Morgunblaðið - 06.01.2009, Side 41

Morgunblaðið - 06.01.2009, Side 41
@ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2009 FILMCRITIC.COM SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI / AKUREYRI/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA / KEFLAVÍK / SELFOSSI YES MAN B.i. 12 ára kl. 4D - 6:10D - 8:20D - 10:40D THE SPIRIT kl. 6 - 8:20 - 10:40 B.i. 12 ára BOLT m/ísl. tali kl. 43D DIGITAL LEYFÐ BOLT m/ensku tali kl. 6:103D DIGITAL LEYFÐ MADAGASCAR 2 m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ TWILIGHT kl. 8:20 - 10:40 B.i. 12 ára YES MAN kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára THE DAY THE EARTH ... kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára BOLT m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ SKOPPA OG SKRÝTLA m/ísl. tali kl. 6 (700 kr.) LEYFÐ YES MAN kl. 8 - 10 B.i. 12 ára BOLT m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ THE SPIRIT kl. 8 - 10 B.i. 12 ára MADAGA. 2 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ YES MAN B.i. 12 ára kl. 5:50 - 8 - 10:20 BOLT kl. 6 LEYFÐ FOURCHRISTMASES kl. 8 LEYFÐ PRIDE&GLORY kl. 10 LEYFÐ VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA V.J.V TOPP5.IS YESMAN B.i. 7 ára DIGITAL kl. 3:40 - 6 - 8D - 8:20 - 10:20D - 10:40 YES MAN kl. 3:40-5:50-8-10:20 LÚXUSVIP THE SPIRIT kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára BOLT kl. 3:403D - 5:503D B.i. 7 ára 3D DIGITAL CITY OF EMBER kl. 3:40 - 5:50 - 8 B.i. 7 ára TWILIGHT kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i. 12 ára MADAGA. 2 m/ísl. tali. kl. 3:50 LEYFÐ DIGITAL BODY OF LIES kl. 10:30 B.i. 16 ára GEIMAPARNIR ísl. tal kl. 3:50 LEYFÐ ÞRÍVÍDD HEFUR EINFALDLEGA NÁÐ NÝJUM HÆÐUM Í ÞESSARI MYND – SJÓN ER SÖGU RÍKARI. „..BESTA DISNEY-TEIKNIMYNDIN Í ÁRARAÐIR“ L.I.B. – FRÉTTABLAÐIÐ SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, SÝND MEÐ Í SLENSKU OG ENSKU TALI SÝND Á SELFOSSI SÝND Í KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Á SELFOSSISÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA ÍSLENSKT TAL SÝND Í KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI FRANK MILLER KEMUR HÉR MEÐ OFUR-SVALA SPENNUMYND BYGGÐA Á „HASARBLAÐA”SÖGU WILL EISNER. DÚNDUR MYND Í ANDA „SIN CITY”. “JIM CARREY KEMUR LOKS INN Í GRÍNIÐ AFTUR EFTIR FULLLANGA FJARVERU, OG HANN VELDUR ALLS EKKI VONBRIGÐUM!” TOMMI - KVIKMYNDIR.IS SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI         Að vaxa og dafna TÓNLIST Geisladiskur Ragnar Sólberg – The Circle bbnn RAGNAR Sólberg, sem nú er 22 ára, var bráðþroska tónlistarmaður, en núna, ellefu árum eftir útgáfu hans fyrstu sólóplötu, tekur hann sér tíma frá Sign til að senda frá sér aðra slíka sem ber nafnið The Circle. Plötuna vinnur hann mest einn síns liðs, leikur á öll hljóðfæri sjálfur nema kontrabassa, sem Helgi Egilsson handleikur. The Circle er á margan hátt heillandi plata þar sem skært skín á hæfileika Ragnars sem tónlistar- manns og söngvara, tónlistarmanns sem hefur óbilandi trú á rokki og róli. Skífan er heillandi fyrir fum- lausan stíl og einlægni en á móti kemur að frumleg er hún ekki né mjög eftirminnileg fyrir fjölbreyttar lagasmíðar. Það sem er á boðstólum er það sem það er, dramatískt og oft drungalegt ballöðurokk sem er á köflum blandað saman við ágætis proggrokkpælingar líkt og í loka- laginu. Dimmir og dapurlegir tónar sem og angurværð hjálpa til við að skapa heildstætt rými fyrir lögin ellefu sem fela í sér ákveðið upp- gjör, fjalla að mestu um ástir og sorgir. „Fairy Tale“ er upphafs- lagið, saklaust og rislágt en und- irbýr jarðveginn fyrir lagið sem fylgir, „The Beat“, sem er trúlega það besta sem platan geymir, trega- fullt og kröftugt. Þar syngur Ragn- ar vafalaust til föður síns, Rafns R. Jónssonar heitins, og þá erfiðu lífs- reynslu að horfa á eftir honum og þann söknuð sem bærist í brjósti hans. Lagið „Soul Mates“ er hins vegar samið af feðgunum og sýnir það vel æðruleysi Rabba og hlýju, styrk hans og sonar og þann mik- ilvæga þátt að skapa eitthvað nýtt og gefast aldrei upp. Önnur lög fjalla um ástina og hvað það er gott að eiga góða að, misgóð en öll vel stílfærð. Eitt tökulag er að finna á skífunni, „Fantastic Piece of Archi- tecture“, og þar tekst Ragnari alveg frábærlega