Morgunblaðið - 20.03.2009, Page 35
Minningar 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009
V i n n i n g a s k r á
46. útdráttur 19. mars 2009
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
2 4 0 9 8
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
3 4 1 9 3 4 2 4 5 0 5 6 3 9 1 7 4 8 2 3
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
1444 28209 47150 60601 70654 76976
13569 40581 47869 66047 75423 78467
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
4 1 9 1 0 5 4 5 2 2 2 8 2 3 0 6 2 9 3 9 7 3 4 5 0 4 6 6 6 0 6 8 6 7 2 3 7 3
1 1 7 5 1 4 3 8 7 2 3 2 4 7 3 1 0 4 9 4 0 0 5 6 5 0 7 4 8 6 1 1 3 7 7 5 3 3 8
2 1 0 2 1 5 1 2 7 2 3 5 3 8 3 1 3 5 6 4 1 0 7 7 5 2 2 6 4 6 1 4 3 7 7 7 0 2 5
2 2 0 3 1 5 3 8 6 2 3 9 6 8 3 2 8 1 7 4 2 1 6 2 5 5 0 7 7 6 2 3 8 4 7 7 1 6 2
4 4 3 5 1 5 9 1 9 2 4 6 7 2 3 3 8 0 3 4 2 3 1 8 5 5 6 6 7 6 3 3 8 8 7 7 2 1 4
4 5 6 4 1 5 9 5 6 2 4 7 4 3 3 4 3 4 9 4 2 5 5 8 5 8 3 0 5 6 4 4 4 5 7 8 0 9 4
4 7 1 8 1 7 1 9 1 2 5 4 6 9 3 4 4 8 3 4 6 1 8 8 5 8 3 5 9 6 5 2 9 3 7 8 4 9 3
6 7 8 7 1 7 2 9 8 2 6 2 2 1 3 5 0 3 8 4 7 5 6 4 5 8 8 6 1 6 5 5 3 0 7 8 5 8 5
7 2 4 2 1 7 7 0 6 2 6 8 6 1 3 6 2 8 4 4 8 3 0 0 5 8 9 1 3 6 8 9 1 0 7 9 8 5 1
7 7 5 6 1 8 2 6 8 2 8 0 5 5 3 7 4 8 1 4 9 0 3 4 5 9 5 3 6 6 9 2 6 3
8 8 5 0 1 9 4 1 7 2 8 1 1 9 3 7 6 7 3 5 0 1 2 8 6 0 0 9 0 7 1 7 1 1
9 7 7 3 2 0 6 1 0 2 8 6 3 8 3 7 9 2 0 5 0 2 2 7 6 0 3 7 9 7 1 7 1 7
9 8 9 2 2 1 1 8 0 2 9 7 6 6 3 9 4 2 7 5 0 3 4 0 6 0 4 7 7 7 1 8 6 6
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
4 2 4 9 4 0 5 2 0 1 6 8 3 0 8 4 1 4 0 7 2 7 5 2 1 8 1 6 0 6 1 5 7 3 0 3 6
8 5 1 9 9 2 8 2 0 2 3 8 3 1 3 5 3 4 0 7 6 7 5 2 5 0 2 6 0 6 2 8 7 3 3 5 4
1 0 9 5 9 9 4 4 2 0 7 9 7 3 1 8 2 7 4 0 8 8 7 5 3 0 1 4 6 0 9 0 4 7 3 3 7 1
1 1 7 4 1 0 1 1 5 2 2 1 3 3 3 3 0 8 4 4 2 8 0 1 5 3 1 5 4 6 1 7 9 8 7 3 7 3 0
1 2 4 0 1 1 1 8 3 2 2 3 6 6 3 3 1 5 2 4 3 0 6 5 5 3 2 1 9 6 2 3 3 6 7 3 8 8 1
