Morgunblaðið - 06.01.2009, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.01.2009, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2009 ANDVÍGUR Haraldur Benediktsson er formaður Bændasamtaka Íslands og bóndi. V ið höfum aldrei séð ljósið fyrir landbúnaðinn,“ segir Har- aldur Benediktsson. Bænda- samtökin hafi markvisst fylgst með þróun sambandsins og sérstaklega með endurskoðun á land- búnaðarstefnunni og vegið og metið kostina. Niðurstaðan er nei við ESB. Samningurinn sem Finnar gerðu þegar þeir gengu í sambandið er sá hagstæðasti sem bændur hafa fengið og líklegt hlýtur að teljast að Íslend- ingar fái a.m.k. jafngóðan samning. En eru einhverjar líkur á að íslenski samningurinn gæti orðið betri? „Ég get ekki lagt mat á það. Við fáum að minnsta kosti ekki betri samning ef íslenskir stjórnmálamenn fást ekki til að lýsa því yfir að land- búnaður sé forgangsmál.“ Haraldur bendir einnig á að þótt finnski samn- ingurinn hafi verið tiltölulega hag- stæður og Finnar haldið mikilli tryggð við finnskar búvörur, hafi tekjur finnskra bænda dregist saman um 30% frá inngöngu. Slíkt myndu ís- lenskir bændur ekki lifa af. Haraldur tekur um leið fram að bændur eins og aðrir líði fyrir ógnarháa vexti og lágt gengi íslensku krónunnar, lausn þurfi að finnast á því vandamáli. Ef íslenski samningurinn yrði sam- bærilegur þeim finnska, gætu bænd- ur þá stutt inngöngu? „Það fer eftir því hvað er mikill greiðsluvilji hjá íslenska ríkinu. Ef gengið væri í ESB með tilheyrandi falli tollamúra, þyrftu bændur meiri fjárhagslegan stuðning en þeir fá í dag. Okkar svar er líkt og norskra bænda, án tollverndar er ekki grund- völlur fyrir landbúnaði.“ Bændum hefur fækkað und- anfarin ár. Hvernig sérð þú fyrir þér að landbúnaðurinn myndi þróast, gengi Ísland í sambandið? „Ég get ekki svarað því fyrir víst en það má alveg eins segja að við mundum hafa um 100 kúabændur og 300-400 sauðfjárbændur. Alifugla- og svínaræktin munu nánast hverfa og grænmetisrækt minnka til mikilla muna. Það verður bara sýn- ishornabúskapur á Íslandi,“ segir Haraldur. Fækkar líka utan ESB Bændum muni reyndar fækka þó Íslendingar gangi ekki í ESB, en ekki eins mikið. Þá myndi fram- leiðsla á mjólkurafurðum minnka til muna eftir inngöngu þótt áfram yrði framleidd drykkjarmjólk. Haraldur bendir hins vegar á að sú framleiðsla gefi mun minna af sér en sú sem nú er stunduð. Framleiðsla á drykkjar- mjólk eingöngu væri aðeins sýn- ishorn miðað við stöðuna í dag. Ekki yrðu bara bændur fyrir bú- sifjum. Haraldur að alifugla- og svínakjötsframleiðsla myndu að mestu hverfa og það myndi kippa fótunum undan flestum afurðastöð- um. Bændur myndu áfram njóta styrkja, en engir slíkir styrkir væru í boði fyrir afurðastöðvar eða aðra þjónustuaðila. Haraldur hefur miklar áhyggjur af afleiðingunum fyrir bæi eins og Blönduós og Selfoss sem byggja töluvert á afurðavinnslu. Stuðningur ríkisins við bændur hefur minnkað á undanförnum árum. Um leið hafa staðið yfir samninga- viðræður á vettvangi Alþjóða- viðskiptastofnunarinnar (WTO) um lækkun tolla og ríkisstyrkja. Hvaða stöðu yrði íslenskur landbúnaður í ef samningar tækjust á grundvelli WTO en Ísland stæði utan ESB? Haraldur dæsir. „Niðurstöður í samningaviðræðum WTO geta orðið slæmar. Niðurstöður WTO- samninga í þeirri mynd sem við bú- umst við, verða til að aftengja þarf framleiðslustuðninginn í meira mæli. En við gætum útfært slíkar breyt- ingar á okkar forsendum en ekki með aðild að ESB. En um nið- urstöður þeirra höfum nánast ekkert að segja, og þær snerta landbúnað í öllum ríkjum.