Morgunblaðið - 29.12.2008, Síða 21
21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2008
atriðið hér er að móðurfélagið 365
hf. stefndi hraðbyri í gjaldþrot, ef
félagið hefði ekki getað staðið skil
á tæplega 1.500 milljón króna
greiðslu á gjalddaga 5. nóvember
2008. Gjaldþrot 365 hf. hefði valdið
öllum hlutaðeigandi miklum skaða,
ekki síst lánardrottnum. En við-
skiptabanki 365 hf. var ekki
reiðubúinn að lána félaginu þessa
upphæð. Hvar átti 365 hf. að fá
þetta fé? Úr varð að dótturfélag
365 hf., 365 miðlar, var selt út úr
móðurfélaginu til að afla fjár. Virði
365 miðla var metið á 5,9 milljarða
króna í samvinnu við viðkomandi
lánardrottin og Sýn ehf. greiddi
1.500 milljónir króna í reiðufé og
yfirtók 4,4 milljarða króna skuldir.
Öfugt við það sem stöðugt hefur
verið haldið fram opinberlega, þá
hafa engar skuldir verið afskrifaðar
í tengslum við þessi viðskipti. Unn-
ið er að því að fá fleiri hluthafa að
Sýn til að tryggja að eignarhaldið
verði áfram dreift.
Af öðrum félögum sem ég hef
haft afskipti af má nefna Teymi,
sem er móðurfélag fjölmargra fyr-
irtækja í fjarskipta- og upplýs-
ingatækni. Félag sem tengist mér
á 32% hlut í Teymi. Hjá Teymi og
dótturfélögum vinna um 1200
manns og rekstur félaganna hefur
gengið vel. Teymi hefur hins vegar
ekki farið varhluta af efnahags-
ástandinu og gengisfalli krónunnar
og á nú í viðræðum við kröfuhafa
félagsins um fjárhagslega endur-
skipulagningu.
Fjárfestingar í
fjármálafyrirtækjum
Ég var einn „götustrákanna“ í
Orca-hópnum sem keyptu ráðandi
hlut í Fjárfestingabanka atvinnu-
lífsins í ágúst 1999, gegn vilja
þeirra sem kenndir voru við Kol-
krabbann. Ég rek þá sögu ekki
frekar hér en vísa í greinaflokk
Agnesar Bragadóttur sem birtist í
Morgunblaðinu 2003, þar sem m.a.
sagði: „Það voru áhrifamenn í
banka- og viðskiptalífinu sem tóku
höndum saman, með vitund og
samþykki valdamikilla stjórnmála-
manna, til þess að koma í veg fyrir
að völd þau og áhrif, sem fylgja því
að ráða yfir mörgum tugum millj-
arða króna í eigu sjóða, banka og
almenningshlutafélaga, lentu í
höndum Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar…“ og fleiri aðila.
Nokkrum árum síðar, árið 2006,
tilheyrði ég hópi hluthafa FL Gro-
up sem eignaðist kjölfestuhlut í
Glitni. Haustið 2007 eignaðist FL
Group Tryggingamiðstöðina að nær
öllu leyti og í árslok eignaðist
Styrkur Invest, félag á mínum veg-
um, um 39% kjölfestuhlut í FL
Group.
Glitnir var almennt talinn vel
rekinn banki, eins og m.a.s. seðla-
bankastjóri hefur staðfest. Snemma
á þessu ári var ráðist í róttækar
sparnaðaraðgerðir sem m.a. höfðu í
för með sér fækkun starfsstöðva og
starfsmanna. Þessar sársaukafullu
aðgerðir voru nauðsynlegar. Mark-
visst var unnið að því að minnka
útlán bankans en töluverð mæld
aukning þeirra sl. ár skýrist nær
eingöngu af veikingu krónunnar.
Mörkuð var stefna um áherslu á
fjármálaverkefni á sviði sjávar-
útvegs og umhverfisvænnar orku.
Samanlagður hagnaður Glitnis árin
2005-2008 nam um 100 milljörðum
króna og eigið fé um mitt þetta ár
var um 200 milljarðar króna.
Glitnir varð því miður illa fyrir
barðinu á lausafjárkrísunni í haust.
