Morgunblaðið - 06.01.2009, Síða 22

Morgunblaðið - 06.01.2009, Síða 22
22 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2009 „JÓLIN væru ekki söm án Coca Cola“ stendur á heimasíðunni Coke.is, síðu sem virð- ist fyrst og fremst hafa verið sett upp samhliða hinni árlegu Coca Cola jólalest sem keyrði um borgina nýlega. Coca Cola fyrirtækinu hefur með ágengni sinni tek- ist að eigna sér jólin og svo virðist sem margir taki undir þá vitleysu að jólalest fyrirtækisins hringi inn jólin. Fyrirtækið hefur fengið að halda tiltölulega fallegri og óskaddaðri ímynd hér á landi, fæstir vita um mannréttinda- og umhverfisbrot þess t.d. á Indlandi, í Kólumbíu og El Salvador, auk þess sem Vífilfell virð- ist vera afskaplega duglegt við að gefa fjármagn til góðgerðamála. Ein af auglýsingaherferðum fyr- irtækisins upp á síðkastið er setn- ingin „Vertu Coke-megin í lífinu“ sem nú hefur breyst og orðið „Jólin, Coke-megin í lífinu“. Á árunum 1990 – 2002 voru átta verkalýðsleiðtogar Coca Cola verka- fólks í Kólumbíu drepnir. Barátta þeirra fyrir betri aðstæðum og kjör- um virðist hafa verið ástæða morð- anna á þeim. Hundruð annarra starfsmanna fyrirtækisins þar í landi hafa verið pyntuð fyrir sömu sakir. Þeir og fjölskyldur þeirra hafa svo sannarlega aðra mynd af „Coke- hlið“ lífsins heldur en það unga fólk sem í auglýsingum fyrirtækisins hleypur um og dansar í gleði sinn, gjörsamlega stjórnlaust af kók- drykkju. Það sama má segja um ind- verska fólkið sem berst af öllum sín- um krafti við hið geysistóra Coca Cola fyrirtæki fyrir verndun drykkjarvatns síns. Í El Salvador vinna börn niður í 12 ára aldur við sykurræktun fyrir þennan tilgangs- lausa, tannskemmandi gosdrykk. Að vera „Coke-megin í lífinu“ er kannski bara mismunandi eftir heimsálfum. Eða er það kannski bara það að búa í fyrsta heims ríki? Er Coke-hliðin kannski bara Vest- urlönd? Á vefsíðu fyrirtæk- isins má finna eftirfar- andi þvælu um her- ferðina: „Við búum í heimi þar sem við tök- um ákvarðanir á hverj- um degi og Coke-hlið lífsins hvetur fólk til þess að taka jákvæðar ákvarðanir. Þessi nýja herferð býður fólki að skapa sinn eigin já- kvæða raunveruleika, vera ósjálfrátt, hlusta á hjarta sitt og lifa í fullu litskrúði.“ [Íslensk þýðing er mín.] Það væri forvitnilegt að heyra hvað forsvarsfólk fyrirtækisins ráð- leggur fjölskyldum þeirra verkalýðs- leiðtoga sem hafa verið myrtir. Hvernig eiga þær að skapa jákvæð- an raunveruleika eftir missi fjöl- skyldumeðlima sinna? Er nóg fyrir fólkið að fá sér bara stóran sopa eða verður það líka að vera ungt og fal- legt samkvæmt vestrænum stöðl- um? Um miðjan desember, enn eitt ár- ið í röð, keyrði jólalest Coca Cola um Reykjavík. Á Laugaveginum höfðu nokkur hundruð ef ekki þúsund manns, aðallega fjölskyldufólk, stillt sér upp til þess að fylgjast með lest- inni keyra framhjá. Og til að sjá hvað? Risastóra auglýsingu í lög- reglufylgd; lygi um að Coca Cola færi fólki jólin og að þau væru ekki söm án drykkjarins. Það er vert að staldra við og spyrja sig hvert samfélag okkar er komið, þegar stórfyrirtæki fær að- stoð lögreglu við að keyra auglýs- ingar sínar út um allan bæ og þegar sá sem á nóga peninga getur gert ná- kvæmlega það sem honum sýnist fyrir peningana og í nafni þeirra. Það er alveg skiljanlegt að börn- um þyki hávær tónlist og ljósaseríur