“  Lengri útgáfa af viðtalinu er á mbl.is/ esb. Þar ræðir Haraldur um norska fóst- urvísa, matvælafrumvarpið, linkind stjórnvalda og fleira Bændur sjá ekki ljósið fyrir landbúnaðinn  Fáum ekki betri samning en Finnar ef stjórnmálamenn lýsa ekki yfir að landbúnaðurinn sé forgangsmál  Framleiðsla á mjólkurafurðum myndi minnka til muna þótt áfram yrði framleidd hér drykkjarmjólk Morgunblaðið/RAX Bóndi Haraldur Benediktsson er bóndi og formaður Bændasamtaka Íslands. FINNLAND Simo Tiainen er stjórnandi finnsku landbúnað- arsamtakanna, MTK Þ egar Finnland gekk í Evrópu- sambandið lækkaði verð til bænda á einni nóttu, mismikið eftir greinum, um 45-50 prósent að meðaltali. Þetta hefði verið bylmingshögg fyrir landbúnaðinn ef ekki hefðu verið fundnar leiðir til að bæta bændum upp áfallið með nokkrum aðferðum sem voru fundnar upp fyrir inngönguna. Þessi spurning skipti miklu máli í finnskum stjórn- málum,“ segir Simo Tiainen, stjórn- andi landbúnaðarsamtakanna MTK, um fyrstu áhrifin af inngöngunni á finnskan landbúnað. Hefð var fyrir verndun innlendrar landbúnaðarframleiðslu með bein- um, opinberum styrkjum og tolla- múrum. Til að vega upp á móti tapi bænda hafi verið samið um beinar greiðslur til stéttarinnar fyrir inn- gönguna, sem hafi þó einar og sér ekki bætt upp tapið sem þeir urðu fyrir samfara breyttu rekstr- arumhverfi. Byggðastefna til mótvægis „Stjórnvöld ýttu úr vör byggða- stefnu sem fól í sér stuðning við þróun og uppbyggingu á landsbyggðinni og í dreifbýli. Evrópusam- bandið tekur þátt í fjármögnun þessara verkefna. Meirihluti fjárins kemur hins veg- ar frá stjórnvöldum,“ segir hann og vísar til aðildarsáttmálans. „Veigamestu aðgerð- irnar voru sérákvæði í aðildarsáttmálanum, ákvæði sem eru mjög þekkt í bænda- samfélaginu,“ segir hann og á við sér- ákvæði 141 og 142. Nær fyrra ákvæðið til Suður- Finnlands en það veitir stjórnvöld- um heimild til að grípa til mótvægisaðgerða þegar kreppir að í landbúnaðinum í þeim hluta landsins. Það síðara er sniðið að Norður-Finnlandi og felur í sér stöðugar aðgerðir til stuðnings landbúnaðinum þar. Framleiðslan færist norður Inntur eftir áhrifum ákvæðanna segir Tiainen mikinn mun á land- búnaðarframleiðslunni í suður- og norðurhluta landsins. Framleiðslan sé hægt og sígandi að færast til norðurhlutans, þróun sem þegar hafi átt sér stað í mjólkur og nautakjötsframleiðslunni. Hluti ástæðunnar sé fólginn í styrkja- kerfinu, það er sérákvæði 142 um norðurhlutann. Bændur hafi meiri hagnað af landbúnaðarframleiðslunni í norð- urhlutanum en í suðurhlutanum. Aðspurður um afstöðu finnskra bænda til Evrópusambandsins segir Tiainen þá almennt ekki ánægða með stefnu sambandsins. Hans mat er að 90 prósent bænda og fjölskyldna þeirra styðji Miðflokk- inn, flokk bænda í gegnum tíðina. Landbúnaðurinn hafi, öndvert við iðnaðinn og útflutningsfyrirtækin, almennt verið mjög tortrygginn gagnvart inngöngunni. Hvað varðar hlut landbúnaðarins í þjóðarframleiðslunni þá hafi hann verið um 4 prósent við inngönguna, en 1,5 prósent í dag, eða þar um bil. Séu matvælaiðnaðurinn og tengd framleiðsla tekin með í reikninginn hækki hlutfallið í 15 prósent af þjóðarframleiðslunni, eða um það bil. Skrifræðið hefur aukist mikið Tiainen er þeirrar skoðunar að aðildin hafi aukið skrifræðið. „Inngangan í Evrópusambandið hefur stóraukið skrifræði í land- búnaðinum, þróun