Morgunblaðið - 06.01.2009, Page 34

Morgunblaðið - 06.01.2009, Page 34
34 Menning MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2009 DANSKA skáld- konan Inger Christensen, sem lést sl. föstudag 73 ára að aldri, var margorðuð við nób- elsverðlaun án þess þó að hljóta þau. Hún var eitt þekktasta skáld sinnar kynslóðar í Danmörku, þekkt fyrir form- tilraunir sínar og frumleika. Christensen, sem fæddist í bæn- um Vejle árið 1935, fékk fyrsta ljóðasafn sitt, Lys [Ljós], gefið út ár- ið 1969. Ári síðar kom út bókin Græs [Gras]. Það var þó ekki fyrr en með ljóðasafninu Det [Það], sem hún vakti verulega athygli, og var verkið álitið skipta sköpum í ferli hennar. Illskilgreinanleg skáldverk Eftir að þessar bækur komu út sneri Christensen sér að greina- skrifum, skáldsögum og barnabók- um í rúman áratug áður en hún sendi frá sér ljóðabók. Það var árið 1981 að bókin Alfabet [Stafrófið] kom út og síðan Sommerfugledalen [Fiðrildadalurinn] árið 1991, sem gagnrýnendur telja hennar helsta meistaraverk. Sagt hefur verið um skáldskap Christensen að erfitt sé að skil- greina hann. Erik Nielsen, prófessor í bókmenntum við Kaupmannahafn- arháskóla, lýsti þó verkum hennar á þann veg að henni hefði tekist að „nota ópersónulegt kerfi til að skapa einkar persónulegan skáldskap“. Christensen var sæmd mörgum merkilegum bókmenntaverðlaunum á lífsleiðinni þótt henni féllu ekki nóbelsverðlaun í skaut og naut mik- illar virðingar meðal kollega sinna. Ítrekað orðuð við Nóbelinn Skáldið Inger Christensen látin Inger Christensen EITT umtal- aðasta málið í ensku menning- arlífi snýst um ör- lög meist- araverks frá 16. öld eftir Titian, „Diana og Acta- eon“, sem er í eigu hertogans af Sutherland en hefur alla síðustu öld verið til sýnis í Þjóðarlistasafni Skotlands. Hertoginn ákvað á liðnu ári að selja verkið en var reiðubúinn að selja það ríkinu fyrir 50 milljónir punda, þrátt fyrir að hærra verð fengist fyrir það á frjálsum markaði. Fyrir tæpri öld stóð síðast til að selja verkið og þá tókust iðnjöfurinn Frick í New York og National Gall- ery í London á um það, og voru verk- ið og systurverkið „Diana og Castill- io“ talin verðmætustu myndverk sem til væru. Breskir fjölmiðlar greindu frá því í gær, að svo virtist sem verkið yrði áfram í safninu, því hið opinbera í Skotlandi hygðist leggja fram 17,5 milljónir. Listasafnið leggur fram aðrar 12,5. Listasjóður Englands hafði áður lofað einni milljón og Nat- ional Heritage Memorial Fund tíu milljónum punda. Hermt er að her- toginn sætti sig nú við þessar 41 milljónir, um 7,2 milljarða króna. Titianverk- ið kyrrt? Hluti verksins Diana og Actaeon. Í TILEFNI af sjötugsafmæli Böðvars Guðmundssonar rit- höfundar verður efnt til lista- vöku í Íslensku óperunni við Ingólfsstræti sunnudaginn 11. janúar. Flutt verða brot úr leikritum Böðvars, lesið úr skáldsögum hans og ljóðum og sungnir textar af ýmsu tagi frá ólíkum tímum á ferli hans. Hefst vak- an kl. 17:00. Böðvar hefur samið mörg vinsæl verk gegnum tíðina en hvað mestri hylli náðu Vesturfarasögur hans, Lífsins tré og Híbýli vindanna. Miðar á Böðvarsvöku 2009 eru seldir á miði.is og við innganginn. Miðaverð er 1.500 krónur. Bókmenntir Böðvarsvaka í Óp- erunni á sunnudag Böðvar Guðmundsson HELENA Guðlaug Bjarna- dóttir sópransöngkona, Una Björg Hjartardóttir þver- flautuleikari, Ásdís Arn- ardóttir sellóleikari og Guðný Erla Guðmundsdóttir semb- alleikari koma fram á fyrstu hádegistónleikum Tónlistar- félags Akureyrar á þessu ári. Þær flytja aríur eftir Luigi Cherubini, Georg Friedrich Händel og