Morgunblaðið - 29.12.2008, Side 41

Morgunblaðið - 29.12.2008, Side 41
Menning 41FÓLK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2008 Þjóðleikhúsið Af öllum sviðum lífsins 551 1200 | midasala@leikhusid.is Miðasalan er opin alla daga frá kl. 12:30 til 18:00 og öll sýningarkvöld til kl. 20. Miðapantanir teknar í síma alla virka daga frá kl. 10:00. Stóra sviðið Hart í bak Fös 2/1 kl. 20:00 Ö Fös 9/1 kl. 20:00 Ö Sun 18/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 20:00 Sun 25/1 kl. 20:00 Ath. aukasýningar í sölu Kardemommubærinn Lau 21/2 kl. 14:00 Ö Sun 22/2 kl. 14:00 Ö Sun 22/2 kl. 17:00 Ö Sumarljós Lau 3/1 kl. 20:00 Sun 4/1 kl. 20:00 Lau 10/1 kl. 20:00 Sun 11/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Jólasýning Þjóðleikhússins Kassinn Heiður Þri 20/1 fors. kl. 20:00 Ö Mið 21/1 fors. kl. 20:00 Ö Fim 22/1 fors. kl. 20:00 Ö Lau 24/1 frums. kl. 20:00 U Sun 25/1 kl. 20:00 Fös 30/1 kl. 20:00 Lau 7/2 kl. 20:00 Lau 14/2 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00 Athugið snarpt sýningatímabil Kúlan Klókur ertu - Einar Áskell Sun 4/1 kl. 13:30 Sun 4/1 kl. 15:00 Sun 11/1 kl. 13:30 Sun 11/1 kl. 15:00 Örfáar aukasýningar í janúar Borgarleikhúsið 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 10:00-18:00, miðvikudaga til föstudaga kl. 10:00-20:00, og laugardaga og sunnudaga kl. 12:00-20:00 Fólkið í blokkinni (Stóra sviðið) Lau 3/1 kl. 19:00 U Sun 4/1 kl. 19:00 U Lau 10/1 kl. 19:00 U Sun 11/1 kl. 19:00 U Lau 17/1 kl. 19:00 Ö Lau 24/1 kl. 19:00 U Sun 25/1 kl. 16:00 Ö Sun 25/1 kl. 16:00 Ö Lau 31/1 kl. 19:00 U Yfir 50 uppseldar sýningar! Tryggið ykkur nú miða í janúar! Fló á skinni (Stóra sviðið) Þri 30/12 aukas. kl. 19:00 U Þri 30/12 kl. 22:00 U Fös 2/1 kl. 19:00 Ö Fös 9/1 kl. 19:00 Ö Fös 16/1 kl. 19:00 Ö Fös 23/1 kl. 19:00 Ö Fös 30/1 kl. 19:00 Yfir 120 Uppseldar sýningar. Áhorfendasýning ársins! Laddi (Stóra svið) Þri 20/1 kl. 20:00 Ö ný aukas Lau 24/1 ný aukas kl. 20:00 Sannleikurinn, einleikur Péturs Jóhanns (Litla svið) Fös 6/2 kl. 20:00 U Lau 7/2 2kortas kl. 19:00 U Sun 8/2 3kortas kl. 19:00 U Mið 11/2 4kortaskl. 19:00 U Fim 12/2 5kortaskl. 19:00 U Fös 13/2 6kortaskl. 19:00 U Fös 20/2 7kortas kl. 19:00 Lau 21/2 8kortas kl. 19:00 Sun 22/2 9kortas kl. 19:00 Miðasala hefst 29. desember kl. 10.00 Rústað, eftir Söru Kane (Nýja sviðið) Fös 30/1 frums kl. 20:00 U Lau 31/1 2. kort kl. 20:00 U Sun 1/2 3. kort kl. 20:00 U Fim 5/2 4. kort kl. 20:00 Ö Fös 6/2 5. kort kl. 20:00 Ö Lau 7/2 6. kort kl. 20:00 Ö Miðasala hefst 9.janúar. Ath! bannað börnum og alls ekki fyrir viðkvæma. Leikfélag Akureyrar 460 0200 | midasala@leikfelag.is Systur (Leikfélag Akureyrar) Fös 23/1 1. sýn. kl. 20:00 Lau 24/1 2. sýn. kl. 20:00 Danssýning Falið fylgi (Rýmið) Fös 16/1 frums. kl. 20:00 U Lau 17/1 kl. 19:00 U 2. kortas Lau 17/1 kl. 22:00 U hátíðarsýn. Fim 22/1 kl. 20:00 U 3. kortas Fös 23/1 kl. 19:00 U 4. kortas Lau 24/1 kl. 19:00 U 5. kortas Lau 24/1 aukas kl. 22:00 Sun 25/1 kl. 20:00 U 6. kortas Forsala hefst 5. janúar 2009 Landnámssetrið í Borgarnesi 437 1600 | landnamssetur@landnam.is BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið) Mán29/12 kl. 20:00 Ö Sun 4/1 kl. 16:00 Lau 10/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 17:00 þorrablót eftir sýn.una Fös 30/1 kl. 20:00 Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson (Söguloftið) Þri 30/12 kl. 20:00 U Lau 3/1 kl. 20:00 Fös 9/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00 Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið Draumasmiðjan 