Morgunblaðið - 06.01.2009, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 06.01.2009, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2009 Landbúnaður á hálum ís Aðild að Evrópusambandinu myndi valda miklum breytingum á landbúnaði á Íslandi eins og fram kemur í um- fjöllun Rúnars Pálmasonar um landbúnað og byggðastefnu ESB. Bændasamtök Íslands eru andvíg inngöngu og forsvarsmenn svína- og alifuglabænda ganga svo langt að segja að þeirra búgreinar myndu nánast leggjast af hér á landi. Leiða má líkum að því að bændur í hefðbundnum greinum yrðu fyrir minni skakkaföllum en margir aðrir sem starfa í land- búnaði, m.a. vegna þess að innan ESB er mikil áhersla lögð á byggðamál. Þá má heldur ekki gleyma því að miklar breytingar hafa orðið í landbúnaði hér á landi og breytingarnar væntanlega halda áfram, burtséð frá því hvort Ísland er í ESB eða utan. S ameiginleg landbúnaðar- stefna Evrópusambandsins er elsta og um leið umdeild- asta stefnumál sambands- ins. Kostnaðurinn er gríðarlegur eða um 50 milljarðar evra á ári. Of- an á þá fjárhæð bætast tollar, sem eru hluti af stefnunni, en þeir valda því að matvælaverð innan sam- bandsins er hærra en ella væri. Meðal annarra afleiðinga af land- búnaðarstefnu ESB er að sam- keppnisstaða annarra ríkja, sem ekki hafa efni á að niðurgreiða sinn landbúnað, er verri sem verndinni nemur. Þetta á m.a. við um þróun- arríki sem reiða sig á landbún- aðaframleiðslu. Í flestra eyrum hljómar þessi lýs- ing á landbúnaðarstefnu Evrópu- sambandsins líklega illa. Það vill hins vegar svo til að sá stuðningur og styrkir sem ESB veitir til land- búnaðar í gegnum sameiginlegu landbúnaðarstefnuna eru talsvert lægri en sá stuðningur sem íslensk búvöruframleiðsla fær í gegnum ís- lenska landbúnaðarkerfið. Styrkir og tollar Í fyrra námu beinar greiðslur úr ríkissjóði Íslands vegna búvöru- framleiðslu níu milljörðum króna og 1,8 milljörðum var varið í fram- lög og sjóði í þágu landbúnaðar, samtals 10,8 milljörðum. Ofan á þessa upphæð bætist sú vernd sem felst í tollum og sé henni bætt við nam stuðningur ríkisins við land- búnaðarframleiðslu um 13,6 millj- örðum á ári, að mati OECD. Hvergi annars staðar innan OECD er land- búnaður studdur jafn mikið, en að- eins Noregur, Sviss og Suður- Kórea styrkja sinn landbúnað af eins miklum krafti. Allir tollar falla niður Sama dag og Ísland gengi í Evr- ópusambandið féllu innflutnings- tollar á landbúnaðarafurðum frá ESB niður. Hvað þetta þýddi fyrir innflutning á landbúnaðarafurðum færi að sjálfsögðu mikið eftir því hvert gengi íslensku krónunnar væri. Miðað við gengið í dag yrði innflutningur væntanlega minni en hann hefði verið fyrir fall en sé miðað við sögulegt gengi krón- unnar, fyrir hrunið í haust mætti búast við töluverðum innflutningi á flestum tegundum landbúnaðar- afurða. Minni stuðningur í kreppu Reynsla Finna af landbúnaði inn- an ESB stendur Íslendingum nærri enda aðstæður í Norður-Finnlandi um ýmislegt líkar aðstæðum hér á landi. Því er athyglisvert að lesa „fróðleiksmola úr Finnlands- heimsókn“ í skýrslu utanríkisráðu- neytisins um landbúnað frá 2003: „Athygli vakti að þrátt fyrir mikla gagnrýni á skrifræði o.fl. innan ESB virtist tónninn í finnskum bændum og hagsmunaaðilum þeirra gagnvart inngöngu í sam- bandið ekki sérstaklega neikvæður og jafnvel jákvæður í sumum til- vikum. Virðist miklu máli skipta, að þeirra áliti, að stuðningur almenn- ings við landbúnað fór þverrandi í efnahagslægðinni sem skall á í Finnlandi við hrun markaða í Sov- étríkjunum.“ Það er að sjálfsögðu ekkert hægt að fullyrða hvað gerist í kreppunni hér, hvort almenningi finnist of mikið að greiða 11 milljarða á ári með landbúnaðarkerfinu og búa samt við hátt verð á landbúnaðar- afurðum. Samanburðurinn við önn- ur lönd er reyndar hagstæðari eftir hrun krónunnar en á móti kemur að hrunið veldur því að kostnaður eykst, ekki síst kjúklinga- og svína- bænda sem reiða sig nánast al- gjörlega á innflutt dýrafóður. Þessa hlýtur að gæta í verðlagi, fyrr eða síðar. Bændur benda á móti á að kreppan sýni hversu mikilvægt það er að framleiða landbúnaðarafurðir en reiða sig ekki um of á innflutn- ing. Dýrt að rækta garðinn sinn Bú með greiðslumark í mjólk og sauðfé 3778 2037 1990/1991 2008 Fækkun: 46% Fjöldi sem starfar að landbúnaði 7700 6000 1990/1991 2008 Fækkun: 22% *Framlög til byggðaáætlunar og Byggðastofnunar. Annað, sem í sjálfu sér mætti flokka sem byggða- mál, er ekki tekið með í reikninginn, s.s. niðurgreiðsla á húshitunarkostnaði (1,1 milljarður), jöfnun raforkukostnaðar (245 milljónir), starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar á landsbyggðinni, úthlutun úr Orkusjóði o.s.frv. Í strangasta skilningi (og skv. fjárlögum) eru þessi atriði ekki flokkuð sem byggðamál.Kúabændur Fjárbændur Svínabændur Kjúklingabændur 1993 2000 2006 Fjöldi skráðra búfjáreigenda 1. 70 3 1. 59 1 82 9 3. 28 6 3. 22 3 2. 43 5 10 4 87 16 17 Fjöldi búfjár 1993 2000 2006 Mjólkurkýr Sauðfé Svín (gyltur) 30 .0 28 27 .0 64 25 .5 01 48 2. 49 8 45 8. 58 4 44 8. 08 4 3. 40 2 3. 69 3 4. 13 7 Byggðamál Opinber stuðningur við landbúnað (sem hlutfall af verðmæti framleiðslunnar) Ísland Noregur ESB 1986-88 2004 2006 77% 65% 66% 71% 67% 65% 41% 35% 32% Greiðslur vegna búvöruframleiðslu (kýr og kindur) 10,2 milljarðar Framlög og sjóðir í þágu landbúnaðarins 1,5 milljarðar Samtals 11,7 milljarðar (Byggðamál) 1* milljarður Kjötsala í kílóum á hvern íbúa Kindakjöt Nautgripakjöt Svínakjöt Alifuglakjöt Hrossakjöt 41,5 26,7 23,3 10,7 11,8 11,3 6,6 12,2 20,8 7,2 6,4 23,5 3,3 2,5 2 1985 1995 2008 (áætlun) 1110 Íslenskum bændum hefur fækkað mikið og neyslan breyst  Ríkissjóður Íslands ver um 11 milljörðum á ári í landbúnaðarstyrki  Mesti stuðningur innan OECD  Kreppan í Finnlandi á síðasta áratug varð til þess að almenningur var síður til í að styðja landbúnað Evrópusambandið | Landbúnaður og byggðastefna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.