Morgunblaðið - 12.01.2009, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 12.01.2009, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009 Sími 564 0000 Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó HÖRKUSPENNANDI MYND ÚR SMIÐJU LUC BESSON Bráðskemmtileg mynd þar sem heimur galdra og ævintýra lifnar við „..BESTA DISNEY-TEIKNIMYNDIN Í ÁRARAÐIR“ L.I.B. – FRÉTTABLAÐIÐ ,,ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND” -VJV -TOPP5.IS/FBL -S.V. - MBL -bara lúxus Sími 553 2075 BYGGT Á SÖNNUMATBURÐUM Frá Clint Eastwood, óskarsverðlaunaleikstjóra Mystic River, Million Dollar Baby og Unforgiven. „HEILLANDI, FULLORÐINS ÞRILLER, MEÐ ÓTVÍRÆÐRI ÓSKARSFRAMMISTÖÐU FRÁANGELINU JOLIE.“ - EMPIRE „CHANGELING ER ÓGNVEKJANDI MYND UMALVARLEGT MÁL, EN HEILDARUPPLIFUNIN ER SPENNUÞRUNGIN FREMUR EN SORGLEG. ÞAÐ ER FULLNÆGJANDI AÐ SJÁ SVONA VELGERÐAKVIKMYND.“ - MICK LASELLE - SAN FRANCISCO CHRONICLE „Í HÖNDUMANNARS, HEFÐI ÞESSI BARÁTTAGÓÐS OG ILLS GETAÐ ORÐIÐ HVERSDAGSLEG, EN EASTWOODGERIR CHANGELINGAÐ EFTIRMINNILEGRI UPPLIFUN.“ - KENNETH TURAN - LA TIMES Ótrúleg saga byggð á sönnum atburðum um baráttu einstæðrar móður við spillingu, morð,mannshvörf og lögregluyfirvöld. Tilnefnd til 2 Golden Globe verðlauna. Seven Pounds kl. 5:30 - 8 - 10:30 DIGITAL LEYFÐ Seven Pounds kl. 5:30 - 8 - 10:30 DIGITAL LÚXUS Transporter 3 kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára Australia kl. 4:30 - 8 B.i. 12 SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI ,,ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND” -VJV -TOPP5.IS/FBL -S.V. - MBL SÝND Í SMÁRABÍÓI 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! Sýnd kl. 4, 6 og 10 Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 6 og 9 Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is Sýnd kl. 4 ísl. tal Sýnd kl. 4 ísl. tal - S.V., MBL Sólskinsdrengurinn kl. 5:30 - 8 LEYFÐ Skoppa og Skrýtla í bíó kl. 4 DIGITAL LEYFÐ Inkheart kl. 3:45 B.i. 10 ára The day the earth ... kl. 10:20 B.i. 12 ára BRETAR hafa ráðið bandaríska laga- og textahöfundinn Diane Warren til þess að semja texta við Eurovisionlag Andrew Lloyd Web- ber. Eins og flestir vita er Webber þekktastur fyrir að semja söngleiki og lög í kvikmyndir en á meðal hans þekktustu verka eru Jesus Christ Superstar, Cats, Evita og lög Disn- eymynda á borð við Aladdin og The Beauty and the Beast. Warren er svo þekktust fyrir að hafa samið lög- in How Do I Live er LeAnn Rimes gerði frægt, I Dońt Wanna Miss A Thing er rokkararnir í Aerosmith gerðu að sínu, If I Could Turn Back Time með Cher og Un-Break My Heart er Toni Braxton söng. Það er því um mjög afar sterkt tvíeyki að ræða. Sex ungir flytjendur keppast nú um að fá að flytja lag þeirra í Rúss- landi í maí í raunveruleikaþættinum Your Country Needs You. Nú þegar er einn keppandinn dottinn út, en það var söngvari að nafni Damien Flood. Keppnislagið hefur ekki verið kynnt til sögunnar ennþá, en búist er við því að lagasmíðar þeirra Web- ber og Warren hefjist í næstu viku. Síðustu ár hafa framlög Breta til Eurovision gengið herfilega sem kristallaðist í fyrra þegar lag þjóð- arinnar endaði á botninum. Andrew Lloyd Webber Mun