8242525 | elsa@draumasmidjan.is Ég á mig sjálf (farandsýning) Lau 17/1 kl. 15:00 F Fim 29/1 kl. 00:00 F Fim 29/1 kl. 00:00 F Íslenska óperan 511 4200 | midasala@opera.is Janis 27 Lau 10/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00 Lau 31/1 kl. 20:00 Iðnó 562 9700 | idno@xnet.is Systur Lau 31/1 frums. kl. 20:00 Lau 7/2 kl. 20:00 Fös 13/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00 Dómur Morgunblaðsins Hafnarfjarðarleikhúsið 555 2222 | theater@vortex.is Stórasti sirkus Íslands (Hafnarfjarðarleikhúsið) Fös 2/1 kl. 14:00 Fös 2/1 kl. 20:00 Lau 3/1 kl. 14:00 Lau 3/1 kl. 20:00 Sun 4/1 kl. 14:00 Möguleikhúsið 5622669 / 8971813 | moguleikhusid@moguleikhusid.is Langafi prakkari (ferðasýning) Þri 24/2 kl. 12:40 F ísaksskóli Þri 24/2 kl. 13:50 F ísaksskóli Sæmundur fróði (ferðasýning) Fös 16/1 kl. 10:00 F ártúnsskóli Íslenski dansflokkurinn 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Febrúarsýning2009 (Stóra sviðið) Fim 5/2 frums. kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00 Sun 15/2 kl. 20:00 Sun 22/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00 Sun 8/3 kl. 20:00 GRAL - Grindvíska Atvinnuleikhúsið 4201190 | grindviska.gral@gmail.com 21 MANNS SAKNAÐ (Grindavík) Sun 11/1 aukas. kl. 20:00 Sun 18/1 aukas. kl. 20:00 Sun 25/1 aukas. kl. 20:00 Sun 1/2 aukas. kl. 20:00 FRÁBÆR GJAFAKORT Í JÓLAPAKKANN!!! - Upplýsingar á grindviska.gral@gmail.com Skoppa og Skrítla á ferð og flugi KVIKMYND Háskólabíó, Laugarásbíó, Smárabíó, Borgarbíó Akureyri Skoppa og Skrítla í bíó bbbnn Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson. Tónlist: Hallur Ingólfsson. Kvikmyndataka: Ægir J. Guðmundsson og Bragi Þór Hinriks- son. Leikmynd: Þórdís Jóhannesdóttir. Búningar og gervi: Katrín Þorvaldsdóttir, Ingveldur Breiðfjörð og Una Stígsdóttir. Handrit: Hrefna Hallgrímsdóttir. Leikarar: Linda Ásgeirsdóttir, Hrefna Hallgríms- dóttir, Vigdís Gunnarsdóttir, Viktor Már Bjarnason, Álfrún Örnólfsdóttir. Skopp sf. Styrkt af Kvikmyndamiðstöð íslands, o.fl. Ísland 2008. Það er bjart yfir þeim Skoppu og Skrítlu í orðsins fyllstu merkingu. Það geislar af þeim virðingin sem þær bera fyrir viðfangsefninu og áhorfendahópnum, búningar og leik- munir eru líflegir og litríkir og síðan gerist myndin að mestu leyti í sól- skinsfylkinu Flórída. EFTIR að hafa unnið hjörtu barnanna í leikhúsi, á mynddiskum og í sjónvarpi hafa stöllurnar Skoppa (Linda Ásgeirsdóttir) og Skrítla (Hrefna Hallgrímsdóttir) talið kom- inn tíma til að þetta barnvæna tvíeyki sýndi sig á tjaldinu. Það kæmi ekki á óvart að það slægi einnig eft- irminnilega í gegn þar, því mikill skortur er á kvikmyndum fyrir yngstu áhorfendurna og þessar aðlað- andi leikkonur kunna svo sannarlega að ná til þess hálfgleymda hóps. Í myndarbyrjun leggja tit- ilpersónurnar í ferð til vinkonunnar Lúsíar. Hún á margt muna sem búa yfir leyndardómum og ævintýrum, þ.á m. sirkusspiladós sem er þeim göldrum gædd að ef maður óskar sér nógu heitt getur maður horfið á vald ævintýranna og fiðrildi koma manni aftur heim. Ekki er að orðlengja það að vin- konurnar lenda fyrir töframátt grip- anna hennar Lúsíar á strönd Flór- ída, þar sem þær kynnast skrautlegum furðudýrum og -fólki og lenda í ýmislegu framandi og fjörugum uppákomum. Linda og Hrefna gæta vel að barninu í hjarta sínu, þess vegna eru þær færar um að halda áhuga smá- Sæbjörn Valdimarsson fólksins vakandi. Þær hafa notalega draumsýn sem er hafin hátt yfir grá- myglulegan hversdagsleikann, þar liggur galdurinn grafinn. Sem fyrr segir er