Morgunblaðið - 12.01.2009, Qupperneq 30
30 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009
Sudoku
Frumstig
6 2 4 5
9 4
6 1 5 3
5 6 1 4
8 4 2 1 6 7
1 6 9 4
4 8 5 6
2 7
2 3 5 4
8 2 6 9
5 7 1 6
6 5
1 2 7
5 3 2 4
2 1 8
2 6
4 6 9 2
9 6 8 5
9 1 2
2 6 4
4 7 1 8 9
7 5 4
8 6 4 2
7 4 3
1 4 9 8 7
7 2 6
3 1 2
5 1 7 4 2 8 3 9 6
9 4 2 3 7 6 1 8 5
8 3 6 1 5 9 2 4 7
4 9 3 6 1 7 8 5 2
7 5 8 2 4 3 9 6 1
6 2 1 8 9 5 4 7 3
2 8 4 7 6 1 5 3 9
1 7 9 5 3 4 6 2 8
3 6 5 9 8 2 7 1 4
9 1 6 2 5 4 7 8 3
4 8 2 3 7 1 9 6 5
7 5 3 6 9 8 1 4 2
6 3 1 5 4 7 8 2 9
5 4 8 9 2 3 6 7 1
2 7 9 1 8 6 3 5 4
1 2 5 8 6 9 4 3 7
8 9 7 4 3 2 5 1 6
3 6 4 7 1 5 2 9 8
9 1 3 7 6 4 5 8 2
4 2 5 8 9 3 7 1 6
7 6 8 1 5 2 3 9 4
8 4 1 2 3 7 6 5 9
2 9 7 6 8 5 4 3 1
3 5 6 9 4 1 2 7 8
6 7 2 3 1 8 9 4 5
1 3 4 5 2 9 8 6 7
5 8 9 4 7 6 1 2 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
Í dag er mánudagur 12. janúar,
12. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Guð sé oss náðugur og
blessi oss, hann láti ásjónu sína lýsa
meðal vor. (Sálm. 67, 2.)
Mér finnst ég vera svo frjáls eftirað ég tók bílprófið,“ sagði
frænka Víkverja við hann þegar hún
sýndi honum nýfengið ökuskírteini
sitt, 63 ára gömul. Hún bjó þá uppi í
sveit og ökuleyfið gerði henni kleift
að heimsækja vinkonur sínar í sveit-
inni án þess að þurfa að biðja aðra um
að skjóta sér. Víkverji hefur hins veg-
ar búið í menningunni í Reykjavík og
átt þess kost að nota strætó í stað
þess að eyða dýrmætum tíma í að
vinna fyrir bíl, bensíni, tryggingum
og öllum þeim óheyrilega kostnaði
sem fylgir því að reka bílskrjóð.
Víkverji lét þó til leiðast á liðnu ári
og hunskaðist til að taka bílpróf, nær
fimmtugur að aldri. Um tíma lét hann
sig jafnvel dreyma um að verða jafn-
sveitalegur og vinir hans sem hafa
fjárfest í jeppum eða stórum pall-
bílum til að snatta í borginni.
x x x
Víkverji hefur þó ekki freistast tilað kaupa bíl en haft tækifæri til
að aka nær daglega sem einkabíl-
stjóri vinkonu sinnar. Hann bjóst við
því að finna frelsið, sem frænkan
dásamaði forðum í sveitinni, en verð-
ur að viðurkenna að því er þveröfugt
farið. Honum finnst ekkert leið-
inlegra en að aka bíl í höfuðborginni,
einkum í skammdeginu þegar akst-
ursaðstæður eru oft slæmar. Ef Vík-
verji fengi að ráða myndi hann lækka
hámarkshraðann hér á landi á vet-
urna um 10 km/klst, þannig að hann
yrði lækkaður úr 90 í 80, úr 80 í 70, úr
50 í 40. Hámarkshraðinn mætti þó al-
veg vera óbreyttur á götum þar sem
hann hefur verið 30 km.
Víkverji er sannfærður um að slík
breyting myndi fækka mjög bíl-
slysum. Umferðarþunginn og hrað-
inn er oft alltof mikill og Víkverji
furðar sig á tillitsleysinu og streitunni
sem einkennir marga bílstjóra. Er
ekki líklegt að streitan myndi minnka
og það yrði í alla staði skemmtilegra
að aka ef hámarkshraðinn yrði lækk-
aður?
Reyndar er Víkverji þeirrar
hyggju að frelsið sé miklu frekar fólg-
ið í því að ferðast með strætó, nota
tímann til að lesa í hlýjum vagninum
á meðan aðrir stressa sig á umferð-
inni. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 málæðið, 8
nemum, 9 áleit, 10 dvelj-
ast, 11 opnar formlega,
13 landrimi, 15 kvæðis,
18 spjör, 21 kaðall, 22
tæla, 23 kurr, 24 kropp-
inbak.