til við flutning á þessu gamla lagi Bloodrock og bætir jafn- vel um betur. Það má glöggt heyra að þetta er einlægt verk, melódískt og vel út- pælt en það þarf sérstakan smekk til að njóta út í gegn og fara á flug. Þetta er plata fyrir alla sanna aðdá- endur Ragnars Sólbergs og fyrir þá sem fíla ballöðuskotið og tilfinn- ingaþrungið rokk. Aðrir ættu að láta sér nægja að hlusta á áð- urnefnd lög, að minnsta kosti einu sinni. Jóhann Ágúst Jóhannsson Vel farið með forna galdra TÓNLIST Geisladiskur Pikknikk – Galdurbbbmn Það er músíkalskt par sem myndar dúettinn Pikknikk. Þorsteinn Ein- arsson er lands- mönnum vel kunn- ur sem gítarleikari og forsöngvari Hjálma, en Sigríður Eyþórsdóttir var lengi vel söngkona hljómsveitarinnar Santiago. Galdur kallast fyrsta plata parsins og inni- heldur níu lög. Þetta er þekkileg sveitatónlist með blágresisblæ og kannski ekkert óskaplega ólík sumu af því sem Sigga og félagar fengust við, en hefðbundinn reggí-taktur að hætti Hjálma er hér víðs fjarri. Lögin eru öll skráð á þau Siggu og Steina, þótt æði mörg hljómi kunn- uglega og á stundum meira en góðu hófi gegnir. Þannig er „Nóttin tekur við“ nauðalíkt bandaríska þjóðlaginu „Farewell Song“ sem flestir þekkja þó betur undir nafninu „Man of Con- stant Sorrow“. Fleiri dæmi mætti taka um skyldleika við þekkt erlend lög, en ósanngjarnt er að elta of mik- ið ólar við slíkt. Sveitatónlistin er auðvitað fornt og fullveðja form, þaulreynt og nokkuð þröngt. Og allt byggir þar á sama galdrinum, rétt eins og í blúsnum. Mest um vert er að Sigga og Steini flytja tónlistina af tilgerðarleysi og einlægni, þar sem viðkvæmnisleg raddbeiting beggja kemur afskaplega vel út. Steini er líka lunkinn gítarleikari, þótt fráleitt sé hann fullnuma í pikk-tækninni sem gjörla heyrist í fyrrnefndum slagara. Textarnir eru á íslensku og all- flestir eftir Steina. Það er ávallt fagnaðarefni þegar söngvaskáld af yngri kynslóðinni leggja rækt við móðurmál sitt, með tilheyrandi brag- fræðiæfingum. Þau mættu að ósekju vera fleiri. Steini er vaxandi texta- höfundur og yrkir víða vel, þótt ann- að veifið bregðist honum bogalistin með hálfrími og lítilsháttar leið- indavillum. Innihaldið er þó forminu æðra og hér er kærleikur góðu heilli í hávegum hafður. Ekki veitir af. Þessi fyrsta plata Pikknikks er prýðilega heppnuð. „Ég á mér fjár- sjóð“, „Hörpu mína“ og „Aðeins eitt kyn“ eru til að mynda ljómandi fínir söngvar og annað er velflest nokkuð gott. Galdur er látlaus og falleg plata sem engan meiðir og margur getur eflaust ornað sér við. Orri Harðarson THOMAS Doerflein var starfsmaður dýragarðsins í Berlín og komst í heimsfréttirnar, er hann gekk ís- bjarnarunganum Knúti í móður stað síðla árs 2006 eftir að móðirin hafði hafnað honum. Milljónir gesta komu að sjá björninn og augu fjölmiðla fylgdust með hverri hans hreyfingu. Doerflein dvaldi með unganum all- an sólarhringinn, gaf honum fyrst í stað mjólk úr pela og síðar hafra- graut að éta, og gældi við hann. Hann forðaðist fjölmiðlana sem dáðust að elju hans og góðmennsku við uppeld- ið. Hinn þriggja barna fráskildi faðir fékk viðurnefnið „bangsapabbi“. Þegar Knútur stækkaði bönnuðu yfirmenn dýragarðsins Doerflein að vera í svo nánu samneyti við björn- inn, þeir óttuðust að það gæti endað með ósköpum. Hvorugur var sáttur við aðskilnaðinn; Doerflein fannst ráðskast með sig og Knútur saknaði hans. Í september lést Doerflein úr hjartaslagi, 44 ára gamall. Í gær reyndi 18 sonur hans síðan að hagn- ast á frægð föður síns með því að selja eigur hans á uppboðsvefnum eBay. Í fjölmiðlum sagðist hann þurfa peninga til að kaupa legstein á gröfina, en fyrrverandi unnusta Dorfleins sagði söluna „smekklausa“, og einungis til að afla syninum skot- silfurs. Eigur Doerfleins seldust fyrir tæplega 10.000 dali – um 1,2 milljónir króna. 84 boð bárust í svefnpokann sem hann notaði við uppeldi bjarn- arins og seldist hann fyrir um 260.000 krónur. Tíu ára gamall bíll hans seldist á hálfa milljón. Meðal annarra hluta sem sonurinn seldi voru vasahnífur, bók um Presley og belti. Seldi eigur „bangsapabba“ á eBay Reuters „Feðgarnir“ Thomas Doerflein, þáverandi starfsmaður dýragarðsins í Berlín, með ísbjarnarungann Knút.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.