Morgunblaðið - 20.03.2009, Blaðsíða 32
32 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009
✝ Ragnar JónGunnarsson, arki-
tekt og skipulags-
fræðingur, fæddist í
Reykjavík 20. janúar
1957. Hann lést á
heimili sínu 4. mars
2009. Foreldrar hans
voru Guðný Ingibjörg
Jónsdóttir húsmóðir,
f. 22.6. 1927, d. 25.1.
1979, og Gunnar G.
Einarsson innanhúss-
arkitekt fæddur 5.5.
1929. Systkini Ragn-
ars eru Einar Berg
Gunnarsson verslunarmaður, f.
16.8. 1958, Þórey Björg Gunn-
arsdóttir leikskólakennari, f. 28.8.
1960, og Hafdís Lilja Gunn-
arsdóttir þroskaþjálfi, f. 11.4. 1965.
Fyrri kona Ragnars var Helga
Birna Björnsdóttir, þau slitu sam-
vistum.
Seinni kona Ragnars var Guð-
laug Erna Jónsdóttir arkitekt, þau
slitu samvistum árið 2004. Synir
þeirra eru Hilmir Berg Ragn-
arsson nemi í Kvikmyndaskóla Ís-
lands, f. 13.9. 1986, og Arnar Jón
Ragnarsson, nemi í Tækniskóla Ís-
lands, f. 16.7. 1989. Sonur Guð-
laugar Ernu og stjúpsonur Ragn-
ars er Janus Christiansen
lífefnafræðingur, f. 14.2. 1979,
kvæntur Birgittu Baldursdóttur
kennara, f. 11.11.
1975.
Ragnar útskrif-
aðist sem stúdent frá
Menntaskólanum við
Tjörnina árið 1977 og
sem arkitekt frá
Kunstakademiets
Arkitektskole í Kaup-
mannahöfn árið 1983.
Ragnar starfaði sem
arkitekt og skipu-
lagsfræðingur fram
til dánardags og nú
síðast hjá Húsafriðun
ríkisins frá árinu
2003. Áður hafði Ragnar m.a.
starfað hjá Húsameistara ríkisins,
VT-teiknistofunni á Akranesi,
Skipulagsstofnun, á skipulagssviði
Reykjavíkurborgar auk þess að
hafa starfað sjálfstætt að fjölmörg-
um verkefnum, m.a. á sviði skipu-
lagsmála, landupplýsingakerfa og
við tölvukennslu. Ragnar sá um út-
varpsþætti hjá RÚV árið 1985 sem
fjölluðu m.a. um skipulagsmál.
Ragnar var virkur í skátahreyfing-
unni sem barn og unglingur en ár-
ið 1985 gekk hann í Frímúr-
araregluna og var virkur þar á
meðan heilsan leyfði en hann
greindist með MS-sjúkdóminn árið
2000. Ragnar verður jarðsunginn
frá Laugarneskirkju í dag, 20.
mars, kl. 13.
Ég ætla að minnast hans Ragnars
Jóns með fáeinum orðum.
Það eru rúmlega 30 ár síðan ég
hitti Ragnar fyrst, eftir að ég kynnt-
ist Einari bróður hans. Ég fann
strax hvað Ragnar var mikið ljúf-
menni. Rólegur var hann og yfirveg-
aður og bar með sér svo miklar
sköpunargáfur. Í minningunni sé ég
hann alltaf fyrir mér svolítið heim-
spekilegan með bók í hendi eða að
skrifa eitthvað niður á blað. Um
þetta leyti bjó Ragnar með Helgu
Birnu fyrri konu sinni í Kaupmanna-
höfn og stundaði þar nám. Við Einar
heimsóttum hann og var sú ferð eft-
irminnileg, ekki bara vegna þess að
þetta var mín fyrsta utanlandsferð,
heldur líka hvað Ragnar var góður
gestgjafi og naut þess að sýna okkur
hvað borgin hafði upp á að bjóða.
Þessi ferð vekur góðar minningar.
