Morgunblaðið - 12.01.2009, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.01.2009, Blaðsíða 24
24 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009 KOSNING nýs formanns Fram- sóknarflokksins er framundan. Við kjósum nú nýja forystu við upphaf nýrra tíma í ís- lensku samfélagi, en ekki síður er kosningin til þess fallin að marka upphaf end- urreisnar Fram- sóknarflokksins ef vel tekst til. Í þessum efnum treysti ég unga alþingismann- inum og lög- manninum Höskuldi Þórhallssyni best til þess að taka við kyndlinum enda hefur hann þegar getið sér gott orð á vettvangi þjóðmálanna sökum drengskapar, atorkusemi og sáttfýsi. Höskuldur er ekki bundinn á klafa fortíðar. Ég hef þekkt Höskuld nokkuð lengi og sá hann snemma, sökum atorkusamra starfa á sviði félags- mála, sem gott leiðtogaefni fyrir Framsóknarflokkinn. Hann er mik- ill félagsmaður og er samvinnu- hugsjónin í sannri merkingu þess orðs í blóð borin. Hann hefur ríkan skilning á hagsmunum fjölskyldu og atvinnulífs og hefur sýnt með málflutningi sínum á Alþingi að hann nær vel til pólitískra andstæð- inga sinna úr ræðustól þingsins. Það er besta leiðin til árangurs í sérhverju máli. Ég tel Höskuld tví- mælalaust besta kostinn sem leið- toga þeirrar uppbyggingar sem framundan er í Framsókn- arflokknum. Nú er lag. Kjósum Höskuld Þórhallsson formann Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi. BJÖRN SNÆBJÖRNSSON. Höfundur er formaður fulltrúaráðs framsóknarfélaganna á Akureyri. Höskuldur leiði upp- stokkun í Framsókn Frá Birni Snæbjörnssyni Björn Snæbjörnsson BRÉF TIL BLAÐSINS Í 79 ÁR hafa efstu menn á lista Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík verið í svonefndum „öruggum sætum“ í kosningum. Þannig er þetta hjá stóru flokk- unum í hverjum kosn- ingum. Nú er svo kom- ið að meirihluti þingmanna er í þessum „öruggu sætum“ við hverjar kosn- ingar og í raun geta kjósendur engu breytt um það. Útstrikanir kjósenda hafa í mesta lagi fært menn til án þess að fella þá af þingi. Á kosn- inganótt hefur yfirleitt aðeins verið spenna varðandi frambjóðendur neð- ar á listunum, t.d. hvort Mörður Árnason eða Ellert Schram eru inni eða úti. Flokkarnir ráða sjálfir hvaða aðferð þeir nota til að velja í þessi „öruggu sæti.“ Afleiðingarnar blasa við í flokksveldi og ofríki fram- kvæmdavaldsins, sem hefur áratug- um saman lýst sér í því sem kallað hefur verið að „handjárna“ þingmenn fyrir flokkana og ríkisstjórnina í at- kvæðagreiðslum á Alþingi. Þingið er viljalaus afgreiðslu- stofnun ríkisstjórnar sem er rúin trausti kjósenda. Prófkjör eru galla- gripir og flótti frá eina raunverulega lýðræðinu sem aðeins getur farið fram í einrúmi kjósandans í kjörklef- anum. Það er í valdi þingmanna sjálfra að hefja breytingar á þessu með sáraeinföldum breytingum á kosningalögum sem gætu tekið gildi strax í næstu kosningum. Sem dæmi má nefna þá einföldu lausn að flokk- arnir stilltu að vísu upp listum sínum sem lið í kynningu stefnu sinnar og mannvals, en að öðru leyti hefði þessi uppröðun ekkert vægi eða í mesta lagi mjðg lítið, heldur gilti um það vilji kjósendanna sjálfra sem hefðu úrslitavald um röðun þingmanna með því að raða sjálfir á listann í kjörklef- anum. Þar með gæti enginn fram- bjóðandi verið „öruggur“ heldur yrði að hafa beint traust þeirra sem kjósa hann. Forseti landsins kallaði eftir auknu lýðræði í nýársávarpi sínu. Forsætis- ráðherra talaði í ávarpi sínu um að stjórnmál snerust um traust kjós- enda á fulltrúum sínum á þingi. Samt er hér við lýði kosingafyrirkomulag þar sem kjósendur fá í raun ekki tækifæri til að láta traust sitt eða vantrú í ljós