Morgunblaðið - 29.12.2008, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 29.12.2008, Qupperneq 37
Velvakandi 37 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2008 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand HVAÐ ERT ÞÚ? ÉG ER KJÚKLINGUR ER ÞAÐ, JÁ? EF ÞÚ ERT KJÚKLINGUR, AF HVERJU ERTU ÞÁ EKKI DJÚPSTEIKTUR? ÉG MUNDI SLÁ ÞIG EF ÞÚ VÆRIR EKKI STÆRRI EN ÉG MIKIÐGETUR LÍFIÐ VERIÐ ÓSANN- GJARNT! EN BÍDDU BARA... EFTIR NOKKUR ÁR VERÐ ÉG STÆRRI EN ÞÚ! EN ÞÁ VERÐ ÉG KONA... OG ÞÚ MÁTT EKKI SLÁ KONUR... NAH NAH NAH NAH! OJJ! HVAÐ ER ÞETTA?!? ÞAÐ LÍTUR ÚT EINS OG RUSL! MÖMMU ER ALVEG SAMA UM MIG BÍDDU AÐEINS! ÞAÐ ER ALLT Á HVOLFI HÉRNA INNI HELGA, HLEYPTU MÉR INN! ÞAÐ ERU VILLIMENN AÐ ELTA MIG OG ÞEIR ERU NÆSTUM BÚNIR AÐ NÁ MÉR! TEYGIÐ YKKUR UPP Í LOFT OG SÍÐAN ALVEG NIÐUR Í TÆR... TEYGIÐ YKKUR UPP Í LOFT OG SÍÐAN ALVEG NIÐUR Í TÆR... ...NIÐUR Á GANGSTÉTT TEYGIÐ YKKUR UPP Í LOFT OG SÍÐAN ALVEG... VIÐ ÆTTUM AÐ SEGJA GUNNA OG LÍSU AÐ ÞAU GETI EKKI KOMIÐ MEÐ OKKUR Á TÓNLEIKANA. VIÐ ÞEKKJUM ÞAU VARLA LALLI, ÞAÐ ER EINMITT MÁLIÐ EF VIÐ KOMUM ILLA FRAM VIÐ ÞAU NÚNA ÞÁ FYRIRGEFA ÞAU OKKUR ALDREI JÚ, EF VIÐ GERUM ÞETTA RÉTT VIÐ SEGJUM ÞEIM BARA AÐ ÞAU SÉU EFST Á BIÐ- LISTANUM LALLI... ÞETTA ER HRÆÐILEG HUGMYND HVAÐ ERTU AÐ GERA? ÞÚ ERT KLIKKAÐUR ÉG ER AÐ SEGJA ÞÉR ÞAÐ... ÉG SÁ KÓNGULÓAR- MANNINN HÉR UM DAGINN ÞESSI MYNDAVÉL Á EFTIR AÐ GERA MIG RÍKANN PASSAÐU ÞIG, FÉLAGI! ÉG ER AÐ LEITA AÐ KÓNGULÓAR- MANNINUM VIÐ HÖFUM EKKI SÉÐ HANN ÞRÁTT fyrir rysjótta tíð hafa þessi hross það þokkalegt þar sem þau híma í snjónum í Grímsnesi. Ef vel er séð fyrir hrossum úti á veturna líður þeim vel undir berum himni, þrátt fyrir frost og snjó. Morgunblaðið/G.Rúnar Hestar í grennd við Grímsnes Ekki í þágu neyt- enda að RÚV hætti birtingu auglýsinga SÚ krafa sem fram hef- ur komið frá eigendum einkarekinna fjölmiðla nú í kjölfar kreppunnar að RÚV hætti að birta auglýsingar í ríkisljós- vökunum er ekki í þágu hins almenna neytanda. RÚV-miðlarnir eru þeir einu sem ná til allrar þjóðarinnar og allir Ís- lendingar hafa mögu- leika á að horfa/hlusta á. Þetta væri heldur ekki í þágu auglýsenda sem myndu hafa minni möguleika en áður á að ná til viðskiptavina sinna. Þetta er því ósanngjörn krafa sem ber að hafna. Og hverjir eru svo eigendur þessara einkareknu fjöl- miðla? Er það ekki sama liðið og átti bankana og útrásarfyrirtækin og ber nú mesta ábyrgð á hruni hagkerfisins á Ís- landi? Er þetta ekki sama fólkið og setti allt á haus- inn, blekkti aldraða sparifjáreigendur til að setja ævisparnaðinn inn á ónýta verðbréfareikninga og ætlast svo til þess að við eyðum því sem eftir er ævinnar í að borga skuldirnar fyrir það? Reiðir neytendur hafa að und- anförnu efnt til mótmæla og m.a. ráð- ist að opinberum byggingum (bygg- ingum í eigu fólksins í landinu) og hent í þær eggjum og málningu. Væri nú ekki nær að hætta að leggja op- inbera starfsmenn í einelti þótt ein- hverjir þeirra beri tæknilega ábyrgð á ástandinu vegna mistaka í stjórn- sýslunni, hætta að ríða röftum og hengja upp Bónusfána o.s.frv. og breyta aðeins til t.d. með því að hengja Evrópufánann upp á Bón- usverslanirnar? Nú þegar þeir sem ekki eiga málungi matar standa í bið- röðum eftir því að fá matargjafir er það ekki við hæfi að henda mat (eggj- um) í