Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.2008, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.2008, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008 10 LesbókBÆKUR Í minningabók Finnboga Hermannssonar, Í húsi afa míns, er lesandinn leiddur inn í horfinn heim. Sögusviðið er Reykjavík eft- irstríðsáranna og nánar til tekið Þingholtin, Njálsgata númer 27 þar sem Finnbogi fæddist róttækum föður og móður en afinn átti húsið, maður sem ekki deildi stjórnmálaskoðunum með tengdasyninum. Sviðið er því smáheimur æsk- unnar. Finnbogi gefur sér tíma til þess að rifja upp allt það litla sem situr eftir í minninu, bæði amboð, orð og hugsanir sem vöktu athygli barnsins og áttu kannski eftir að fá annan hljóm seinna meir. Hann nostr- ar við lýsingarnar á umhverfinu. Frá- sögnin er byggð upp á stuttum köflum sem gerir hana hraða. Baksvið sögunnar er hins vegar öllu stærra og ógnvænlegra. Stríðinu er nýlokið, stutt er síðan kjarnorkusprengja var sprengd í Japan og lítill drengur sogar í sig andrúmsloft spennu og ótta sem hafði ríkt meðal fólks með- an á hildarleiknum stóð. Fjöldi bóka hefur verið gefin út með aldarfarslýsingum frá þessum tíma. Líklega eru fá tímabil í sögu tutt- ugustu aldar á Íslandi jafn vel skrá- sett. Bæði mætti nefna verk á borð við endurminningar Sigurðar A. Magnússonar og einnig skáld- skap, meðal annars eftir Halldór Laxness. En Finnboga tekst að skrifa bók sem er alveg sér á parti, kannski ekki síst vegna þess hve vandvirknislega er unnið með þann smáheim sem bókin snýst fyrst og fremst um. Í húsi afa míns | Finnbogi Hermannsson Smáheimur æskunnar Þó færustu sálkönnuðir fjarskyggnustu stjarnspekíngar kveddust til Sat prinsessan enn á bauninni Þó prinsar riddarar reyndustu ráðgjafar legðust á bæn Sat prinsessan enn á bauninni Þó bændur og búalið þræluðu nótt sem dag henni til hægðar Sat prinsessan enn á bauninni einginn gaf gætur að bauninni Prinsessan á bauninni Geirlaugur Magnússon fæddist í Reykjavík 25. ágúst 1944. Fyrsta ljóðabók Geir- laugs, Annaðhvort eða, kom út 1974 en eftirfarandi ljóð er úr ljóðabókinni Undir öx- inni sem kom út 1980. Ljóðið á þó ekki síður við nú um stundir. Geirlaugur Magnússon Skáldið lést í Reykjavík 16. september 2005. D raugasagan hefur ekki verið mikið iðkuð bókmenntagrein síðari ár. Það er því skemmtileg tilbeyting að fá í hendur safn nýrra draugasagna sem ætlað er krökk- um sem þora, eins og sagt er í káputexta bók- arinnar Ats. Hún inniheldur sextán sögur sem valdar voru úr ríflega hundrað sögum sem bárust í smásagnakeppni sem efnt var til í tilefni barnabókahátíðarinnar Draugur úti í mýri sem haldin var í febrúar. Höfundarnir eru fjórtán. Verðlaunasagan, At, er eftir Guð- mund Brynjólfsson en þær Kristín Helga Gunnarsdóttir og Iðunn Steinsdóttir hlutu önnur og þriðju verðlaun. Sögurnar eiga í sjálfu sér ekki margt annað sameiginlegt en að geta kallast draugasögur. Oftast koma við sögu glataðar sálir sem sveima um á milli heima eða á mörkum þessa heims og hand- anheima, sálir sem ekki hafa fundið frið eða sálir sem vilja láta gott af sér leiða eins og í verðlaunasögu Guðmundar Brynjólfs- sonar sem heitir