Morgunblaðið - 20.03.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 20.03.2009, Blaðsíða 26
26 UmræðanKOSNINGAR 2009 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009 Á LANDSÞINGI Frjáls- lynda flokksins síðastliðna helgi var samþykkt að krefj- ast þess að verðtryggingin yrði aflögð. Íslensk stjórn- völd hafa ekki fulla stjórn á efnahagsmálum þjóðarinnar. Undanfarna áratugi hafa stjórnvöld notað íslensku krónuna sem stjórntæki til að rétta af þjóðarskútuna þegar siglt hefur verið af leið og ávallt á kostnað almennings. Heimilin hafa mátt blæða í óðaverð- bólgu, undir okurvöxtum og geng- ishruni og verðtrygging peningalána hefur fyrst og fremst tekið tillit til hagtalna í rekstri lánveitenda en ekki lántakenda. Til að stofna heim- ili hefur fólk notið liðsinnis lána- stofnana og veðsett tíma sinn og framtíð við að greiða skuldir sínar. Það er hins vegar óviðunandi að til að greiða lán þurfi fólk lengri vinnu- dag og fleiri æviár en um var samið og til stóð við töku láns. Fólk vill standa í skilum en það vill ekki vera þrælar þeirrar efnahagsófreskju sem tröllríður þjóðlífinu og stjórn- völd ráða ekki við. Það er nauðsynlegt að grípa til að- gerða sem duga. Almenningur treystir ekki núverandi stjórnvöld- um og meðferð þeirra á íslensku krónunni. Því ber að taka upp – ein- hliða – stöðugri mynt þeirra landa sem við eigum mest viðskipti við. Um leið þarf að færa öll lán á gengi launavísitölu þess dags er þau voru tek- in. Gengi íslensku krónunnar við inn- köllun þarf að vera meðalgengi fyrir þann tíma er bankarnir hrundu. Vextir þurfa að vera til samræmis við það sem gerist í viðskiptalöndum okk- ar og verðtrygging verður aflögð. Við þessa breytingu verð- ur verðbólgan svipuð því sem gerist í nágrannalöndum. Myntbreytingu er hægt að fram- kvæma án aðildar að ESB, en kostar að halli á viðskiptum við útlönd heyrir sögunni til. Úrlausnarefni efnahagskrepp- unnar á Íslandi eru í meginatriðum tvíþætt; annars vegar að koma fjár- streymi samfélagsins hér innan- lands í eðlilegt horf og hins vegar að semja við útlönd vegna þeirra gríð- arlegu skulda sem þar hefur verið stofnað til í nafni þjóðarinnar. Fram- kvæmdin er í höndum íslenskra stjórnvalda og ber að fara í að leysa úr málum strax á meðan flestir bankar og lánastofnanir eru enn í ríkiseigu. Við í Frjálslynda flokknum erum sannfærð um það að almenningur hafi fengið nóg af þessu ástandi. Þjóðin vill stöðugleika í efnahags- málum. Eftir Ásgerði Jónu Flosadóttur Ásgerður Jóna Flosadóttir Höfundur er varaformaður Frjálslynda flokksins. Verðtrygginguna burt, róttækar lausnir strax GAMALKUNN- UGUR darraðardans er nú á lokadögum Al- þingis, þ.e. hvaða mál fari í gegn fyrir þing- lok. Við sjálfstæðismenn höfum margsagt að við munum greiða fyrir öll- um góðum málum sem stuðla að því að styrkja heimilin og efla at- vinnulíf. Það höfum við sýnt í verki á síðustu dögum og vikum í þinginu. Hefur það orðið okkar hlutskipti að greiða fyrir málum þegar stuðningsmenn stjórn- arinnar hafa mætt seint og illa í atkvæðagreiðslur. Nú er þörf á að árétta þetta boð okkar þegar for- gangsraða þarf tíma þingsins. Það liggur ljóst fyrir að við sjálfstæðismenn viljum