Morgunblaðið - 29.12.2008, Page 31

Morgunblaðið - 29.12.2008, Page 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2008 ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, TEITUR MAGNÚSSON skipstjóri, Kirkjulundi 8, Garðabæ, sem lést laugardaginn 20. desember, verður jarð- sunginn frá Garðakirkju þriðjudaginn 30. desember kl. 13.00. Guðný Sæmundsdóttir, Margrét Teitsdóttir, Jón Ásgeir Eyjólfsson, Magnús G. Teitsson, Erla S. Ragnarsdóttir, Oddný S. Teitsdóttir, Ari F. Steinþórsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, DAGBJÖRT HANNA JÓNSDÓTTIR, Silfurgötu 23, Stykkishólmi, lést á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi föstudaginn 19. desember. Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju í dag, mánudaginn 29. desember og hefst athöfnin kl. 14.00. Sigurður Amlin Kristjánsson, Guðrún Alma Sigurðardóttir, Rannveig Kristín Sigurðardóttir, Axel Garðar Hjartarson, Selma Rós Amlin, Svanur Jóhannsson, Guðmundur Jón Amlin, Lea Rakel Amlin, Sigmar Tryggvason og barnabörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, HJÖRLEIFS HAFLIÐASONAR, Rauðumýri 3, Akureyri. Sérstakar þakkir fær Heimahlynningin á Akureyri fyrir ómetanlega hjálp og alúð í veikindum hans. Júlíana Hinriksdóttir, Sigurður Hinrik Hjörleifsson, Sjöfn Ragnarsdóttir, Elísabet Hjörleifsdóttir, Guðmundur Heiðar Frímannsson, Hjörleifur Árnason, Þórhalla Sigurðardóttir, Kristján Sigurðsson, Lárus Arnór Guðmundsson, Þóra Sif Ólafsdóttir, Jóhann Guðmundsson, Valgerður Guðmundsdóttir og langafabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR HRAUNDAL, Hvassaleiti 56, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut laugardaginn 20. desember. Útförin verður frá Grensáskirkju þriðjudaginn 30. desember kl. 13.00. Pálína Hraundal, Sigrún Óskarsdóttir, Lúðvík Hraundal, Kristín Hraundal, Tryggvi Jónasson, Grétar Óskarsson, Steinunn Thorarensen, afabörn og langafabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, GUÐBJÖRN E. GUÐJÓNSSON fv. kaupmaður, Engjateigi 5, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju þriðjudaginn 30. desember kl. 13.00. G. Hafsteinn Guðbjörnsson, Maj-Britt Kolbrún Hafsteinsdóttir, Hilmar Guðbjörnsson, Sveinbjörg Einarsdóttir. múra var Björgvin frændi mættur til að redda málum og allt lék það í höndunum á honum. Okkur fannst ekki lítið sniðugt að fylgjast með frænda uppi í stiga að mála Heið- argerði, syngjandi hástöfum. Það átti sko enginn í hverfinu svona hressan frænda. Og þegar við svo komum í bæjarferðir suður til Reykjavíkur var alger skylda að koma við á Hjarðarhaganum. Allar fengum við systur einhvern tíma tækifæri til að gista á sumrin, nokkrar nætur í senn. Þá var nú stjanað við okkur á alla lund og margt skemmtilegt brallað. Krakk- arnir þeirra Björgvins og Guðrúnar spiluðu öll á hljóðfæri og dáðumst við ótakmarkað að þessu hæfileika- ríka frændfólki okkar. Björgvin frændi var mikilsmetinn kennari og átti þátt í gerð margra kennslubóka í skrift og lestri. Við erum ekki frá því að fyrstu stafina höfum við lært hjá honum á sínum tíma. Og flottari kort fékk maður ekki, en þau sem Björgvin hafði skrifað. Við vottum Guðrúnu, börnum þeirra og fjölskyldum, okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Björg- vins frænda. Inga, Brynja