Sir Henry Bishop – skemmtilega og forvitnilega blöndu tónlistar þriggja merkra tónskálda. Tónleikarnir verða í Ketilhúsinu á föstudaginn kl. 12.15, og verður hægt að fá dýrindis súpu í upphafi þeirra. Tónlist Tónlist Cherubini, Händel og Bishop Beethoven STEVE Christer frá Studíó Granda og Helena Jóns- dóttir dansari og myndlistarmaður eru meðal þátttak- enda á alþjóðlegu listsýningunni Freeze sem verður opnuð í Anchorage í Kanada í vikunni. Verkin á sýningunni eru unnin í sam- vinnu reyndra arkitekta og myndlistarmanna. Þátttakendur skapa innsetningar sem byggja á ljósi og snjó – efnisþáttum sem eru einkenn- andi fyrir norræna veturinn. Sex „lið“, skipuð myndlistarmanni og arkitekt, taka þátt í sýning- unni. Sýningin er skipulögð af Alaska Design Forum. Myndlist og hönnun Verk úr snjó og ljósi í Alaska Tillaga Studíó Granda og Helenu Jónsdóttur að verkinu Crate. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is BRESKIR listamenn stofnuðu á síðasta ári vettvang fyrir nýútskrif- aða óperusöngvara og aðra unga listamenn sem hyggja á störf í óp- eruheiminum. The Co-Operative Opera Company brúar bilið milli náms og starfs, hjálpar ungu fólki að laga sig að aðstæðum alvörunnar, kennir því að takast á við prufu- söngva og klífa þá hjalla sem klífa þarf til að geta starfað við óperu. Fjölmargir þekktir óperulista- menn, söngvarar, hljómsveit- arstjórar, leikstjórar, leikarar og dansarar starfa við Co-Opera-Co, en meðal þeirra er Sigríður Ella Magn- úsdóttir mezzósópran, sem hefur átt farsælan feril í óperuhúsum erlend- is og búið í London um árabil. „Það er hópur af fólki sem tók sig saman um að gera þetta; aðallega söngvarar, en líka hljómsveit- arstjórar, leikstjórar og fleiri. Eitt helgarnámskeið er haldið í hverjum mánuði fram að sumri og síðan er tveggja vikna í sumarskóli, sem undirbýr, sviðsetur og sýnir tvær óperur. Þetta fólk er allt mjög þekkt í Bretlandi og víðar. Ég var valin í þennan hóp sem raddþjálfari vegna þess að ég hef getið mér orð sem söngkennari og fyrir að geta leyst ýmis raddvandamál.“ Í endalausum prufusöng Þeir sem skara fram úr í skóla eiga auðveldast með að fá vinnu og umboðsmenn, en Sigríður Ella segir að það sé þó ekki sjálfgefið. „Í skóla er fólki yfirleitt lítið kennt um það hvernig það á að koma sér áfram. Óperuhúsin í Bretlandi ráða ekki marga í fast starf og fólk fær ekki samninga til lengri tíma. Þess vegna þarf fólk stöðugt að fara í prufusöng upp á nýtt. Flestir fara til Þýska- lands þar sem flest tækifærin eru og óperuhús mun fleiri en í Bret- landi. Þeir sem standa að Co-Opera- Co vildu koma til móts við þennan hóp og sinna honum. Þetta er ekki hugsað sem gróðastarfsemi heldur fyrst og fremst stuðningur við þá sem eru búnir að læra en eru á ýms- um stöðum í ferlinu að koma sér í vinnu. Þátttökugjaldi er haldið í lág- marki og allir kennararnir fá sömu laun.“ Sigríður Ella segir að erfitt sé að koma sér á framfæri. Í prufu- söngvum óperuhúsanna séu jafnvel 80 manns að reyna sig við hvert hlutverk. Samkeppnin sé því mikil. Hvernig á að fara í prufusöng „Námskeiðin sem við höldum verða mjög fjölbreytt, allt frá því að taka fyrir atriði eins og resitatív – söngles, til þess að kenna fólki hvernig það á að fara í prufusöng. Hver vinnuhelgi verður um 17 tímar og fólk fær mikið fyrir það sem það borgar. Margt af því fólki sem kenn- ir í Co-Opera-Co gefur annars ekki kost á sér í kennslu fyrir utan örfáa sem starfa gagngert við það. Verk- efnið er spennandi og ég vona að það gagnist fólki.