Morgunblaðið - 12.01.2009, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.01.2009, Blaðsíða 16
FRÉTTASKÝRING Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is FJÁRMÁLARÁÐHERRA segir ekki ljóst hversu miklu ríkissjóður tapar af veðlánum, sem Seðlabanki Íslands veitti fjármálafyrirtækjum gegn tryggingum í verðbréfum föllnu bankanna. „Við erum að vinna úr þessum mál- um í fjármálaráðuneytinu. Það var talið heppilegra að ríkissjóður tæki yfir kröfurnar á fjármálafyrirtækin. Það gefur okkur meira svigrúm til að annast uppgjör þessara krafna á sem hagkvæmastan hátt,“ segir Árni M. Mathiesen. Fjármálaráðherra getur ekki sagt til um hvaða aðferðafræði verður not- uð til að innheimta þessar kröfur. Samtals nema þær 285 milljörðum króna. Sérfræðingar sem Morgunblaðið ræddi við telja að lítill hluti af þessari upphæð fáist greiddur til baka. Tap ríkissjóðs af þessum viðskiptum mun því nema tugum ef ekki hundruðum milljarða. Til að setja þetta í sam- hengi þá er áætlað að kostnaður rík- issjóðs vegna Icesave reikninga Landsbankans muni nema 150 millj- örðum króna. Það er því hægt að halda því fram að annað „Icesave- mál“ sé í uppsiglingu. Sparisjóðabankinn skuldar mest Sé miðað við grófa flokkun á þessum kröfum skuldar Sparisjóðabankinn um 150 milljarða króna og Straumur fjár- festingarbanki 40 milljarða. Smærri fjármálafyrirtæki, Saga Capital, Askar Capital, SPRON og VBS fjárfesting- arbanki skulda samtals um 45 millj- arða króna. Inni í þeirri tölu eru ekki 15 milljarðar sem VBS náði að skulda- jafna við Landsbanka Íslands. Samtals eru kröfur á þessi smærri fjármálafyrirtæki um 235 milljarðar króna. Þá má gera ráð fyrir að af- gangurinn af heildarupphæðinni, eða um 50 milljarðar króna, séu kröfur á föllnu viðskiptabankana. Það vekur athygli hversu lág sú upphæð er því vitað er um umfangsmikil viðskipti milli þessara banka í tengslum við lántökur hjá Seðlabankanum. Óljós samningsleið Verkefni fjármálaráðuneytisins verður að semja um uppgjör þessara krafna „eins og hagkvæmast þykir“, stendur í fjáraukalögum sem sam- þykkt voru fyrir jól. Fjármálaráðuneytið hefur frjálsari hendur um það að semja um veð- lánaskuldir en Seðlabankinn. Það var ein meginástæða þess að kröfurnar voru færðar frá Seðlabankanum yfir til ráðuneytisins að sögn Baldurs Guðlaugssonar ráðuneytisstjóra. Önnur ástæða er sú að þegar tapið af þessum viðskiptum verður raun- verulegt ber ríkissjóður, og þá skatt- greiðendur, tapið. Seðlabankinn hef- ur ekki burði til að bera margra milljarða króna tap. Það myndi setja efnahag bankans á hliðina. Stóra spurningin sem blasir við er hvernig þessar kröfur verða inn- heimtar. Það má teljast öruggt í ljósi stöðu Sparisjóðabankans að hann getur ekki staðið undir þessum greiðslum. Hvort sem ríkið tekur bankann yfir eða keyrir hann í þrot tapast yfir hundrað milljarðar króna. Viðráðanleg staða Í tilvikum Straums, Saga Capital, Askar Capital og VBS er staðan að- eins óljósari. Skuld þeirra við rík- issjóð nemur um 45 milljörðum króna. Líklegra er að þessum fjár- málafyrirtækjum verði gefið meira svigrúm til að vinna úr erfiðri stöðu. Stjórnvöld geta beðið þar til ljóst verður hve mikið fæst fyrir banka- bréfin sem þau eiga í föllnu bönk- unum. Það getur verið