og Svandís. Skömmu fyrir jól lést góður vinur og vinnufélagi, Björgvin Jósteins- son, fyrrverandi yfirkennari við Æf- inga- og tilraunaskóla Kennarahá- skóla Íslands. Við áttum því láni að fagna að starfa náið með honum, fyrst sem kennarar undir stjórn hans og Jónasar Pálssonar skóla- stjóra og síðar sem stjórnendur skólans ásamt honum. Björgvin var okkur þó ekki ókunnur er við kom- um til starfa þar sem hann kenndi okkur ýmislegt í kennaranámi er laut að kennslu byrjenda, einkum um lestrar- og skriftarkennslu. Hann samdi ásamt Helgu Magnús- dóttur og Þóru Kristinsdóttur lestr- arbækur sem nutu vinsælda og enn eru notaðar. Þá átti hann drjúgan þátt í að móta og semja námsefni í skrift sem notað er í skólum lands- ins. Þar vann hann með Þóri Sig- urðssyni, námstjóra. Björgvin var snjall kennari og mikill fagmaður. Persóna hans lék þó stórt hlutverk í kennslunni. Það geislaði af honum og hann beitti ýmsum, að því er virtist léttvægum, ráðum til að halda börnum að verki og fá þögn ef á þurfti að halda. Hann rétti til dæmis upp og fram aðra höndina, lækkaði róminn og sagði „Eigum við öll að hlusta?“. Við reyndum að nota þetta í kennslu okkar en ekki með sama árangri. Kennsla er að öðrum þræði list. Þegar við tókum við stjórn skól- ans kynntumst við hve Björgvini lét vel að skipuleggja og leysa ýmis mál, auðveld og erfið, sem koma á borð skólastjórnenda. Þar gátum við margt lært. Hann var úrræðagóður og af alkunnri hreinskilni gat hann þess stundum við okkur að hann nennti ekki að flækja mál sem auð- veldlega mætti leysa. Nákvæmni og réttsýni einkenndu störf hans og aðdáunarvert hve auðveldlega hon- um tókst að sætta nemendur og aðra þá sem leituðu á hans fund. Nemendur þurftu stundum að heimsækja Björgvin á skrifstofuna, án þess beinlínis að óska þess sjálfir. Hann var ákveðinn við þá og sagði þeim kost og löst á framferðinu. Í lok þessara funda skildu jafnan báð- ir sáttir. Minnisstætt er þegar pilti varð á glappaskot og var boðaður á fund Björgvins. Bekkjarbræður hans réðu honum heilt og sögðu „þegar þú kemur inn til hans skaltu strax biðjast afsökunar og fara að grenja þá verður hann ekki reiður“. Þetta sýnir vel viðhorf nemenda, þeir treystu á umhyggju Björgvins. Auðvitað sá hann bragðið en málið fékk farsælan endi. Björgvin var glaðvær og átti gott með að slá á létta strengi. Þegar erf- ið mál biðu var stundum ákveðið að slá þeim á frest og taka þess í stað lagið. Það auðveldaði eftirleikinn. Þá voru oft sungin lög og textar úr ung- dæmi Björgvins á Stokkseyri. Þeim fylgdu gjarnan Stokkseyrarsögur. Átthagarnir voru honum afar kærir og heima hafði hann lært ógrynni söngva sem ekki eru á hvers manns vörum. Við grípum til sumra þeirra enn í dag. Við þökkum góðum dreng sam- fylgd og vináttu sem aldrei bar skugga á. Við færum Guðrúnu og fjölskyldunni allri innilegar samúð- arkveðjur frá okkur og konum okk- ar. Guðmundur B. Kristmundsson, Ólafur H. Jóhannsson. Við minnumst góðs vinar og fé- laga, Björgvins Jósteinssonar. Um langt skeið, líklega í rúm fjörutíu ár, hefur hópur starfsmanna tengdur gamla Kennaraskólanum, síðar Kennaraháskólanum, nú Menntavísindasviði Háskóla Ís- lands, leikið saman blak einu sinni til tvisvar í viku á veturna. Björgvin var um langt skeið burð- arásinn