Lóðrétt | 2 rask, 3 lærir,
4 geðríkar, 5 gersam-
legan, 6 asi, 7 velgja, 12
ótta, 14 reið, 15 naut, 16
nói, 17 bala, 18 brodd-
göltur, 19 skurðbrúnin,
20 hluta.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 prútt, 4 fámál, 7 labba, 9 merki, 9 nem, 11 rótt,
13 bani, 14 ætlar, 15 sjór, 17 áman, 20 eða, 22 grugg, 23
urgur, 24 rotta, 25 terta.
Lóðrétt: 1 pólar, 2 úrbót, 3 tían, 4 fimm, 5 marra, 6 leiti,
10 eðlið, 12 tær, 13 brá, 15 sogar, 16 ótukt, 18 mögur, 19
norpa, 20 egna, 21 autt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. Bg5 dxe4
5. Rxe4 Rbd7 6. Rf3 h6 7. Rxf6+ Rxf6
8. Be3 Rd5 9. Bd3 Rxe3 10. fxe3 Bd6
11. De2 Bd7 12. 0-0-0 De7 13. Kb1 0-0-0
14. e4 e5 15. d5 Kb8 16. Bb5 Bc8 17. a3
Hhf8 18. Hhe1 a6 19. Bd3 Dd7 20. Rd2
Hde8 21. Rb3 Da4 22. Ka2 f5 23. c4 fxe4
24. Bxe4 Bb4 25. Hf1 Hf4 26. h3 b5 27.
Bc2 Hxc4 28. Rd4 Hxc2 29. Rxc2 Bd6
30. Hf7 Bb7 31. Hxg7 e4 32. Hg4 b4 33.
b3 Da5 34. Hxe4 Hxe4 35. Dxe4 bxa3
36. De8+ Bc8 37. b4 Db6 38. Rd4 h5 39.
Rc6+ Kb7 40. Ra5+ Kb8 41. Hf1 h4 42.
He1 Df2+ 43. He2 Df1 44. Rc6+ Kb7.
Staðan kom upp á öflugu móti í
Pamploma. Rússneski stórmeistarinn
Ian Nepomniachtchi (2.616) hafði hvítt
gegn kollega sínum heimamanninum
Ivan Salgado Lopez (2.556). 45.
Dxc8+! og svartur gafst upp enda mát
eftir 45. … Kxc8 46. He8+ Kd7 (46. …
Kb7 47. Hb8#) 47. Hd8#.
Hvítur mátar í þrem.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Akademískar spurningar.
Norður
♠Á84
♥3
♦ÁKDG95
♣ÁKG
Vestur Austur
♠D1076 ♠G9
♥ÁDG986 ♥K54
♦76 ♦104
♣D ♣1086543
Suður
♠K532
♥1072
♦832
♣972
Suður spilar 5♦.
Ekki vafðist fyrir keppendum
Reykjavíkurmótsins að renna sér í 5♦,
sem oft voru spilaðir í suður eftir sterka
kröfuopnun norðurs og afmeldingu á
móti. Hitt var enn minni vandi að taka
11 slagi með ♣D stakri í vestur. Eftir
sem áður er úrvinnslan í 5♦ allrar at-
hygli verð. Út kemur ♥Á og meira
hjarta.
Tveir vinningsmöguleikar blasa strax
við: Spaðinn 3-3 eða ♣D í vestur (sam-
tals 68%). Kastþröng í svörtu litunum er
möguleg, en bætir engu við. Eigi austur
fjórlit í spaða og ♣D þá þvingast hann
vissulega, en sagnhafi þarf að giska rétt
í lokastöðunni. Besti aukamöguleikinn
felst í ♠DG (eða ♠Dx) í austur (og
trompinu 2-2). Sagnhafi trompar hjarta
hátt í öðrum slag, tekur tvisvar tromp,
fer heim á ♠K, stingur þriðja hjartað og
spilar LITLUM spaða undan ásnum.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Nú er komið að því að menn sjá
hve mjög þú hefur lagt þig fram um lausn
ákveðins verkefnis. Vertu á varðbergi og
bíddu eftir tækifæri til að láta það rætast.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Stundum verður þú að leggja mikið
á þig til þess að ryðja veginn fyrir sjálfan
þig. Einnig er upplagt að versla og skrifa
undir samninga.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ef þú þarft að ganga frá trygg-
inga- eða erfðamálum þá er þetta besti
tíminn til þess. Hafðu líka aðra fjölskyldu-
meðlimi með í ráðum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Fegurð og friður umvefja þig í
dag. Þér er mikilvægt að sinna öllum þátt-
um lífs þíns og ert meðvitaður um að ham-
ingjan felst ekki í veraldlegum gæðum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Verður er verkamaður launa sinna
og er komið að þér að hljóta umbun erfiðis
þíns. Gefðu þér tíma til að vera með for-
eldrum þínum og hugaðu að viðgerðum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er ekki rétti tíminn núna til að
vænta stöðuhækkunar. Aðrir segja:
„svona er ég“ en þú getur í hvert sinn
ákveðið hvernig þú ert.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vertu á varðbergi í fjölskyldu-
viðræðum í dag. Fylgstu með hegðun
fólksins, leitaðu þér upplýsinga og dragðu
þínar eigin ályktanir af þeim. Illu er best
aflokið svo taktu þér tak.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ekki slaka á þótt vel gangi,
haltu þínu striki og láttu hlutina komast á
skrið. Sumir munu finna ástina í dag.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Fátt er eins dýrmætt og að
eiga sér góðan sálufélaga sem hægt er að
deila með gleði sinni og sorgum. Reyndu
að hugsa áður en þú talar, sérstaklega í
samskiptum við systkini þín og nágranna.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Forðastu deilur við maka og ná-
komna í dag. Komdu fram við aðra eins og
þú kýst að aðrir komi fram við þig.