Fyrirliggjandi lánalínur féllu óvænt
niður í september, m.a. vegna falls
Lehman Brothers og lántöku ís-
lenska ríkisins í þýskum banka, á
kostnað lánalínu Glitnis við sama
banka. Bankinn var því í vandræð-
um með að fjármagna rekstur sinn
þrátt fyrir að ekkert amaði að í
sjálfum rekstrinum. Mikilvægt er
að benda á að Glitnir hafði ekki
fjármagnað sig með erlendu sparifé
með stofnun erlendra innlánsreikn-
inga á ábyrgð íslenska ríkisins og
því falla ekki neinar háar fjárhæðir
á almenning í landinu vegna fjár-
mögnunar Glitnis.
Leitað var til Seðlabanka Íslands
þann 25. september sl. og lögð
fram óformleg beiðni um 600 millj-
ón evra lán, sem þá jafngilti 84
milljörðum króna, til þrautavara
gegn tryggum veðum að mestu í
erlendum fasteignum að verðmæti
upp undir 200 milljarða króna.
Seðlabankinn brá hins vegar á það
óvænta og afdrifaríka ráð aðfara-
nótt 29. september að taka yfir
75% af Glitni, á þeim forsendum að
80 milljarða lánveiting gegn veðum
væri algerlega ótæk. Að leggja
fram 80 milljarða hlutafé væri hins
mun betri kostur, en á það má
benda að lánardrottnar, ég tala nú
ekki um með veð í eignum, hafa
forgang á hluthafa ef til þrots kem-
ur.
Þessi mistök, hvernig sem á
þeim stóð, felldu íslenskt efnahags-
líf á nokkrum dögum. Allir for-
svarsmenn viðskiptalífsins sem veð-
ur höfðu af þessari aðgerð vöruðu
við afleiðingunum: Vanhugsuð yf-
irtaka Seðlabankans á Glitni myndi
senda röng skilaboð til erlendra
matsaðila og lánardrottna um að
styrkur íslensks fjármálakerfis
væri stórlega ofmetinn. Þetta kom
því miður allt á daginn: Lánshæf-
iseinkunnir hröpuðu, skrúfað var
fyrir erlendar lánalínur, sparifjár-
eigendur gerðu áhlaup á bankana
og þeir voru allir fallnir rúmri viku
síðar. Verðmæti eignarhlutar FL
Group í Glitni, sem var 138 millj-
arða króna virði um mitt ár 2007,
varð þar með að engu.
Í nóvember sl. birtust í Morg-
unblaðinu fullkomlega órökstuddar
ásakanir um að stærstu eigendur
Glitnis hefðu misnotað stöðu sína
og staðið fyrir ólögmætum og vafa-
sömum lánveitingum Glitnis til eig-
in félaga, ég hefði stofnað leyni-
félag o.s.frv. Ég heyri þessar
sögusagnir enn óma þrátt fyrir að
ég hafi strax leiðrétt þetta allt, það
hefði kannski hjálpað ef Morg-
unblaðið hefði birt athugasemdir
mínar. Ég vil því ítreka hér að ég
kom hvergi nærri hlutafélaginu
Stím og ég kom hvergi nærri
ákvörðunum um lánveitingar Glitn-
is. Þrjú af tíu stærstu fyrirtækjum
landsins, sem tengjast mér mis-
mikið, skulduðu samtals 2,7% af
heildarútlánum Glitnis, þriðja
stærsta banka landsins. Er eitt-
hvað athugavert eða óeðlilegt við
það?
FL Group
Líklega er FL Group umdeild-
asta fyrirtækið sem ég hef komið
nálægt. Ég vil halda því til haga að
ég stóð fyrir grundvallarbreytingu
á rekstri og stefnu FL Group frá
desember 2007 þegar Baugur lagði
54 milljarða fasteignasafn sitt inn í
FL Group og eignaðist þar með
ráðandi 39% hlut. Fram að því
hafði Baugur verið annar til fjórði
stærsti hluthafi félagsins og ég
hafði verið stjórnarformaður frá
júní 2007.
