Morgunblaðið - 06.01.2009, Page 21

Morgunblaðið - 06.01.2009, Page 21
21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2009 Kisa langar inn Löngun til að heimsækja ferfætta félaga í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum virðist hafa gripið kisa þar sem hann situr vongóður við miðasöluna. Spurning hvort hann þarf að borga. Golli Í ANSI skemmtilegri bók sem undirritaður las nýverið, „Lean Thinking“ eftir James Womack og Daniel Jones, koma meðal annars fram magnaðar upplýsingar um til- urð gosdósar sem sannarlega vöktu þann er hér ritar til um- hugsunar. Í rannsókn sem þeir félagar framkvæmdu röktu þeir fram- leiðsluferil þann sem þarf til þess að koma gosdós til bresks neytanda, og komust að því að það var margfalt flóknara að búa til dósina sjálfa en innihaldið. Ferillinn hefst með því að báxít er numið í Ástralíu og flutt á risastórum vörubifreiðum í efnaverk- smiðju þar sem hálftíma meðhöndlun um- breytir hverju tonni af báxíti í hálft tonn af áloxíði. Þegar nægt magn af áloxíði hefur safn- ast upp í efnaverksmiðjunni er það sett í gríð- arstór flutningaskip sem flytja það yfir tvö heimshöf til Íslands, Noregs, eða Svíþjóðar, þar sem ódýr raforka frá fallvötnum er notuð til þess að breyta því úr áloxíði í hreint ál. Í álverksmiðjunni tekur það um tvo tíma að breyta hverju hálfu tonni af áloxíði í kvarttonn af hreinu áli, sem er svo steypt í tíu metra langa klumpa. Klumparnir eru geymdir í ál- verksmiðjunni í tvær vikur og síðan fluttir með öðru stóru flutningaskipi til Sví- þjóðar eða Þýskalands. Þar eru klumparinr hitaðir í um 450°C og valsaðir niður í stórar og langar plötur sem eru um 3mm að þykkt. Þessu er rúllað upp í tíu tonna rúll- ur sem síðan eru fluttar í vöru- geymslu. Þessu næst eru rúllurnar fluttar í kald-völsunarverksmiðju, oftast í sama landi, þar sem álið er valsað niður í þynnur sem eru að- eins um 0.3mm að þykkt, og verður þannig tilbúið til dósaframleiðslu. Álið er sent í þessu formi til Eng- lands, þar sem þynnurnar eru stansaðar í dósir sem síðan eru þvegnar, þurrkaðar, húðaðar með grunni og síðan mál- aðar með vörumerkjum og innihaldslýsingu. Þessu næst eru þær lakkaðar og sett á þær lokahúð, fláaðar að ofan vegna þess að ennþá vantar á þær lokið og húðaðar að innan með verndarlagi sem kemur í veg fyrir að sýran í gosinu éti upp álið. Að lokum er gerð á þeim gæðakönnun. Að þessu öllu loknu eru dósirnar settar á pallettu og fluttar með gaffallyfturum í geymslu þangað til þörf er fyrir þær. Þegar að því kemur eru þær fluttar enn einu sinni með vöruflutningabílum og nú til gosverksmiðj- unnar þar sem þeim er afpakkað og þvegnar enn einu sinni, síðan fylltar með vatni sem út í er blandað bragðsykursýrópinu, fosfór, kof- feini og kolsýrðu gasi. Sykurinn í sýrópinu er fenginn úr rófum sem ræktaðar eru í Frakk- landi. Rófurnar eru teknar upp, fluttar með flutningabílum í verksmiðjur sem hakka þær niður og vinna úr þeim sykurinn. Fosfórinn er fenginn frá Idaho fylki í Bandaríkjunum, þar sem hann er unninn upp úr risastórum opnum landnámum. Úr þessum sömu námum er einn- ig unnið kadmíum og geislavirkt þóríum. Fos- fórinn er fluttur úr forvinnslu í verksmiðju sem notar jafn mikla raforku á sólarhring og allir íbúar Reykjavíkur til þess að fullvinna fosfórinn þannig að hann sé hæfur til mat- vælaframleiðslu. Koffeinið í drykkinn er búið til í efnaverksmiðju og flutt til sýrópsframleið- andans þar sem því er bætt við sýrópið. Þegar dósirnar eru fylltar, fimmtánhundruð á mínútu hjá gosdrykkjaframleiðandanum, er loks sett á þær lok úr áli með hinum kunn- uglega hring til þess að opna dósina í einu þægilegu handtaki. Lokið er framleitt í sér- stakri verksmiðju sem stansar þau út úr eillitið þykkari álplötum ásamt hringnum sem síðan er hnoðaður í lokið með hnoðbolta. Rétt áður en lokið er herpt og krumpað fast á dósina er hún fyllt af gosdrykknum sem hefur andrá áð- ur verið mettaður kolsýrugasi. Dósirnar eru síðan settar í umbúðir úr pappa sem kemur úr pappaverksmiðjum í Svíþjóð eða Síberíu, og jafnvel frá hinum víðfeðmu upprunalegu skóg- um Bresku-Kólumbíu í Kanada. Á pappann eru forprentaðar auglýsingar og merkingar vörunnar. Utan um þetta er svo sett plast sem er herpt með snögghitun áður en kassinn er settur með fleiri slíkum á pallettu. Pallett- urnar eru svo fluttar til dreifingaraðila sem dreifa þeim í verslanir. Í versluninni dvelur