ná sam- komulagi um ákveðnar breytingar á stjórnarskrá svo hæg- ara verði um vik fyrir nýtt þing að gera þær nauðsynlegu stjórn- arskrárbreytingar sem Alþingi telur rétt að ráð- ast í á næsta kjör- tímabili. Væri ekki einn- ig réttara eins og sakir standa að setja t.d. hluta af þeim miklu fjár- munum er færu ellegar í stjórnlagaþingið til rannsóknar á hruni fjár- málakerfisins á þeim forsendum er Eva Joly leggur til? Það liggur líka fyrir að við viljum skoða allar breytingar er auka vægi kjósandans í kjörklefanum. Það er hins vegar sérstakt að upp- lifa að það fólk sem hrópaði hvað hæst að sitjandi þing hefði ekki lengur umboð frá þjóðinni virðist ætla að nota þann skamma tíma sem er til stefnu og knýja í gegn grundvallarbreytingar á stjórn- arskrá og kosningalögum án sam- komulags. Hamagangurinn er mikill. Að gefinn er t.a.m. mun styttri frestur til umsagnar á breytingum um stjórnarskrá en öðrum málum er óeðlilegt og ávís- un á óvönduð vinnubrögð og mikla réttaróvissu. Vöndum til verka er kemur að grundvallarlöggjöf okkar og ger- um það í sátt. Notum tíma þingsins til að styðja við heimilin og atvinnulífið. Það viljum við ítreka. Ítrekun Eftir Þorgerði Katr- ínu Gunnarsdóttur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Höfundur er varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Framundan eru kosningar sem geta orðið einhverjar afdrifaríkustu kosningar sem gengið hefur verið til á lýðveldistímanum. Núverandi ríkisstjórn hefur þegar valdið vonbrigðum með úrræðaleysi sínu og skýr leiðsögn sjálfstæðismanna út úr vandanum er afar mikilvæg. Nýrra vinnubragða er þörf í Alþingishúsinu og nýrra viðhorfa sömuleiðis. Sókn er besta vörnin í þeim verkefnum sem bíða okkar og því fyrr sem hafist verður handa því betra. Hvorki atvinnulífið né heim- ilin í landinu geta þrifist við núverandi að- gerðarleysi. Verkefni til framfara í Norðvesturkjördæmi eru fjölmörg. Ég er reiðubúinn til að leiða þá vinnu sem sjálfstæðismenn í kjördæminu eiga þegar að hefjast handa við. Enda þótt reynsla mín af stjórnmálastarfi á landsvísu sé ekki mikil er ég sannfærður um að á þeim vettvangi gilda engin sérstök lögmál umfram þau sem gilda á sviði sveitarstjórnarmála. Í báðum tilfellum hljóta aðalatriðin að vera þau að skilja viðfangsefnin, virða ólík sjónarmið, taka vel ígrundaðar ákvarðanir og – síðast en ekki síst – koma hlutunum í framkvæmd. Grunnstefin eru því ekki flókin en væntanlega er ég ekki einn um þá skoðun að í störfum Alþingis og stjórnvalda vanti sum þeirra of oft og sér- staklega á framkvæmdahliðinni. Því vil ég breyta. Ég vil koma hlutum í verk. Ég hef kynnt sjónarmið mín og áherslur í miklum fjölda heimsókna til fólks og fyr- irtækja í kjördæminu á undanförnum vikum. Spjallið við þann stóra hóp fólks sem ég hef hitt hefur bæði verið fróðlegt og hvetjandi. Og niðurstöðurnar um brýnustu verkefnin eru í raun einfaldar. Fyrst af öllu þarf að lækka vexti og endurskipuleggja lánastofnanir. At- vinnuvegirnir geta einfaldlega ekki beðið lengur eftir vaxtalækkun og án atvinnulífsins verður styrkur heim- ilanna aldrei endurheimtur. Endurskipulagning lána- stofnana þarf að fara fram með þeim hætti að traust al- mennings