leyni- vopn Breta tryggja þeim sigur? Bretar auka metnað í Eurovision Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is ÍSLENSKI söngleikurinn um Harry Potter, sem leikfélag Menntaskólans við Sund er að setja upp, verður frumsýndur í Loftkast- alanum þann 17. febrúar næstkom- andi. Það vekur athygli að engin tónlist úr kvikmyndunum verður notuð, heldur verða íslenskuð lög listamanna á borð við Muse, Hole, Editors, Lykke Li og Band of Hor- ses notuð í staðinn. Stutt er í að fyrsta laginu úr söngleiknum verði sleppt lausu en það er íslenskuð út- gáfa af laginu Be Mine eftir sænsku poppdívuna Robyn sem persóna Hermione mun syngja en hún verður leikin af Þórdísi Jens- dóttur. „Við vorum að gera tónlistar- myndband yfir jólahátíðarnar við lagið sem er tregablandið popp,“ segir Er- lingur Grétar Einarsson er leikstýrir ásamt eiginkonu sinni Kolbrúnu Björt Sigfúsdóttur er samdi handritið að mestu. „Við erum að búa til annan hljóðheim en er í myndunum. Þar er mjög mikið af strengjum og svo- leiðis þar en við notum meira af trommum, gíturum og hljóð- gervlum. Á milli sönglaganna er mikið af stemningstónlist líka.“ Undirbúningurinn gengur vel og hefjast sviðsæfingar í næstu viku, mánuði fyrir frumsýningu en sýn- ingin verður sú fyrsta í endurnýj- uðum Loftkastala er opnar þá aftur eftir eigandaskipti. Með önnur hlutverk í söngleiknum fara Albert Hauksson sem leikur Harry, Þor- björn Árnason er leikur Ron, Atli Egilsson er leikur Dumbledore og Ásgrímur Hermannsson er leikur Voldemort sem fær töluvert meira rými í söngleiknum en hann gerir í bíómyndunum. „Þetta er náttúrulega Harry Pot- ter og þar af leiðandi búumst við áhuga frá fjölskyldufólki en það verður samt þannig að það er ansi margt dökkt í þessari sýningu. Hún er því ekki fyrir allra yngstu börn- in, bara svo að við höfum það á hreinu,“ segir Erlingur að lokum. Indí-rokkið allsráðandi í hinum íslenska Hogwarts Harry Potter og félagar munu syngja lög Muse, Hole og fleiri rokksveita í íslenskum söngleik um galdrastrákinn. Erlingur Grétar Einarsson Harry Potter Mun hann syngja lög Muse í sýningunni? „My time is ruuuuuning ouuuut... my time is ruuuning out.“ LEIKARINN John Travolta, er syrgir nú 16 ára son sinn, mætti ekki á Golden Globe verðlaunahátíðina í gærkvöldi. Hann átti að syngja lag á hátíðinni með Miley Cyrus er þau voru tilnefnd til verðlaunanna fyrir en það er úr í teiknimyndinni Bolt. Minningarathöfn fyrir Jett Tra- volta var haldin á fimmtudaginn á heimili þeirra hjóna John Travolta og Kelly Preston. Þangað mættu nánustu vinir þeirra og fjölskylda, en þeirra á meðal eru Lisa Marie Pres- ley, Garth Brooks og Trisha Year- wood. Sonur Travolta dó 2. janúar síð- astliðinn eftir kast. Þerna þeirra hjóna fann hann meðvitundarlausan á gólfi hótelherbergis fjölskyldunnar á Bahamas-eyjum. Svo einkennilega vildi einnig til að Miley Cyrus skar raddbönd sín á kjúklingabeini fyrir helgi, og missti röddina. Það er því greinilegt að þeim var ekki ætlað að syngja lagið saman á hátíðinni. Reuters John Travolta Ekki ætlað að syngja með Miley Cyrus á Golden Globe. Mætti ekki á Golden Globe

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.