Morgunblaðið - 06.01.2009, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.01.2009, Blaðsíða 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2009 Atvinnuauglýsingar Hótel í miðborginni Óskum eftir að ráða starfsfólk í gestamóttöku, annars vegar á næturvaktir og hins vegar á síðdegisvaktir þar sem unnið er aðra hverja helgi. Leitum að fólki með góða tungumálakunnáttu, hæfni í mannlegum samskiptum, góða tölvuþekkingu og skilning á markaðsmálum. Nánari upplýsingar eru að finna á heimasíðu okkar, www.centerhotels.is Umsóknir óskast sendar á job@centerhotels.is Viðkomandi aðilar þurfa að geta hafið störf fljótlega. Fundir/Mannfagnaðir Aukaaðalfundur Aukaaðalfundur Lögmannafélags Íslands verður haldinn miðvikudaginn 21. janúar 2009, kl. 16:30 í húsnæði félagsins að Álftamýri 9. Dagskrá: 1. Kjör fulltrúa félagsins í úrskurðarnefnd lögmanna og varamanns hans, samkvæmt 3. gr. lögmannalaga nr. 77/1998, sbr. 3. gr. laga nr. 93/2004. Stjórn Lögmannafélags Íslands. Nauðungarsala Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hafnar- stræti 107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Hafnarbraut 14, verslun, iðnaður, (215-4889) Dalvíkurbyggð, þingl. eig. SS eignarhaldsfélag ehf., gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf., föstudaginn 9. janúar 2009 kl. 10:00. Munkaþverárstræti 11, íb. 01-0101 (214-9304) Akureyri, þingl. eig. Selló ehf., gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 9. janúar 2009 kl. 10:00. Möðruvellir, jörð (lnr.152731) (fnr. 215-9327) Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Hlín Steinarsdóttir og Jósef Guðbjartur Kristjánsson, gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf., föstudaginn 9. janúar 2009 kl. 10:00. Möðruvellir, jörð, útih. (lnr. 152731) (fnr. 215-9325) Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Hlín Steinarsdóttir og Jósef Guðbjartur Kristjánsson, gerðarbeiðendur NBI hf. og Vörður tryggingar hf., föstudaginn 9. janúar 2009 kl. 10:00. Sólvellir íb. 01-0301 (215-6726) Dalvíkurbyggð, þingl. eig. Ingibjörg Þórl. Þorsteinsdóttir, gerðarbeiðandi Sparisjóður Svarfdæla, föstudaginn 9. janúar 2009 kl. 10:00. Strandgata 49, geymsla 02-0104 (225-4640) Akureyri, þingl. eig. Björgvin Ólafsson, gerðarbeiðandi Avant hf., föstudaginn 9. janúar 2009 kl. 10:00. Tjarnarlundur 18 E íb. 03-0301 (215-1296) Akureyri, þingl. eig. Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður, Lostæti ehf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., föstudaginn 9. janúar 2009 kl. 10:00. Tryggvabraut 22, 01-0101 (215-1339) Akureyri, þingl. eig. Brauðgerð Axels ehf., gerðarbeiðendur Íslensk-ameríska verslfél. ehf. og Sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 9. janúar 2009 kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 5. janúar 2009. Halla Einarsdóttir, ftr. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Hlíðarhjalli 64, 0202, ásamt bílskúr (206-1993), þingl. eig. Guðlaugur Leósson, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., Frjálsi lífeyrissjóðurinn og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, föstudaginn 9. janúar 2009 kl. 11:00. Nýbýlavegur 10, 0101 (206-4399), þingl. eig. Nýbýlavegur 10 ehf., gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn í Kópavogi, föstudaginn 9. janúar 2009 kl. 11:30. Sýslumaðurinn í Kópavogi, 5. janúar 2009. Tilkynningar TAG PÅ HØJSKOLE I DANMARK Mediehøjskole Offshore Højskolen Højskolen for Politik Højskolen for Internationalt Arbejde Prisen dækker: • fuld pension • enkeltværelse med bad og toilet • undervisning • materialer • og et meget højt serviceniveau kr. 15 .000 +stu diere jse kr. 3. 000 Få tilsendt vores brochure! Esbjerg Højskole Stormgade 200 • 6700 Esbjerg • Tlf. 79 13 74 00 • www.eh.dk • eh@eh.dk 13 ugers højskolekursus 1. marts - 2. juni 2009 Efnistaka af hafsbotni í sunnanverðum Faxaflóa Mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar Mannvit hf. hefur, fyrir hönd Björgunar ehf., tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar um frummatsskýrslu efnistöku af hafsbotni í sunnanverðum Faxaflóa. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 6. janúar til 18. febrúar 2009 á eftirtöldum stöðum: Í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu Mannvits: www.mannvit.is. Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 18. febrúar 2009 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfis- áhrifum, nr. 106/2000 m.s.b. Skipulagsstofnun.  