1 5 1 8 1 1 5 3 4 2 2 5 1 1 3 3 2 2 1 4 3 4 3 0 5 3 2 3 2 6 2 4 2 0 7 3 9 6 6
1 8 8 8 1 1 7 9 0 2 2 6 6 0 3 3 4 7 8 4 4 3 6 4 5 3 9 3 0 6 2 8 0 7 7 4 0 3 8
2 6 6 2 1 2 4 9 4 2 2 7 2 2 3 3 5 5 8 4 4 9 7 4 5 3 9 3 6 6 3 4 9 4 7 4 2 3 9
2 9 1 0 1 2 6 6 3 2 2 8 5 5 3 3 9 3 7 4 5 3 6 4 5 4 4 1 7 6 3 7 8 0 7 4 9 8 6
2 9 7 5 1 3 1 7 0 2 3 1 0 7 3 4 3 2 7 4 5 4 9 1 5 4 7 1 1 6 3 8 0 3 7 5 4 3 1
3 5 4 0 1 3 6 5 6 2 4 2 1 2 3 4 4 1 8 4 5 6 9 4 5 4 9 5 1 6 3 9 8 5 7 6 2 0 1
4 0 8 8 1 4 3 6 5 2 4 3 0 9 3 4 6 4 8 4 5 7 6 2 5 5 2 6 5 6 4 2 6 8 7 6 7 0 3
4 0 9 4 1 4 4 8 7 2 4 8 0 1 3 5 0 1 0 4 6 0 6 5 5 5 5 3 4 6 4 3 6 4 7 6 9 9 4
4 2 1 1 1 4 6 7 4 2 5 0 6 0 3 5 0 6 3 4 6 3 4 8 5 5 5 8 6 6 4 3 9 9 7 7 0 7 3
4 5 4 9 1 5 3 2 0 2 5 0 7 1 3 5 2 1 7 4 6 4 9 5 5 5 6 0 9 6 4 7 2 6 7 7 1 3 9
4 8 1 9 1 5 4 3 2 2 5 1 0 4 3 6 3 8 2 4 6 5 9 8 5 6 6 3 0 6 5 0 1 9 7 7 3 8 4
5 1 1 6 1 5 7 8 4 2 5 5 4 7 3 6 5 5 5 4 6 8 0 1 5 6 8 1 5 6 5 0 9 1 7 7 4 6 5
5 1 8 8 1 6 2 6 1 2 5 7 6 6 3 6 9 4 3 4 8 3 2 3 5 7 0 3 4 6 5 3 0 0 7 8 0 2 5
5 6 1 7 1 6 4 7 8 2 6 0 0 8 3 7 7 7 2 4 8 4 7 6 5 7 1 1 9 6 5 5 9 7 7 8 2 0 6
5 8 6 4 1 6 5 5 7 2 6 2 6 6 3 7 8 9 5 4 8 8 2 4 5 7 3 0 0 6 5 6 3 7 7 8 3 8 4
6 2 9 3 1 6 9 4 4 2 6 4 2 0 3 7 9 1 1 4 9 1 5 1 5 7 3 2 6 6 7 7 8 4 7 8 8 2 9
6 3 9 3 1 7 3 2 2 2 6 5 0 5 3 7 9 9 0 4 9 3 4 5 5 7 4 9 1 6 8 0 9 1 7 8 9 5 5
7 2 8 8 1 7 3 9 9 2 6 9 9 7 3 8 0 1 0 4 9 4 5 7 5 7 9 8 1 6 8 3 2 7 7 9 0 1 2
7 3 0 0 1 7 5 3 5 2 7 1 0 9 3 8 4 4 3 5 0 0 8 7 5 8 0 8 8 6 8 5 5 4 7 9 1 7 0
7 8 9 5 1 7 5 6 3 2 7 8 6 9 3 8 4 8 8 5 0 1 3 8 5 8 4 3 7 6 9 1 0 6 7 9 3 9 4
8 1 8 1 1 8 0 4 6 2 7 9 6 5 3 8 9 8 1 5 0 8 6 0 5 8 5 1 3 6 9 1 9 1 7 9 4 3 3
8 5 3 0 1 8 0 8 8 2 8 2 4 6 3 9 0 6 8 5 0 8 7 9 5 8 5 3 4 7 0 1 1 9
8 8 1 6 1 8 3 2 3 2 8 6 2 3 3 9 1 6 6 5 1 0 1 6 5 8 7 4 3 7 1 4 8 2
8 8 6 7 1 8 8 0 7 2 8 9 5 9 3 9 6 8 8 5 1 1 5 5 5 8 7 5 4 7 1 8 4 4
9 1 5 4 1 9 1 0 7 2 9 3 7 0 4 0 1 5 1 5 1 3 4 8 5 9 4 5 2 7 1 9 9 5
9 1 9 7 1 9 3 0 0 3 0 6 4 4 4 0 6 4 1 5 1 4 6 3 6 0 1 1 6 7 2 4 8 8