Eftir að Ragnar flytur heim og
stofnar fjölskyldu með Ernu seinni
konu sinni verða samskipti okkar
meiri, sérstaklega eftir að strák-
arnir fæðast. Það var unun að sjá
hvað hann var stoltur af drengjun-
um sínum og hvað hann bar hag
þeirra fyrir brjósti. Systkinabörnin í
fjölskyldunni nutu þess einnig hvað
hann var barngóður og oft var glatt
á hjalla í fjölskylduboðum. Ragnar
var mikill fjölskyldumaður og naut
þess að ferðast með fjölskyldunni
bæði innanlands sem utan. Hann
var mikill náttúruunnandi og áhuga-
samur um náttúru landsins. Fórum
við í nokkur ferðalög saman og það
var ómetanlegt að njóta leiðsagnar
hans, hann var svo fróður um alla
hluti.
Ragnar var mjög vinnusamur,
skipulag og byggingarlist var hon-
um hugstæð. Ragnar var mjög hæfi-
leikaríkur og hafði mikinn áhuga á
list hvers konar tónlist og myndlist,
enda var hann mjög góður teiknari.
Bókalestur var honum hugleikinn og
sé ég hann fyrir mér á öðrum stað,
með bók í hendi. Síðasta utanlands-
ferðin okkar saman var líka farin til
Kaupmannahafnar. Ragnar var
hress og gekk með okkur um stræti
borgarinnar og sagði okkur sögu
borgarinnar. Hann var svo fróður að
hann virtist þekkja hvert hús og
hverja götu. Ég man að ég sagði
honum að hann væri kjörinn leið-
sögumaður fyrir Íslendinga í borg-
inni. Ragnar brosti bara að þessu
var hógværðin uppmáluð. Þessi ferð
var eftirminnileg og geymist í huga
okkar.
Eftir að Ragnar veiktist af MS
sjúkdómnum fyrir nokkrum árum
fór að halla undir fæti hjá honum.
Honum gekk illa að hafa stjórn á lífi
sínu, smám saman. Þetta voru erf-
iðleikatímar hjá honum og fjölskyld-
unni. Aðstandendur sitja eftir með
mikla reynslu. En góðu stundirnar
voru margar og ætlum við að muna
eftir þeim.
Elsku Hilmir, Arnar, Janus,
Erna, Gunnar faðir hans og systkini
og fjölskyldan öll. Minningin um
góðan dreng mun lifa með okkur og
standa vörð um drengina hans sem
hann elskaði svo mikið, svo og alla
fjölskylduna.
Hvert sem leiðin þín liggur
um lönd eða höf;
berðu sérhverjum sumar
og sólskin að gjöf.
(Stephan G. Stephansson.)
Hvíl í friði.
Svandís Karlsdóttir.
Elsku hjartans Ragnar Jón, syst-
ursonur minn.
Að kveðja þig, sem ég hef þekkt
frá fæðingu, er erfitt.
Ragnar Jón var elsti sonur systur
minnar. Hann var yndislegur dreng-
ur. Þegar hann var 7 ára fluttist fjöl-
skyldan til Danmerkur, Gunnar var
að fara í nám.
Það var erfitt að horfa á eftir ykk-
ur fara um borð í skipið sem flutti
ykkur þangað. Vera ykkar þar varði
í 4 ár. Þú varst búinn að læra heil-
mikið í dönsku í barnaskólanum
þegar þið komuð heim.
Svo liggur það fyrir þér að fara
sömu leið og faðir þinn í nám til
Kaupmannahafnar, í arkitektúr,
giftir þig, eignast 2 syni og stjúpson,
en heilsan brast.
Ég kveð þig með miklum söknuði
og þú munt ávallt eiga stóran stað í
hjarta mínu.
Guðbjörg (Bugga frænka).