Þegar Baugur varð kjölfestufjár-
festir FL Group fyrir ári lét for-
stjóri félagsins, sem jafnframt hafði
verið stærsti hluthafi FL í nokkur
ár, af störfum og áhættusækinni
fjárfestingastefnu félagsins, sem
skilað hafði miklum hagnaði fram-
an af en miklu tapi mánuðina á
undan, var gjörbylt. Áhersla var
lögð á færri og stærri langtíma-
fjárfestingar í fjármálageira og
fasteignum. Á þessum tíma var
strax hafist handa við að selja allar
skammtímafjárfestingar í skráðum
félögum og ennfremur allar fjár-
festingar í flugrekstri, sem verið
hafði þungamiðja í fjárfestingasögu
FL.
Síðastliðinn vetur voru m.a. seld-
ir eignarhlutir í American Airlines,
Finnair, Commerzbank og Aktiv
Kapital fyrir vel á annað hundrað
milljarða og með tugmilljarða tapi.
Þessi félög hafa síðan öll hrapað í
verði og tap FL væri helmingi
meira, upp undir 100 milljarðar
króna, ef ekki hefði verið selt. Ég
get ekki betur séð en FL Group
hafi verið eina félagið á Íslandi sem
hóf stórfellda eignasölu fyrir um
ári síðan til að bregðast við því
ástandi sem var á mörkuðum. Það
hefðu fleiri aðilar betur gert. Ég
stóð líka fyrir því að skera rekstr-
arkostnað FL Group, sem sætt
hafði gagnrýni, niður um 50% og
gekk það eftir.
Tap FL Group, samhliða ofan-
greindri sölu eigna og lækkunar
verðmætis stærstu eignar félagsins
í Glitni, nam 67 milljörðum árið
2007 og 59 milljörðum á fyrri hluta
árs 2008. Félaginu tókst semsagt
að standa af sér 126 milljarða tap á
18 mánaða tímabili því eigið fé FL
Group um mitt ár 2008 var enn 87
milljarðar króna. Virtist félagið þá
vera komið fyrir vind. Félaginu
öllu, eignum þess og stefnu, hafði
verið gjörbreytt á hálfu ári og tekið
var upp nýtt nafn, Stoðir, til að
undirstrika umbreytinguna frá
áhættusæknu fjárfestingafélagi í
varfærið eignarhaldsfélag.
Þjóðnýting og fall Glitnis setti
hins vegar fjárhagsstöðu Stoða í
uppnám enda hvarf skyndilega
langstærsta eign félagsins úr bók-
um þess. Stoðir fóru í greiðslu-
stöðvun í október og unnið er að
því að leysa úr stöðu félagsins á
sem hagstæðastan máta fyrir lán-
ardrottna. Vaxtaberandi skuldir
Stoða skv. bráðabirgðauppgjöri
námu í lok september 204 millj-
örðum króna, þar af voru skuldir
við innlendar lánastofnanir um 167
milljarðar króna. Eignir voru þá
metnar meiri en skuldir en ljóst má
vera að verðmæti þeirra hefur
minnkað verulega síðan.
Ég gengst alveg kinnroðalaust
við verkum mínum í FL Group eft-
ir að ég eignaðist ráðandi hlut í fé-
laginu. Þar voru gerðar róttækar
breytingar til bóta í fjárfestingum
og rekstri. Stjórn, stjórnendur og
starfsmenn Stoða börðust eins og
ljón við erfiðar aðstæður. En náð-
arhöggið var yfirtaka og fall Glitn-
is.
Hver er mín ábyrgð?
Á 20 ára viðskiptaferli hef ég
alltaf þurft að hafa fyrir hlutunum.