á þeim sem eru í framboði heldur aðeins að krossa við flokkana. Flokksveldi stóru flokkanna hefur auk þess fengið það í gegn að flokkur fái ekki þingfylgi í samræmi við kjörfylgi, fái jafnvel engan þingmann þótt hann hafi kjörfylgi til allt að þriggja þingmanna. Um þess- ar mundir mælast Frjálslyndir og Ís- landshreyfingin með 4% fylgi hvor flokkur. Þetta samsvarar 16 þúsund kjósendum, næstum því jafnmörgum kjósendum og kusu samtals í Norð- vesturkjördæmi 2007. En 5% reglan svonefnda myndi svipta þessa 16 þús- und kjósendur þingfylgi nema flokk- arnir fengju kjördæmakjörna þing- menn. Til þess þarf hins vegar miklu hærri prósenttölu í hverju kjördæmi. Myndu kjósendur í Norðvest- urkjördæmi una því að fá engan mann kjörinn á þing? Svona hár þröskuldur er aðeins í Tyrklandi, Rússlandi og Þýskalandi. Íslenski þröskuldurinn er tvöfalt hærri en í flestum nágrannalöndum okkar þar sem þingmenn eru miklu fleiri og því miklu meiri „hætta“ á að framboð með innan við 1% fylgi fengju þing- menn. Ráðamenn guma mikið af lýðræð- inu sem hér ríki þótt við blasi stór- kostlegur lýðræðishalli, sem Bjarni Harðarson lýsti vel í grein hér í blaðinu. Persónukjör og afnám ólýð- ræðislegs þröskuldar á fylgi væri ein- föld aðgerð til að hefja sókn til aukins lýðræðis, svo einföld og auðveld að- gerð, að þeir, sem vilja standa gegn slíku sýna að þeir meina ekkert með lýðræðishjali sínu. Burt með „öruggu sætin“ strax í næstu kosningum Ómar Ragnarsson fjallar um kosn- ingar og lýðræði Ómar Ragnarsson » Það er auðvelt að byrja á upptöku per- sónukjörs og virks lýð- ræðis strax í næstu kosningum. Aðeins þarf sáraeinfaldar breyt- ingar á kosningalögum. Höfundur er formaður Íslands- hreyfingarinnar – lifandi lands. Í STAKSTEINUM Morgunblaðsins á gamlársdag var það gagnrýnt að undirrituð hefði ekki greitt at- kvæði með orkusölu- samningi til álvers í Helguvík og var látið að því liggja að um póli- tískan vindhanagang væri að ræða í afstöðu Samfylkingar. Afstaða mín til orku- sölu til álvers í Helguvík hefur ekkert breyst. Í júní árið 2006 var ég vara- formaður stjórnar Orkuveitunnar þegar viljayfirlýsing um raforkusölu til álvers í Helguvík kom til afgreiðslu stjórnar. Þá eins og nú voru það fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks sem einir samþykktu viljayfirlýsinguna. Þrátt fyrir að Reykjavíkurlistinn væri á þessum tíma í meirihluta. Meðal annars kem- ur fram í bókun sem ég lagði þá fram: „Óskað er eftir upplýsingum um áhrif hugsanlegra virkjanaframkvæmda á efnahag Orkuveitu Reykjavíkur, sér- staklega eiginfjárhlutfall fyrirtæk- isins til lengri tíma og meðan á fram- kvæmdum stendur. Þessi áhrif verði skoðuð í samhengi við önnur fjárfest- ingaráform fyrirtækisins svo sem lagningu ljósleiðara. Hvar liggja þol- mörk fyrirtækisins í fjárfestingu?“ Fjárfestingaþol Segja má að þessari spurningu hafi nú verið sjálfsvarað og að fyrirtækið sé eins og staðan er í dag nálægt sín- um þolmörkum í fjárfestingum. Gengisvísitalan í lok árs endaði í 217, það þýðir að eiginfjárhlutfall OR við lok árs er 16-17%. Það er því ljóst að við þessar aðstæður geta verulegar lántökur verið fyrirtækinu hættu- legar og því mikilvægt að fara var- lega í sakirnar. Einnig er nauðsyn- legt að hafa í huga að vegna ábyrgðar sveitafélaganna sem eiga OR getur fjárhagsstaða OR haft áhrif á þau lánskjör sem Reykjavíkurborg bjóð- ast. Áhættudreifing Gangi samningurinn um raforkusölu til ál- vers í Helguvík eftir hefur OR bundið alla orku sem hugsanlega fæst við 5. og 6. áfanga á Hellisheiði, auk virkj- ana í Hverahlíð og Grá- hnjúkum til álfram- leiðslu. Auk þess sem