9 4 0 1 2 0 1 1 9 3 0 8 0 1 4 0 6 7 7 5 2 1 6 7 6 0 1 6 8 7 2 7 2 0
Næstu útdrættir fara fram 26. mars & 2. apríl 2009
Heimasíða á Interneti: www.das.is
✝ Hilmar Krist-jánsson fæddist á
Oddsstöðum í Mið-
dölum í Dalasýslu 6.
mars 1941. Hann lést
á líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
13. mars sl. Móðir
hans er Þuríður
Benediktsdóttir, f. á
Hömrum í Haukadal
4. maí 1915, elst af
fjórtán systkinum.
Faðir Hilmars var
Kristján Jósepsson, f.
á Skallhóli í Mið-
dölum 16. júlí 1911, d. 7. ágúst
1959, hann átti 11 alsystkini. Syst-
ir Hilmars var Hulda Hlíf, f. á
Krossi í Haukadal 17. febrúar
1938, d. 19. jan. 1964, gift Inga
Níelsi Karlssyni, f. á Fitjum í Hróf-
bergsstaðahreppi í Strandasýslu
21. mars 1929, d. 20. maí 1976,
synir þeirra: 1) Rúnar Karl, f. 29.
júlí 1958, d. 7.okt. 1960; 2) Kristján
Jósep, f. 12. nóv. 1959, kvæntur
Kristjönu Kjartans Arnardóttur, f.
12. feb. 1962, börn þeirra: a) Ingi
Örn, f. 26. júlí 1980, dóttir hans
Bríet Fríða, f. 16. júlí 2001, og b)
Hulda Margrét, f. 1. des. 1988; og
3) Karl, f. 27. mars. 1961, kvæntur
Guðrúnu Ágústu Rögnvaldsdóttur,
f. 29. maí 1961, börn þeirra Ingi
fyrrv. eiginkona hans Sigríður
Svavarsdóttir. 2) Jóhanna Sig-
urbjörg Ragnarsdóttir, f. 10. nóv.
1958, sambýlismaður Ólafur
Steinbergsson. 3) Lárus Kristinn
Ragnarsson, f. 22. jan. 1960,
kvæntur Guðrúnu Björgu Ragn-
arsdóttur. 4) Kristján Ragn-
arsson, f. 4. okt. 1961, sambýlis-
kona Jóhanna Ósk
Aðalsteinsdóttir. 5) Páll Sveinn
Guðmundsson, f. 25 nóv. 1964,
kvæntur Kolbrúnu Kolbeins-
dóttur. Fyrrverandi eiginmaður
Hjördísar var Ragnar Valdimar
Jóhannesson, f. 23. des. 1936, d.
8. okt. 2006. Til samans eiga
Hilmar og Hjördís stóran hóp
barnabarna og barnabarnabarna
sem teljast nú tuttugu og fimm.
Reyndist Hilmar eldri börnum
Hjördísar svo og þeirra fjöl-
skyldum ávallt hinn besti faðir og
afi til jafns við eigin börn og var
þeim mikill félagi og vinur.
