Morgunblaðið - 06.01.2009, Page 44
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 6. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SKOÐANIR»
Staksteinar: Uppbyggilegar
endurminningar
Forystugreinar: Óhæfuverk á Gaza |
Hverjir eiga fyrirtækin?
Pistill: Íslensk forréttindi
Ljósvaki: Ómissandi fjölskyldudrama
&&4&
4
&4&
4
4 4'
5 $6"( /",$
7 ""
%"#" 4&
&4&
4 &4 .8 2 (
4
&4
'
4&&
4
&4
4& 4&
&4
9:;;<=>
(?@=;>A7(BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA(8"8=EA<
A:=(8"8=EA<
(FA(8"8=EA<
(3>((A%"G=<A8>
H<B<A(8?"H@A
(9=
@3=<
7@A7>(3,(>?<;<
Heitast 4°C | Kaldast -1°C
Hæg suðaustan- og
austanátt. Slydda eða
rigning austan til.
Úrkomuminna og létt-
skýjað norðan til. »10
Bara tvisvar í röð,
það er reglan. Mug-
ison undirbýr Aldrei
fór ég suður en held-
ur að hann megi
ekki koma fram. »36
TÓNLIST»
Má Mugison
ekki spila?
FÓLK»
Eigur „bangsapabba“
seldar á uppboði. »41
Í glugga stendur
nafnlaust verk eftir
Sólveigu Aðalsteins-
dóttur. List hennar
er sögð „fátæk“ og
„nýtin“. »35
MYNDVERKIл
Leifar alls-
nægtaborðs
TÓNLIST»
Ekki eins súr tónlist og
hann hélt. »36
TÓNLIST»
Lék fyrir Eista á
jóladagskvöld. »34
Menning
VEÐUR»
1. Banaslys á Suðurlandsvegi
2. Bjarni Ármanns: Endurgreiddi …
3. Travolta tjáir sig um sonarmissinn
4. Alvarlega slasaður
Íslenska krónan stóð í stað
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Þjóðleikhúsinu
Sumarljós
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
SEXTÁN ára pilturinn sem var með hlaðna
skammbyssu í fórum sínum á föstudagskvöld hitti
vin sin á lóð leikskólans Jörfa í Hæðargarði. Óljóst
er hvað þeim fór á milli en níu millimetra byssukúla
fannst í leikfangakassa inni í leikherbergi leikskól-
ans í gærmorgun. Staðfest er að pilturinn hafi
hleypt af byssunni.
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær-
morgun tilkynning frá leikskólastjóra Jörfa. Þar
uppgötvaðist gat í vegg í leikherbergi barnanna auk
þess sem tveir leikfangakassar og hillusamstæða
urðu fyrir skemmdum. Lögreglumenn leituðu í leik-
skólanum og fundu níu millimetra byssukúlu í öðr-
um kassanum.
Sæunn Elfa Pedersen leikskólastjóri segir að
starfsfólki hafi verið brugðið, og hún þakkar ein-
faldlega fyrir að þetta hafi gerst á föstudagskvöldi.
„Okkur var brugðið, sérstaklega að sjá skotgat í
gegnum vegginn á leikskólanum. En við erum einn-
ig mjög þakklát fyrir tímasetninguna því þetta er
þar sem börnin hefðu leikið sér annars.“
Pilturinn var handtekinn í Breiðholti skömmu
fyrir miðnætti á föstudagskvöld en þá hafði hans
verið leitað frá því um kvöldmatarleytið sama dag.
Fjölmennt lið lögreglu leitaði piltsins og voru lang-
flestir vopnaðir kylfum og piparúðum. Óánægju-
raddir hafa heyrst meðal lögreglumanna vegna
þessa, þ.e. þeir hafa talið sig í hættu vegna vanbún-
aðar. Snorri Magnússon, formaður Landssamtaka
lögreglumanna, sagðist aðspurður kannast við þær
raddir en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið.
Byssan var í ólæstri hirslu | 4
Gat á vegg leikskólans
Pilturinn sem handtekinn var í Fellahverfi á föstudag með hlaðna skammbyssu
hafði áður hitt vin sinn á leikskólalóð í Hæðargarði og hleypt þar af skoti
Morgunblaðið/Júlíus
Varin? Lögregla klæddist skotheldum vestum.
Í HNOTSKURN
»Samkvæmt upplýsingum lögreglu ógn-aði pilturinn aldrei neinum með vopn-
inu.
»Hann hefur verið vistaður á viðeigandistofnun og óvíst er hver eftirmál máls-
ins verða.
»Skammbyssan var skráð á föður piltsinsen hún var geymd í ólæstri hirslu.
RAGNHILDUR
Sigurðardóttir,
kylfingur úr GR,
hætti við að taka
þátt í úrtökumót-
unum fyrir Evr-
ópumótaröð
kvenna í golfi, en
keppnin hefst
þar í fyrramálið.
„Ég er að reyna
að vera skynsöm.
