Morgunblaðið - 29.12.2008, Page 22
22 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2008
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Hér er þó nokkur hrútastemning,“ segirfiðluleikarinn Hjörleifur Valsson þeg-ar hann mætir á æfingu hjá Drengja-
kór Sjóvár þar sem jólalögin eru æfð fyrir há-
tíðarsamveru fyrirtækisins á aðventunni.
Hjörleifur mundar fiðluna og spilar undir
ásamt hljómborðsleikaranum Helga Má Hann-
essyni og söngur og tónlist renna saman í töfra
sem gleðja hlustir.
„Fólk gerir sér ekki grein fyrir hvílíkt kon-
fekt það á í vændum á jólahátíðinni á eftir,“
segir stjórnandinn Jón Karl Einarsson sem er
óspar á hrósið þótt hann geti líka verið strang-
ur. Hann stoppar strákana hiklaust í miðjum
söng ef hann er ekki ánægður. „Þeir eru ekki á
nagladekkjunum bassarnir í þessu lagi,“ segir
hann kannski og lagar til það sem þarf. „Þetta
eru sko fínir strákar, alveg ekta drengjakór.
Ég var ráðinn sem kynnir en svo komust þeir
að því að ég gæti líka stjórnað og þá réðu þeir
mig sem stjórnanda,“ segir hinn spaugsami
Jón Karl. Formaður Drengjakórsins, Lárus H.
Lárusson, áréttar skemmtanagildi kórstjór-
ans.
„Jón Karl er ekki síður skemmtikraftur en
stjórnandi, hann var til dæmis aðalskemmti-
atriðið á árshátíðinni okkar. Þar sló hann al-
gerlega í gegn og reytti af sér brandarana.
Hann var ígildi góðs skemmtiatriðis. Við nýt-
um semsagt hvern mann og hverja gleði til
fulls.“
Miklar inntökukröfur
Drengjakór Sjóvár er þríradda kór, þar inn-
anborðs eru karlar sem syngja fyrsta tenór,
annan tenór og svo auðvitað líka bassar. Engan
meting segja þeir vera á milli radda, en einhver
úr bassahópnum tekur þó fram að reyndar séu
tenórarnir eitthvað að blása sig út en það liggi
alveg fyrir hverjir séu bestir. Meðlimir eru að-
eins sautján en þeir segjast ekki vera fleiri af
því að það séu gerðar svo miklar inntökukröf-
ur, en þessari fullyrðingu fylgir mikill hlátur,
enda eru þetta allt leikmenn og aðeins einn að-
ili syngur í öðrum kór, sjálfum Mótettukór
Hallgrímskirkju. „Hann rétt slapp inn í
Drengjakórinn. En ástæðan fyrir því hversu
fáir við erum er líka sú að hér í Sjóvá eru konur
um 60% starfsmanna, þannig að við í kórnum
erum ótrúlega stór hluti af karlkyns starfs-
mönnum.“ Og þeir segja að það liggi í augum
uppi hvers vegna þeir séu drengjakór en ekki
karlakór. „Við erum svo ungir í anda. Við vilj-
um halda í æskuna og þess vegna völdum við
nafnið Drengjakórinn. En það kom fram tillaga
um að við ættum að heita Karlakórinn Brestir
og það hafði eitthvað með tjónadeildina að
gera, en sú tillaga fékk ekki brautargengi.“
Byrjaði sem grín
Ekki eru þeir aðeins ungir í anda þessir
söngglöðu piltar, heldur er kórinn þeirra líka
mjög ungur, hann er ekki einu sinni orðinn eins
árs.
„Fyrsta formlega æfingin var 15. janúar á
þessu ári. En þetta byrjaði sem eitthvert grín á
jólagleðinni í fyrra, þá vorum við örfáir sem
sungum afmælissöng fyrir eina starfssystur
okkar. Síðan bættist í hópinn og við sungum
minni kvenna á konudaginn og tókum líka lagið
á árshátíðinni. Það var hlegið að okkur í byrjun
en nú fara væntingar starfsmanna til okkar sí-
fellt vaxandi. Við finnum fyrir meiri tilfinn-
ingum en áður þegar við syngjum, það er ekki
spurning,“ segja þeir og hláturgusa fylgir
þessari fullyrðingu. Þetta er augljóslega mikill
gleðikór, þótt hann sé metnaðarfullur. „Við æf-
um hér í vinnunni tvisvar í viku þegar mikið er
framundan og við förum í alveg sérstakan
matrósabúning þegar við komum fram við hin
ýmsu tilefni.“
Sungu í New York
Lárus Lárusson, formaður kórsins, segir
það fyrst og fremst skemmtilegt að vera í
kórnum. „Þetta hefur haft gríðarlega góð áhrif
á andann innan fyrirtækisins, þetta tengir
menn saman sem eru að vinna á ólíkum deild-
um. Svo gerum við ýmislegt annað saman en að
syngja. Drengjakórinn heldur að sjálfsögðu að-
alfund með tilheyrandi og einnig koma með-
limir saman á sérstöku þorrablóti kórsins. Við
förum líka í æfingaferðir. Þetta er frábær
skemmtun í alla staði að vera í þessum kór. Og
við syngjum ekki aðeins innan Sjóvár. Við höf-
um sungið nokkrum sinnum í Oddfellowhúsinu,
til dæmis á jólafundi nýlega. Við sungum í New
York-borg í haust í starfsmannaferð Sjóvár og
þá tókum við auðvitað New York-lagið sem Si-
natra er hvað frægastur fyrir. Það vakti gríð-
arlega lukku allra viðstaddra. Við ætlum líka
að syngja á Hrafnistu fyrir gamla fólkið eftir
áramótin.“
Syngjandi drengir í Sjóvá
Morgunblaðið/Kristinn
Kátir Strákarnir í Drengjakórnum láta sér aldrei leiðast og þeir hentu Jóhanni Eyjólfssyni félaga sínum hátt í loft upp í Háteigskirkju að afstaðinni hátíðarsamveru, þar sem þeir sungu.