aðlaðandi. Það finnst mér líka stund- um. En er samfélagið virkilega orðið svo firrt að fólk sér ekki lengur mun á skemmtun og auglýsingum? Stór- fyrirtæki beina svo sannarlega spjótum sínum að börnum og hefur Coca Cola t.d. látið búa til spennandi sjónvarpsauglýsingar í teiknimynda- stíl. Fæst börn skilja muninn þar á milli. Svoleiðis herferðir er ekkert annað hægt að kalla en barnaníð. Börn eiga það svo sannarlega ekki skilið að vera blekkt á þennan hátt, talin trú um að ákveðið stórfyrirtæki færi þeim jólin, hamingju, spennu eða nokkuð annað. Hvað þá að vera dregin út á Laugaveg til þess að glápa á risastóra auglýsingu, nóg er nú af þeim fyrir. Börn eiga það ekki skilið að borða Framsóknarflokks- frostpinna og ganga um með Glitnis- húfu. Fyrirtæki eiga einfaldlega að láta börn vera, burtséð frá því hvort fyrirtækið er með langa sögu mann- réttindabrota á bakinu eða ekki. Ég vona heitt og innilega að þau börn sem horfðu á jólalestina keyra niður Laugaveginn fái að heyra sannleikann um Coca Cola og þeim detti ekki í hug að biðja um að fá að endurtaka leikinn á næsta ári. Að sama skapi vona ég að foreldrar sjái að sér og útskýri fyrir börnum sínum muninn á skemmtun og auglýs- ingum, því án þess að vera fær um að greina þar á milli eru þau gjör- samlega varnarlaus. Að lokum get ég ekki annað en skorað á Coca Cola að fara strax aðra ferð um borgina með jólalestina sína en í þetta sinn veggfóðra vöru- bílana sína með myndum af líkum kólumbísku verkalýðsleiðtoganna átta: Avelino Achicanoy, Jose Ela- seasar MancoDavid, Luis Enrique Giraldo Arango, Luis Enrique Go- mez Garado, Isidro Segundo Gil, Jose Librado Herrera Osorio, Oscar Dario Soto Polo og Adolfo de Jesus Munera Lopez. Grátkór barnanna þeirra hljómar eflaust vel undir. Vonandi verða jafnmargar fjöl- skyldur á svæðinu þá. Um mannréttindabrot Coca Cola í Kólumbíu má lesa um á vefsíðunni: www.killercoke.org Að vera kók-megin í lífinu = Að búa í fyrsta heims ríki Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson skrifar um Coca Cola » Á árunum 1990 – 2002 voru átta verkalýðsleiðtogar Coca Cola verkafólks í Kól- umbíu drepnir, vegna baráttu sinnar fyrir betri aðstæðum og kjörum. Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson Höfundur er listamaður. Í RÁÐLEGG- INGUM Evrópuráðsins til íslenskra stjórnvalda frá 13. febrúar 2007 er fyrirkomulag íslensku- kennslu fyrir útlendinga gagnrýnt. Sumir fái námskeiðin end- urgreidd, aðrir ekki. Sumir ekki aðrir fái að taka námskeiðin í vinnutíma, misjafnt aðgengi sé að námskeiðum eftir landshlutum, gæði kennslunnar séu misjöfn. Mjög mikilvægt, segir í skýrslunni, sé að kippa þessu í liðinn þar sem íslenskunám sé forsenda fyr- ir búsetuleyfi. Ekki er síður ástæða til þess nú eftir að íslenskupróf er orðið forsenda fyrir ríkisborgararétti. Mikilvægt er auðvitað að þeir sem búa hér varanlega hafi eitthvert vald á íslensku þó ekki væri nema vegna þess að umburðarlyndi í garð þeirra sem tala litla íslensku er af skornum skammti. Hins vegar verður að gera ríka kröfu til jafnræðis að nám- skeiðum eins og Evrópuráðið hefur bent á. Þar eigum við enn töluvert langt í land. Víða í Evrópu fer nú fram mikið endurmat á þeim kröfum sem rétt er að gera til þeirra sem sækjast eftir því að búa í nýju landi. Flestir virðast á því að eðlilegt sé að