Leggðu þig síðan fram um að gera þær
breytingar sem þú vilt sjá í lífi þínu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Angrar eirðarleysi þig? Slak-
aðu á. Temdu þér skipulagningu og taktu
ekki meira að þér en þú getur.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Eitthvað hefur orðið til þess að þú
sérð nú veröldina í nýju ljósi. Sýndu fyr-
irhyggju í fjármálum því óvæntir atburðir
geta gerst.
Stjörnuspá
12. janúar 1830
Friðrik Sigurðsson og Agnes
Magnúsdóttir, sem myrtu Nat-
an Ketilsson og Pétur Jónsson,
voru tekin af lífi í Vatnsdals-
hólum. Þetta var síðasta af-
taka á Íslandi. Líflátshegning
var þó ekki numin úr lögum
fyrr en 1928.
12. janúar 1917
Lög um þyngd bakarabrauða
voru samþykkt á Alþingi. Í
kjölfar þess var ákveðið að
franskbrauð skyldu vera 500
gr. og rúgbrauð 3.000 gr.
12. janúar 1940
Einar Benediktsson skáld lést,
75 ára. Hann var jarðsettur í
þjóðargrafreitnum á Þingvöll-
um 27. janúar, fyrstur allra.
Einar var „einhver stórbrotn-
asti ljóðvíkingur vor að fornu
og nýju,“ sagði Jóhannes úr
Kötlum. Meðal þekktra ljóða
Einars eru Einræður Stark-
aðar (Eitt bros getur dimmu í
dagsljós breytt).
12. janúar 1993
Samningur um aðild Íslands
að Evrópska efnahagssvæð-
inu, EES, var samþykktur á
Alþingi eftir lengstu umræður
í þingsögunni, alls um 100
klukkustundir. Samningurinn
tók gildi 1. janúar 1994.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Ólafur Runólfs-
son, Kópavogs-
braut 1b, Kópa-
vogi, er áttræður
í dag, 12. janúar.
Hann er að heim-
an á afmælisdag-
inn.
80 ára
STEINÞÓRI Helgasyni finnst líklegt, að hann taki
sér frí í vinnunni í dag og fari á hestbak, „ef veður
leyfir og verkstjórinn gefur mér frí“. Svo ætlar
hann að borða góðan mat með fjölskyldunni í
kvöld en Steinþór er giftur Önnu Kjartansdóttur
og saman eiga þau Kjartan Helga og Viktoríu Líf.
Steinþór segir að eflaust lýsi flestir vinirnir hon-
um sem náttúrubarni en hann er hestamaður og
kallar sig líka „hobbý“bónda, þar sem hann á
nokkrar kindur. Fjölskyldan á fjóra hesta og er
hestur Steinþórs hinn 12 vetra gamli Logi.
Aðspurður segir Steinþór eftirminnilegasta af-
mælið vera þrítugsafmælið. „Ég hélt agalega skemmtilegt furðufata-
partí sem verður lengi í minnum haft,“ segir hann en Steinþór klædd-
ist sem sjóræningi. „Það var mikið af kræsingum og drykkjum í boði
og þrír trúbadorar svo það var nóg spilað, sungið og trallað og farið í
leiki. Þetta var afar skemmtilegt en ég lofa engu um hvernig veislan
verður á þessum tímamótum.“
Steinþór vinnur hjá Veiðarfæraþjónustunni í Grindavík og segir
nóg vera að gera. „Það er alveg nóg að gera í tengslum við sjávar-
útveginn. Kreppan hefur ekki höggvið nær okkur ennþá.“ ylfa@mbl.is
Steinþór Helgason netagerðarmaður 40 ára
Náttúrubarn og „hobbý“bóndi
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is