í þessu félagi. Hann var elst- ur í okkar hópi og hafði æft íþróttina lengur en við hinir. Alltaf var hann mættur fyrstur á æfingar og fáir mættu betur. Ekkert var því eðli- legra en að hann bæri titilinn For- seti blakfélagins og jafnframt að fé- lagið héti í höfuðið á honum: Blakfélagið Björgvin. Á búningi okkar er mynd af foringjanum! Með Björgvini áttum við ánægju- stundir innan vallar sem utan. Björgvin var frábær félagi, áhuga- samur um leikinn án þess að taka hann alltof hátíðlega, skemmtilegur, léttur og kátur. Það var gaman að vera með honum í liði. Hann var lág- vaxinn svo skellirnir (smössin) voru ekki margir, en þeim mun fleiri voru laumurnar, þegar blakmaðurinn kemur andstæðingi sínum að óvör- um með því að læða boltanum óvænt á svæði þar sem engar eru varn- irnar. Þetta gerði Björgvin oft eins og töframaður – liðsmönnum sínum til óblandinnar ánægju – og oft var þetta svo hugvitsamlega útfært að jafnvel andstæðingum var skemmt! Þessa list gat hann leikið jafnvel þó kominn væri nálægt áttræðu. Kveðjuleik sinn lék Björgvin með okkur skömmu eftir að hann varð áttræður. Þótt snerpan væri ekki söm og fyrr voru laumurnar jafn út- hugsaðar og áður og húmorinn fyrir leiknum leyndi sér ekki. Fyrir um fimmtán árum hafði blakhópurinn veg og vanda af því að koma upp gufubaði í kjallara íþróttahúss Kennaraháskólans. Þar höfum við átt saman margar góðar stundir. Þar var Björgvin í essinu sínu. Oft var sungið og Björgvin gjarnan forsöngvari enda kunni hann miklu fleiri lög og texta en við hinir og leiddi sönginn af mikilli inn- lifun og kátínu. Minnisstæð er ferð hópsins til Stokkseyrar haustið eftir að Björgvin var áttræður. Þá sýndi hann okkur stoltur æskustöðvar sín- ar og fræddi okkur og skemmti. Björgvin var ljúfmenni, hlýr og skemmtilegur og um leið einstak- lega hreinskiptinn og heiðarlegur. Það voru forréttindi að eiga samleið með honum. Hans verður sárt sakn- að en góðar minningar um þennan öðling munum við varðveita meðan við lifum. Eiginkonu hans og fjöl- skyldu sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Um leið þökkum við þá gæfu að hafa fengið að eiga hann að félaga og vini. Fyrir hönd vina í Blakfélagi Björgvins, Ingvar Sigurgeirsson. Þegar undirritaður setur gamall maður orð á blað til að minnast Björgvins Jósteinssonar, hvarflar hugurinn helst að samstarfi okkar í Æfinga- og tilraunaskóla KHÍ á 8. áratug síðustu aldar. Það var ómet- anlegt fyrir mig, viðvaning á vett- vangi daglegs skólastarfs, að Björg- vin féllst á beiðni mína að gegna starfi yfirkennara nokkru eftir komu mína að skólanum haustið 1971. Hann var þá viðurkenndur sem frábær kennari, einkum á sviði byrjendakennslu, og var fastráðinn æfingakennari við Kennaraskólann. Það sem skást hefur tekist í störf- um mínum að skólamálum á ég fyrst og síðast að þakka lángæfni minni að hafa fengið að njóta samvinnu og stuðnings svo margra fjölhæfra, skapandi og vandaðra manna, kvenna og karla. Þetta á ekki síst við um Æfingaskólann sáluga. Í huga mínum nú að leiðarlokum finnst mér Björgvin Jósteinsson fara einna fremstur í fylkingu þessa fólks sem ég á svo mikið gott upp að unna. Þar koma einkum til miklir hæfileikar Björgvins; hinn hvassi skilningur og rökfasta hugsun sem gerði honum auðvelt að sjá kjarna