gera þátt- töku í tungumála- námskeiðum að for- sendu fyrir búsetuleyfi eða ríkisborgararétti en skiptari skoðanir eru um hvort rétt sé að gera prófkröfur. Þá fer það í vöxt að þekking á helstu grunn- þáttum hins nýja samfélags sé gerð að skilyrði (t.d. í Þýskalandi). Í okkar tilfelli væri sennilega spurt að því hvað átt væri við með aðskilnaði lög- gjafarvalds, framkvæmdavalds og dómsvalds og hvað hétu þeir forset- inn og seðlabankastjórinn. Undirrit- uðum finnst sjálfsagt að fólk sitji námskeið um hvort tveggja en hæpið að gera prófkröfur. Það ætti að vera nægilegt að gera þátttökukröfur. Þegar öllu er á botninn hvolft er það nefnilega þátttakan sem skiptir máli þegar kemur að því að búa í nýju samfélagi. Og tungumál hins nýja lands kemur hvort sem er fyrst og fremst með börnunum. Undanþágu- ákvæðin eru þröng eins og bent er á í leiðara Morgunblaðisins (29/12). Mið- ast við 65 ára gamalt fólk og börn á grunnskólaaldri. Mér finnst 65 ára aldurinn fullhár (við sendum ráð- herra á eftirlaun miklu yngri) og það þarf auðvitað að vera undanþágu- ákvæði fyrir þá sem ganga ekki heilir til skógar. En mikilvægast er að jafna aðgengi að íslenskunámskeiðum þannig að konur og karlar um allt land í öllum atvinnugreinum á öllum tekjustigum sitji við sama borð. Og helst ætti þátttakan í námskeiðum að nægja. Íslenskunám og ríkisborgararéttur Baldur Kristjánsson fjallar um íslensku- kennslu fyrir útlendinga »Mikilvægt er auðvit- að að þeir sem búa hér varanlega hafi eitt- hvert vald á íslensku þó ekki væri nema vegna þess að umburðarlyndi í garð þeirra sem tala litla íslensku er af skornum skammti. Baldur Kristjánsson Höfundur er sérfræðingur tilnefndur af Íslands hálfu í ECRÍ nefndar Evrópuráðsins sem fæst við mismunun sem á rætur sínar í uppruna fólks, trú og menningu. HÚN var heldur kuldaleg jólakveðjan sem formaður LÍN sendi viðskiptamönn- um sínum í hádeg- isfréttum Stöðvar 2 á aðfangadag jóla. Þar sagði Gunnar Birg- isson að mikinn tíma hefði tekið að fara yfir þær 150 umsóknir sem bárust um neyðarlán og að ungt fólk væri oft óþolinmótt. Námsmenn gengu við betlistaf Öllum mátti vera ljós sú alvarlega staða sem námsmenn lentu í þegar framfærsla þeirra minnkaði um allt að 70% í haust. Námsmenn sem höfðu gert leigusamninga og aðrar skuldbindingar vöknuðu við það að íslenska krónan rýrnaði verulega að verðgildi og ekki var unnt að senda þeim meira fjármagn vegna vand- ræða í gjaldeyrismillifærslum. Svo slæm var staðan að heimamenn er- lendis sem báru hlýhug til íslensku þjóðarinnar tóku einhverja íslenska námsmenn upp á sína arma auk þess sem erlendir samnemar lánuðu þess- um ólánsömu námsmönnum fyrir mat. Þrátt fyrir þetta tók það nokkra mánuði fyrir stjórn LÍN að komast í gegnum umsóknirnar, sem halda mætti að hefðu skipt tugum þúsunda. Sérstaða skiptinema Í fyrrnefndri frétt var sagt að að- eins sjö umsóknir af 150 um neyð- arlán hefðu verið samþykktar og að námslán væru greidd út á gengi út- borgunardags. Þetta er hinsvegar ekki alveg rétt því það á ekki við um skiptinema. Gengi útborgunar þeirra er fastsett þann 26. september síð- astliðinn, fyrir hrun bankanna. Það er því ljóst að auk þeirra sem áttu í veru- legum erfiðleikum í haust kemur stór hópur skiptinema nú heim um jólin með yfirdráttarlán á bakinu sem lán frá LÍN hrökkva ekki fyrir. Þeir