Morgunblaðið - 06.01.2009, Side 30

Morgunblaðið - 06.01.2009, Side 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Barnagæsla Barngóð ,,amma" óskast til að sækja tvær systur í Rvk. á leikskóla 3svar í viku og gæta á heim- ili þeirra. Þarf að hafa bíl. Tími ca. 15- 18. Uppl.s. 856 9312 eða barnapossun113@gmail.com. Gisting Sumarhús til leigu miðsvæðis á Akureyri Þrjú svefnherbergi (78 fm). Rúm fyrir sjö. Verönd og heitur pottur. Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net- samband. Uppl. á www.saeluhus.is eða í s. 618-2800. Heilsa Léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuðum Aldrei verið auðveldara að losna við aukakílóin. Aukin orka, vellíðan og betri svefn. Engin örvandi efni. Uppl. Dóra 869-2024. www.dietkur.is 3 skref 3 skref til betri heilsu. Það er auðvelt, einfalt og þú þarft ekki að gera þetta allt á eigin spýtur. Hentar vel til að stjórna þyngd og hafa sem mesta orku fyrir daginn. Hafðu samband í síma 445-0812 og við munum hjálpa þér að taka þessi þrjú auðveldu skref. Húsnæði í boði Til leigu 3 herbergja íbúð í 107 Rvk. Til leigu falleg 83 fm, 3 herbergja íbúð í Vesturbænum. Stutt frá HÍ og miðbænum. Laus frá 1. feb. Húsgögn fylgja ef þess er óskað. Uppl. í síma 690-7627. Stór tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í litlu fjölbýli í Kringlunni með sérgarði. Íbúðin losnar 1. janúar nk. Upplýsingar í s: 899-7012. Húsnæði óskast 4ra herb. íbúð í 101 Rvík Erum 3 vinkonur að leita að 4ra herb. íbúð í 101 Rvík. Við erum pottþéttir leigjendur (2 laga- nemar og ein í viðskiptafræði) og heitum skilvísum greiðslum. Nánari upplýsingar í s. 866 0778. Sumarhús Sumarhús - orlofshús. Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Iðnaðarmenn Vantar þig rafvirkja?? Rafvirki getur bætt við sig vinnu, tek að mér nýlagnir, breytingar, viðhald o.fl. Sími 821-1334, Helgi. Námskeið Frábært, rafrænt námskeið í netviðskiptum. Notaðu áhugamál þitt, kunnáttu og sérþekkingu til að skapa þér góðar og vaxandi tekjur á netinu. Við kennum þér hvernig! Skoðaðu málið á http://www.menntun.com Til sölu Útsala - Útsala - Útsala Kristal ljósakrónur, vandaðar postu- líns-, kristal- og trévörur. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Hólfin eru komin aftur ! - Geymdu það sem þér þykir vænt um. Öryggishólf fyrir heimili og hótel. Rökrás ehf. Kirkjulundi 19. Sími 565 9393. www.rokras.is. Verslun Trúlofunarhringar Eigum einnig trúlofunarhringa á lágu verði úr titanium, silfri eða tungsten. Verð á pari með áletrun 16- 18.500,- ERNA, Skipholti 3, s. 552-0775, www.erna.is Byggingavörur www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt ÚT AÐ GANGA! Eigum úrval af vönduðum götuskóm úr leðri, skinnfóðraða, fyrir dömur og herra. Mjúkir og þægilegir leðurskór á góðum gúmmísóla fyrir dömur. Stærðir: 36 - 42. Litir: Rautt og svart. Verð: 11.900.- Mjúkir og þægilegir leðurskór með stömum sóla fyrir dömur. Stærðir: 36 - 42. Litir: svart. Verð: 11.900. Vandaðar og góðar herramokka- síur úr leðri. Stærðir: 40 - 46. Litir: Svartir og ljósir. Verð: 6.885.- Flottir og sportlegir leðurskór fyrir alvöru menn. Stærðir: 40 - 48. Litir: Svart, brúnt og mislitt. Verð: 9.985.- Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070, opið: mán. - fös. 10 - 18. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is People wanted to pose for photo project People wanted to pose for photo- graphy project. Must be available some weekends. Aged 21-100 every- body welcome. tony@icelandaurora.com NÝTT LÍF - HREYFUM OKKUR Á NÝJU ÁRI Íþróttahaldarinn sívinsæli í BCD skálum Í SVÖRTU OG HVÍTU á kr. 3.850,- og aðhaldsbuxur í stíl í stærðum S,M,L,XL á kr. 1.950,-- Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Bátar Réttindanám fyrir skemmtibáta Réttindanám fyrir báta undir 12 metrum og skemmtibáta. Fjarnám við Framhaldsskólann í Austur- Skaftafellssýslu. Skráning á vefnum: www.fas.is og í síma 470-8070. Umsóknarfrestur til 14. janúar 2009. Bílaþjónusta Húsviðhald Eruð þið leið á baðherberginu? Breytum, bætum og flísaleggjum. Upplýsingar í síma 899 9825. Einkamál German business men searching a nice, creative, intelligent wo- men about 25-40 years old. Mobil nr. 00491736590562 Óska eftir Óska eftir gömlum peninga- seðlum og mynt Óska eftir að kaupa íslenska gamla peningaseðla og íslenska mynt. Silfur og gull minnispeninga. Vinsamlegast hringið í 699-1159. atvinna ✝ Ólafía SigurbjörgÓlafsdóttir fædd- ist á Álftarhóli í Aust- ur - Landeyjum 25. febrúar 1927. Hún lést á Líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi 21. desember síð- astliðinn. Foreldar hennar voru hjónin Sigurbjörg Árnadótt- ir, f. 27. ágúst 1885, d. 28. október 1975, frá Miðmörk, V- Eyjafjöllum, og Ólaf- ur Halldórsson, f. 16. ágúst 1874, d. 5. júlí 1963, frá Rauðafelli, A-Eyjafjöllum. Ólafía var þriðja yngst í hópi 12 barna hjónanna á Álftarhóli. Systkini Ólaf- íu eru: Óskar, f. 1911, d. 1989, Jón- ína Geirlaug, f. 1913, Engilbert Mar- íus, f. 1914, d. 1989, Laufey, f. 1915, d. 1999, Björgvin Árni, f. 1917, Unn- ur, f. 1919, Katrín, f. 1921, d. 1994, Rósa, f. 1922, Júlía, f. 1924, Kristín, f. 1928 og Ágúst, f. 1930. Ólafía giftist 1947 Jósef Björns- og Sjafnar Guðmundsdóttur, f. 1955 eru Jósef Eir, f. 1975 og Sara, f. 1976. Dóttir Björns og Hjördísar Guðmundsdóttur, f. 1948 er Dóra Bryndís, f. 1986. 4) Ólafur, f. 30. október 1963, maki Steinunn Svan- borg Gísladóttir, f. 5. október 1967. Börn þeirra eru Ólafur Jósef, f. 1992, Berglind María, f. 1994 og Arnar Dór, f. 1999. Ólafía hélt heimili frá 1975 og þar til hann lést, með Georg Sig- hvati Sigurðssyni, f. 29. maí 1922, d. 21. nóvember 2001. Börn Georgs og Ólafíu Egilsdóttur eru: 1) Sig- urður Ingi, f. 1944, maki Anna Sig- ríður Sigurðardóttir. Þau eiga tvo syni og fjögur barnabörn. 2) Rós- hildur Agla, f. 1946. Börn hennar og Ólafs Finnbogasonar eru fjögur og 10 barnabörn. 3) Anna Þuríður, f. 1949, d. 2005. Börn hennar og Haraldar Stefánssonar eru þrjú og 5 barnabörn. 4) Jóna Margrét, f. 1951, maki Kristinn Magnússon. Þau eiga tvær dætur og tvö barna- börn. Ólafía fór 16 ára að heiman, fyrst til Vestmannaeyja en síðan til Reykjavíkur þar sem hún bjó alla tíð síðan. Í Reykjavík vann hún meðal annars hjá Pétri Daníels- syni, eiganda Hótels Skjaldbreiðar, sem húshjálp og einnig í eldhúsi hótelsins. Eftir að fyrsta barnið fæddist var Ólafía heimavinnandi húsmóðir allt þar til Jósef lést 1965. Ólafía og Jósef bjuggu ásamt Ingibjörgu móður Jósefs nokkur ár í Skerjafirði en 1960 fluttist fjöl- skyldan síðan á Sólvallagötu 28. Ári eftir að Jósef lést 1965 flutti Ólafía ásamt börnum og tengda- móður í Skipholt 45. Árið 1966 hóf Ólafía störf hjá Flugfélagi Íslands, fyrst í hlaðdeild við þrif á flug- vélum en síðan í mötuneyti á Reykjavíkurflugvelli. Hún vann samfellt hjá Flugfélagi Íslands, síð- ar Flugleiðum, í yfir þrjátíu ár þar til hún lét af störfum vegna aldurs. Ólafía bjó í Skipholti 45 í 40 ár en fluttist árið 2006 í Lækjasmára 21 þar sem hún bjó til dauðadags. Ólafía var alin upp á mann- mörgu