misjafnt eftir því hvaða bankabréf er um að ræða. Til dæmis hefur því verið haldið fram að þeir sem eiga skuldabréf Landsbankans, sem var stórtækastur í þessum veðlánaviðskiptum sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins, fái ekkert. Allar eignir fari í að greiða fyrir Icesave og nægi ekki til. Önnur leið er að breyta þessum kröfum í eigið fé. Þá eignast ríkið hlut í þessum fjármálafyrirtækjum í staðinn fyrir skuldina. Ríkið verður hluthafi. Þriðja leiðin getur verið sú að fella einfaldlega kröfuna niður og gefa þessa skuld eftir. En þá kemur upp sú réttlætisspurning af hverju eig- endur þessara fyrirtækja eigi ekki að bera kostnaðinn við fall bankanna eins og aðrir. Blönduð leið ákjósanleg Stjórnendur þessara fyrirtækja, sem Morgunblaðið talaði við, mæltu með blandaðri leið. Það er að ríkið verði hluthafi í sumum þessara fjár- málafyrirtækja, hlutur eigenda þynn- ist út og hluti af skuldinni verði felld- ur niður. Það skiptir ekki máli hvaða leið far- in verður. Skattgreiðendur munu allt- af sitja uppi með mikinn kostnað vegna þessara lánaviðskipta fjár- málafyrirtækja í Seðlabankanum. Hvort tapið verður nær hundrað eða tvö hundruð milljörðum kemur í ljós þegar samið verður um skuldirnar og gömlu bankarnir verða gerðir upp. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Veðlánakóngar Bankastjórn Seðlabanka Íslands rýmkaði reglur snemma á síðasta ári sem auðveldaði fjármálafyrirtækjum að sækja lausafé inn í bankann. Óljóst er um endurgreiðslu. Enn tapast milljarðar  Kostnaður ríkissjóðs vegna tapaðra veðlána gæti jafnast á við kostnað skattgreiðenda vegna Icesave  Fjármálaráðherra segir enn ekki ljóst hversu há endanleg upphæð verður og svigrúm sé til innheimtu Í minnisblaði smærri fjármálafyrirtækja, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, kemur fram að stjórnendum þeirra var nauðugur einn kostur að taka þátt í veðlánaviðskiptum. Það er rétt að hluta. „Áréttað er að vandinn er til kominn vegna þess fyrirkomulags sem Seðlabanki Íslands viðhafði við að veita laust fé í íslenskum krónum til stóru bankanna þriggja. Þar sem smærri fjármálafyrirtæki voru háð fyr- irgreiðslu stóru bankanna þriggja var þeim nauðugur einn kostur að taka að sér þetta hlutverk,“ segir í minnisblaðinu sem samþykkt var í október á fundi fulltrúa VBS fjárfestingarbanka, Saga Capital, SPRON, Askar Capital og Sparisjóðabankans, sem þá hét Icebank. Þurftu aðgang að lausu fé Ástæðunni fyrir því að þessi fjármálafyrirtæki sitja uppi með nú verðlítil skuldabréf bankanna er lýst í minnisblaðinu. Þar segir að stóru bankarnir hafi notað smærri fjármálafyrirtæki til að ná sér í laust fé í Seðlabank- ann. Viðskiptabankarnir gáfu út skuldabréf sem smærri fyrirtækin ýmist keyptu eða fengu að láni. Í þeim tilvikum þar sem fjármálafyrirtækin keyptu bréfin voru þau lögð inn í Seðlabankann sem veð fyrir láni. Lánið var svo notað til að greiða stóra bankanum fyrir skuldabréfið. Þannig gátu bankarnir tæknilega séð nánast náð sér takmarkalaust í peninga hjá Seðlabankanum. Arðsöm viðskipti Þar er samt öruggt að þessum fjármálafyrirtækjum var ekki stillt upp við vegg í öllum tilvikum. Þetta voru arðvænleg viðskipti og gáfu vel í aðra hönd án þess að binda háar fjárhæðir. Til