Morgunblaðið - 12.01.2009, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009
á EGLA bréfabindum
50 ára
Vinnustofa SÍBS
Hátúni 10c - S. 562 8500
www.mulalundur.is
489 kr/stk
Gildir út janúar 2009
Tilboð
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
„ÞAÐ var verið að lána fólki og fyr-
irtækjum erlend myntkörfulán á ein-
um stað í banka á meðan annars
staðar var veðjað á að krónan myndi
veikjast. Þetta þarf að rannsaka og
ekki síst þátt stóru hluthafanna,“
segir Arnar Sigurmundsson, for-
maður Landssamtaka lífeyrissjóða.
Páll Hreinsson, hæstaréttardóm-
ari og formaður nýskipaðrar rann-
sóknarnefndar Alþingis, sem hefur
það hlutverk að rannsaka aðdrag-
anda og orsakir falls íslensku bank-
anna á síðasta ári og tengdra at-
burða, segir að nefndin muni skoða
hvort hún sjái eitthvert kerfisbundið
mynstur, m.a. í tengslum við gjald-
miðlaskiptasamninga bankanna.
„Væntanlega mun hins vegar hinn
sérstaki saksóknari skoða hin ein-
stöku mál. En við munum skoða
stóru myndina, hvort eitthvað kerf-
isbundið hafi verið í gangi sem sé
óeðlilegt,“ segir Páll.
Fram hefur komið að stefnt er að
því að skipa sérstakan saksóknara
með víðtækar rannsóknarheimildir,
sem ætlað er að rannsaka hvort lög
hafi verið brotin í aðdraganda að
hruni bankanna eða í starfsemi
þeirra fram að því.
Hjarðhegðun skiptir máli
Fram kom í síðustu viku að for-
svarsmenn fjárfestingarfélagsins
Kjalars, sem Ólafur Ólafsson í Sam-
skipum á um 94% hlut í, telji að fé-
lagið eigi kröfu á skilanefnd Gamla
Kaupþings upp á hátt í 200 milljarða
króna vegna framvirks gjaldeyris-
skipasamnings. Kjalar var einn af
stærstu hluhöfum Kaupþings með
um 10% hlut. Þá hefur komið fram að
Exista, stærsti hluthafinn, var einnig
stórt á þessu sviði.
„Það má ekki gleyma því að það á
sér stað heilmikil hjarðhegðun á
markaði, og það þarf að rannsaka
hvaða þátt hún átti í því að krónan
féll, t.d. þegar það fréttist hvernig
stórir eigendur Kaupþings höfðu
veðjað á að krónan myndi veikjast,“
segir Arnar Sigurmundsson.
Einstök mál til saksóknara
Formaður Landssamtaka lífeyrissjóða segir bankana hafa lánað fólki og fyrirtækjum erlend
myntkörfulán á sama tíma og þeir og stórir hluthafar veðjuðu á að krónan myndi veikjast
BANKAR
Sumir veðja á að
krónan veikist, aðrir
að hún styrkist
VEÐJUÐU Á STYRKINGU (t.d.):
- Lífeyrissjóðir
- Útflytjendur
VEÐJUÐU Á VEIKINGU (t.d.):
- Exista
- Kjalar
Morgunblaðið/Birgir Már
FJÁRFESTAR/FYRIRTÆKI
Í BY
RJU
N Fr
amv
irkir
gjald
miðla
skiptasa
mningar
SÍÐAR Samningar ger
ðir up
p
ÓHÆTT er að segja að það hafi verið troðfullt
hús og færri komist að en vildu á opnum fundi í
Iðnó, sem haldinn var á laugardag undir yf-
irskriftinni „Stöðvið fjöldamorðin á Gaza-
strönd“. Að fundinum loknum var kertafleyting
til minningar um fórnarlömb stríðsins á Gaza.
Ennfremur er hafin neyðarsöfnun á vegum Fé-
lagsins Ísland-Palestína en það fé sem safnast
fer í að aðstoða spítala á Gaza-svæðinu.
Fórnarlamba stríðsins á Gaza-svæðinu minnst
Morgunblaðið/Kristinn
FRÁ og með deginum í dag verður nemendum Valhúsa-
skóla á Seltjarnarnesi boðið upp á hafragraut í boði
bæjarins tvisvar á dag en í skólanum eru nemendur í 7.-
10. bekk. „Það verður bæði boðið upp á hafragraut fyr-
ir skólabyrjun og í kaffinu um klukkan hálftíu,“ segir
Guðlaug Sturlaugsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Sel-
tjarnarness, en skólinn varð til með sameiningu Mýrar-
og Valhúsaskóla árið 2004.