vandamáls og bregðast við skjótt og vafningalaust. Og hann var líka hreinskiptinn í persónulegum sam- skiptum, gat verið snöggur upp á lagið við ólátabelgi og yfirgangs- og ójafnaðarmenn á öllum aldri eða þreytandi rugludalla en raungóður og traustur vinur sinna skjólstæð- inga. Björgvin fór aldrei í mann- greinarálit eða hagræddi skoðunum sínum til að þóknast viðmælendum; sama hver í hlut átti. Það var sann- arlega ekki lítils um vert að eiga slíkan ágætismann fyrir helsta sam- starfsmann og ráðgjafa. Björgvin var listfengur í besta lagi. Hann hafði vafalaust að upplagi hneigð og hæfileika til að iðka tón- list, hefði hann átt kost á eða kosið að leggja slíkt nám fyrir sig, svo sem börn hans hafa gert með svo góðum árangri. Björgvin var tónvís og naut þess að taka lagið þegar tækifæri gafst. Og gleðimaður var Björgvin í góðra vina hópi. Og í vorferðum kennara í lok skólastarfs var sungið af mikilli innlifun og krafti svo að mér er enn minnisstætt. En Björgvini var margt fleira til lista lagt. Hann var lista-skrifari, nemandi og samstarfsmaður Guð- mundar I. Guðjónssonar, yfirkenn- ara Æfingadeildanna gömlu og fyrsta skólastjóra Æfingaskólans. Mig minnir að hann hafi í áratugi hreinskrifað skírteini allra kennara- nema við lokapróf þeirra. Þessi ná- kvæmnisverk vann Björgvin af ein- stakri kostgæfni og listfengi. Við Björgvin áttum saman marg- ar góðar stundir utan skólahúsanna á Rauðarárholti, einkum eftir að við létum þar báðir af föstu starfi. Nokkur sumur fórum við saman tveir einir í bíltúr um Suðurland og byrjuðum ferðina með viðkomu á Stokkseyri. Þessar ferðir eru nú fyr- ir mér í minningunni eins konar tákn um allt samstarf og samveru okkar. Ég sendi Guðrúnu konu Björgvins, börnum þeirra hjóna og fjölskyldum þeirra samúðarkveðjur. Jónas Pálsson. Með tímanum fækkar þeim sem við áttum saman við að sælda á yngri árum. Hinn 28. maí 1949 útskrifuðust 27 nemendur úr Kennaraskóla Íslands. Um það var kveðið: Og tuttugasta og áttunda, það eitt sinn var í maí, að Freysteinn okkur færði skjal, sem fæstir kasta á glæ. Þrír karlar úr hópnum eru nýlega horfnir yfir móðuna miklu, en alls 14, – þar af ein kona. Einn bekkjarfélagi minn,og sem fylgdist með mér í þremur bekkj- ardeildum, er horfinn yfir móðuna miklu. Björvin bjó lengi í hinni svo- nefndu Kennararablokk við Hjarð- arhaga. Fyrir fáum árum fluttist hann, ásamt konu sinni, Guðrúnu Steingrímsdóttur, frá Skagaströnd, í fjölbýlishúsið Grandaveg 45. Þar áttu þau saman nokkur ár. Sú hefur verið venja okkar, sem útskrifuðumst frá KÍ 1949, að hitt- ast með nokkurra ára millibili. Þá hefi ég oftast flutt eitthvað í bundnu máli. Á fimmtíu og tveggja ára af- mælinu minntist ég þeirra, sem þá voru horfnir á braut. Með Björgvin hefur frekar einn en helmingur úr útskriftarhópnum lokið jarðvist sinni. Við þökkum þeim kynnin frá endaðri öld, og öðrum, sem hurfu, við skuldum nú gjöld. Já, fylkingin þynnist nú ferlega greitt. unz farin er gjörvöll – og er það svo leitt? Ég sé ástæðu til að þakka fyrir samvistir þeirra, sem horfnir eru úr útskriftarhópnum frá 1949. Björgvin var góður félagi. Ég kveð hann með þökk og virð- ingu. Vandamönnum vottast samúð við fráfall hans og útför. Auðunn Bragi Sveinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.