Hilmar bjó á Oddsstöðum í Mið-
dölum þar til um tvítugt. Lágu
leiðir hans og Hjördísar saman
árið 1966 og bjuggu þau lengst af
í Reykjavík. Störf Hilmars tengd-
ust flest vega- og vélavinnu og
lengst af vann hann hjá Berg-
steini ehf. Hann var veghef-
ilsstjóri í yfir 30 ár. Áhugamál
Hilmars lágu víða, t.d. til bíla og
þá sérstaklega fornbíla. Yndi
hafði hann af því að ferðast um
landið, var hann mikill söng- og
tónlistarunnandi.
Útför Hilmars fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 20. mars,
kl. 15.
Níels, f. 14. okt.
1987, og Rakel, f. 7.
des. 1990. Þuríður,
móðir Hilmars, ól
upp þá bræður Krist-
ján og Karl á Breiða-
bólstað, ásamt föður
þeirra, eftir lát
Huldu og alfarið eft-
ir lát Inga.
Eiginkona Hilmars
er Guðmunda Hjör-
dís Óskarsdóttir, f.
20. jan. 1941. Þau
giftust 9. des. 1972.
Foreldrar Hjördísar
voru Óskar Sigurvin Ólafsson, f.
9. jan. 1917, d. 28. mars 1990, og
Lára L. Loftsdóttir, f. 10. júlí
1925, d. 21. júní 2002. Hilmar og
Hjördís eignuðust tvö börn: 1) Jón
Sverrir, f. 18. des. 1967, kvæntur
Hólmfríði Láru Skarphéð-
insdóttur, f. 20. okt. 1970, börn
þeirra eru Arnór Ingi, f. 2. júní
1989, og Hjördís Anna, f. 23. okt.
1990. 2) Þuríður Kristín, f. 19. jan.
1969, sambýlismaður Baard Her-
mansen, f. 31. maí 1966. Dætur
hennar og Sigurðar Ingvarssonar,
f. 10. des. 1961, eru Hilma Kristín,
f. 5. nóv. 1994, og Sara Diljá, f.
10. júní 1996. Hjördís átti fyrir
fimm börn, þau eru: 1) Óskar Sig-
urvin Pechar, f. 15. apríl 1956,
Þú skilur eftir auðlegð þá
sem enginn tekið fær.
Ást í hjarta, blik á brá,
og brosin silfurtær.
Mesta auðinn eignast sá
er öllum reynist kær.
(G.Ö.)
Í dag kveð ég kæran vin og mág
minn Hilmar Kristjánsson, sem lést
á líknardeild Landspítalans hinn
13. mars sl. eftir hetjulega baráttu
við illsigrandi andstæðing sem
krabbameinið er. Hann höndlaði
veikindin á sinn einstaka hátt. Í
mínum huga er eins og ég hafi
þekkt hann nánast alla tíð. Hilmar
var traustur, heiðarlegur og hjálp-
legur, þær eru ófáar ferðirnar sem
hann hefur komið þegar ég hef
þurft á hjálp að halda, honum vil ég
þakka allt það góða sem hann fyrir
mig gerði fyrr og síðar. Hilmar var
einstaklega góður móður sinni og
samband þeirra náið alla tíð. Hann
hafði gaman af tónlist og fyrir
nokkrum árum tók hann sig til og
keypti sér harmónikku, lærði að
spila á hana, sér og öðrum til
ánægju. Annað áhugamál átti hann
og það voru gamlir bílar og starfaði
hann í Fornbílaklúbbnum. Þó var
fjölskyldan alltaf í fyrirrúmi hjá
honum, ekkert var of gott eða of
mikið fyrir Dísu og börnin, þar leið
honum best og þar vildi hann vera
eins lengi og unnt var.
Elsku Dísa, síðustu mánuðir hafa
verið erfiðir, þú gerðir allt til að
létta undir með Hilmari í veikind-
um hans. Hugur minn er hjá þér og
fjölskyldu ykkar elsku systir.
Gott er að hafa átt samleið með
slíkum manni sem Hilmar var og
fyrir það vil ég þakka. Vandaður og
traustur maður er horfinn sjónum
en minningin lifir.