Nokkrir „strákar“ sem starfa hjá
Sjóvá hafa stofnað drengjakór
og þeir nýta hvern mann og
hverja stund til að gleðjast,
hvort sem það eru jól, konudag-
ur eða annað tilefni.
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | „Líkt og með hönn-
un mína legg ég áherslu á að vef-
urinn sé stílhreinn og einfaldur. Ég
hef þegar fengið góð viðbrögð við
honum,“ sagði Fjóla Þorkelsdóttir
gullsmiður í samtali við blaðamann
en hún opnaði nýlega vefinn skart.is.
Viðskiptavinir geta pantað vörur á
vefnum eða sent inn fyrirspurn.
Fjóla er fædd og uppalin í
Keflavík, yngst úr 9 manna
systkinahópi sem er mjög
listrænn, að sögn Fjólu.
Hún sagði þó að gullsmíðin
hefði ekki verið gamall
draumur. „Eins og svo
margir í fjölskyldunni hafði
ég gaman af því að skapa.
Ég var mikið að gera skart-
gripi úr annars konar efni en
ég er að vinna með núna, eðalmálm-
um. Á ákveðnum tímapunkti fann ég
að ég þyrfti að vinna með höndunum
og leitaði eftir því.“
Fjóla flutti til Ísafjarðar 17 ára
gömul og kláraði verslunarpróf frá
Menntaskólanum á Ísafirði og hóf
síðan nám í grunndeild
málmiðnaðar við Iðn-
skólann á Ísafirði. Fjóla
fluttist síðan til Reykja-
víkur og lauk námi í
hönnun við Iðnskólann í Hafnarfirði.
Hún sagði hvort tveggja hafa verið
góðan grunn fyrir gullsmíðanámið og
fékk fyrir vikið hluta námsins metinn
inn í bók- og verklega hlutann. „Ég
náði námssamningi í gullsmíði hjá
Dýrfinnu Torfa á Ísafirði en vegna
lögverndunar greinarinnar þá er erf-
itt að fá námssamning í gullsmíði.“
Myndverk nýjasta nýtt
Fjóla hefur mótað sér sinn eigin
stíl þó hún segist alltaf vera leitandi.
„Ég nota mikið náttúruna og hef
mikinn áhuga á því að tengja hönnun
mína stjörnukerfum.“
Þá hugmynd hefur Fjóla bæði þró-
að í skartgripunum en ekki síður í
myndverkum sem hún hefur verið að
prófa sig áfram með. „Í grunninn
nota ég mdf-plötur sem ég mála með
akrýl. Silfrið nota ég í landslagið og
zirkon-steinar mynda stjörnukerfi
eða merki.“
Um hálsinn ber Fjóla hálsmen
sem minnir á stjörnur á dökkum
himni. Af öðrum náttúruáhrifum má
nefna fjörusteinsmynstur sem finna
má í nýrri skartgripalínu.
Með opnun heimasíðu vill Fjóla
víkka markaðssvæðið og í gegnum
vefinn getur fólk séð, skoðað og
pantað vörur og fengið sendar beint
heim að dyrum.
Auk eigin skartgripa er þar úrval
gjafavara og skartgripa sem keyptir
eru frá útlöndum.
Sækir áhrif
í náttúruna
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Stjörnukerfi úr zirkon steinum Fjóla með nýjustu útfærslu sína,
landslagsmyndir þar sem silfurgripir mynda landslagið en zirkon
steinar stjörnukerfin.
Armband með fjörusteins-
mynstri sem er einnig meðal
nýjunga í hönnun Fjólu.
Armband
og hringur.