Ég var að flytja úr Kópavoginum
niður í Hlíðar. Ég kynntist Ragga
við afgreiðsluborðið á söluturninum
Teningnum við Snorrabraut. Við
mændum hvor á annan á meðan við
mældum hvor annan út. Við drukk-
um kókómjólk.Við vorum nefnilega
báðir að bíða eftir því að komast í
sundtíma í Sundhöllinni. Þetta var í
september 1970 og við vorum 13 ára
vikugamlir bekkjabræður. Ég virti
þennan strák fyrir mér, sem var
svona tveimur höfðum hærri en ég
og grannur sem ljósastaur. Þegar
hann svo opnaði munninn kom í ljós
að Raggi var í mútum þannig að
verri útreið í gelgjunni getur vart
nokkur maður orðið fyrir. Eftir
þennan dag urðum við óaðskiljan-
legir bestu vinir til margra ára.
Raggi dró mig í skátafélagið
Hamrabúa þar sem við áttum saman
frábær unglingsár. Raggi var alger
fjallageit, naut sín best upp á Hellis-
heiði, í skátaskálanum, hlaupandi
upp og niður brattar brekkur og
klífandi alla hamra sem fyrir honum
urðu. Það lýsir Ragga líklega nokk-
uð vel, en fyrir honum var hamar
áskorun og eitthvað sem þurfti að
klífa framan frá en ekki sneiða
framhjá. Raggi var skarpgreindur
strákur og það voru ófáar næturnar
sem við sátum inni í eldhúsi og
leystum allar gátur heimsins. Raggi
var nefnilega einstakur rökhyggju-
maður með fullkomnunaráráttu
jafnframt því að vera næm tilfinn-
ingavera. Það var ótrúlega gefandi
að fara í þessa rökhyggjuleiðangra
með honum, þó að útkoman morg-
uninn eftir hafi ekki alltaf verið jafn
rökrétt og hún virtist nóttina áður.
Þá var bara að endurtaka leikinn
kvöldið eftir og sjá hvað kæmi út úr
því. Ein næturniðurstaðan var sú að
það lægi fyrir okkur að verða arki-
tektar. Þar sem þetta var rökrétt
niðurstaða, varð ekki aftur snúið og
við fórum báðir til Kaupmannahafn-
ar, hann þó ári á undan. Við áttum
mörg frábær ár í Kaupmannahöfn
og héldum áfram fyrri iðju. Raggi
kláraði á undan mér og fór strax aft-
ur til Íslands. Ég var einhverjum ár-
um lengur í Danmörku og samband
okkar minnkaði upp frá því. Engu
að síður mótuðumst við Raggi sam-
an.
Við mótuðum að mörgu leyti hvor
annan. Hann er og verður þannig
alltaf hluti af mér. Nú kveð ég þenn-
an gamla æskuvin og varðveiti hann
innra með mér eins og að framan er
lýst. Ég votta hans nánustu mína
innilegustu samúð.
Jakob Emil Líndal.
Ragnar Jón Gunnarsson, arkitekt
og skipulagsfræðingur, var starfs-
maður Skipulagsstofnunar með
hléum á árunum 1986–1993. Ragnar
Jón var mikill frumkvöðull, hug-
myndaríkur og ótrúlega öflugur í
því að greina aðstæður og leggja til
tæknilegar lausnir. Hann var því
mikill fengur fyrir stofnunina þegar
hann réðst þar til starfa. Á árunum
92–93 stjórnaði Ragnar Jón nýju
þróunar- og gæðasviði stofnunarinn-
ar þar sem gerðar voru tilraunir
með aðferðir í skipulagsgerð og
notkun upplýsingatækni. Ragnar
Jón var svo áhugasamur um þau
verkefni sem hann vann við að hann
átti það til að gleyma því að gera hlé
á vinnu og varð því stundum úr-
vinda. Enda varð hann fljótlega
meðal helstu sérfræðinga í land-
fræðilegum upplýsingakerfum á
þeim árum sem hann vann hjá
Skipulagsstofnun. Þegar litið er til-
baka til þessara ára er með ólík-
indum að sjá hversu framsýnn
Ragnar Jón var og hversu vel hon-
um tókst til við ýmis sérhæfð verk-
efni eins og t.d greiningu skipulags-
áætlana, notkun landslagslíkana og
tilraunir með mat á umhverfisáhrif-
um framkvæmda.