heimili við erfiðar aðstæður þar sem lítið var um aðgang að formlegri menntun. Saknaði hún þess ætíð að hafa ekki fengið tæki- færi til mennta, en hún hefði átt létt með slíkt vegna meðfædds dugnaðar og ósérhlífni. Þess í stað einbeitti hún sér að því að búa fjöl- skyldu sinni gott heimili, og áttu allir, börn, stjúpbörn, barnabörn og barnabarnabörn öruggt athvarf hjá henni. Útför Ólafíu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. syni, f. 15. desember 1927, d. 11. nóvember 1965, aðeins 37 ára gamall. Börn þeirra eru: 1) Ásta, f. 8. jan- úar 1948, d. 1. apríl 1948. 2) Svanhvít Ásta, f. 14. janúar 1949, maki Ásgeir Ólafsson, f. 20. ágúst 1949. Börn þeirra eru: A) Ebba Ólafía, f. 1968, maki Guðni Guðjónsson, f. 1965. Þau eiga þrjá syni: a) Ásgeir Elvar, f. 1984, maki Íris Ósk Hjálmarsdóttir, f. 1986. Börn þeirra eru Elva Karen, f. 2005 og Arnar Bjarki, f. 2008. b) Bjarni Haukur, f. 1988, unnusta El- sie Kristinsdóttir, f. 1990. c) Páll Kristinn, f. 1998. B) Ólafur Brynjar, f. 1972, sambýliskona Åsa Elisabet Emelie Ljungberg, f. 1983, sonur þeirra er Anton Óskar, f. 2008. C) Heiðar Þór, f. 1976. 3) Björn Ingi, f. 8. mars 1950, maki Dóra Ásgeirs- dóttir, f. 3. júní 1953. Börn Björns Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Ástkær tengdamóðir mín, Ólafía Sigurbjörg Ólafsdóttir, hefur kvatt þennan heim eftir erfið veikindi. Olla fæddist í Vestur-Landeyjum ár- ið 1927, þriðja yngst í stórum systk- inahópi, en flutti til Reykjavíkur 16 ára gömul. Hún varð ekkja ung að árum, þá með þrjú börn á framfæri, og þurfti ætíð að vinna hörðum höndum fyrir heimilinu. Fjölskyldan skipti Ollu miklu máli. Í brjósti hennar sló stórt og kærleiksríkt hjarta og nutu börn hennar, tengda- börn, systkini og niðjar þeirra ætíð góðs af þeirri ást, umhyggju og hlýju sem hún hafði fram að færa. Kynni okkar Ollu hófust þegar ég giftist syni hennar, Birni Inga, árið 1991. Hún sagði við mig eftir brúð- kaupið að ekkert þýddi að reyna að skila honum Bjössa aftur, skilafrest- urinn væri löngu útrunninn – við brúðhjónin vorum reyndar komin af léttasta skeiði. Í fyrstu vissi ég ekki alveg hvernig ég átti að taka þessum orðum, en áttaði mig fljótlega á ríkri kímnigáfu hennar tengdamóður minnar. Olla var vel gefin kona og feiknalega dugleg. Hún hafði Ólafía Sigurbjörg Ólafsdóttir ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og var sniðug í tilsvörum. Hún var einnig stórglæsileg kona, hafði yndi af tónlist og naut þess að klæða sig upp á. Ég minnist þess hversu mjög það gladdi hana að fá að gjöf silkislæður og perlur frá Kína. Olla var mikill dýravinur, einkum voru fuglar henni kærir. Ófáir spörfuglarnir fengu gott í gogginn hjá henni yfir vetrartím- ann. Og ekki skildi hún hrafninn út- undan – krummi fékk ekki fáa kjöt- bitana hjá henni. Við þessi tímamót reikar hugur- inn víða og minningarnar um góða konu og ánægjulegar samveru- stundir, heima og að heiman, hrann- ast upp. Ég minnist hennar tengda- móður minnar með virðingu og söknuði. Hvíl þú í friði, elsku Olla mín. Þín tengdadóttir Dóra. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Hún amma mín hefur verið mjög góð við alla. Hún á líka mikið í hjarta mínu og hún hefur verið mjög indæl við alla. Hún var líka falleg kona og ég elska þig. Vonandi gleymi ég þér aldrei og ég vona að þér líki vel að vera hjá Guði. Kveðja og þúsund kossar. Þinn Arnar Dór Ólafsson.  Fleiri minningargreinar um Ólaf- íu Sigurbjörgu Ólafsdóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.