Morgunblaðið - 29.12.2008, Page 25
25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2008
Mótmælastaða Ungir sem aldnir tóku sér stöðu á mótmælafundinum á Austurvelli á þriðja degi jóla. Umferðarmerkin fengu nýja merkingu.
G. Rúnar
Ómar Ragnarsson | 28. desember 2008
Frá því í barnsminni
Ég var sjö ára gamall þeg-
ar ég áttaði mig fyrst á
hinum grimma veruleika
stríðs þegar dag eftir dag
bárust fréttir af hryðju-
verkum Gyðinga og óöld-
inni í Palestínu, sem náði
hámarki með morðinu á Bernadotte
greifa, sendimanni SÞ. Þessar fréttir
vöktu mér ótta en faðir minn reyndi að
sefa hann. 60 árum síðar er hins vegar
ástæða til að fólk sé óttaslegið um víða
veröld því að púðurtunnan við botn Mið-
jarðarhafs ógnar heimsfriðnum.
Ég man að faðir minn átti erfitt með
að útskýra fyrir mér að vegna þess að
Gyðingar hefðu hrökklast frá Palestínu
fyrir nær 1800 árum teldu þeir sig hafa
rétt til að stunda hryðjuverk til að stofna
þar eigið ríki á grundvelli loforða Guðs
almáttugs og reka burtu það fólk, sem
þar hefði búið í allan þennan tíma.
Á árunum á undan höfðu 14 milljónir
manna af þýskum ættum verið fluttar
burtu í Evrópu í refsingarskyni fyrir út-
þenslustefnu nasista. Á mörgum þess-
ara svæða höfðu þýskættaðir menn búið
öldum saman.
Meira: omarragnarsson.blog.is
Einar Sveinbjörnsson | 27. desember
Ísafjörður á toppnum
Hið öfugsnúna veðurlag
nú á milli jóla og nýárs
hefur það í för með sér að
hitastigið hér á landi
verður afar sérkennilegt í
samanburði við ýmsa
staði sunnar í Evrópu.
Kl. 18 voru 10°C á Ísafirði. Á sama
tíma mátti fara alla leið suður til Barce-
lóna til að finna hærra hitastig en var á
Ísafirði, eða 11°C. Ívið kaldara var í Róm,
en svipaður hiti í Aþenu, en litlu hlýrra á
Krít og Sikiley. Miklu kaldara var hins
vegar í Mið-Evrópu. Frostið 1 stig í París
og 9 stig í Ehrfurt í miðju Þýskalandi.
Hver hefði trúað því að hitinn kæmist í
7,5°C norður á Jan Mayen á þessum árs-
tíma ? Slíkt er hins vegar raunin!!
Meira: esv.blog.is
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson | 28. des.
Vonandi minni mengun
Minni flugeldasala merkir
vonandi að það verði
minni loft- og hljóð-
mengun um áramótin,
auk þess sem vonandi
verður þá líka minna drasl
úr flugeldum eins og hrá-
viði um alla þéttbýlisstaði landsins. Loft-
mengun er hættuleg öllu fólki, verst þó
fólki með öndunarfærasjúkdóma, og
hljóðmengun kemur verst niður á dýrum,
hvort heldur er hestum eða húsdýrum
sem skilja ekki hvað er á seyði. Ég vona
líka að minni flugeldasala leiði til þess að
hugað verði sérstaklega að tekjugrunni
björgunarsveitanna sem gegna svo mik-
ilvægu hlutverki í öryggiskerfi í landinu.
Meira:
ingolfurasgeirjohannesson.blog.is
UMRÆÐAN um hugsanlega
aðild Íslands að Evrópusam-
bandinu er nú á fullu og er það
af hinu góða. Gallinn við þessa
umræðu er hins vegar sá fjöldi
gróusagna og misskilnings sem
er í gangi varðandi breytingar á
íslensku þjóðfélagi og efnahags-
umhverfi ef við myndum ganga í
þetta bandalag vinaþjóða okkar
í Evrópu. Margir einstaklingar
hafa ruðst fram á ritvöllinn og
halda fram ýmsum stað-
reyndum sem eiga sér litla eða enga stoð í
raunveruleikanum.