“ Stofnandi og stjórnandi Co- Opera-Co heitir Kate Flowers, og að sögn Sigríðar Ellu velur hún sjálf þá leiðbeinendur sem hún vill vinna með og telur henta til að kenna unga fólkinu. Fyrsta námskeiðið hefst um næstu helgi en undirbún- ingur hefur staðið síðan í sumar. Sigríður Ella hefur þegar sett sig í samband við Söngskólann í Reykjavík og íslenska söngvara til að láta vita af starfsemi Co-Opera- Co, og einnig beint þangað eigin nemendum. „Ég vona að íslenskir söngvarar geti nýtt sér þetta tæki- færi. Þarna er góður hópur sem kennir, og í söngkennslu er orð- sporið það eina sem gildir.“ Fáir læra að koma sér áfram  Co-Operative Opera Company kennir ungum óperulistamönnum að spjara sig  Sigríður Ella Magnúsdóttir kennir ásamt mörgum mestu listamönnum Breta Morgunblaðið/Golli Sigríður Ella „Ég var valin í hópinn sem raddþjálfari vegna þess að ég hef getið mér orð sem söngkennari og fyrir að geta leyst ýmis raddvandamál.“ Co-Opera-Co-co.org Í JÓLADAGSKRÁ eistneska ríkissjónvarpsins kom Páll Ragnar Pálsson tónskáld fram ásamt unnustu sinni, Tui Hirv, á jóladagskvöld og fluttu þau Vísur Vatnsenda-Rósu, eftir Jón Ásgeirsson. „Við vorum búin að æfa þetta ágætlega,“ segir Páll Ragnar. „Við erum bæði í framhaldsnámi hér í Tallinn, ég í tónsmíðum en Tui í tónlistarfræðum, en hún er menntuð söngkona og syngur með Fíl- harmóníukammerkór Eistlands. Tui var boðið að syngja í þættinum og spurði hvort það mætti ekki vera eitthvað íslenskt. Mér fannst liggja beint við að flytja þetta lag. Það er gaman að breiða út þjóðararfinn.“ Þetta var í fyrsta sinn sem Páll treður upp í Eistlandi, eftir að hann hóf framhaldsnám þar haustið 2007, en nokkur tónverka hans hafa verið flutt á tónleikum þar í landi. Arvo Pärt er þekktasta tónskáld Eista en Páll segir að tónlistarlífið sé mjög blómlegt og margt að læra á því sviði. „Hér er mikið af tónleikum og mörg önnur góð tónskáld. Tónlistin er svo rík í þjóðarsálinni, og sérstaklega söngurinn.“ Á heimasíðu Páls kemur fram að hann hafi sótt tíma hjá Pärt. „Hann fékkst til að taka nokkra nemendur úr tónsmíðadeildinni í stutta einkatíma og alla í hóptíma. Það er magnað að hlusta á Pärt tala um tónlist á heimspekilegum nótum. Ég hef lengi verið mikill aðdáandi hans,“ segir hann. Páll Ragnar var gítarleikari Maus. Er hann hættur að rokka? „Það hefur ekki verið mikið rokkað upp á síðkastið.“ Hann hlær. „Ég er ekk- ert hættur, þetta er eðlileg þróun; ég er alveg til í að klæðast rokkskónum ef landið liggur þannig. En nú er ég að fást við tónsmíðarnar.“ efi@mbl.is Breiða út þjóðararfinn Tónskáldið „Það er magnað að hlusta á Pärt tala um tónlist á heimspekilegum nótum,“ segir Páll. Páll Ragnar Pálsson lék á gítar í eistneskum jólaþætti Markmið Co-Opera-Co er að gefa ungum listamönnum tækifæri til að vinna með og læra af bestu listamönnum sem völ er á í dag. Á lista yfir þá sem kenna á nám- skeiðum Co-Opera-Co eru heims- frægir listamenn og margir virt- ustu tónlistarmenn Breta. Dame Felicity Lott sópransöngkona hef- ur verið í fremstu röð um árabil, og sama má segja um baritonsöngv- arann sir Thomas Allen. Tónleikar hans í Gamla bíói fyrir nokkrum ár- um eru mörgum ógleymanlegir. Tenorsöngvarinn Philip Langridge og mezzósópransöngkonan Sarah Connolly sem einnig eru afburða- listamenn, eru líka á kennaralist- anum. Hljómsveitarstjórarnir, leik- stjórarnir og dansararnir hafa allir langa reynslu af störfum við bresk og alþjóðleg óperuhús. Heimsfrægir reynsluboltar kenna Þeir voru reyndar misgóðir. Einar Kárason klikkaði til dæmis alveg. 36 »

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.