samningurinn felur í sér viljayfirlýs- ingu um 75 MW til viðbótar sem óvíst er hvaðan eiga að koma. Samn- ingnum fylgir því binding á nánast allri fyrirsjáanlegri orku næstu ára- tugi til eins álvers. Stjórn OR hefur lýst vilja sínum til að dreifa áhættu með því að huga að sölu til fjölbreytt- ari orkukaupanda en álframleiðanda. Orkusölu sem sveiflaðist þá ekki með heimsmarkaðsverði á áli, sem nú er raunar í sögulegu lámarki. Meirihluti stjórnar Orkuveitunnar bókaði meðal annars á stjórnarfundi 13.mars 2008: „Meirihluti stjórnar OR telur tíma- bært að huga að fjölbreyttari kostum í heildsölu á raforku til stórkaupenda, ekki síst á grundvelli áhættudreif- ingar í rekstri og með tilliti til um- hverfissjónarmiða“ Rétt er að taka fram bæði Kjartan Magnússon og Júlíus Vífill Ingvarsson stóðu að þessari bókun en báðir sitja enn í stjórn OR sem fulltrúar Sjálfstæð- isflokksins og greiddu því atkvæði sitt á síðasta fundi stjórnar OR að binda alla fyrirsjáalega orkuöflun Orkuveitunnar í sölusamningi til eins álvers. Áhættudreifing í rekstri og umhverfissjónarmið virðast þannig ekki vera þeim félögum eins hug- leikin og áður. Kannski er skýringin sú að framsóknarmaður gegnir nú stjórnarformennsku í OR en það virð- ist hafa mjög örvandi áhrif á álvers- hneigð sjálfstæðismanna. Ekki fæst séð að mikið hafi legið á að loka þessum samningi um aukna raforkusölu til álvers í Helguvík, enda allar framkvæmdir OR að frest- ast. Ekki er nóg með að gengisfall ís- lensku krónunnar hafi leikið fyr- irtækið grátt heldur hafa öll erlend framkvæmdalán fyrirtækisins verið fryst í kjölfar hruns bankanna. Rétt er að taka fram að ástæða þess að lán til OR fást ekki afgreidd er fyrst og fremst sögð ótti við efnahags- umhverfið á Íslandi, en ekki vantrú á verkefnum OR, arðsemi þeirra eða mati á möguleikum fyrirtækisins til að greiða lánin aftur. Erlendir lán- veitendur vilja sjá hvernig íslenskum stjórnvöldum gengur að vinna sig út úr þeirri fjármála- og efnahags- kreppu sem hér hefur knúið dyra áð- ur en frekari lán fást afgreidd til fyr- irtækisins. Vegna þessa ástands í efnahagsmálum hafa lánveitendur OR meðal annars sett fram áður óþekktar kröfur um ríkisábyrgð á lánum til Orkuveitunnar. Þessi krafa hefur verið rædd við ríkisstjórnina og Orkuveitan fengið afsvar um að slík ábyrgð komi til greina. Samfylkingin hefur árum saman fylgt sömu ábyrgu orkunýtingarstefnunni, þar sem um- hverfissjónarmið, eðlileg áhættu- dreifing og metnaður til að styðja við fjölbreyttan iðnað hafa varðað leiðina. Þegar kemur að málefnum Orkuveit- unnar blakta hinsvegar pólitískir vindhanar frjálslega í Sjálfstæð- isflokknum þar sem afstaða þeirra hringsnýst á öllum lykilsviðum í rekstri og stefnu fyrirtækisins. Pólitískir vindhanar Sigrún Elsa Smáradóttir skrifar um rekstur og stefnu OR » Skýrir það sinna- skiptin að framsókn- armaður gegnir nú stjórnarformennsku í OR en það virðist hafa mjög örvandi áhrif á ál- vershneigð sjálfstæð- ismanna Sigrún Elsa Smáradóttir Höfundur er borgarfulltrúi og situr í stjórn Orkuveitunnar. NÚ ER árið 2009 gengið í garð, og að baki er eitt viðburðarík- asta ár sem við mörg okkar höfum upplifað. Hrun efnahagslífsins með tilheyrandi usla og komandi niðursveiflu. Án þess að vilja vera of svartsýnn er það nokk- uð ljóst að árið 2009 verður erfitt ár og á margt eftir að koma í ljós og róðurinn eftir að þyngj- ast. Hátt í 7% niðurskurður blasir við á Landspítalanum einum sem mun falla þungt á starfsfólk og sjúklinga. Til þess að fá smáinnsýn í tölurnar má segja að um 7% niðurskurður jafnist á við að allt bráðasvið spítalans yrði lagt niður eins