hús eða hella fallegri rauðri málningu niður á tröppur Alþingis og Seðlabanka. Þetta eru byggingar í eigu fólksins og það kostar peninga að þrífa ósómann eftir ólátaseggina. Peninga sem skattgreiðendur verða að borga. Glöggur maður sagði að það ætti að baka úr eggjum en ekki henda þeim í hús. Það er alveg ljóst að margir hafa nú þörf fyrir að fá gefins egg eða rauða máln- ingu. Hættið þessari vitleysu. Hermann Þórðarson, fyrrverandi flugumferðarstjóri. Setjum fólk framar fjármunum ÞAÐ ER skrítið að ferðast um víða veröld í dag. Leigubílstjóri í Kúala Lúmpúr veit af vandamálunum á Ís- landi og spyr hvort ástandið sé virkilega svona slæmt. Ég segist ekki vita það, en við séum með sama fólkið í vinnu við að koma okkur út úr því og kom okkur inn í það. Það fannst honum skrítið. Það er svo margt sem ég ekki skil, eins og: Er einhver munur á því að hækka lán um 150% eða lækka innstæðu um það sama? Er ekki hvort tveggja eigna- upptaka? Hvað er í farvatninu? Pétur kaupir íbúð á 20 millj., fær 15 hjá bankanum sínum, leggur sjálfur til 5. Bankinn fær þessar 15 millj. lánaðar annars staðar. Bankinn skiptir um kennitölu og nafn, borgar ekki sína skuld nema kannski að litlum hluta, hækkar síðan lán Péturs um 100% í 30 millj. Pétur getur ekki borgað (fífl- ið reisti sér hurðarás um öxl), bank- inn tekur íbúðina og endurleigir Pétri. Pétur er eignalaus en bankinn á 20 millj. króna íbúð sem hann borg- aði ekki einu sinni fyrir. Hvers konar bull er þetta? Er það á þennan hátt sem ætlunin er að byggja upp eigið fé bankanna? Við þurfum að stíga út fyrir þann hugsunarhátt sem við höf- um haft og átta okkur á því að það er sá sem tekur lán á Íslandi sem er drifkrafturinn í íslensku atvinnulífi en ekki sá sem lánar. Það er ekki gert með því að verja innistæður nurlara í bönkum heldur með því að slá skjald- borg um þá frumkvöðla og þær fjöl- skyldur sem gerðu eitthvað úr þeim fjármunum sem þær áttu og stóð til boða. Það að lífeyrissjóðirnir tapi peningum í dag er ekkert sem við höfum ekki áður séð og við getum auðveldlega byggt upp aftur en að fjölskyldur fari í stórum stíl á ver- gang, ungt fólk flýi land og fyr- irvinnur missi atvinnu má ekki koma fyrir. Setjum fólk framar fjármunum. Jón Þórarinsson, Efra-Skarði.       Hermann J.E. Þórðarson Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Dagblaðalestur kl. 9, vinnustofa kl. 9-16.30, boccia kl. 10 og félagsvist kl. 13.30. Félagsheimilið Gjábakki | Opið í dag milli kl. 9 og 16, heitt á könnunni og há- degisverður kl. 11.40. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Opið í Jónshúsi kl. 10-16. Heitt á könn- unni og jólastemning. Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi alla þriðjudaga og föstudaga í Grafarvogs- sundlaug kl. 9.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu- stund, spjall og léttar æfingar kl. 10.30, handverks- og bókastofa opin kl. 11.30, prjónaklúbbur kl. 13, söng- og sam- verustund með Sigrúnu Erlu Há- konardóttur kl. 15, Fótaaðgerðastofa, s. 552-7522. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla kl. 9-16, fóta- aðgerðir kl. 9.15-15.30, handavinna kl. 9, boccia kl. 11, leikfimi kl. 11.30, leshópur kl. 13, kóræfing kl. 13.30 og tölvukennsla kl. 14.30.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.