sem bændur eru vitaskuld ekki ánægðir með,“ segir Tiainen, sem telur að bændur fái nú jafnvel meiri styrki en fyrir að- ildina. „Ef þú leggur saman allan stuðn- inginn við bændur þá hefur hann aukist,“ segir hann og bendir á að meira fé renni nú til umhverf- isverndar á landbúnaðarsvæðum en áður. Hluti styrkjanna vegi upp á móti auknu álagi á bændur. baldura@mbl.is Skrifræði jókst, verð til bænda lækkaði en styrkir hækkuðu Simo Tiainen Landbúnaður var eitt umdeildasta málið í aðdraganda inngöngu Finnlands í ESB árið 1995 MEIRI VINNA Anders Winqvist ræktar korn F innski kornbónd- inn Anders Winqvist hefur sömu tekjur og fyrir inngöngu landsins í Evrópusambandið, þrátt fyrir að 70 hekt- ara býli hans sé 50 prósentum stærra en fyrir inngönguna. Áður voru 10 bændur í ná- grenninu, nú eru þeir aðeins þrír. Winqvist býr í grennd við Tuu- sulsa. Býli hans er sunnan við 62° breiddarbaug og fell- ur búskapurinn því ekki undir heim- skautalandbúnað. Að sögn Winqvists er skýringin einföld. Framlög Evróusambandsins til landbúnaðarins eru svo miklu lægri en opinberu styrkirnir áður að nauðsynlegt var að stækka býlin og helst að tvöfalda framleiðsluna til að fá sömu framlög og áður. Hlutur styrkja frá sambandinu í innkomu Winqvists, sem ræktar hveiti og malt, er á bilinu 50 til 60 prósent og þarf hann að gera grein fyrir hektarafjöldanum og hvað verið sé að rækta á landi hans. Að auki fari fulltrúar sambandsins yfir býlin á fimm ára fresti. Finni eftirlitsmenn misfellu í rekstrinum sé bændum refsað á þann hátt að næsta ár eru þeir ýmist aðvaraðir eða gengið svo langt að draga úr framlaginu. Eins og gefur að skilja hefur þró- unin leitt til þess að bændum hefur fækkað, hvort sem þeir hafa bú- fénað eða ekki, og segir Winqvist eina afleið- inguna þá að dregið hafi úr samtakamætt- inum. Það dragi úr hóp- eflinu þegar færri geti beitt sér í réttinda- málum bænda. „Markaðirnir sem kaupa vörurnar af bændunum fá mestan hluta hagnaðarins af framleiðslunni. Mark- aðsmennirnir geta sagt við bændurna að ef þeir séu ekki ánægðir geti þeir allt eins keypt vörur frá Danmörku eða Þýskalandi,“ segir Winqvist. Óvissa um framtíðina Aðspurður hvernig það sé að stunda búskap í þessu umhverfi seg- ir Winqvist óvissu ríkja um land- búnað í heiminum, ekki aðeins innan ESB. Inntur eftir afstöðu sinni til styrkjakerfis sambandsins kveðst Winqvist telja að færa megi rök fyrir því að miða eigi við að greiðslur séu í samræmi við framleiðni bænda. Hitt beri að hafa í huga að ESB sé bandalag sem nái suður til Miðjarð- arhafsins. Því sé ósanngjarnt að bera saman framleiðni í suður- og norðurhluta álfunnar. baldura@mbl.is  Lengri útgáfa er á mbl.is/esb Sömu tekjur af helmingi stærra búi Anders Winqvist FORMENN svína- og kjúklingabænda eru afar svartsýnir á stöðu sinna bú- greina, kæmi til aðildar Íslands að ESB. Spurðir um áhrif á verð segja þeir að sjálfsagt myndi verðið lækka fyrst í stað. Lítil samkeppni á mat- vælamarkaði myndi síðan éta upp þann hagnað neytenda. Mikil samþjöppun einkennir svína- og kjúklingarækt, í hvorri grein eru aðeins um 20 bændur. Svína- og kjúk- lingabændur benda á að margir starfi við úrvinnslu og þeir framleiði betri vöru en sé á boðstólum innan ESB.  Viðtöl við formenn svína- og kjúk- lingabænda eru á mbl.is/esb. Svartsýnir forystu- menn Skúli Einarsson Ingvi Stefánsson Evrópusambandið | Landbúnaður og byggðastefna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.