Morgunblaðið - 20.03.2009, Síða 33

Morgunblaðið - 20.03.2009, Síða 33
Minningar 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009 ✝ Svanhildur ÓlöfTheodórsdóttir Sætran, hjúkr- unarkona, fæddist á Siglufirði 10. sept- ember 1915. Hún lést á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund 7. mars 2009. For- eldrar hennar voru Guðrún Sigríður Ólafsdóttir, vöku- kona, og Jónas Theo- dór Pálsson, hákarla- skipstjóri. Svanhildur giftist 11. maí 1946 Jóni Meyvant Sætran, rafmagnstæknifræðingi og yf- irkennara við Iðnskólann í Reykja- vík. Foreldrar hans voru Sívert Sætran og Kristín Hansdóttir. Svan- hildur og Jón eignuðust þrjú börn. 1) Hans f. 10.5. 1947, d. 13.12. 2001, 2) Kristín Hildur f. 22.6. 1949, var gift Þorsteini Þorsteinssyni, börn þeirra a) Jón Reyr, var kvæntur Suzanne Paterlini, börn þeirra Alexandra Ólöf Marta og Leonard Hjálmar Erik, b) Sindri og c) Steinn Hildar, kvæntur Hildi Sím- onardóttur, 3) Jóna Björg f. 14.4. 1952, gift Kristni Snævari Jónssyni, börn þeirra a) Hjalti Freyr, var kvæntur Svövu Brynju Sigurð- ardóttur, sonur þeirra Alexander Örn, b) Lóa Guðrún, sambýlismaður Fannar Guðmundsson, börn þeirra Ísabella Sól og Marel Máni. Svanhildur lauk hjúkrunarnámi við Den Danske Diakon- issestiftelse í Kaup- mannahöfn 1940. Hún var við framhalds- nám, fyrst á geð- sjúkrahúsi í Vording- borg og á fæðingardeild og far- sóttardeild í Kaup- mannahöfn og síðar, eftir að hún fór til Sví- þjóðar, á rannsókn- arstofu í Stokkhólmi. Svanhildur starfaði sem hjúkrunarkona við Den Danske Diakonissestiftelse og Nørre Hospit- al í Kaupmannahöfn, Danmörku og við Länslasarettet í Lidköping, St. Eriks Sjukhus, Serafimerlasarettet, Stockholms Länscentrallasarettet í Stokkhólmi, Länslasarettet í Osk- arshamn og Södersjukhusets Klin- iska Centrallaboratorium í Stokk- hólmi í Svíþjóð, og um tíma á rannsóknarstofu St. Jósepsspítala í Reykjavík stuttu eftir heimkomuna. Svanhildur tók endurmennt- unarnámskeið fyrir hjúkr- unarkonur á Borgarspítalanum og starfaði eftir það á Borgarspít- alanum, fyrst á handlæknisdeild og síðar á sótthreinsunardeild og var þar deildarstjóri síðustu starfsárin. Svanhildur verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, 20. mars, og hefst athöfnin kl. 13. Það var fallegt veður og sólríkt, vor í lofti og krókusarnir byrjaðir að blómstra síðasta daginn hennar mömmu á lífi. Fallegur endir á langri ævi, en æviárin voru orðin rúmlega 93. Mamma átti því láni að fagna að fá að dvelja á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund síðustu mánuðina. Betri umönnun og þjón- ustu er vart hægt að hugsa sér því starfsfólkið á A2 og V3 er alveg ein- stakt. Það var einnig skemmtilegt að móðir mín gat fengið vistun á Grund þegar á slíkri umönnun þurfti að halda því hún hafði búið þar og starfað sem unglingur ásamt móður sinni. Mamma fæddist á Siglufirði og bjó þar sín barnaskólaár, en fluttist síðan til Reykjavíkur ásamt móður sinni og bræðrum. Á þessum tíma var mikið um að vera á Siglufirði. Tíu ára gömul varð hún að sjá um hádegismat fyrir hóp kostgangara, en amma hafði undirbúið matinn árla morguns áður en hún fór að vinna í síldarsöltun. Þá var ekki spurt um aldur, frítíma og vinnufríð- indi. Þarna ríkti frelsi að loknum verkefnum, lært var um stjörnurnar á heiðskírum kvöldum í náttmyrkr- inu og farnar skautaferðir á kúa- leggjum. Nú síðustu mánuðina leit- aði hugur hennar oft á þessar slóðir. Þegar til Reykjavíkur kom tók við meiri vinna og þær amma unnu saman fyrir heimilinu. Mamma söng í barnakór Dómkirkjunnar, gerðist síðar skáti og gekk ásamt skáta- stúlkum um 50 km leið í hellirign- ingu og slagviðri frá Þingvöllum til Reykjavíkur til að standast ákveðið þolpróf hjá skátunum. Það tókst. Um tvítugt hélt mamma til Kaup- mannahafnar til að læra hjúkrun og tileinkaði hjúkrun alla starfsævi sína. Þegar seinni heimsstyrjöldin skall á lokaðist fyrir allar samgöngur heim til Íslands og dvaldi mamma því ytra