sem ekki áttu fyrir flugmiðum heim slógu lán í algjörri óvissu um að útborgun LÍN mundi duga þegar heim væri komið. Námsmenn sýndu einstaka þolinmæði Nær hefði verið að bíða með yf- irlýsingarnar í stað þess að lofa námsmönnum neyðarlánum og hafna síðan yfirgnæfandi meirihluta umsókna. Margir höfðu þá þegar gert ráðstafanir til að útvega tíma- bundið lánsfé þar til þessi viðbótar- lán yrðu greidd. LÍN hefði að minnsta kosti geta flokkað umsóknir eftir alvarleika og greitt út mishá viðbótarlán. Það er ljóst að þegar gjaldmiðill fellur jafn svakalega og íslenska krónan hefur gert þá þarf að grípa til neyðarúrræða. Það er ekki neyðarúrræði að samþykkja sjö umsóknir og segja svo að ungt fólk sé upp til hópa óþolinmótt. Það er ekkert svar við þeirri þolinmæði sem námsmenn hafa sýnt. Óþolinmæði námsmanna í neyð Georg Brynjarsson skrifar um beiðnir námsmanna um neyðarlán Georg Brynjarsson »Nær hefði verið að bíða með yfirlýs- ingarnar í stað þess að lofa námsmönnum neyðarlánum og hafna síðan yfirgnæfandi meirihluta umsókna. Skiptinemi við University of California, UCSD. Í INNYFLAHRÍÐ okkar daga geta jafnvel hinir bestu fréttamenn misst í brók í ákaf- anum við að búa til blóðríka hasarfrétt. Það henti eina af stjörnum Stöðvar 2 í frétt í gær um fjárfestingasamning vegna álvers í Helguvík. Í fréttinni gerði Kristján Már Unnarsson því skóna að ég hefði blekkt fólk og félaga þeg- ar ég sagði í grein í Frétta- blaðinu að jafnvel þó álver í Helguvík yrði 360 þúsund tonn, þyrfti ekki þess vegna að virkja Neðri-Þjórsá. Ekki neita ég því, að mér þótti vont að hlusta á Stöð 2 brigsla mér um óheilindi, og verra, að það skyldi vera Kristján Már, sem ég hefði gjarnan viljað hafa í mínu liði meðan stóð á ritstjóraparti til- veru minnar. Í fréttinni ræddi fréttamaður við margar heimildir, og hafði víða leitað fanga. Það var eft- irtektarvert að hann sneiddi af stakri fimi framhjá þeim, sem hefði getað upplýst hann um hvaðeina, sem viðkom samn- ingnum – manninum sem heim- ilaði hann. Það gerði ég. Hefði Kristján Már leitað til mín, myndi ég líklega hafa lesið fyrir hann grein í samningnum, þar sem segir að stækkun ál- versins umfram þau 250 þúsund tonn, sem þegar eru leyfi fyrir, væri háð viðbótarumhverf- isleyfum og aukinni orkufram- leiðslu samkvæmt sam- komulögum við Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur. Það er ástæðan fyrir því að Neðri-Þjórsá verður ekki virkj- uð vegna álvers í Helguvík. Þessi tvö fyrirtæki hafa gert samkomulag um að afla 625 MW fyrir Helguvík. Það er svo þeirra, og fyrirtækisins, hvort og hvernig það verður uppfyllt. Ef ekki, tekur hvorki iðn- aðarráðherra né Neðri-Þjórsá ábyrgð á því. Fyrir tiltölulega skömmu var það grunnregla í fréttamennsku að leita frumheimilda ef þess var kostur, og önnur grunn- regla var að leyfa þeim sem getsökum var borinn að svara þeim. En náttúrulega hefði það skemmt góða hasarfrétt, og skotleyfin ódýr á stjórn- málamenn þessa dagana. Á tímum kólerunnar í Kólom- bíu var það ástin sem dafnaði og á fjölmiðlaskeiði búðar- auðvaldsins hér á landi er það hasarinn sem magnast. Kanski er það þessvegna sem þeim á Stöð 2 þykir betra að láta menn snýta rauðu en skrifa rétta frétt. Össur Skarphéðinsson Standardinn á Stöð 2 Höfundur er iðnaðarráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.