Morgunblaðið - 06.01.2009, Side 29

Morgunblaðið - 06.01.2009, Side 29
Hann ferðaðist allmikið um Evrópu áður en ferðalög urðu á hvers manns færi. Þegar ég fór til Þýskalands kringum 1970 rétti hann mér kort af borginni sem ég ætlaði að búa í og gaf mér ýmsar upplýsingar um staðhætti þar. Rússlandsferð þeirra Sigurðar Baldurssonar á sjöunda áratugnum varð vinsælt söguefni í vinahópnum ásamt vísum sem Halldór orti um helstu stjórnmálamenn Austur-Evr- ópu. En á landafræðiþekkingu Hall- dórs varð ég mest undrandi þegar hann ræddi af tilviljun við mig um Afríku á unglingsárum mínum og nefndi m.a. höfuðborgir smæstu ríkja þeirrar álfu. Heimili Halldórs og Hildar við Stýrimannastíg má helst líkja við höfðingjasetur þar sem smekkvísi og fágun er í fyrirrúmi. Þarna var löngum glatt á hjalla enda heimilið eins og opin gestastofa. Þau Halldór og Hildur höfðu einstakt lag á að gera gestum sínum til hæfis, ungum sem öldnum. Það má segja að allt hafi iðað af krafti og snilld í kringum þau. Mað- ur gleymdi sér við „bókadrauminn og böguglauminn“ ellegar fróðleik um horfna snillinga, kannski ekki síst þá sem bjuggu við Breiðafjörðinn, ætt- menn Hildar, sem settu mikinn svip á íslenskt þjóðlíf og menningu á 19. öld. Halldór reyndist Unni uppeldis- dóttur sinni sem besti faðir enda kunni hún að meta hann. Unnur lést langt um aldur fram árið 1981 og varð harmdauði þeim sem þekktu hana best. – Á heimilinu var einnig um ára- bil öldruð móðir Hildar, frú Margrét Árnadóttir, höfðingleg sýslumanns- ekkja úr Stykkishólmi; gagnkvæm virðing ríkti milli hennar og Halldórs. Hún lést í hárri elli. Þannig má segja að á Stýrimannastíg hafi tengslin við 19. öldina verið milliliðalaus fram und- ir lok þeirrar tuttugustu. En í bland við hið gamla var alltaf eitthvað nýtt, og fáa vissi ég sem fylgdust betur en Halldór með nýútkomnum bókum. Með miklu þakklæti minnist ég Halldórs Þorbjörnssonar og hugsa nú til Hildar sem hefur misst sinn góða eiginmann. Samhentari hjónum held ég að ég hafi ekki kynnst. Yfir þeim var þessi andi menningar og mennta. Þau voru glæsilegir fulltrúar þeirrar kyn- slóðar sem nú hefur dregið sig í hlé. Baldur Hafstað. Það var fyrir 25 árum að ég mun hafa verið í nokkuð hæpnum aksturs- tilraunum á hjóli í æskuhverfinu. Enduðu tilraunirnar með því að ég steypist af fáknum fyrir utan hús númer 6 við Stýrimannastíg. Húsráð- endur komu fram á gangstéttina og mér var kippt inn fyrir, gert að sári og gefið að drekka. Þannig hófust kynni mín af Halldóri og Hildi. Fyrstu árin sátum við í eldhúsinu og þegar ég þurfti ekki lengur að príla upp á stigahandriðið til að ná í rauðu dyrabjölluna var við hæfi að færa sig í stofuna. Þaðan á ég flestar minning- arnar. Halldór í stólnum sínum við gluggann, oftast í jakkafötum með pípuna í munninum og bækurnar í skrifborðshillunni honum á vinstri hönd. Það var ósjaldan að húsbóndinn fletti upp í lögfræðinga- eða kennara- tali þegar athuga þurfti uppruna og ættartengsl fólks sem kom upp í um- ræðum okkar. Táningsárin voru tilraunatími eins og hjá flestum en mér kom aldrei til hugar að mæta í heimsókn á Stýri- mannastíginn öðruvísi en vel til fara. Tungulokkurinn