öll stríðsárin. Að loknu hjúkrunar- náminu var hún fyrst um sinn við störf og framhaldsnám í Danmörku en síðan í Svíþjóð í afleysingum og fór þá þangað sem þörfin var mest hverju sinni. Hörmungar stríðsár- anna höfðu mikil áhrif á líf allra þar ytra en samt ríkti líka gleði og von í hjarta fólks. Mikil samheldni var meðal Íslendinganna og mamma minntist oft fundanna hjá Íslendinga- félögunum þar sem skipst var á að lesa upp úr íslenskum bókum, sagðar fréttir að heiman og sungin íslensk ættjarðarlög. Þegar stríðinu lauk komust Ís- lendingarnir loksins heim með Esj- unni, þar á meðal mamma og faðir minn, Jón Sætran, sem hafði einnig verið í Danmörku og Svíþjóð öll stríðsárin. Þau giftu sig nokkru síð- ar. Mamma helgaði sig þá heimilis- störfum og barnauppeldi. Hjúkrun- arstarfið var þó ekki alveg lagt á hilluna því hún var löngum til að- stoðar þegar líta þurfti til sjúklinga í heimahúsum. Eftir að við systkinin stálpuðumst starfaði mamma á Borgarspítalanum, fyrst við hjúkrun og síðar á sótthreinsunardeildinni sem hún veitti forstöðu. Nú þegar dagur er kominn að kvöldi er margs að minnast og margt ómetanlegt að þakka. Við- burðaríkri ævigöngu er lokið en minningarnar lifa hjá okkur fjöl- skyldunni sem erum þakklát fyrir að hafa fengið að hafa hana mömmu, Svanhildi Sætran, Lóu, hjá okkur þetta lengi. Jóna Björg Sætran. Ég vil minnast föðursystur minn- ar, Svanhildar Theódórsdóttur, Lóu, en svo var hún kölluð. Hún bjó lengi í Eskihlíð 11 á þriðju hæð. Þegar ár- in færðust yfir Lóu taldi hún að stigagangurinn væri sín líkams- ræktarstöð, og kom fyrir að hún fór aukaferðir afturábak upp stigana til að reyna á fleiri vöðva líkamans. Lóa var hjúkrunarkona af Guðs náð, og hafði menntast sem slík í Danmörku, og starfaði þar og í Sví- þjóð á stríðsárunum. Hún var óspör á að miðla af reynslu sinni. Lóa var lengst af létt á fæti. Hún var nægju- söm, og tískustrauma og annað því um líkt lét hún ekki hafa áhrif á sig. Í æsku hagaði svo til að ég dvaldi dögum saman á heimili hennar og eiginmans hennar, Jóns Sætran, sem látinn er fyrir mörgum árum. Að koma inn í samfélag þessarar fjölskyldu var nýr heimur. Jón Sætran var mjög hæfur maður. Hann var ávallt að vinna að ein- hverjum verkum, til að láta gott af sér leiða. Hann eyddi miklum tíma í að búa til námsefni fyrir heyrnleys- ingjaskólann. Þetta var þeim hjón- um báðum hjartans mál. Lóa og fjölskylda urðu fyrir miklu áfalli þegar sonur hennar, Hans Sætran, lést fyrir nokkrum árum úti í Þýskalandi. Undanfarin ár heimsótti ég Lóu á heimili hennar við Eskihlíð. Hún var alltaf að fást við einhver verkefni, en sjónin var farin að daprast og háði það henni nokkuð. Að leiðarlokum viljum við Jóna votta fjölskyldu Lóu samúð okkar. Blessuð sé minning hennar Sigurður I. Ingólfsson. Meira: mbl.is/minningar Svanhildur Sætran Mín mestu gæfu- spor voru að koma til Róberts og Ingu á Hringbrautina. Ég hafði kynnst einni af sætu og gáfuðu dætrum þeirra hjóna og upp frá því fannst mér ég alltaf vera velkominn þar, þótt ég væri með sítt hár og skegg og fyndist ég frekar einn í heiminum. Þar fannst mér stundum ég vera gallalaus. Eldhúsborðið litla með sínum plastdúk var hjarta heimilisins, þar fór orðræðan öll fram, eins og nú þykir flott að segja. Kaffi úr þykk- um, óbrjótandi glösum. Þeir sem komust ekki fyrir við borðið, stóðu. Það gerði húsfreyjan oftast, hafði Róbert Freeland Gestsson ✝ Róbert FreelandGestsson fæddist í Reykjavík 5. maí 1924. Hann lést á líknardeild Landspít- alans, Landakoti, 25. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkj- unni 5. mars. lært það undir Eyja- fjöllum. Við Róbert fórum fljótlega að veiða sil- ung saman og varð ég lærlingur hjá meistara í fluguveiði. Hann átti fjölda stanga og hjóla og óteljandi box og kassa með flugum sem hann hnýtti af list og naut ég góðs af. Við fórum víða í veiðitúra, en langoftast í Þing- vallavatn, það var heil- agur staður. Róbert var snillingur að veiða þar, en ef til vill var best að sitja á þúfu úti á Leir- utá, heyra og sjá náttúruna, drekka kaffi og bíta í brauð sem Inga hafði smurt fyrir kappana. Ekki áttu allir kost á langskóla- námi þegar Róbert var ungur mað- ur, en hann var einstaklega vel gef- inn og hefði getað náð langt í hverju sem er. Hann hafði lesið allt sem máli skipti í íslenskum bókmenntum og fróðleik og hann hafði áhuga á stærðfræði. Það var oft gaman að spjalla og einstaka sinnum var koní- akstár með. Róbert hafði stálminni og virtist muna flest það sem hann hafði lesið þannig að ég skammaðist mín oft fyrir götótta minnið. Róbert tók sig til og lærði spænsku og dvöldu þau Inga um skeið á Spáni í þeim tilgangi og auðvitað sætti hann sig ekki við annað en að ná mjög góð- um tökum á spænskunni. Róbert var góður skákmaður og tók þátt í mót- um. Hann las um skák, skoðaði skák- ir og fylgdist vel með því sem gerðist í skákheiminum. Róbert var mikill náttúruunnandi og höfðu þau Inga ferðast um mest- allt land. Hann átti nákvæm kort af landinu sem hann stúderaði yfir vetrartímann, enda þekkti hann mik- ið af örnefnum. Hann hugsaði mikið um náttúruvernd síðustu árin, t.d. verndun Þingvallavatns sem hann hafi lesið allt um, og svo auðvitað all- ar virkjanirnar sem hann hafði mjög ákveðnar skoðanir á. Fyrir utan Þingvelli þótti honum Hvalfjörður- inn fallegastur. Róbert var vinstrisinnaður al- þýðumaður og var alla tíð trúr sinni sannfæringu. Hann hafði skömm á öllum flottræfilshætti. Hann var ör- látur og þótti lítið til peninga koma. Hann var góður vinur og ég á eftir að sakna hans. Hann var einnig syni mínum, nafna sínum, góður afi. Viðar Jónsson. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför hjartkærs bróður okkar, mágs og frænda, VIGFÚSAR SIGTRYGGSSONAR, Mosfelli, Ólafsvík. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Heilsugæslustöðvarinnar í Ólafsvík, dvalar- heimilisins Jaðars, St. Franciskusspítalans Stykkishólmi og Sjúkrahúss Akraness. Systkini hins látna og aðrir aðstandendur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, JÓNFRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR, Sóltúni 2, áður til heimilis Ferjubakka 4, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 24. mars kl. 15.00. Ólöf Björg Einarsdóttir, Grétar Hartmannsson, Gunnur Inga Einarsdóttir, Helgi Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, tengdadóttir, systir og mágkona, GUÐBJÖRG BJARNADÓTTIR, Haukalind 34, lést á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn 10. mars. Hún verður jarðsungin frá Seljakirkju laugardaginn 21. mars kl. 11.00. Innilegar þakkir fær starfsfólkið á Landspítalanum sem annaðist hana fyrir okkur á öllum stigum veikindanna. Þið vinnið ótrúlegt starf. Þorvaldur Daníelsson, Bjarni Daníel Þorvaldsson, Jana Björg Þorvaldsdóttir, Eygló Einarsdóttir, Haukur Reynisson, Einar Bjarnason, Kristín Konráðsdóttir, Arnar Bjarnason, Berta Jansdóttir, Ingibjörg Bjarney Bjarnadóttir, Kristinn Guðmundsson, Eva Hauksdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Daníel Óskarsson, Kristjana Daníelsdóttir, Sæmundur Þórarinsson, Einar Örn Daníelsson, Ingunn Lovísa Ragnarsdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÓLAFAR JÓHANNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Sólvangi fyrir hlýhug og góða umönnun. Ingi J. Marinósson, Erla Eiríksdóttir, Sigurður Hallgrímsson og fjölskylda. ✝ Kærar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, ÞÓRÐAR ÞORVARÐSSONAR, hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi, áður til heimilis að Giljaseli 12. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sunnuhlíðar fyrir veitta umhyggju og alúð. Halla S. Nikulásdóttir, Skúli Eggert Þórðarson, Dagmar Elín Sigurðardóttir, Nikulás Þórðarson, Elísabet Berta Bjarnadóttir, Guðrún Þórðardóttir, Randver Þorláksson, Elísabet Þórðardóttir, Einar Gunnarsson, Kjartan Þór Þórðarson, Ásbjörg Geirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.