Guðlaug segir hugmyndina hafa komið upp í kenn-
arahópnum og vonast eftir góðum viðtökum en sjálfri
finnst henni grauturinn góður. „Ég vona að þetta efli
og styrki krakkana enn frekar.“ ingarun@mbl.is
Ókeypis hafra-
grautur í boði í
Valhúsaskóla
Morgunblaðið/Kristinn
Góður grautur Í Hagaskóla hefur verið boðið uppá
hafragraut við góðar undirtektir nemenda.
Vangaveltur um
að Exista hafi
stundað spá-
kaupmennsku
gegn íslensku
krónunni, sem
komið hafa fram
í fjölmiðlum að
undanförnu,
eiga ekki við
rök að styðjast,
að því er fram
kemur í tilkynningu frá félaginu.
Segir þar að áhætta í reikningum
hafi verið með krónunni og því
hafi það ekki verið félaginu í hag
að krónan veiktist.
„Exista hefur frá ársbyrjun
2007 fært reikninga sína í evrum,
enda hafa eignir og skuldir fé-
lagsins verið að meirihluta í er-
lendri mynt,“ segir í tilkynning-
unni. „Frá þeim tíma hefur félagið
varið eigið fé sitt gagnvart sveifl-
um í öðrum gjaldmiðlum en evru,
m.a. norskri krónu, pundum og ís-
lensku krónunni enda hlutir fé-
lagsins í Kaupþingi banka, Bakka-
vör Group og fleiri félögum í
krónum. Exista hefur varið stöðu
sína gagnvart krónunni einungis
að hluta og dró félagið heldur úr
varnasamningum á árinu 2008.
Varnir á eigið fé er eðlilegur og
nauðsynlegur þáttur í ábyrgum
rekstri fjármálafyrirtækis.“
Tugir milljarða
Segir í tilkynningunni að Exista
hafi gert samninga um geng-
isvarnir við alla stærstu viðskipta-
bankana. „Kostnaður vegna
varnasamninga er umtalsverður
og hefur Exista á undanförnum
tveimur árum greitt íslenskum
bönkum þóknanir og vaxtamun
sem hleypur á tugum milljarða
króna vegna varna félags á eigið
fé.“
Þá segir að Exista hafi átt í við-
ræðum við bankana m.a. vegna
uppgjörs varnasamninga og sé
enginn ágreiningur um réttmæti
þeirra eða að til þeirra hafi verið
stofnað á eðlilegum rekstr-
arforsendum.
Engin spákaupmennska
Lýður
Guðmundsson
LÍKLET er talið að fundað verði
hér á landi í næstu viku með Bret-
um og Hollendingum um lánveit-
ingar til að greiða eigendum Ice-
save-innlánsreikninga Lands-
bankans, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Verður þá fundað
um lánstíma, vaxtakjör, greiðslu-
skilmála og endurskoðunarákvæði,
en samið mun hafa verið um heild-
arupphæð lánsins. Einnig mun vera
stefnt að því að funda með Þjóð-
verjum um Edge-innlánsreikninga
Kaupþings fljótlega.
Heildarlánveitingar sem ríkið
þarf að ábyrgjast vegna þessara
innlánsreikninga í Bretlandi, Hol-
landi og Þýskalandi eru um 700
milljarðar króna.
Síðasti fundur Í slendinga með
fulltrúum Bretlands, Hollands og
Þýskalands vegna þessara innláns-
reikninga bankanna var haldinn í
byrjun desember síðastliðins.
Fram hefur komið að Lárus Finn-
bogason, formaður skilanefndar
Landsbankans, telur að líklega
muni um 150 milljarðar króna falla
á ríkissjóð vegna Icesave-reikning-
anna, þegar búið verður að selja all-
ar eignir gamla bankans.
Ísland ábyrgist innstæður á Ice-
save- eða Edge-reikningum upp að
20.887 evrum, sem eru um 3,6 millj-
arðar króna, vegna hvers reikn-
ings.
gretar@mbl.is
Fundað um
Icesave og
Edge hér