er. Hann segir verðið jafngilda því að gengi bréfa í MP banka sé 7,5 eða 8. Fyrir nokkru hefði gengi bréfanna verið í kringum 14 en vegna falls fjármálamarkaða hefði verðið lækk- að. Samkvæmt þessu er markaðsvirði MP banka í kringum 8,8 milljarða króna, sé tekið mið af genginu átta. Verið er að borga yfirverð fyrir eigið fé MP banka miðað við stöðuna um mitt ár 2008 samkvæmt þessu. Ef miðað er við kennitölur annarra fjár- málastofnana er óvenjulegt að borg- að sé yfirverð fyrir eigið fé nema fjárfestar telji eignir bankanna traustar. Svokallað V/I hlutfall, það er markaðsvirði sem hlutfall af innra virði eigin fjár, er tæpir 1,2. Guðmundur hafði um nokkurt skeið reynt að losa sig við eignarhlut sinn í MP banka með aðstoð bankans sjálfs. Hins vegar var hann ekki sátt- ur við það verð sem honum bauðst fyrir hlutinn og aðilar tengdir bank- anum voru tilbúnir að borga. Því tók hann upp á því, með aðstoð lög- manns, að auglýsa hlutinn til sölu í Morgunblaðinu í desember. Þar var sagt að um einstakt kauptækifæri væri um að ræða. Guðmundur vill ekki segja til um hvort hann sé sáttur við verðið. Margeir Pétursson, einn stofn- enda MP banka, á um þriðjung. Bræðurnir Sigurður Gísli og Jón Pálmasynir eiga tæplega þriðjung og Byr sparisjóður rúmlega 13% miðað við ársskýrslu 2007. bjorgvin@mbl.is Seldi í MP banka eftir auglýsingu Yfirverð borgað fyrir eigið fé bankans Stjórnarformaður Margeir Pét- ursson stjórnar stjórninni. STJÓRNIR SPRON, Byrs og Spari- sjóðs Keflavíkur ákváðu á fundum sínum fyrir jól að halda viðræðum áfram um sameiningu sparisjóð- anna. Þá hafði endurskoðunarfyr- irtækið KPMG lagt fyrir stjórnirnar greinargerð þar sem lögð voru fram drög að samrunareikningi. Í því felst að setja efnahagsreikning sparisjóð- anna á samanburðarhæft form svo hægt sé að meta framlag hvers og eins þeirra til samrunans. Tekið er tillit til eigna og rekstrar sjóðanna. Ragnar Z. Guðjónsson, spari- sjóðsstjóri Byrs, býst ekki við að þessi vinna klárist fyrir áramótin. Málið sé flókið og það eigi eftir að ganga frá samningum við erlenda lánardrottna. Ríkið er tilbúið að leggja spari- sjóðum í traustum rekstri til 20% af eigin fé. Ragnar segir að viðræður við ríkið séu ekki hafnar. Viðræður munu halda áfram í dag og á morg- un. Í framhaldinu muni ríkið koma að borðinu. bjorgvin@mbl.is Samein- ing rædd áfram Sameining sparisjóða óútkljáð fyrir áramót FORSETI Pakistans, Asif Ali Zar- dari, ekkill Benazir Bhutto, fyrr- verandi forsætisráðherra, og dóttir hans, Bakhtawar Bhutto Zardari, dreifa rósarblöðum á gröf Bhutto í tilefni af því að ár er liðið frá því að hún var myrt í sprengjutilræði. Ekkert lát er á ofbeldinu í landinu sem kostað hefur yfir 1.500 manns lífið á síðustu átján mánuðum. 36 manns biðu bana í sjálfsvígsárás ísl- amista í bænum Buner í gær. Reuters Ekkert lát á ofbeldinu ERLENT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.