Á árunum 1991–93 var Ragnar
Jón fulltrúi stofnunarinnar í vinnu-
hópi um landfræðileg upplýsinga-
kerfi sem var einn af 8 hópum sem
tóku þátt í tilraunaverkefni um-
hverfisráðuneytisins um gerð stað-
fræðikorta, gróðurkorta og um land-
fræðileg upplýsingakerfi. Á
grundvelli niðurstaðna úr 8 vinnu-
hópum lagði stýrihópur verkefnisins
til ákveðið framhald sem því miður
varð ekki af m.a. vegna mikils kostn-
aðar. Sú niðurstaða olli starfsfólki
Skipulagsstofnunar miklum von-
brigðum, ekki síst Ragnari Jóni,
sem hafði átt þar stóran hlut að
máli.
Við andlát Ragnars Jóns minnist
ég hans sem mikils hugsuðar sem
átti afgerandi erindi í heim skipu-
lagsmála á Íslandi en ég minnist
hans líka sem góðrar manneskju
með miklar og heitar tilfinningar.
Ég vil fyrir hönd starfsmanna
Skipulagsstofnunar senda fjölskyldu
Ragnars Jóns innilegar samúðar-
kveðjur.
Stefán Thors.
Meira: mbl.is/minningar
Ragnar Jón
Gunnarsson
✝
JÓHANN SIGMUNDSSON,
Lindargötu 57,
Reykjavík,
lést á Landspítala Landakoti mánudaginn
16. mars.
Útför hans fer fram frá Fossvogskapellu
mánudaginn 23. mars kl. 15.00.
Sigríður Jóhannsdóttir, Haraldur Hermannsson,
Sigurdís Haraldsdóttir,
Svava Jóhanna Haraldsdóttir,
Jóhann Haraldsson,
Vilborg Áslaug Sigurðardóttir,
Guðrún Karla Sigurðardóttir,
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Kristjana Ósk Sigurðardóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær eiginmaður, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
VALDIMAR ÞÓRÐARSON
húsasmíðameistari,
Heiðarvegi 4,
Selfossi,
lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum Selfossi
þriðjudaginn 17. mars.
Útför hans verður auglýst síðar.
Helga Jóhannesdóttir,
Jónína Valdimarsdóttir, Guðmundur Baldursson,
Björgvin Þ. Valdimarsson, Sigríður Magnea Njálsdóttir,
Guðrún Valdimarsdóttir, Sigurður Bragason,
Magnea Kristín Valdimarsdóttir, Sigurður Rúnar Sigurðsson,
Björk Valdimarsdóttir,
Oddný Magnúsdóttir, Emil Guðjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar og systir,
AUÐBJÖRG PÉTURSDÓTTIR,
lést á dvalarheimilinu Nausti Þórshöfn mánudaginn
16. mars.
Kveðjuathöfn fer fram frá Þórshafnarkirkju
mánudaginn 23. mars kl. 14.00.
Jarðsungið verður frá Hvammstangakirkju
þriðjudaginn 24. mars kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir sem vilja minnast
hennar láti dvalarheimilið Naust njóta þess.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna,
Oddný Snorradóttir,
Gunnlaugur Snorrason,
Stefanía Jónína Snorradóttir,
Hólmfríður Stefánsdóttir,
Þórarinn Jónas Stefánsson
og fjölskyldur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐFINNA SIGRÚN ÓLAFSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu Víðinesi þriðjudaginn 17. mars.
Útför verður auglýst síðar.
Börn, tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra
KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Efra-Hóli,
Staðarsveit,
síðar búsett á Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki
miðvikudaginn 11. mars.
Jarðsett verður á Staðarstað laugardaginn 21. mars
kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Friðjón Jónsson, Hanna Olgeirsdóttir.