Morgunblaðið - 06.01.2009, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.01.2009, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2009 Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is ÞÖRF fyrir endurnýjaða stefnu í peninga- málum og þörf fyrir að endurskoða stöðu Ís- lands í alþjóðlegu tilliti, með hliðsjón af reynslunni af EES eru tvær aðalástæður þess, að Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, telur að stíga verði fleiri skref í átt til Evrópusambandsins. Þetta kom fram á opnum fundi auðlindahóps Evrópu- nefndar Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í gær. Yfirskrift fundarins var „Hvaða umboð á for- ysta Sjálfstæðisflokksins að fá frá lands- fundi?“ Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi rit- stjóri Morgunblaðsins, var framsögumaður auk Bjarna. „Með sjálfstæðri mynt er valinn sveigj- anleiki í staðinn fyrir stöðugleika. Þar hefur okkur brugðist bogalistin. Réttnefni á þess- um vanda er of lítill agi í opinberum fjár- málum,“ sagði Bjarni. „Ekki er hægt að horfa fram hjá því að Evrópusambandið býður upp á valkost. Kostir þess að tilheyra mynt- bandalagi um evruna hafa nú fengið aukið vægi í heildarmati á kostum og göllum við að- ild að Evrópusambandinu.“ Evrópusambandið gerbreytt Um hið síðarnefnda atriði sagði Bjarni að EES-samningurinn hefði í grundvall- aratriðum reynst Íslendingum vel. Hins veg- ar væri Evrópusambandið gerbreytt frá þeim tíma þegar samningurinn var gerður. „Við höfum ekki gefið áhrifum þessara breytinga á Ísland nægilegan gaum. Margt hefur breyst og kominn er tími til að gera kerf- isbundið mat á áhrifum þessara breytinga.“ Bjarni kvað umboðið til forystunnar eiga að vera opið. Það mætti ekki vera þannig úr garði gert að nauðsynlegur sveigjanleiki, sem þarf til að leiða viðræður um ESB til lykta, væri ekki fyrir hendi. „Svar mitt við spurningunni um umboðið frá landsfundi er skýrt og einfalt. Lands- fundur á að fela forystumönnum flokksins að standa vörð um ótvíræð og afdráttarlaus yf- irráð yfir auðlindum okkar, hvort sem er í orði eða á borði,“ sagði Styrmir. ,,Þótt ein- ungis væri um að ræða formleg yfirráð Brüssel yfir auðlindum okkar, getum við ekki fallist á slíkt fyrirkomulag,“ sagði hann. Þá sagði Styrmir að flokkurinn ætti að gera hið beina lýðræði að baráttumáli sínu og beita sér fyrir vandaðri löggjöf um það. Slíka löggjöf sagði hann nauðsynlegan undanfara atkvæðagreiðslunnar um ESB. Einnig lagði hann til að landsfundur Sjálfstæðisflokksins fæli forystumönnum að beita sér fyrir þver- pólitísku samstarfi þar sem allir kostir í gjaldmiðilsmálum yrðu teknir til skoðunar. Þá sagði hann fráleitt að kjósa um aðild að ESB og kjósa til Alþingis á sama tíma strax í vor. Styrmir kallaði líka eftir heiðarleika Evrópusinna í umræðunni. ,,Það er alveg ljóst að aðild þýðir að við af- sölum okkur þó ekki væri nema formlegum yfirráðum yfir fiskimiðunum við Ísland. Þeir sem halda öðru fram eru að blekkja fólk. [...] Þetta mál snýst fyrst og fremst um það hvort Íslendingar halda yfirráðum yfir þeim auð- lindum sem þeir hafa barist fyrir á síðustu áratugum, eða ekki.“ Umboð vegna ESB rætt í Valhöll  Bjarni Benediktsson þingmaður vill að landsfundur fái forystunni opið umboð í Evrópumálum  Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri, vill að umboðið snúist um verð auðlinda Íslands Morgunblaðið/Árni Sæberg Mikill áhugi Húsfyllir var í Valhöll í gær. FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is SKAMMBYSSAN sem sextán ára piltur tók í óleyfi úr vörslu föður síns á föstudag, án hans vitundar, var í ólæstri hirslu. Eitt skilyrða fyrir leyfi til að eignast skamm- byssu er að skotvopnið sé geymt í traustri hirslu. Að sögn lögreglu er fyrstu yfirheyrslum lokið en engin ákvörðun hefur verið tekin um framhaldið. Líklegt er þó að athæfi piltsins dragi dilk á eftir sér, hann verði kærður fyrir ólög- legan vopnaburð og faðir hans hugsanlega sviptur skotvopnaleyfi. Um áramótin síðustu voru skráð 53.123 skotvopn á Íslandi, skv. upplýsingum úr landskrá skot- vopna. Á sama tíma voru um það bil 10.200 einstaklingar með gild skotvopnaleyfi. Af þessum skot- vopnum eru 2.312 skammbyssur, en taka ber fram að þar með eru taldar byssur sem leyfi hefur ver- ið gefið fyrir vegna atvinnu, t.d. fjárbyssur fyrir bændur á lögbýl- um, fyrir dýralækna, skamm- byssur fyrir haglaskot fyrir starfs- menn sveitarfélaga sem vinna við minkaveiðar o.fl., safnvopn og lög- regluvopn auk vopna til nota við íþróttaskotfimi. Auk þess er ekki vitað hversu margar óskráðar skammbyssur eru í umferð. Sama tegund skammbyssu og sérsveitarmenn bera Leyfi fyrir skammbyssum, skv. flokki D í reglugerð um skotvopn, skotfæri ofl., eru aðeins veitt ein- staklingi vegna íþróttaskotfimi og þarf viðkomandi að uppfylla ýmis skilyrði, s.s. að geyma skotvopnið í traustri hirslu og hætti umsækj- andi iðkun skotíþrótta má aft- urkalla leyfið. Komið hefur fram að skamm- byssan sem pilturinn tók trausta- taki á föstudag er í eigu föður hans, fyrrverandi lögregluþjóns og sérsveitarmanns. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er um að ræða Glock 17 hálfsjálfvirka skammbyssu, sömu tegundar og sérsveitarmenn bera. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar, vildi ekki tjá sig um stærð byss- unnar og fékkst tegund hennar ekki staðfest. Í fyrrnefndri reglugerð kemur fram að leyfisveitandi geti aft- urkallað skotvopnaleyfi fari leyf- ishafi ekki eftir settum fyr- irmælum. Í vopnalögum kemur m.a. fram að ólöglegt sé að flytja inn hálfsjálfvirkar skammbyssur en óljóst er hvort fyrrverandi sér- sveitarmenn lúta sömu lögum. Einnig ítrekaði lögregla í tilkynn- ingu í gær að skotvopn og skot- færi skuli ávallt geyma í læstum, aðskildum hirslum. Morgunblaðið/Júlíus Leitað Lögreglumenn leituðu piltsins frá kvöldmatarleyti og undir miðnætti. Þá gaf hann sig fram á heimili ættingja sinna í Breiðholti. Byssan var í ólæstri hirslu  Hugsanlegt að pilturinn hafi verið með Glock 17 hálfsjálfvirka skammbyssu  Á þriðja þúsund skammbyssur skráðar á Íslandi og alls óvíst með óskráðar EINHVERS misskilnings hefur gætt varðandi heimild bloggnot- enda til að blogga um fréttir sem skrifaðar eru á fréttavef mbl.is. Hið rétta í málinu er það að þeir einir geta bloggað um fréttir þar sem nafn og kennitala eru í sam- ræmi við upplýsingar Þjóðskrár. Allir skráðir notendur blog.is þar sem slíkt misræmi var til staðar, fengu sendan póst fyrir áramótin þar sem þeim var bent á þessa breytingu ásamt upplýs- ingum um hvernig hægt væri að virkja réttar upplýsingar. Þeir sem kjósa að virkja skráningu samkvæmt Þjóðskrá skrá sig inn, fara í Stjórnborð, smella í Stillingar og í framhaldi á tengilinn Um höfund. Á síðunni sem þá birtist er síðan hakað við nafn viðkomandi eins og það er skráð í Þjóðskrá. Í framhaldi er smellt á hnappinn Vista upplýs- ingar. Rétt er að taka fram að skráð- ar höfundarupplýsingar á for- síðu bloggara breytast ekki vegna þessa. Til að sjá nafn ábyrgðarmanns þarf að smella á smámyndina eða upplýsingar sem skráðar hafa verið um höf- undinn. Í framhaldi birist síða og neðst á henni eru upplýsingar um hver ábyrgðarmaðurinn sé samkvæmt Þjóðskrá. Þeir sem kjósa að blogga nafn- laust geta áfram gert það án vandkvæða. Þeir hafa hins vegar ekki aðgang að því að blogga um fréttir, og útdráttur úr þeirra bloggum birtist ekki á forsíðu blog.is né öðrum síðum mbl.is. Frétta- blogg og nafnleynd Á NÝLIÐNU ári létust 32 ein- staklingar af slysförum hérlendis. Flestir létust í umferðarslysum eða 12, 11 í heima- og frí- tímaslysum, sex í vinnuslysum, einn drukknaði og tveir létust í öðrum slysum. Langflestir sem létust voru karlmenn eða 27 einstaklingar en konur sem létust í slysum á árinu voru fimm. Engin börn létust af slysförum á árinu. Tveir Íslendingar létust af slys- förum erlendis og eru skráðir í banaslysatölur í Danmörku og Færeyjum. 34 létust af slysförum Hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að fá skotvopnaleyfi? Að hafa náð 20 ára aldri og ekki ver- ið sviptur sjálfræði, ekki gerst brot- legur við ákvæði almennra hegning- arlaga, áfengislaga, laga um ávana- og fíkniefni, vopnalaga eða laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fugl- um og villtum spendýrum. Einnig þarf að viðkomandi að hafa nægilega kunnáttu til þess að fara með skot- vopn, vera andlega heilbrigður og að öðru leyti hæfur til að eiga skotvopn. Hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að fá leyfi fyrir skammbyssu? Að hafa svonefnt minna próf í eitt ár, aukin skotvopnaréttindi í annað ár og vera virkur meðlimur í við- urkenndu skotfélagi. Leyfi fyrir skammbyssu, þ.m.t. loftskamm- byssa, er jafnframt aðeins gefið út sé skotvopnið einvörðungu notað við æfingar og keppni í viðurkenndum keppnisflokkum á viðurkenndum skotsvæðum, og skotvopnið sé ann- ars geymt í traustum hirslum. S&S

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.