Morgunblaðið - 20.03.2009, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.03.2009, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009 Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is ALMANNAÞING nefnist nýtt kerfi sem „talar við“ vef Alþingis og gefur almenningi kost á að kjósa um ein- stök mál, gefa einkunnir, álit o.þ.h. Eitt markmiðanna er að koma manni á þing sem gæti kosið eftir niðurstöð- um almennings. „Hugmyndin var upphaflega sú að veita flokkakerfinu aðhald með því að gera raunveru- legar kannanir á vilja almennings á öllum málum á Alþingi,“ segir Daði Ingólfsson, talsmaður Al- mannaþings. „Þarna er náð í öll mál sem eru á Al- þingisvefnum og notendum gert kleift, eftir að þeir hafa skráð sig inn, að gera athugasemdir við öll mál og allar greinar allra laga, spjalla um þau, gefa þeim mikilvægiseinkunn og greiða atkvæði um þau.“ Þá verður hægt að fletta upp öllum umræðum á vídeóupptökum en þær hafa verið klipptar niður eftir einstökum ræðu- mönnum og flokkaðar eftir málum. Daði nefnir sem dæmi að hafi ein- hver áhuga á að vita hvað Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hef- ur sagt um stjórnlagaþingið þá séu þau ummæli aðgengileg á Almanna- þinginu. Atkvæðum vísað áfram Daði segir hugmyndina hins vegar hafa spunnið mikið upp á sig og sé markmiðið að endurspegla vilja al- mennings með því að ná manni inn á þing sem greiði atkvæði í samræmi við kosningu almennings. Í kjölfarið hafi komið upp sú gagnrýni að venju- legur Íslendingur þyrfti alltaf að vera að kjósa og setja sig inn í ólík mál, sem hann hefur hvorki vit né áhuga á, til að nógu mörg atkvæði fengjust og kosning almennings yrði marktæk. „Við erum að þróa virkni sem gerir notendum kleift að áframvísa at- kvæði sínu, annaðhvort í einu máli eða málaflokki. Ég gæti þá t.d. tekið afstöðu til allra mála um upplýsinga- tækni eða öryggi skíðafólks, af því ég hef áhuga á því, en öðrum málaflokk- um gæti ég áframvísað. T.d. starfar konan mín í heilbrigðiskerfinu og ég gæti þá vísað öllum málum sem hafa með heilbrigðiskerfið að gera áfram á hana þannig að hún hefði í raun stjórn yfir mínu atkvæði. Hún myndi Vilji almennings endur- speglaður á Alþingi Morgunblaðið/Ómar Alþingi Um 20 hugbúnaðarsérfræðingar komu að sköpun Almannaþings. Markmið að koma manni á þing sem kysi eftir vilja fólksins Daði Ingólfsson ekki vita það og hefði enga mögu- leika á að vita hversu mörg atkvæði væru á bak við sig,“ segir Daði. „Þannig gæti orðið gríðarlegur fjöldi atkvæða bak við sérhvert mál, þótt fáir tækju beinlínis afstöðu til þeirra.“ Fjórþætt hlutverk Tækist að ná manni inn á þing seg- ir Daði að hlutverk hans yrði fjór- þætt. Hann myndi kjósa eftir vilja al- mennings, leggja fram ný frumvörp, þingsályktunartillögur o.fl., sinna nefndarstörfum og auk þess vera talsmaður fyrir beint, rafrænt lýð- ræði, bæði á Alþingi og í fjölmiðlum. Almannaþing er nú þegar opið í hrárri útgáfu á slóðinni beint.lyd- raedi.is. Hugmyndafræðin á bak við kerfið verður kynnt formlega í dag í fyrsta skipti á hádegisverðarfundi á Grand hóteli og er áhugasömum bent á að skrá sig á slóðinni www.sky.is. HÆKKUN há- markslána Íbúða- lánasjóðs myndi virka sem blóð- gjöf fyrir bygg- inga- og mann- virkjagerð í landinu og stuðla að því að koma hjólum atvinnu- lífsins af stað. Kom þetta fram á fundi, sem meistarafélög í bygginga- og mannvirkjagerð héldu með Ósk- ari Bergssyni, formanni borgarráðs, og Kristjáni Erni Sigurðssyni, fram- kvæmdastjóra Sameinaða lífeyris- sjóðsins. Fram kom hjá Kristjáni, að mik- ilvægt væri fyrir lífeyrissjóðina að koma peningum inn í efnahagslífið í því árferði, sem nú ríkti. Stæðu nú yfir viðræður við borgaryfirvöld um fjármögnunarþörf borgarinnar og Óskar sagði, að borgin ætti einnig í viðræðum við Evrópska þróunar- bankann. Ljóst væri, að áfram yrði boðið upp á nýjar lóðir og verið væri að ræða við ríkið um staðsetningu samgöngumiðstöðvar. Kvaðst hann vona, að á því fyndist fljótlega farsæl lausn. Vilja hærri hámarkslán Byggingariðnaður- inn er frosinn. Fréttir á SMS str. 36-56 Bæjarlind 6 sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 Nýtt frá HREIN SNILLD Drjúgt, fjölhæft og þægilegt... Gott á: gler plast teppi flísar stein ryðfrítt stál fatnað áklæði tölvuskjái omfl. ATH. frábært á rauðvínsbletti og tússtöflur S. 544 5466 • www.kemi.is • kemi@kemi.is Laugavegi 54, sími 552 5201 Háar í mittið Áður kr. 6.990 Nú kr. 4.990 Stærðir 36-46 M bl 09 85 53 Gallabuxur og galla- kvartbuxur EFTIRLAUNASJÓÐUR SLÁTURFÉLAGS SUÐURLANDS Boðað er til ársfundar Eftirlaunasjóðs Sláturfélags Suðurlands Fundurinn verður haldinn að Fosshálsi 1, 3. hæð, fimmtudaginn 2. apríl nk. kl. 17. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Kynning ársreiknings, tryggingafræðilegrar úttektar og fjárfestingastefnu. 3. Önnur mál. Stjórnin. Smáralind - Kringlan 5 sokkapör 1.290 , ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.