Morgunblaðið - 12.01.2009, Síða 34

Morgunblaðið - 12.01.2009, Síða 34
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2009 Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó 650k r. Stórkostlegt meistaraverk frá leikstjóra Moulin Rouge! Stórkostlegt meistaraverk frá leikstjóra Moulin Rouge! - S.V., MBL Fyrir sum verkefni þarftu einfaldlega atvinnumann 650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM - H.E. DV „Ástralía... er epísk stórmynd sem sækir hugmyndir í kvikmyndasöguleg stórvirki á borð við „Gone with the wind“ og „Walkabout“. - S.V. Mbl - H.E. DV - S.V. Mbl Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 551 9000 Transporter 3 kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára Australia kl. 6:30 - 10 B.i. 12 ára Inkheart kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára The day the earth stood still kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára Quantum of Solace kl. 5:30 B.i. 12 ára Fyrir sum verkefni þarftu einfaldlega atvinnumann „HÖRKU HASAR MEÐ JASON STATHAM Í AÐALHLUTVERKI“ ÆVINTÝRAMYND AF BESTU GERÐ Bráðskemmtileg mynd þar sem heimur galdra og ævintýra lifnar við Stærsta BOND-mynd allra tíma! 650k r.6 50kr. 650k r. 650k r. Bráðskemmtileg mynd þar sem heimur galdra og ævintýra lifnar við ÆVINTÝRAMYND AF BESTU GERÐ „HÖRKU HASAR MEÐ JASON STATHAM Í AÐALHLUTVERKI“ HEIMILDAMYND EFTIR FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON Sólskinsdrengurinn kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ Seven pounds kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ Australia kl. 5:30 - 9 B.i. 12 ára Skoppa og Skrýtla kl. 6 LEYFÐ Taken kl. 8 - 10 B.i. 16 ára Seven Pounds kl. 8 - 10:10 LEYFÐ Australia kl. 7 B.i.12 ára Inkheart kl. 5:50 B.i. 10 ára Skoppa og Skrítla í bíó kl. 5:50 LEYFÐ Saw 5 kl. 10:10 B.i.16 ára SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, SÝND Í SMÁRABÍÓ OG BORGARBÍÓI Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI ÞAÐ er er ekki á hverjum degi sem tækifæri gefst til að sjá mynd sem hittir beint í hjarta- stað um leið og hún opnar augun fyrir válegum sjúkdómi sem er bæði grafalvarlegur og al- gengur en þó furðulega sniðgenginn. Hann nefnist einhverfa og myndin Sólskinsdreng- urinn, fyrsta heimildarmynd Friðriks Þórs um árabil og besta verk frá tímum Engla alheims- ins (2000). Einhverfa er erfiður sjúkdómur og lengi lítt kannaður þó hann sé sjálfsagt jafn gamall mannkyninu. Á miðöldum voru einstaklingar haldnir honum taldir umskiptingar eða and- setnir því hreyfingar þeirra eru gjarnan spast- ískar eða einkennast af endurtekningaráráttu. Slíkar raddir eru ekki með öllu óþekktar enn þann dag í dag. Bágt ytra ástand sjúklinganna er þó smámunir miðað við það andlega því þeir eiga erfitt með að mynda mannleg tengsl við aðra. Hvernig líður þeim, hvað hugsa þeir og hvernig upplifa þeir umhverfið og aðra ein- staklinga? Sólskinsdrengurinn hans Friðriks Þórs er Keli, 11 ára drengur sem hefur notið þeirrar heilsugæslu og skólagöngu sem er boðið upp á hérlendis. Með litlum árangri, svo að foreldrar hans, Margrét og Þorsteinn, gripu til sinna ráða og fóru að fylgjast með því sem markverð- ast var að gerast í viðureigninni við veikindi Kela. Þau komust að því að í Bandaríkjunum hefur leitin að virkri meðferð við einhverfu ver- ið markvissust, ekki síst fyrir dugnað og fjár- framlög aðstandenda sjúklinganna. Þau ákváðu að leita drengnum, sem þá var 9 ára, bestu hjálpar á stofnunum vestra og um sama leyti kom Friðrik með sitt fólk til sögunnar og festi atburðarásina á filmu. Þau Margrét og Þorsteinn leita til fjöl- margra stofnana og einstaklinga, m.a. Temple Grandin sem er prófessor í dýralækningum og