á Íslandi og viðskiptalífsins erlendis verði endurheimt. Grettistaki þarf að lyfta í þeim efnum. Um það hafa allir viðmælendur mínir verið sammála. Grettistak Ásbjörn Óttarsson Ásbjörn Óttarsson Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi. TVÖFÖLDUN Suð- urlandsvegar frá Reykjavík að Selfossi, forgangsverkefni Suð- urkjördæmis, er nú í startholunum til fram- kvæmda. Vegagerðin leggur til að fyrsti áfangi, sem á að hefj- ast á yfirstandandi ári, verði lagður frá Lög- bergsbrekkunni 6 km leið um Sandskeið að Litlu kaffi- stofunni miðað við það fjármagn sem stjórnvöld áætla til verksins, en í byrjun næsta árs er reiknað með að allri undirbúningsvinnu tvöföldunar milli Hveragerðis og Selfoss verði lokið og þá gæti það verk hafist ef ekkert tefur í beinu framhaldi af Sandskeiðskaflanum ella yrði gengið til vegkaflans frá Litlu kaffistofunni að Hveragerði sem er nú þegar tilbúinn til út- boðs. Reiknað er með alls fimm mislægum gatnamótum á leiðinni Hveragerði- Selfoss þar sem slysagildrur hafa reynst mestar, en ef framvinda þess kafla gengur upp á næsta ári er reiknað með að tvenn gatnamótanna yrðu með hringtorg til bráðabirgða vegna minni kostnaðar. Stefnt er að því að tvöföldun Suðurlandsvegar verði einkaframkvæmd, ef unnt reynist að ná fjármagni til verk- efnisins. Fyrsti kaflinn á árinu sem er að líða yrði þó framkvæmd á vegum Vegagerðarinnar. Þessa dagana er verið að bjóða út stórverkefni með brúarsmíði yf- ir Hvítá frá Bræðratungu í Bisk- upstungum að Flúðum í Hruna- mannahreppi, framkvæmd sem Vegagerðin áætlar að kosti um 1,5 milljarða króna, en verkinu á að vera lokið 2010. Þá verður seinni áfangi Suður- strandarvegar milli Þorlákshafnar og Grindavíkur boðinn út seinni hluta þessa árs, þannig að sú 15 km framkvæmd geti byrjað ekki síðar en í október nk. og þá vænt- anlega í samfellu við lok fyrri áfanga, 35 km, sem virðist ætla að vera á undan áætlun hjá ís- firsku verktökunum KNH sem vinna verkið af miklum krafti. Þá er mjög mikilvægt að ljúka vegtengingu Suður- strandarvegar við hafn- arsvæðið í Þorlákshöfn, en það hefur dregist úr hömlu fram og eðlilegt er að hnýta það verk upp ekki síðar en með verklokum Suð- urstrandarvegar. Ýmsar dyr kunna að opnast Vegagerðinni yfir Hornafjarð- arfljót hefur verið ýtt yfir á árið 2010, en þá er ætlað að lokið verði skipulags- og kærumálum. Mörg önnur verkefni eru í deiglunni, áframhald uppbygg- ingar Rangárvallavegar og fyr- irliggjandi eru marksæknar áætl- anir hjá Vegagerðinni um uppbyggingu safnvega allvíða með bundnu slitlagi ef ekki næst að byggja þá með malarslitlagi. Ef tilboð og verðþróun framundan verður hagstæð opnast ýmsir möguleikar eins og til að mynda uppbygging vega í Skaftártungu, Meðallandi og Landbroti í Vestur- Skaftafellssýslu. Byggingaáfangar Land- eyjahafnar ganga vel Þá eru í fullum gangi fram- kvæmdir við Landeyjahöfn og nýj- an veg frá þjóðveginum til strand- ar. Þá má minna á að á árinu verður byggð upp Vopnafjarð- artenging ofan af Möðrudals- öræfum niður Vesturárdal og um Hofsárdal til Vopnafjarðar. Þá gengur vel jarðgangasmíðin um Héðinsfjörð og til Bolungarvíkur, en gangagerðinni mun væntanlega ljúka á miðju næsta