var skrúfaður úr og húðflúrið vandlega falið. Virðingin mikil og ekki vildi ég valda vonbrigð- um og líta út fyrir að vera táningur í smávegis uppreisn. Gleymi aldrei sögunni af stólnum hans Halldórs sem ónefndur dönsku- kennari við Hagaskóla settist í fyrir mörgum árum og átti erfitt með að komast úr sökum holdafars. Oft hef ég endurtekið lýsinguna fyrir skóla- félögunum. Halldór með miklar áhyggjur af að stóllinn léti undan og gott ef hann endurlifði ekki augna- blikið því svo mikið var honum niðri fyrir í lýsingunni. En sem betur fer þoldi stóllinn þungann og var áfram á sínum stað. Kynni mín af Halldóri og Hildi hafa alltaf verið mér hjartfólgin. Virðingin mikil og væntumþykjan innileg. Hvíldu í friði, vinur minn. Elísabet Árnadóttir. Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2009 ✝ Kristbjörg Guð-mundsdóttir Thomsen fæddist á Sæbóli á Ingjalds- sandi á páskadag 1. apríl 1923. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi í Reykjavík aðfaranótt jóladags 25. desember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Guð- mundur Guðmunds- son frá Sæbóli á Ingj- aldssandi í Önundarfirði, f. á Kleifum í Seyðisfirði við Djúp 12.2. 1889, d. 15.10. 1969 og Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. á Arnarstapa á Snæfellsnesi 15.12. 1890, d. 22.9. 1965. Kristbjörg var fjórða barn þeirra hjóna af átta systkinum. Eiginmaður Kristbjargar var Pétur Thomsen ljósmyndari, f. í Reykjavík 19.6. 1910, d. 17.6. 1988. Foreldrar hans voru Friðrik Valdi- mar Halldórsson prentari, f. í Reykjavík 15.7. 1888, d. 18.8. 1921 og Elín Kristjana Thomsen, f. í Reykjavík 7.9. 1888, d. 7.2. 1957. Börn Kristbjargar eru þrjú: 1) Guð- rún Björk Guðmundsdóttir, f. 6.12. 1940, maki Tryggvi Kristjánsson, f. 28.9. 1936. Börn þeirra eru: a) Sverrir, f. 12.7. 1959, maki Guðný Hulda Reymarsdóttir, f. 21.10. 1960, þau eiga tvö börn. b) Reynir, f. 23.1. 1961, d. 12.5. 1961. c) Þor- valdur Sævar, f. 17.6. 1963. Hann á tvö börn frá fyrra hjónabandi. Sambýliskona Ewa Agata Alexdóttir, f. 24.3. 1968. Hún á tvö börn frá fyrra hjóna- bandi. d) Ómar Örn, f. 9.5. 1970, maki Maria Enriqueta Saenz, f. 6.11. 1968. Þau eiga þrjú börn. 2) Helga Thomsen, f. í Reykja- vík 1.12. 1944, maki Ragnar Kjartansson, f. 4.3. 1942, d. 12.7. 2008. Börn þeirra eru: a) Ragnheið- ur Sif, f. 26.8. 1962, maki Birgir Arnarson, f. 18.4. 1960. Þau eiga einn son. b) Regína Hrönn, f. 24.3. 1965. c) Jóhann Friðrik, f. 25.8. 1974, maki Ragnheiður Péturs- dóttir, f. 23.10. 1974. Þau eiga tvær dætur. 3) Birgir Thomsen, f. í Reykjavík 13.12. 1946, maki Erla Thomsen, f. 2.1. 1946. Börn þeirra eru: a) Örn, f. 14.2. 1966, maki Katrín Ólafsdóttir, f. 15.8. 1965, þau eiga tvö börn. b) Ingibjörg, f. 9.12. 1970, maki Bjarni Guðmunds- son, f. 25.10. 1969. Þau eiga þrjú börn. c) Pétur, f. 17.7. 