myndin ætluð þeim yngstu á bænum en eldri fjölskyldu- meðlimum þarf ekki að leiðast ef þeir gefa barninu í brjósti sér lausan tauminn eina smástund á þessum kaldranalegu þrengingatímum. Boð- skapurinn er kristaltær og á vel við: Gefum ímyndunaraflinu tækifæri og höfum gaman af því sem við erum að gera eins og þau Linda, Hrefna, Þór- hallur og öll þau sem koma við sögu Skoppu og Skrítlu í bíó. Það þarf ekki að vera flókinn en einlægur ásetningur. Morgunblaðið/Eggert Skoppa og Skrítla „Boðskapurinn er kristaltær og á vel við,“ segir í dómi. Skoppu og Skrítlu þekkja börn- in úr sjónvarpinu og leikhúsinu en fyrirtæki þeirra, Skopp sf., hefur sérhæft sig í gerð barna- efnis fyrir allra yngstu kynslóð- ina eða u.þ.b. níu mánaða til fimm ára. Fyrsta myndin um Skoppu og Skrítlu kom út á DVD árið 2004 og síðan hafa fylgt í kjölfarið sjónvarpsþættir á RÚV, geisladiskar, bók og tvö leikrit sem sett voru upp í Þjóðleikhús- inu árið 2006 og 2008. Heima- síða Skoppu og Skrítlu er á www.skoppaogskritla.is. Hverjar eru Skoppa og Skrítla? BANDARÍSKI leikarinn Johnny Depp segist hafa drukkið gríðarlegt magn af áfengi á leið sinni upp á stjörnuhimininn á tíunda áratug síð- ustu aldar. Depp, sem var trúlofaður ofurfyrirsætunni Kate Moss og var góður vinur rokkbræðranna Liam og Noel Gallagher, segist nefnilega hafa átt nokkuð erfitt á þessum ár- um. „Ég vildi aldrei vera sá sem allir horfðu á. Mér fannst ég bara vera ég sjálfur þegar ég var einn. Eina leiðin til þess að komast í gegnum þetta fannst mér vera að drekka,“ segir Depp. „Það má eiginlega segja að ég hafi eitrað fyrir sjálfum mér í mörg ár, en ég hef hins vegar aldrei mis- notað eiturlyf með þeim hætti sem lýst hefur verið.“ Þrátt fyrir að margir telji Depp með fremstu kvikmyndaleikurum heims um þessar mundir segist hann sjálfur ekki viss um eigin hæfni. „Mér finnst erfitt að horfa á sjálf- an mig á hvíta tjaldinu, og það versn- ar eiginlega með árunum. Ég get ekki sagt til um hvort ég stend mig eða ekki.“ Eitt er þó Depp sérstaklega ánægður með í lífinu, en það er sam- bandið við frönsku söng- og leikkon- una Vanessu Paradis sem staðið hef- ur yfir í áratug. „Þegar ég kynntist Vanessu fór ég fyrst að skilja hlutina almennilega. Það var ekki fyrr en þá sem lífið tók einhverja alvöru stefnu.“ Drakk mikið áfengi Reuters Virtur Johnny Depp er með eft- irsóttustu leikurum heims. NICOLE Scherzinger, söngkona bandarísku hljómsveitarinnar Pussycat Dolls, ætlar að bjóða kær- asta sínum, formúlu 1 kappanum Lewis Hamilton, í rómantíska ferð til Hawaii um áramótin. Scherzinger þekkir eyjuna fögru mjög vel, enda fæddist hún þar. „Nicole hlakkar mikið til að fara með Lewis heim til Hawaii. Hún er að hugsa um að leigja lúxussnekkju þar sem hún ætlar að halda afmæl- isveislu fyrir Lewis sem á afmæli 7. janúar. Svo ætla þau að skoða alla eyjuna,“ sagði vinur hinnar þrítugu söngkonu. Þá mun Scherzinger einnig leggja mikla áherslu á að þau verji svo- litlum tíma með móður hennar áður en annir næsta árs hefjast hjá þeim báðum. „Þetta er fullkomið tækifæri fyrir þau til þess að slappa af áður en Ni- cole fer í tónleikaferðalag um allan heim með Pussycat Dolls og áður en tímabilið í formúlunni hefst hjá Lew- is,“ bætti vinurinn við. Scherzinger er annars sögð mjög hamingjusöm, og er þegar farin að huga að barneignum með kærast- anum, sem er sjö árum yngri en hún. Á Hawaii um áramótin Reuters Fönguleg Scherzinger er sjö árum eldri en unnustinn Lewis Hamilton.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.