Ég átti þátt í að brjóta á bak aftur
úrelta viðskiptahætti á sínum tíma
og lækka vöruverð í landinu. Ég
átti líka minn þátt í því að rjúfa
áratuga einokun helmingaskipta í
viðskiptalífinu. Ég hef staðið vörð
um fjölbreytni í fjölmiðlum landsins
í samkeppni við aðra einkamiðla og
ekki síst ríkismiðlana. Félög að
hluta til í minni eigu höfðu mikið
fyrir því að kaupa kjölfestuhlut í
Glitni á frjálsum markaði á meðan
aðrir fengu banka á silfurfati frá
ríkinu. Ég hef byggt upp, rekið og
fjárfest í nokkrum af stærstu fyr-
irtækjum landsins sem veita þús-
undum manna atvinnu á Íslandi og
tugþúsundum erlendis. Fyrirtæki í
minni eigu hafa greitt tugi millj-
arða í opinber gjöld á Íslandi, og
sjálfur hef ég ávallt greitt mína
skatta hér en ekki erlendis. Fyr-
irtæki sem tengjast mér, svo sem
Baugur og Stoðir, hafa líka sýnt
samfélagslega ábyrgð í verki með
þátttöku og fjárframlögum upp á
marga milljarða til ótal mannúðar-
og menningarverkefna. Þessu öllu
er ég stoltur af og tel að með þessu
hafi ég sinnt hluta af minni ábyrgð
sem íslenskur ríkisborgari.
Með því að telja þetta upp er ég
ekki að setja upp neinn geislabaug.
Í rekstri allra fyrirtækja sem ég
hef komið nálægt hef ég gert kröfu
um hagnað. Og þó dæmin sýni að
það hefur ekki alltaf gengið upp
eru jákvæðu dæmin mun fleiri. En
maður hagnast ekki nema fólki sé
boðin góð vara og þjónusta á góðu
verði. Með útsjónarsömum rekstri
hafa bæði fyrirtækin og viðskipta-
vinirnir hagnast. Ég hef lagt hart
að mér og uppskorið samkvæmt
því. Það er ekkert launungarmál að
ég hef hagnast ágætlega síðustu 20
árin en sá hagnaður er reyndar að
miklu leyti horfinn núna.
Það er hins vegar hrein fjar-
stæða að ég beri ábyrgð á að hafa
upp á mitt eindæmi fellt íslenska
fjármálakerfið eins og fjölmargir
halda fram. Einn þeirra, prófessor
sem einnig situr í bankaráði Seðla-
bankans, ritaði t.d. grein um dag-
inn um ástæður íslenska efnahags-
hrunsins og nefndi nafn mitt 14
sinnum en talaði lítið sem ekkert
um aðgerðir eða aðgerðaleysi rík-
isstjórna og Seðlabankans, sem
lögum samkvæmt bera ábyrgð á
efnahagsstjórninni. Í þessu sam-
hengi er mikið notaður frasinn um
að bankarnir hafi „lánað einum
manni þúsund milljarða“, sem
væntanlega á að útskýra hvernig
ég setti Ísland á hausinn.
Eins og komið hefur fram námu
heildarlánveitingar íslenskra fjár-
málastofnana til þeirra þriggja
stóru félaga sem tengjast mér
(Landic Property, Stoða og Baugs)
um 430 milljörðum um mitt þetta
ár. Lánin eru tryggð með veðum
og tilkomin vegna fjárfestinga í
margs konar eignum, að mestu
fasteignum og ýmsum rekstarf-
yrirtækjum. Þó við bætum við öðr-
um smærri fyrirtækjum eins og
Högum, Teymi, 365 og Gaumi þá
ná menn ekki að toga innlendar
skuldir fyrirtækja sem tengjast
mér upp fyrir 5-6% af heildarút-
lánum íslenskra fjármálastofnana.
Þetta eru mörg af stærstu fyr-
irtækjum landsins sem veita þús-
undum fólks atvinnu. Ég á ekki
þessi félög einn, eignaraðild mín og
tengdra félaga í þessum fyrir-
tækjum er á bilinu 20-70%. Þús-
undir annarra hluthafa eiga þessi
fyrirtæki líka, og samanlagt stærri
hluta en félög sem tengjast mér.
Gleymum ekki heldur að eignir fyr-
irtækjanna voru um þriðjungi meiri
en heildarskuldirnar og þau voru í
skilum með öll sín lán áður en allt
kerfið hrundi í haust.
Heildareignir stóru bankanna
þriggja um mitt þetta ár voru um
14.500 milljarðar og skuldir þeirra
námu tólf-faldri þjóðarframleiðslu.