Lífseigasta flökkusagan er sú að við aðild
myndu miðin við Ísland fyllast af erlendum
togurum. Önnur saga er sú að við inngöngu í
ESB myndi atvinnuleysi sjálfkrafa aukast
mikið hér á landi. Þetta hefur verið marg-
hrakið í bæði ræðu og riti. Samt sem áður
dúkka þessar sögur upp hvað eftir annað og
nú síðast í ummælum nýs for-
manns LÍÚ. Ekki veit ég hvort
þessi ummæli formannsins eru
byggð á vanþekkingu eða vísvit-
andi blekkingum en það breytir
ekki þeirri staðreynd að hægt er
gera þær kröfur til forystu-
manna hagsmunasamtaka að
þeir kynni sér málin áður en þeir
halda slíkum sleggjudómum
fram.
Einn andstæðingur aðildar
hélt því til dæmis blákalt fram í
blaðagrein í Morgunblaðinu fyrir
skömmu að Evrópusambandið
myndi sölsa undir sig vatnsbirgðir þjóð-
arinnar og flytja þær út í gömlum olíuskipum!
Mann setur hljóðan við svona bull en það er
greinilegt að við Evrópusinnar þurfum að
herða okkur í að fræða almenning í landinu
betur um hvað aðild þýðir raunverulega fyrir
Ísland og Íslendinga.
Andstæðingar aðildar hafa til dæmis haldið
því fram að Ísland myndi glata rétti sínum til
að halda úti sjálfstæðri utanríkisstefnu. Með-
al annars hefur Ragnar Arnalds haldið því
fram að Íslendingar gætu til dæmis ekki sótt
um að verða fulltrúar í Öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna. Hann gat reyndar ekki svarað
því af hverju Austurríkismenn, sem eru í Evr-
ópusambandinu, gátu keppt við Íslendinga
um það sæti! Þessi réttur ESB ríkja er kirfi-
lega negldur niður í Lissabon-sáttmálanum.
Þeim sáttmála hefur reyndar verið í beitt í
umræðunni og er dálítið kostulegt að heyra
útlistanir sjálfskipaðra sérfræðinga á hvað
sáttmálinn þýðir í raun og veru. Flestir þess-
ara „sérfræðinga“ hefðu haft gott af því að
hlusta á Högna Kristjánsson, yfirmann Evr-
ópuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, á fundi
Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins rétt fyrir
jól. Í máli Högna kom fram að sáttmálanum
er fyrst og fremst ætlað að straumlínulaga
stjórnkerfi sambandsins og formgera breyt-
ingar á því sem í raun og veru hefur átt sér
stað í gegnum árin.
Það eru því tilmæli til allra þeirra sem taka
þátt í ESB-umræðunni að þeir setji sig inn í
málefnið áður en þeir halda fram órök-
studdum fullyrðingum og bábilju. Töluvert
efni er til á netinu, meðal annars á heimasíð-
um forsætisráðuneytisins, utanríkisráðuneyt-
isins, Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst
og Samtaka iðnaðarins. Einnig er efni á
heimasíðum Framsóknarflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins. Það eru því allar forsendur
til að halda Evrópuumræðunni á málefnalegu
plani en ekki með órökstuddum sleggjudóm-
um.
Eftir Andrés Pétursson » Það eru allar forsendur til
að halda ESB-umræðunni
á vitrænu plani en ekki með
órökstuddum sleggjudómum
sem eiga sér enga stoð í raun-
veruleikanum.
Andrés Pétursson
Um rökleysur í ESB-umræðunni
Höfundur er formaður Evrópusamtakanna.
HINN 15. desember sl. hófst
daglegt beint flug yfir Taív-
anssundið milli Kína og Taívans.
Þetta var tímamótaviðburður sem
markar hápunkt friðarþróunar er
fór af stað þegar ný ríkisstjórn
tók við völdum á Taívan í maí sl.
Hvað hefur gerst síðan þá? Lýð-
ræðið á Taívan hefur styrkst í
sessi og um leið hefur landið orðið
að virkum friðarboða í Austur-
Asíu. Viðbrögð heimsbyggðarinnar
hafa að sama skapi verið jákvæð.