Þú sofnað hefur síðsta blund
í sælli von um endurfund,
nú englar Drottins undurhljótt
þér yfir vaki – sofðu rótt.
(Aðalbjörg Magnúsdóttir)
Sólveig Margrét Óskarsdóttir.
Það er með sorg í hjarta að ég
skrifa fáeinar línur um trúbróður
okkar í Boðunarkirkjunni.
Hilmar var einstaklega ljúfur og
blíður maður sem vildi öllum vel í
kringum sig. Hann var hæglátur og
rólegur en virtist búa yfir miklum
innri styrk og ró. Hilmari var annt
um kirkjustarfið og Boðunarkirkj-
una og vildi leggja sín lóð á vog-
arskálarnar til að hjálpa til í kirkju-
starfinu. Þannig þjónaði hann sem
safnaðarþjónn og bauð sig einnig
fram til þess að sjá um þrif í kirkj-
unni sem hann sinnti af mikilli alúð
og metnaði.
Þegar Hilmar veiktist þá vildi
hann ekki mikið um það tala, heldur
sagði að þetta yrði allt í lagi. Ég
heimsótti hann síðast viku fyrir
andlát hans og þá sagði hann mér
að þetta væri allt á batavegi. Æðru-
leysi hans var einstakt og allir þeir
sem umgengust hann og þekktu
hann vissu að hér var á ferðinni ein-
staklega hlýr og hógvær maður.
Hilmar hafði farið fyrir mörgum ár-
um á Biblíunámskeið hjá þáverandi
presti okkar í Boðunarkirkjunni,
dr. Steinþóri Þórðarsyni, og
heillast af Biblíunni og yndislegum
boðskap um frelsarann Jesú Krist.
Við lofum Guð fyrir það að Hilmar
átti sanna vissu um það að Jesús
Kristur var hans frelsari og Drott-
inn.
Það er með mikilli eftirsjá og
sorg í hjarta að við kveðjum ást-
kæran trúbróður úr hópi Boðunar-
kirkjunnar.
Við sem urðum þeirrar gæfu að-
njótandi að kynnast Hilmari þökk-
um Guði fyrir þá samveru sem við
áttum með honum og vottum eft-
irlifandi eiginkonu hans, Hjördísi,
móður hans og börnum og öllum
ættingjum og aðstandendum inni-
lega samúð okkar. En eins og segir
í trúarjátningu allra landsmanna,
„Hann mun koma aftur að dæma
lifendur og dauða“, þannig mun
Jesús Kristur birtast dag einn við
endurkomu sína í skýjum himinsins
og taka til sín alla þá sem hafa sett
traust sitt á Hann og við vitum að
sannarlega verður Hilmar í þeim
hópi.
Ó, þekkirðu’ ekki undurfagra nafnið,
er oss Guð til bjargar lér.
Um allan heim er um það lofgjörð
sungin,
yfir lönd og höfin þver.
Er öllum nöfnum öðrum förlast ljómi,
eigi bliknar Jesú nafn.
Þess dýrðarljómi mun um aldir alda,
ævinlega haldast jafn.
Öllum nöfnum æðra’ er nafnið Jesús,
og ekkert fegra á jörðu hér.
Því ekkert nafn er annað til sem
frelsar.
aðeins nafnið sem hann ber.
Það skelfdu hjarta flytur frið af
hæðum,
færir hryggum sálum ró.
Er stormar æða sterkir mér í brjósti,
stillt það getur vind og sjó.
(Þýð.: Magnús Runólfsson)
Hafðu þökk fyrir allt og allt kæri
vinur og trúbróðir.
Ragnheiður Laufdal,
prestur Boðunarkirkjunnar.
Hilmar
Kristjánsson
✝ Borghildur Sól-veig Pétursdóttir
fæddist á Hinriksmýri
á Árskógsströnd 5.
júní 1925. Hún and-
aðist á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja
13. mars 2009. Hún
var dóttir hjónanna
Péturs Júlíusar Jóns-
sonar og Elísabetar
Sölvadóttur og var
næst elst átta systkina.