Samanlögð útlán bankanna þriggja
til viðskiptavina, innanlands sem
utan, voru 9.300 milljarðar króna
um mitt þetta ár. Gefum okkur að
ég hefði verið þeirrar skoðunar
fyrr á þessu ári að mikil hætta
væri á að íslenskt efnahagslíf
hryndi af mínum völdum og ég
þyrfti að bregðast við með að selja
allar mínar eignir og greiða allar
mínar skuldir. Hverju hefði það
breytt? Hefði ég getað „bjargað“
íslensku efnahagslífi með því? Við
getum orðað það öðruvísi: Voru
ofangreindar skuldir, nokkur pró-
sent af heildarkerfinu, ástæða
vandræða okkar nú og ég þar með
sekur um landráð eða stórfellda
efnahagsglæpi?
Hversu mjög sem ég leita í huga
mér að slíkri ábyrgð þá finn ég
hana ekki. Og vonandi ekki aðrir
þeir sem horfa á þessar stað-
reyndir af yfirvegun. Vissulega eru
mörg fyrirtæki sem tengjast mér í
vanda þessa dagana, eins og nær
öll fyrirtæki í landinu. En það er
afleiðing af hruni efnahagslífsins,
ekki orsök þess. Bankarnir hrundu
yfir fyrirtækin, ekki fyrirtækin yfir
bankana.
Ástæðurnar fyrir vanda íslensku
bankanna voru þessar: Laust fé á
millibankamarkaði þurrkaðist upp
á nokkrum mánuðum vegna mestu
efnahagskreppu allra tíma á heims-
vísu. Seðlabankar um allan heim
hafa stutt við bankakerfi sín en á
Íslandi var annað uppi á ten-
ingnum. Vegna stærðar bankanna í
samanburði við hagkerfið, vegna
ónýtrar myntar og allt of lítils
gjaldeyrisforða hafði Seðlabankinn
takmarkaða getu til að sinna hlut-
verki sínu, sem sagt að sjá bönk-
unum fyrir skammtímafjármögnun
og úrræðum til að bankakerfið
gæti staðið þetta af sér, með einum
eða öðrum hætti. Og eigendur allra
bankanna þriggja höfðu ekki fjár-
hagslega burði til að auka hlutafé
bankanna eftir erfiða tíma og mikla
ágjöf misserin á undan, líkt og
raunin hefur verið víða erlendis.
Staða bankanna var því viðkvæm
í haust. Mistök Seðlabankans, með
ríkisstjórnina í eftirdragi, í mál-
efnum Glitnis hleyptu síðan öllu í
bál og brand. Svokallaðar „björg-
unaraðgerðir“ settu í gang keðju-
verkun sem nær öll íslensk fyr-
irtæki urðu fyrir;
lánshæfiseinkunnir hröpuðu, verð-
mæti eigna féll, krónan hrundi,
skuldir hækkuðu, fjármögnun var
felld niður og eigið fé fyrirtækj-
anna gufaði upp á skömmum tíma.
Nú getur enginn sagt til um það
hvort höggið hefði orðið miklu
minna ef Seðlabankinn hefði sinnt
lögbundinni skyldu sinni og unnið
með Glitni og hinum bönkunum að
mjúkri lendingu, t.d. samruna
banka, í stað þess að brjóta allt og
bramla eins og fíll í postulínsbúð.
En þetta hefði alla vega ekki getað
farið verr. Ég bendi á að menn
höfðu næstum þrjár vikur þegar
Glitnir leitaði til Seðlabankans,
hinn afdrifaríki gjalddagi Glitnis
var 15. október. Sá tími var ekki
nýttur. Ég ber ekki ábyrgð á því.