einmitt At. Einhverra hluta vegna höfða sög- ur af illum öndum meira til spennustöðvanna í sálarlífi und- irritaðs. Í þeirri grein á Brynhild- ur Þórarinsdóttir ágætan sprett með sögu sinni Síðasta skíða- ferðin. Saga Stefáns Mána, Draugabjallan, höfðar einnig til myrkari hliðanna í lesanda. Á kápu er bókin sögð henta 9 ára og eldri en það þarf ekki endilega að taka mark á slíkum leiðbeiningum útgefanda. At | Ýmsir höfundar Glataðar sálir Þekktasta skáldsaga ítalska rithöfundarins Niccoló Ammaniti heitir Ég er ekki hræddur og kom út í íslenskri þýðingu fyrir þremur ár- um í Neonklúbbi Bjarts. Bókin vakti mikla at- hygli og var gerð kvikmynd eftir henni. Í henni tekst Ammaniti að draga upp sterka mynd af ungum dreng í litlu ítölsku þorpi sem kemst að óhugnanlegu leyndarmáli. Styrkleiki bók- arinnar fólst ekki síst í því hvernig höfundi tókst að draga upp glögga mynd af litlu sam- félagi og heimssýn lítils drengs í knöppum texta. Nú hefur Hjalti Snær Ægisson þýtt nýja skáldsögu eftir Ammaniti sem er ólík hinni í formi en á að öðru leyti ýmislegt sameiginlegt með henni. Bókin heitir Í hendi Guðs og er stór og breið skáldsaga. Hún segir frá feðgunum Rino og Cris- tiano Zena sem búa við kröpp kjör í ítölskum smábæ. Barnaverndaryf- irvöld þjarma reglulega að þeim en þau halda því fram að Rino sé ofbeldisfullur og drykk- felldur, sem er að vissu leyti rétt. Rino er bæði útlendingahat- ari og hálfgerður fasisti en elskar son sinn hins vegar skilyrðislaust. Cristiano veit líka að þótt pabbi hans sé ofbeldisfullur tuddi þá get- ur hann alltaf leitað til hans og treyst honum. Þeim feðgum býðst að taka þátt í svolitlu ævintýri sem á að bæta líf þeirra. Vinir Rinos kynna fyrir þeim feðgum áætlun þar sem hraðbanki og kraftmikill traktor koma við sögu. En allt fer á versta veg. Þetta litla æv- intýri snýst upp í hræðilegan harmleik sem kemur Cristiano í aðstæður sem hann hefði aldrei getað séð fyrir. Bókin er allgrótesk á köflum en þegar líður á frásögnina verður hinn harmræni tónn yf- irgnæfandi. Hinn realíski frásagnarháttur sem ein- kenndi Ég er ekki hræddur er ekki ráðandi hér heldur slær ofurverulegum bjarma á svið- ið. Bókin er öðrum þræði hörð gagnrýni á neyslusamfélagið og stundum verður sá þáttur kannski fullfyrirferðarmikill í frásögninni. En styrkleiki bókarinnar er sá sami og í Ég er ekki hræddur, Ammaniti lætur mjög vel að lýsa inn í heim fábreytileika, fátæktar og æsku. Þessi bók lýsir sannarlega miklum metnaði höfundar. Þetta er stór og mikil saga um mikil örlög, ástir, kær- leika, vonbrigði, fallið samfélag. Og ekki verður annað sagt en höfund- urinn standi undir stóru plön- unum. Bókin er feikilega vel skrif- uð. Ef eitthvað er þá vinnur hið stóra og breiða form þó gegn höfundinum, frásagnarmáti hans er hægur og hlédrægur, ef svo má segja. Hér verður því kostur Ég er ekki hrædd- ur að helsta veikleikanum. Hjalti Snær hefur ekki þýtt áður en textinn er létt- ur og lipur og án meirihátt- ar hnökra. Í hendi guðs | Niccoló Ammaniti Ævintýri feðga BÆKUR VIKUNNAR ÞRÖSTUR HELGASON Niccola Ammaniti Stendur við stóru plönin.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.