ári. Eftir Árna Johnsen Árni Johnsen Höfundur er alþingismaður Sjálf- stæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Mörg stórverkefni í Suðurkjördæmi SKYNSAMLEG auð- lindastjórn er hagkvæm nýting á náttúruauðlind- unum. Bent hefur verið á að auðlindastjórn verði best komið með séreign- arrétti, með grænum sköttum/kvótum eða uppbótum. Hin síðari ár hafa skapast ný réttindi og óvissa hefur ríkt um hvaða formi eignarréttar þau til- heyra. Þessi nýju réttindi, aflaheim- ildir í sjávarútvegi, greiðslumark í landbúnaði og losunarheimildir, eiga það sameiginlegt að til þess að verða virk þurfa stjórnvöld að úthluta gæð- um til einstaklinga og fyrirtækja, eft- ir leikreglum sem þau sjálf setja, í til- felli losunarheimildanna byggðist úthlutunin á „mengunarreynslu“. Þegar Ísland fullgilti Kyoto- bókunina sem gerð var við Ramma- samning Sameinuðu þjóðanna, má segja að orðið hafi til ný eignarrétt- indi hér á landi á sviði um- hverfis- og auðlindaréttar er losunarheimildirnar fóru að lúta auðlinda- stjórn. Ísland hefur yfir að ráða 10.500.000 los- unarheimildum á skuld- bindingartímabili bók- unarinnar. Við úthlutun los- unarheimilda hér á landi á árabilinu 2008 til 2012 ákvað löggjafavaldið að innheimta hvorki gjald fyrir nýtingu þeirra né að bjóða þær til sölu. Með tilkomu losunarheimilda er eftir verulegum fjármunum að slægjast á heimsvísu. Við Íslend- ingar eigum hlutdeild í þessari tak- mörkuðu alheimsauðlind og skiptir því miklu að skilgreint verði sem fyrst hver er raunverulegur eigandi losunarheimildanna hér á landi. Eru það fyrirtækin sem áunnið hafa sér mengunarreynslu í gegnum árin eða íslenska ríkið? Fjórðungur losunarheimilda hér á landi er markaðsvara í þeim skilningi að þær geta gengið kaupum og sölum en 75% heimildanna falla undir ís- lenska ákvæðið og lúta því ekki markaðslögmálum. Það er ekkert sem bannar ríkisvaldinu að inn- heimta leigutekjur af notendum los- unarheimilda sem renna ættu til ís- lenska ríkisins í sérstakan auðlindasjóð, ef vilji löggjafans stæði í þá átt. Svo virðist sem stefna Vinstri grænna sé að loka á mögu- lega þátttöku þjóðarinnar á að eign- ast enn frekari hlutdeild í þeim verð- mætum sem útdeila á til þjóða heims er ákvæði Kyoto-bókunarinnar verða endurskoðuð í Kaupmannahöfn í lok árs. Loftslagsheimildir snúast ekki um álver eins og látið er liggja að í máli umhverfisráðherra. Íslendingar verða að tryggja að undanþágu- ákvæði Kyoto-bókunarinnar sem fékkst með sértækum aðgerðum verði framlengt. Í því felast mikil verðmæti fyrir íslenska þjóð. Við eigumónýtta auðlind Eftir Vigdís Hauksdóttur Vigdís Hauksdóttir Höfundur skipar 1. sætið fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavík- urkjördæmi suður. Móttaka að- sendra greina MORGUNBLAÐIÐ birtir alla út- gáfudaga aðsendar umræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein. Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti. Nánari upplýsingar gefur starfs- fólk greinadeildar. Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is G ra fí k a 2 0 0 9 GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA T E P P I Á H E I M I L I Ð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.