Icesave-deilan bætti svo enn
gráu ofan á svart. En ég ber ekki
ábyrgð á því að hafa stofnað til
innlánsreikninga í útlöndum á
ábyrgð íslenskra ríkisins og þar
með skattgreiðenda. Og ekki ber
ég ábyrgð á klúðri Seðlabankans,
sem hefði getað komið Icesave-
reikningunum í breska lögsögu
þann 6. október. Ég ber ekki held-
ur ábyrgð á því að hafa hleypt
bankakerfinu í tólf-falda stærð hag-
kerfisins, án þess að nauðsynlegt
öryggisnet væri til staðar. Og ég
ber ekki ábyrgð á efnahagsstjórn-
inni síðustu áratugi. Ég ber ekki
ábyrgð á því að við höfum, að því
er virðist af eintómri þrjósku og
þráhyggju, haldið í minnstu mynt í
heimi sem enginn vill kaupa og all-
ir vilja selja. Ég ber ekki ábyrgð á
því að hafa fellt krónuna með því
að taka stöðu gegn henni. Og ég
ber ekki ábyrgð á því mikla tjóni
sem fyrirtækin í landinu og skatt-
greiðendur hafa orðið fyrir síðustu
þrjá mánuðina vegna þess að bank-
arnir hafa lítið sem ekkert gert
fyrir fyrirtækin.
Minn viðskiptaferill hefur ein-
kennst af sókn. Ég hef byggt upp
mín fyrirtæki af miklu kappi, í
samræmi við leikreglur. En enginn
er óskeikull og þegar ég lít til baka
yfir mína viðskiptasögu sé ég mörg
mistök. Í sumum tilvikum fór ég of
geyst og fjölmiðlaútrásin, Nyheds-
avisen-ævintýrið, er til dæmis um
það. Þegar ég horfi á stöðu Stoða í
dag er auðvelt að dæma þá fjár-
festingu sem mistök. Þegar ég lít
yfir völlinn viðurkenni ég að hafa
almennt lagt of mikla áherslu á
sóknina og gætt ekki nægilega vel
að vörninni. Þar liggur mín ábyrgð
og afleiðingar hennar axla ég.
Hvernig axla ég mína ábyrgð?
Ég hef ekki nefnt hið pólitíska
andrúmsloft sem hér hefur ríkt
mörg undanfarin ár. Enda skiptir
það mig minnstu máli. Ég er ekki í
pólitík og hef aldrei verið. Ég hef
ekki farið fram á sérmeðferð eða
vinargreiða af hálfu ríkisvaldsins,
aðeins sanngjarnar leikreglur á
markaði þar sem allir eru jafnir.
En saga pólitískra afskipta er
eins og hún er, og hennar virðist
enn gæta í því uppgjöri sem nú fer
fram. Í umræðum ber á þreytu yfir
endalausu fjasi um þessa kóna tvo,
mig og seðlabankastjóra, og það er
skiljanlegt. Sumir hafa meira að
segja beðið okkur tvo vinsamlegast
að gefa þjóðinni frí og hverfa af
vettvangi, seðlabankastjóra með því
að segja af sér og mig með því að
selja eignir mínar hér á landi og
hverfa af landi brott.
Mér þykir leitt ef ég veld ein-
hverjum vonbrigðum en þá fyrst
skoraðist ég undan ábyrgð ef ég
hætti afskiptum af fyrirtækjum
mínum. Í sumum tilfellum hef ég
varið 20 árum í að byggja þessi
fyrirtæki upp, sem nú eru í mikilli
óvissu. Það hefur aldrei verið
brýnna að ég beiti mér af fullu afli
í því að styrkja stöðu þeirra og
verja atvinnu þeirra sem þar starfa
og þau verðmæti sem í þeim felast.
Í því liggja ekki bara mínir hags-
munir og starfsmanna fyrirtækj-
anna, heldur einnig hagsmunir lán-
ardrottnanna. Ég trúi líka að það
skipti miklu máli fyrir uppbygg-
ingu og orðspor Íslands að vel rek-
in fyrirtæki á erlendri grundu, sem
skila af sér um 60 milljörðum
króna í EBITDA á ári í erlendri
mynt, séu áfram í eigu og undir
stjórn Íslendinga.
Framundan er mikið starf við að
endurreisa íslenskt efnahagslíf og
endurheimta tiltrú og traust á al-
þjóðlegum mörkuðum. Ég hyggst
taka þátt í því starfi af fullri einurð
og jafnvel svolitlu af þeirri harð-
drægni sem ég hef tamið mér í við-
skiptum.
Þannig axla ég mína ábyrgð.
Aðrir meta svo hvernig þeir axla
sína.