Það hefði ekki verið gaman að fara
á úrtökumótin, ganga vel þar og
komast inn á mótaröðina, og geta
síðan ekki fylgt því eftir vegna
efnahagsástandsins,“ segir Ragn-
hildur. | Íþróttir
Reyni að vera
skynsöm
Ragnhildur
Sigurðardóttir
„Í DESEMBER er það skata og í
janúar eru það hrognin,“ segir
Geir Vilhjálmsson, annar eigenda
fiskverslunarinnar Hafbergs.
Hrognatímabilið stendur yfirleitt
frá miðjum janúar og fram í miðj-
an febrúar en viðskiptavinir Geirs
eru farnir að taka forskot á sæluna
því þar er hrognasala hafin og fer í
fullan gang í næstu viku.
„Þetta er nú mest fólk yfir fer-
tugu sem sækir í hrognin þó að
yngra fólkið slæðist vissulega
með,“ segir Geir. Hann segir fáa
vilja lifrina með hrognunum nú-
orðið, meirihlutinn taki aðeins
hrognin því fólki þyki lifrin vond.
„Við erum líka með súr hrogn
fyrir þorrann sem þykja mjög góð
en annars sýður fólk þau á hefð-
bundinn máta,“ segir Geir um
helstu framreiðsluhætti.
Geir segir að Hafberg hafi lækk-
að verð á óroðflettri ýsu og hrogn-
um og verðið sé nú um 200 krónum
lægra en í fyrra. „Við tókum þá
ákvörðun fyrir nokkrum mánuðum
að lækka verðið á óroðflettri ýsu til
þess að mæta ástandinu í þjóð-
félaginu,“ segir Geir. jmv@mbl.isMorgunblaðið/Árni Sæberg
Hrognin
ódýrari
en í fyrra
Hrognasala er að komast í fullan gang hjá fisksölum
Skoðanir
fólksins
’Það er vert að staldra við og spyrjasig hvert samfélag okkar er komið,þegar stórfyrirtæki fær aðstoð lögregluvið að keyra auglýsingar sínar út um all-an bæ og þegar sá sem á nóga peninga
getur gert nákvæmlega það sem hon-
um sýnist fyrir peningana og í nafni
þeirra. » 22
SNORRI PÁLL JÓNSSON
’Svo slæm var staðan að heima-menn erlendis sem báru hlýhug tilíslensku þjóðarinnar tóku einhverja ís-lenska námsmenn upp á sína arma aukþess sem erlendir samnemar lánuðu
þessum ólánsömu námsmönnum fyrir
mat. » 22
GEORG BRYNJARSSON
’Víða í Evrópu fer nú fram mikiðendurmat á þeim kröfum sem rétter að gera til þeirra sem sækjast eftirþví að búa í nýju landi. Flestir virðast áþví að eðlilegt sé að gera þátttöku í
tungumálanámskeiðum að forsendu
fyrir búsetuleyfi eða ríkisborgararétti
en skiptari skoðanir eru um hvort rétt
sé að gera prófkröfur. » 22
BALDUR KRISTJÁNSSON
’Engin afsökun er lengur til fyrirstríði. Verði ríki eða landsvæði fyrirofbeldi ber umsvifalaust að leita leiða tilað vinna bug á því en þó aldrei með að-ferð haturs og hefndar. Stríð leysir
mannlega galla úr læðingi. » 23
GUNNAR HERSVEINN
’ Við erum of fá fyrir ríki í ríkinu ogeigum skilyrðislaust að halda íokkar hefðir. Ég vil múslimum og öðruminnflytjendum allt hið besta og vona aðþeim sé eins til okkar og skilji sem fyrst
þörf svo fámennrar þjóðar fyrir að við-
halda kristinni trú, hefðum og einingu.
Vera ein þjóð. » 23
ALBERT JENSEN
’Fyrir tiltölulega skömmu var þaðgrunnregla í fréttamennsku aðleita frumheimilda ef þess var kostur,og önnur grunnregla var að leyfa þeimsem getsökum var borinn að svara
þeim. En náttúrlega hefði það skemmt
góða hasarfrétt, og skotleyfin ódýr á
stjórnmálamenn þessa dagana. » 22
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
„ÉG hef bara gaman af þessu og við
komum að öllum fjáröflunum sem
tengjast meistaraflokki karla með
einum eða öðrum hætti,“ segir Páll
Axel Vilbergsson, fyrirliði meist-
araflokks Grindavíkur í körfuknatt-
leik karla. Meistaraflokkar karla og
kvenna hjá körfuknattleiksdeild
Grindavíkur hafa undanfarna daga
gengið í hús í bænum og safnað dós-
um og flöskum til að standa straum
af kostnaði við rekstur deildarinnar.
„Bæjarbúar taka alltaf vel á móti
okkur og þessi söfnun er fínt hópefli
fyrir okkur í deildinni,“ segir Páll
Axel og kveður söfnunina hafa
gengið vel. | Íþróttir
Grindvíkingar
safna dósum