dæmis var veðlánaþjónusta hluti af viðskiptamódeli Sparisjóðabankans. Á skýringarmynd að ofan má sjá að lítið fjármálafyrirtæki þarf aðeins að leggja fram 20 milljónir til að hirða vaxtamun af 100 milljörðum. Á árs- grundvelli eru tekjur af því 1,4 milljarðar króna. Neydd til þátttöku 16 FréttirVIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009 Veðlánaviðskipti Seðlabanka Íslands jukust stórkostlega á síðasta ári. Við fall bankanna stóðu lán Seðlabank- ans til fjármálafyrirtækja í yfir 500 milljörðum króna. Stór hluti lánanna var tryggður með öruggari veðum eins og ríkisskuldabréfum og sér- tryggðum skuldabréfum. Í forsíðufrétt viðskiptablaðs Morg- unblaðsins 21. ágúst var því lýst hvernig stóru viðskiptabankarnir nýttu sér reglur Seðlabankans, með aðstoð hver annars og smærri fjár- málafyrirtækja, til að ná sér í mikið laust fé með skuldabréfaútgáfu. Hluta af aukningunni má skýra með rýmri reglum Seðlabankans um hvaða veð væru gild í þessum lána- viðskiptum. Í mars voru reglurnar rýmkaðar enn meira og smærri fjármálafyr- irtækjum gert kleift að afla lausafjár gegn veðum í sértryggðum skulda- bréfum sem hefðu tiltekið lánshæf- ismat. Útgefandi bréfanna þyrfti ekki að hafa lánshæfismat eins og áður. Í frétt Morgunblaðsins var aðferð- um viðskiptabankanna líkt við pen- ingaprentun. Bankarnir gætu nánast sótt þá peninga í Seðlabankann sem þeir vildu. Brást bankastjórnin þann- ig við að vísa því á bug að „svindlað“ hefði verið í veðlánaviðskiptum og hengdi sig þannig í orðalag í fyr- irsögn blaðsins. Send var út sérstök tilkynning þar að lútandi og ítrekað að farið hefði verið að reglum Seðla- bankans í þessum viðskiptum. Það var hins vegar altalað innan fjármálakerfisins hvaða aðferðum væri beitt til að ná í laust fé í Seðla- bankann. Andvirði lánanna notuðu bank- arnir meðal annars til að kaupa rík- isskuldabréf og leggja þau inn í Seðlabanka Evrópu í gegnum útibú sín í Lúxemborg og fá evrur í staðinn. Reglunum var samt breytt í sept- ember og þær þrengdar hvað varðar ótryggð skuldabréf bankanna. Eirík- ur Guðnason, seðlabankastjóri, sagði í viðtali við Morgunblaðið 22. ágúst sl. að auðvitað væru það viðbrögð við einhverju sem hefði gerst. „Við höf- um gert athugasemdir við hvernig þessi viðskipti hafa farið fram þrátt fyrir að það hafi verið farið að öllum reglum,“ sagði hann. Margir hefðu óskað eftir viðbrögðum Seðlabank- ans eftir að fréttin birtist og því var ákveðið að senda út yfirlýsingu. Fylgdu fordæmi annarra Í tilkynningu frá Seðlabankanum 21. október 2008 segir: „Eins og aðrir seðlabankar leitaðist Seðlabanki Ís- lands með fyrirgreiðslu sinni við að auðvelda starfsemi innlendra fjár- málafyrirtækja í þeirri fjár- málakreppu sem riðið hefur yfir heiminn. Seðlabankinn fylgdi í því efni fordæmi annarra seðlabanka og jók fyrirgreiðslu sína og þar með áhættu. Hann gekk þó ekki jafn langt og þeir seðlabankar sem lengst gengu.“ Seðlabankinn fylgdi fordæmi annarra              !! "  #    $  %!  "  ! &  '     (      )   !                         "   (   *++                !     *++          &         #   !                   !     ,             ! -  *./  , (       *./    !        "  *++      #    

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.