Þrjú systkini, þær Jó-
hanna, Eva og Oddný,
lifa systur sína.
Borghildur giftist 14. janúar 1956
Ástvaldi Kristinssyni, f. 9. sept-
ember 1924, og eign-
uðust þau fjögur
börn, en tvær dætur
misstu þau hjónin
stuttu eftir fæðingu;
Kristinn, f. 13. janúar
1945, kvæntur Ólöfu
Jónsdóttur, þau eiga
þrjú börn og Elísabet
Dröfn f. 24. október
1947, gift Braga Eyj-
ólfssyni, þau eiga tvo
syni.
Útför Borghildar
verður gerð frá
Keflavíkurkirkju í
dag, 20. mars, og hefst athöfnin
klukkan 14.
Hún Bogga frænka mín er látin og
horfi ég á eftir mjög kærum sam-
ferðafélaga og góðri vinkonu. Já, ég
segi frænka mín þó að hún hafi reynd-
ar ekki verið það, heldur maður henn-
ar, hann Ási frændi, en í mínum huga
var hún alltaf Bogga frænka.
Síðan mér barst andlátsfrétt þín,
Bogga mín, á föstudaginn var hafa
hinar ýmsu minningar flogið í gegn-
um huga minn. Ég man þegar ég var
barn og unglingur á Siglufirði, þá átti
ég alltaf skjól á heimili þínu nákvæm-
lega eins og það væri mitt eigið, ég
gisti eða borðaði þegar ég vildi. Aldrei
var nokkur athugasemd gerð þó að ég
dveldi hjá ykkur Ása, það voru góðar
stundir þegar setið var við litla eld-
húsborðið á Eyrargötu 9 og borðaðar
sírópskökur og drukkin ísköld mjólk
úr mjólkurbrúsanum sem var alltaf í
ískápnum.
Já, heimilið ykkar, Bogga mín, á
Eyrargötuni var sem annað heimili
okkar allra systkinanna, og börn ykk-
ar, Kiddi og Ella, voru okkur sem
systkin. Oft fórum við í ferðalög sam-
an, þú, ég og Ási, og alltaf lágu leiðir
okkar á Norðurlandið. Eitt sinn fór-
um við í vikuferð til Akureyrar og fór-
um þá í dagsferð til Siglufjarðar og ég
veit að þið hjón hafið ekki komið
þangað síðan. Í dag gleður það mig
mikið að hafa farið með ykkur á
gömlu heimaslóðirnar. Eitt sinn
hringdir þú í mig, Bogga mín, og
sagðir mér frá ættarmóti sem fólkið
þitt ætlaði að halda norður á Árskógs-
strönd, en þá var nú staðan orðin
þannig að þú treystir þér ekki til að
keyra lengur svo að ég ákvað að fara
með ykkur. Þetta var yndisleg ferð og
góð helgi. Á leið norður stoppuðum
við á gatnamótunum við Hvamms-
tanga í blíðskaparveðri og þú dekk-
aðir upp veisluborð, þetta var eins og
þegar við keyrðum frá Sigló í gamla
daga með nesti. Það var sko ekki leið-
inlegt að ferðast með ykkur um land-
ið, með tvo aukabílstjóra í bílnum.
Við áttum margar góðar stundir við
að skoða gamlar myndir og spila
gamla músík og oft hafðir þú það á
orði að græjurnar væru ekki þandar
nema þegar ég kæmi.
Það er mikill munaður að hafa
fengið að kynnast þér, Bogga mín, og
ég þakka þér fyrir allar indælisstund-
irnar okkar saman, ég kveð þig með
söknuði.
Elsku Ási, Ella, Bragi, Kiddi, Ólöf
og aðrir aðstandendur, ég votta ykk-
ur mína dýpstu samúð.
Þóra B. Guðmundsdóttir
og börn.
Borghildur Sólveig
Pétursdóttir