1973, sam- býliskona Karen Ósk Sigurð- ardóttir. Pétur á tvær dætur frá fyrra hjónabandi. Útför Kristbjargar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. Elsku amma. Það er svo margt sem mig langar til að segja þér að leiðarlokum. Þú varst svo óendanlega dýrmæt og góð við allt og alla í kringum þig en ætlaðist til einskis í staðinn. Þú varst alla tíð svo snyrtilega til fara og áttir svo mikið af fallegum slæð- um. Fórst reglulega í lagningu og málaðir augabrýnnar svo fallega. Ég man eftir okkur í Garðastræt- inu sitjandi inni í stofu hlið við hlið í sófanum, þú varst svo mjúk og hlý. Við ræddum um heima og geima og þú sagðir mér ýmsar sögur af þér og þínum. Þið afi voruð svo iðin og kappsfull við ýmsa handavinnu og prjónaðir þú mikið alla tíð. Eftir að afi dó skelltir þú þér í kórstarf á fullu og hafðir mikla unun af. Það var yndislegt að koma á tónleika hjá ykkur og hlusta á ykkur syngja. Það var sko söngur sem kom beint frá hjartanu og hitti beint í hjarta- stað. Sumarið sem ég gerðist kaupa- kona í sveit átti ég páfagauk sem hét Tumi. Ég var svo heppinn að þú og afi fóstruðuð hann fyrir mig á meðan. Um haustið var Tumi orð- inn að Bensa og farinn að tala og dansa. Ekki séns að ég tæki hann þaðan sem honum leið eins og kóngi í ríki sínu sem hann stjórnaði í u.þ.b. 10 ár. Treilerinn ykkar afa á Þingvöll- um kemur oft upp í hugann því þangað fórum við Bjarni oft. Skutl- að austur á föstudegi og sótt á sunnudegi því við vorum ekki komin með bílpróf. Nokkrum árum seinna var brunað austur og hvar annars staðar en í treilernum voru settir upp trúlofunarhringarnir. Þegar frumburðurinn fæddist og við flutt í Kópavoginn labbaði ég oft til þín með snúlluna í vagninum og rædd- um við þá um daginn og veginn og gerðum að sið að borða jarðaberj- arúllutertu. Það var alltaf ótrúleg værð og friður yfir þér svo að oft og iðulega sofnuðum við mæðgur á sóf- anum hjá þér og löbbuðum svo end- urnærðar á sál og líkama heim. Öll börnin okkar voru svo heppinn að fá að kynnast þér og upplifa nærveru þína og hlýju, ómetanlegt. Það voru líka ekki jólin nema að þú værir hjá okkur og vorum við svo heppin að fá að hafa þig á aðfangadag á með- an þú hafðir heilsu til. Eftir að þú fluttir í Seljahlíð og minnið var eðli- lega orðið gloppótt þá þótti mér svo óendanlega vænt um að þú þekktir mig alltaf þegar ég kom til þín og börnin fengu alltaf knús og koss frá þér. Þegar þú fórst mikið veik upp á spítala rétt fyrir jólin þá kom ég til þín en þú varst sofandi og svo mikil værð og friður yfir þér. Ég strauk ennið þitt og kyssti þig. Vildi ekki vekja þig en signdi yfir þig eins og þú varst alltaf vön að gera við okkur þegar við kvöddumst. Ég vissi að við myndum ekki hittast aftur strax svo að ég strauk ennið þitt aftur og kyssti þig aftur og signdi yfir þig aftur. Afi hefur örugglega verið glað- astur allra að fá hana Kittý sína til sín, eins og hann kallaði þig, svo að hann hafi nú einhvern til að tuða svolítið í. Minningarnar flæða fram og eru okkur öllum svo dýrmætar og geymast með okkur. Þegar að því kemur þá skal ég koma með jarðaberjarúllutertu handa okkur. Guð geymi þig, elsku amma. Ingibjörg Thomsen og fjölskylda. Kristbjörg Guðmunds- dóttir Thomsen ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, KRISTÍNAR HARALDSDÓTTUR, Ásgarði 8, Reykjanesbæ. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir umhyggju og hlýlegt viðmót. Guðmundur Ómar Sighvatsson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Freyja Sigurðardóttir, Bryndís Guðmundsdóttir, Aron Ómarsson, Íris Guðmundsdóttir og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug, vináttu og samúð við andlát og útför SVANS GEIRDAL fyrrverandi yfirlögregluþjóns á Akranesi. Una Guðmundsdóttir, Linda Björk Svansdóttir, Hrafnhildur Svansdóttir, Guðmundur Rúnar Skúlason, Guðmundur Rafn Svansson, Guðrún Adolfsdóttir, Arnar Svansson, Jenný Þórkatla Magnúsdóttir, Halla Svansdóttir, Jóhannes Þór Harðarson og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR KLEMENZSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Búðarflöt Álftanesi, verður jarðsunginn frá Bessastaðakirkju miðvikudaginn 7. janúar kl. 13.00. Sigurrós Grímsdóttir, Gunnar Sigurðsson, Jóna Guðlaugsdóttir, Hallgrímur Sigurðsson, Sólveig Einarsdóttir, Bertha María Sigurðardóttir, Róbert Þórðarson, barnabörn og barnabarnabörn. Elsku amma, hér eru mín kveðjuorð til þín. Ég hef verið undir þínum vernd- arvæng síðan ég fæddist, þú varst mér sem móðir. Það er erfitt að lýsa þér en þinn sterki persónuleiki hefur mótað mig meira en nokkur annar. Þú varst í aðra röndina ákveðin, metnaðargjörn og gagn- rýnin en á hinn bóginn góð, gjaf- mild og ótrúlega traust og trú þínu fólki. Þú varst eins og klettur, kona sem ól upp tvær kynslóðir. Þú varst glæsileg og smekkleg og að mörgu leyti á undan þinni samtíð. Ég er viss um að þú hefðir komist langt í atvinnulífinu hefðir þú fæðst fyrr og haft þau tækifæri sem við kyn- systur þínar höfðum seinna. Magnea Ásmundsdóttir ✝ Magnea Ás-mundsdóttir, Maggý, eins og hún var oftast kölluð, fæddist í Reykjavík 5. júní 1923. Hún lést á Landspítalanum að kvöldi föstudagsins 12. desember síðast- liðins og fór útför hennar fram frá Digraneskirkju 20. desember, í kyrrþey. Þú lagðir áherslu á að ég nýtti þau tæki- færi sem mér gæfust og menntaði mig, sem ég og gerði. Þegar ég fór svo út í hinn stóra heim var ég aldrei ör- yggislaus eða smeyk, ég átti þig að. Klett- urinn hún amma myndi alltaf bjarga henni Björgu sinni. Nú ertu farin, skjólið sem ég hef alltaf átt. Ég á erfitt en samt er ég sátt. Ég er sátt vegna þess að veikindi þín og vanlíðan stóðu stutt. Ég er sátt vegna þess að þú varst andlega mjög vel á þig komin og gast búið ein og án aðstoðar fram á síðustu stundu. Ég er sátt því að þú ert enn hjá mér og munt alltaf verða. Ég mun alltaf vilja lifa mínu lífi þannig að þú sért stolt af mér. En mest er ég sátt því að nú þarf afi ekki lengur að bíða eftir þér, ást- inni sinni. Núna ertu hjá honum og Jónu systur þinni og Jóa mági þín- um. Þið öll vakið yfir okkur sem kveðjum þig nú. Elsku amma, takk fyrir allt, þín Björg. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, FREYR MAGNÚSSON, Ljárskógum 12, Reykjavík, sem andaðist á Landspítalanum fimmtudaginn 1. janúar, verður jarðsunginn frá Seljakirkju miðvikudaginn 7. janúar klukkan 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á að láta Sjónarhól ráðgjafarmiðstöð eða önnur góðgerðarfélög njóta þess. Soffía Jensdóttir, Jóna Freysdóttir, Ásmundur Eiríksson, Ásta Sóllilja Freysdóttir, Michael Johnston, Stefán Freyr Michaelsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.