og það leggur sig. Nú mæðir mikið á starfsfólki og í vændum er gífurlegt álag sem fylgir þeirri „hagræðingu“ sem stjórn- endum spítalans er gert að fara í. Yf- irvinnubann er í gildi og ljóst að eðli- leg starfsmannavelta verður að öllum líkindum stöðvuð og ekki ráðið í þær stöður sem kunna að losna. Jafnframt má búast við að slíkum niðurskurði fylgi á endanum uppsagnir og ekkert vitað um hvaða starfsstétt gæti orðið harðast úti. Í árferði sem þessu er mikilvægt að hafa gott bakland. Bakland sem styð- ur við bakið á sínu fólki og berst með því. Við sjúkraliðar eigum bakland sem dáðst er að, félagið okkar, Sjúkraliðafélag Íslands. Nú reynir á okkur að standa saman, vinna okkur saman út úr þeim hremmingum sem ríða yfir þjóðina, ekki síst í þeim at- vinnugeira sem við flestöll tilheyrum. Með því að standa sam- an þéttum við og styrkj- um baklandið. Með öfl- ugri samstöðu höfum við í höndunum afl sem ekkert fær staðist. Með þrautseigju og sam- vinnu getum við komist í gegnum þessa tíma og takmarkað þann skaða sem hlýst af því stjórn- leysi sem ríkt hefur í landinu og fjármálalífi þess síðustu ár. Við, heilbrigðisstarfs- menn, þekkjum ekki góðærið. Við er- um vön kreppu og kunnum, betur en margir aðrir, að vinna við aðstæður þar sem alltaf er skorið við nögl. Við fengum aldrei að upplifa þessa tíma sem menn hafa talað um sem gullald- arárin í þessu litla samfélagi okkar. Við þekkjum orðið „niðurskurður“. Það hefur alla tíð verið okkar vinnu- árferði þótt nú sé það þurrara og mol- dugra en áður. Þeir sjúkraliðanemar sem nú eru við nám og eiga jafnvel stutt eftir í út- skrift útskrifast að öllum líkindum inn í umhverfi sem enginn vill sjá í ís- lensku heilbrigðiskerfi. Umhverfi sem undirritaður blessunarlega komst hjá að útskrifast inn í. Um- hverfi þar sem ekki er lengur sjálf- sagt að fá vinnu hvar sem maður vill og hefur áhuga á. Umhverfi þar sem erfiðara er að fá vinnutíma sem hent- ar og möguleikarnir á aukavinnu fara minnkandi með degi hverjum. Því er brýnt að baklandið taki vel utan um þessa nema og berjist af krafti fyrir tilvist þeirra inni í íslenska heilbrigð- iskerfinu. Við þurfum, saman, að vinna með breyttum áherslum. Nú verða kjara- samningar brátt lausir og alls óvíst hvað verður. Nú verður að halda rétt á spöðunum, eins og reyndar félagið hefur alltaf gert, en nú þarf að bæta í kraftinn, spýta í lófana og blása í segl- in. Ég vil því hvetja ykkur öll til þess að taka þátt í baráttunni, láta í ykkur heyra og standa þétt við bak hvert annars. Sjúkraliðafélag Íslands er kjörinn vettvangur fyrir okkur að bera saman bækur okkar, krækja saman höndum og ganga fylktu liði í gegnum þessa erfiðleika. Jafnvel þótt ganga þurfi á móti straumnum og vaða svaðið upp í mitti. Stofnun ungliðadeildar Sjúkraliða- félags Íslands er ráðgerð 22. janúar næstkomandi og tel ég að það hafi aldrei átt meiri rétt á sér en nú. Þar skapast kjörið tækifæri til þess að styrkja grunnstoðir baklandsins. Ég hvet alla unga sjúkraliða og sjúkra- liðanema til þess að vera með frá upp- hafi. Það er ykkar hagur og stétt- arinnar í heild. Nánar má sjá kynningu á deildinni á bloggsíðunni http://www.unglidadeild.blogcent- ral.is. Samstaða er afl sem ekkert fær staðist. Tökum höndum saman, stöndum vörð um heilbrigðiskerfið og tilvist okkar innan þess. Til sjúkraliða Birkir Egilsson skrifar um kjara- baráttu sjúkraliða »Nú verður að halda rétt á spöðunum, eins og reyndar félagið hefur alltaf gert, en nú þarf að bæta í kraftinn, spýta í lófana og blása í seglin. Birkir Egilsson Höfundur er sjúkraliði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.