einn þekktasti einstaklingur sem greinst hefur með einhverfu. Það var síðan indversk-ættuð kona, frú Mukhopadhyay, sem náð hefur stór- merkilegum árangri í meðferð einhverfra, sem reyndist Kela aðalhjálparhellan. Hafa verður í huga að einhverfa er á ýmsum stigum og í mörgum myndum. Keli var illa haldinn, en aðr- ir eru mun betur settir, sjúkdómurinn getur t.d. birst í ofurgáfum á afmörkuðum sviðum. Tito, syni Mukhopadhyay, hefur tekist með aðferðum móður sinnar að virkja óvenju mikla greind sem bjó bak við grímuna, og er orðinn kunnur rithöfundur sem fjallar gjarna um mál- efni einhverfra. Margrét og Þorsteinn höfðu ekki hugmynd um hvað sonur þeirra skildi af því sem sagt var við hann á móðurmálinu, hvað þá á enskunni hennar frú Mukhopadhyay og RPM, aðferðafræðinni sem hún fann upp, þar sem beitt er tali, stafaspjöldum og tölvuborði. Það er ógleymanlegt að fylgjast með því hvernig frú Mukhopadhyay tekst að komast í samband við Kela og ekki síður með við- brögðum Margrétar og Þorsteins þegar þau eru að endurheimta drenginn sinn sem búinn er að vera týndur í fötlun einhverfunnar. Sól- skinsdrengurinn er á leiðinni heim. Í myndinni hans Friðriks Þórs er sýnt og sannað að jafnvel einstaklingar illa haldnir af einhverfu eiga möguleika á að verða virkir í þjóðfélaginu og brjótast út úr þeirri félagslegu einangrun sem fylgir veikindunum. Sólskins- drengurinn fær mann einnig til að velta því al- varlega fyrir sér hvort vísindamenn og mennta- stofnanir hafi unnið af nægri harðfylgni við að hjálpa þessum „týndu“ einstaklingum í sam- félagi manna. Fyrst og fremst gefur hún ósviknar vonir um að hjálpin sé til staðar og engin spurning um að í framtíðinni verða með- ferðarúrræði frú Mukhopadhyay þróuð og full- komnuð, sem og allra þeirra sem lagt hafa hönd á plóginn við að finna leiðir til hjálpar. Sólskinsdrengurinn er sem fyrr segir fyrsta heimildarmynd og besta mynd Friðriks Þórs í langan tíma. Það er auðséð að hann hefur engu gleymt hvað varðar fundvísi á athyglisverð um- fjöllunarefni og kunnáttusamleg efnistök. Höf- undur Rokksins, Kúrekans og Eldsmiðsins, sem allar eru goðsagnakenndar í íslenskri heimildarmyndasögu, er kominn aftur með glæsibrag. Sólskinsdrengurinn er ekki aðeins afar upplýsandi um stórmál sem hefur legið í láginni heldur er hún mynd vonar og mynd sigra í erfiðri lífsbaráttu. Þrátt fyrir dálítið langdregna og málgefna kafla og nokkrar end- urtekningar vinnur hún á frá fyrstu mínútu uns hún endar full af gleði sem smitast út til áhorf- enda. Hún er óvenju falleg og á erindi við okkur öll. Höfum við ekki aukið á múrana sem um- lykja einhverfa með miðaldalegum fordómum? Friðrik heldur sig jafnan í réttri nálægð/ fjarlægð við viðfangsefnið og nær áhrifaríkum tökum á umfjöllunarefninu og okkur í eft- irminnilegri baráttusögu foreldra Kela og kraftaverkinu sem hann upplifir. Myndin nýtur góðs af markvissri kvikmyndatöku Jóns Karls Helgasonar og hófstilltri tónlist Bjarkar og Sigur Rósar. Eftirminnilegust af öllu góðu eru þó batamerki Kela og hamingja foreldra hans. Morgunblaðið/Kristinn Sólskinsdrengurinn á frumsýningu Keli var viðstaddur frumsýningu myndarinnar á föstudagskvöldið ásamt fjölskyldu sinni. Losað um fjötrana KVIKMYND Háskólabíó Íslensk heimildarmynd. Leikstjóri: Friðrik Þór Frið- riksson. Kvikmyndataka: Jón Karl Helgason. Klipp- ing: Þuríður Einarsdóttir. Framleiðandi: Kristín Ólafs- dóttir, Margrét Dagmar Ericsdóttir, ofl. Viðmælendur: Simon Baron Cohen, Temple Grandin, David Crowe, Jonathan Shestack, Tito og frú Mukhopadhyay, Keli og foreldrar hans o.fl. Klikk Pro- duction o.fl. 107 mín. Ísland 2009. Sólskinsdrengurinn bbbbn Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.