HLÍN 6009010619 VI Raðauglýsingar 569 1100 Félagslíf Þjónustuauglýsingar 5691100 ✝ Sverrir Guð-jónsson fæddist í Reykjavík 6. janúar 1942. Hann lést í New York 1. október síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Jónína Vil- borg Ólafsdóttir, f. 1903, d. 1970, og Guð- jón Jónsson hús- gagnasmiður, f. 1994, d. 1952. Systkini Sverris eru sjö: 1) Jón Vilberg, 2) Sigurjón, 3) Ólafur, 4) Brynhildur, 5) Vil- borg, 6) Gyða, og 7) Guðrún. Sverrir gekk í Laugarnesskóla og hann lauk landsprófi. Hann fluttist til New York 1964, þar sem hann bjó þar til hann lést. Útför Sverris fer fram frá Laugarnes- kirkju í dag ogg hefst athöfnin klukk- an 11. Vinur minn Sverrir Guðjónsson er látinn. Hann andaðist í New York, þar sem hann hafði búið stærstan hluta ævi sinnar, í þann mund sem bankakreppan var að læsa klóm sín- um í okkur af fullum krafti. Ættjarð- arástin brann alla tíð í brjósti Sverr- is eins og hjá svo mörgum sem dvelja langtímum í útlegð, jafnvel þegar hún er sjálfskipuð. Víðförlir landar gátu þekkt hann á götum New York-borgar, því hann klædd- ist íslenskum fatnaði hvenær sem því varð við komið. Lopapeysa og ullarvettlingar, ásamt hnéháum Nokia-stígvélum voru vetrarklæðn- aður, litríkir bolir með áletruninni „Reykjavík“ eða „Iceland“ voru til sumarbrúks. Allir sem hann hitti fengu að vita að hann væri Íslend- ingur og íslenskt vatn keypti hann í Whole Food-búðinni handan við hornið. Sverrir var sérstakur; einlægur og trúr öllum sem hann þekkti. Okk- ar vinskapur hófst á unglingsárum og var ekki bara bundinn mér heldur allri fjölskyldu minni. Hjá okkur gekk hann ævinlega undir nafninu „Sverrir vinskapur“. Sverrir átti sér þann draum að komast til Banda- ríkjanna, sá draumur rættist en svo var ekki um alla hans drauma. Nokkrum mánuðum eftir að hann steig á land í New York var hann kvaddur í herinn. Þetta var á árum Víetnamstríðsins og þangað lá leið hans. Það var erfið lífsreynsla en eft- ir að hann sneri aftur eyddi hann frí- tímum sínum í að hjálpa þeim sem verst höfðu orðið úti eftir dvölinni þar. Dvölin í hernum veitti honum þó rétt til námsstyrkja, sem hann nýtti til að læra leiklist. Það var stóri draumurinn. Þar á eftir fór hann í söng- og dansnám. Þegar hann sagði mér frá því minnti ég hann á að ég hefði kennt honum að tjútta. Það fannst Sverri lúmskt fyndið. En þótt Sverrir helgað allt sitt líf leitinni að frægð í heimi listarinnar náði hann aldrei að höndla hana. Ekki frekar en svo margir aðrir á sömu braut. Þrátt fyrir fjarlægðina héldum við alltaf sambandi. Nokkrum sinnum heimsótti ég hann. Eitt sinn kom hann upp á hótelherbergi og spilaði og söng klukkutímaprógramm fyrir mig. Ég var dauðhrædd um að vera vísað af hótelinu vegna hávaða. Þá var hann byrjaður að læra klassísk- an söng hjá gamalli prímadonnu á 5th Avenue. Hann var henni afar góður enda minnti hún hann á móður hans. Síðast heimsótti ég hann fyrir tveimur árum. Þá hafði hann fengið íbúð í húsi leikarafélagsins. Þar naut hann sín. Hann bauð mér í leikhús og á sýningu New York-ballettsins og á tónleika í Carnegie Hall, sem var bara steinsnar frá heimili hans. Eitt kvöldið eldaði hann fyrir mig Pollo alla limone, en það var einn af sérréttum hans þegar hann starfaði sem ítalskur kokkur á Sal Antony’s og eldaði ofan í stórstjörnurnar. Maður þarf ekki að vera stórstjarna til að fá að njóta þess besta. Í þessari ferð áttaði ég mig á að aðlögun hans að stórborgalífinu var slík að hann gæti aldrei snúið aftur til Íslands til að setjast að. Sverrir missti mikið þegar móðir hans dó og þrátt fyrir stóran og samheldinn systkinahóp fækkaði ferðum hans hingað heim eftir það. Ég veit að þau munu sakna hans og það geri ég líka. Ragnhildur Kolka. Elsku frændi! Takk fyrir þær fáu en góðu stundir sem við höfum átt saman. Þegar við hugsum til þín sprettur alltaf á okkur bros því þú gafst okk- ur svo miklar minningar, hvort sem það var þegar við heimsóttum þig til New York og þú þeyttist með okkur um alla Manhattan eða þegar þú komst heim til Íslands og við sátum saman hérna heima í stofu eða á kaffihúsi og töluðum saman um heima og geima. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Kær kveðja. Oddur Ólafsson, Elsa Sigtryggsdóttir, Elísabet Kristín Oddsdóttir, Oddur Bjarki Hafstein og Nína Björk Oddsdóttir. Sverrir Guðjónsson Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Myndir | Ef mynd hefur birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minning- argreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.