hver dós að jafnaði 3 til 10 daga áður en hún selst neytandanum. Neytandinn kaupir svo þessi 340g til 500g eftir stærð dósarinnar af fosfórbættu, koffein- blönduðu, karamellu-bragðbætta og kolsýrða sykurvatni og gæðir sér á því. Að drekka inni- haldið tekur yfirleitt nokkrar mínútur, en það tekur sjaldnast meira en eina til tvær sek- úndur að henda dósinni í ruslið. Örlög flestra áldósanna er að enda í ruslahaugum eða land- fyllingum. Aðeins hluti þeirra ratar í endur- vinnslu. Í Bandaríkjunum er talið að um þrír fimmtu alls áls til iðnaðar séu fengnir með orkufrekri grunnvinnslu úr báxíði meðan Bandaríkja- menn fleygja nægu áli í formi gosdósa til að endurnýja allan flugflota þeirra til farþega- flugs á þriggja mánaða fresti, að sögn þeirra Wormack og Jones. Eftir Kristin Örn Torfason » Í rannsókn var rakið fram- leiðsluferli gosdósar til neytanda. Það reyndist marg- falt flóknara að búa til dósina sjálfa en innihaldið. Kristinn Örn Torfason Höfundur er forritari. Tilurð gosdósar Í föstudagshádegisfréttum út- varpsins var greint frá fylgi flokkanna í Þjóðarpúlsi Gallup. Lesnar voru fylgistölur þing- flokkanna og var Frjálslyndi flokkurinn með fjögur prósent. Þetta var síðan endurtekið í á mbl.is, visir.is, Stöð tvö og Bylgj- unni um kvöldið. Neytendur þessara fjölmiðla gátu ekki dreg- ið aðra ályktun af þessu en að fylgi Íslandshreyfingarinnar, sem hefur mælst stöðugt með allt að rúmlega 3% fylgi frá því síðastliðið vor, hefði hrunið gersamlega, því að fyrrnefndir fjöl- miðlar hafa greint frá fylgi hennar hingað til. Enda er hún einn af þeim flokkum sem buðu fram við síðustu kosningar. Á vefsíðunni gall- up.is var engar upplýsingar að finna. Glöggir og viðbragðsfljótir sjónvarpsáhorfendur gátu samt séð á súluriti í kvöldfréttum Sjónvarps- ins að Íslandshreyfingin væri með 4% fylgi, jafnmikið og Frjálslyndi flokkurinn og það mesta sem hún hefur mælst með í tæp tvö ár! Er þetta í annað skiptið sem þessi tveir flokkar mælast með svipað fylgi. Þessi mynd á sjónvarpsskjánum birtist hins vegar svo skamma stund og ekkert sagt um flokkana tvo að langflestir standa líklega enn í þeirri trú að fylgi Íslandshreyf- ingarinnar hafi gufað upp á sama tíma sem það var sérstaklega til- greint í fréttum útvarpsins að fylgi frjálslyndra væri meira en síðast. Upplýsingarnar á súlunni í Sjónvarpsfréttinni benda til þess að segja megi svipað um þögn fjölmiðlanna og frægur rithöfundur sagði að fregnir um and- lát hans væru stórlega ýktar. Athygli vakti að í fréttaflutningi var ekkert sagt um stærð úr- taks, svarhlutfall, fjölda óákveðinna eða þeirra, sem myndu vilja kjósa eitthvað annað en núverandi þingflokka. Um þessar mundir eru rót og gerjun meðal kjósenda og van- traust á núverandi þingflokkum. Því verður það að teljast sérkennilegur „þjóðarpúls“ að þurrka allt annað burtu en flokkana sem fengu fulltrúa á þingi 2007. Íslandshreyfingin – lifandi land er skráður og starfandi stjórn- málaflokkur sem bauð fram í öllum kjör- dæmum í síðustu kosningum en var rændur þingfylgi í samræmi við kjörfylgi með rang- látum og ólýðræðislegum kosningareglum. Ís- landshreyfingin er grasrótarhreyfing utan þings og kannski fellur hún ekki inn í þann stofnanahugsunarhátt sem birtist í fram- angreindum fréttaflutningi. Eftir Ómar Ragnarsson » Glöggir og viðbragðsfljótir sjónvarpsáhorfendur gátu samt séð á súluriti í kvöldfréttum Sjónvarpsins að Íslandshreyf- ingin væri með 4% fylgi, jafn- mikið og Frjálslyndi flokkurinn. Ómar Ragnarsson Höfundur er formaður Íslandshreyfingarinnar – lifandi lands. Þegar fylgið óx hvarf það í fjölmiðlum BLOG.ISViggó Jörgensson | 5. janúar ESB = Íslenskur þjóðarauður til Austur Evrópu … við verðum betlarar … Flestir muna eftir því þeg- ar Vestur Þjóðverjar sem voru eitt öflugasta hag- kerfi heims, tóku Austur- Þýskaland yfir. Þetta reyndist svo skelfilega dýrt að Þjóðverjar eru ekki enn búnir að bíta úr nálinni með þann kostnað. Fyrrverandi komm- únistalönd hafa undanfarin ár hamast við að komast inn í ESB. Þær þjóðir von- ast auðvitað til að verða keyptar hratt inn í nútímann eins og gert var við Aust- ur-Þjóðverja. Og hverjir eiga að borga herkostnaðinn? Jú einmitt, ríku þjóð- irnar í Vestur Evrópu. Gangi Íslendingar í ESB koma hingað togarar frá Spáni og fleiri löndum og ryksuga upp íslensk fiskimið... Meira: viggojorgens.blog.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.