Sl. sumar hófust á ný viðræður milli sam-
vinnuráða Kína og Taívans sem lengi höfðu leg-
ið niðri. Nýja ríkisstjórnin hefur því staðið við
loforð sitt um að stuðla eftir mætti að friði í
þessum heimshluta.
Einkafyrirtæki hafa lengi átt í miklum við-
skiptum milli Taívans og Kína en skort hefur á
að þeim hafi verið fylgt eftir á hinu opinbera
sviði. Nú er orðið söguleg breyting þar á. Við-
ræður og sáttavilji marka nú sem aldrei fyrr
samskipti ríkjanna.
Í innsetningarræðu minni 20. maí sl. lagði ég
áherslu á þrjú megin stefnumið: Status quo, í
anda stjórnarskrár Lýðveldisins Kína (Taívan),
hvað varðar sameiningu ríkjanna; enga ögrandi
fyrirætlun um stofnun nýs, sjálfstæðs lýðveldis
á Taívan; og að vopnavaldi yrði ekki beitt til að
höggva á samskiptahnúta. Ég benti um leið á
að allir ynnu, en engir töpuðu, á
því að samskipti landanna yrði frið-
sælli en áður. Í anda þessara
stefnumiða hefur ríkisstjórn mín
reynt eftir mætti að draga úr
spennu milli landanna um leið og
hún hefur reynt að skapa Taívan
eðlilegt hlutgengi á alþjóðavett-
vangi.
Um þessar mundir er unnið að
efnahagslegum umbótum í frjáls-
ræðisátt sem tryggja eiga sam-
keppnisfærni Taívans. Ég vona að
þessar umbætur haldist í hendur
við hin bættu samskipti yfir Taív-
anssundið og festi í sessi efnahagslegan stöð-
ugleika á svæðinu.
Ný atrenna samningaviðræðna milli stjórn-
valda í Kína og Taívan hófst nú í nóvember. Að
þessu sinni var einblínt á efnahagssamvinnu og
frekari slökun spennu í vöru- og póstflutningum
milli landanna. Mikilsvert var að viðræðurnar
áttu sér stað á víxl á meginlandinu og á Taívan.
Það sýnir ákveðinn vilja hjá Kínverjum að
koma fram við Taívanbúa á jafnréttisgrundvelli.
Ef tryggja á áframhaldandi þíðu í samskipt-
unum þarf Kína að taka næstu skref með því að
láta af hernaðarógn sinni á hendur Taívan og
ljá landinu aukið rými innan alþjóðastofnana
(eins og áður hefur verið mælst til í Morg-
unblaðsgreinum). Við biðjum heimsbyggðina að
hvetja Kínverja til að draga til baka eldflaug-
arnar sem beint er að Taívan. Ógnarjafnvægi
er ekki það jafnvægi sem þessi heimshluti
þarfnast. Þess í stað þarf traust að ríkja milli
hernaðaryfirvalda í báðum löndum, sem aftur
dregur úr ógnarvá og leggur grunn að var-
anlegum friði.
Á nýlegum fundi fulltrúa Asíuríkja sem liggja
að Kyrrahafi (APEC) átti fyrrverandi varafor-
seti Taívans, Lien Chan, í uppbyggilegum við-
ræðum við fulltrúa frá meginlandinu um frekari
samvinnu á grundvelli APEC. Þær viðræður
lofa góðu og mæltust vel fyrir hjá öðrum fund-
argestum.
Bandaríkjaþing hefur nýlega áréttað vilja
sinn til að Taívan gæti öðlast merkingarbæra
aðild að stofnunum Sameinuðu þjóðanna svo
sem Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. Svipuð til-
mæli hafa einnig borist frá Japan, Kanada,
Ástralíu, Singapúr og Evrópuráðinu. Við skor-
um því á stjórnvöld á meginlandi Kína að hætta
að ýta Taívan til hliðar á alþjóðavettvangi. Við
erum sannfærð um að viðleitni í þá átt myndi
verða enn frekari friðarboði í þessum heims-
hluta.
Eftir Ma Ying Jeou » Við biðjum heimsbyggðina að
hvetja Kínverja til að draga
til baka eldflaugarnar sem beint
er að Taívan.
Ma Ying Jeou
Höfundur er forseti Lýðveldisins Kína (Taívan).
Friðarboði í Austur-Asíu
BLOG.IS