Morgunblaðið - 20.03.2009, Page 38
38 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2009
Sudoku
Frumstig
7
9 5 8
8 2 4 9 3
3 5
6 9
8
4 7 9
3 1 6 5
9 6 4
9 7
8 4 6
1 2 3
7 2
1 9
2 4 3
6 5
5 4 9
5 8 3 1
9
5 2 4 7 9
8 6 2
9 7
3
6 3 1
1 8 4
9 2
7 2 3 6
8 9 2 7 1 6 4 5 3
7 5 6 3 9 4 2 8 1
4 1 3 8 5 2 6 9 7
6 8 7 1 2 5 3 4 9
3 4 5 9 8 7 1 6 2
9 2 1 6 4 3 5 7 8
5 7 4 2 3 9 8 1 6
2 6 8 5 7 1 9 3 4
1 3 9 4 6 8 7 2 5
4 2 1 5 7 8 9 3 6
9 3 6 2 1 4 7 5 8
8 7 5 9 3 6 1 4 2
1 6 4 7 5 3 2 8 9
7 8 3 6 9 2 5 1 4
5 9 2 8 4 1 3 6 7
3 1 8 4 2 7 6 9 5
6 5 7 3 8 9 4 2 1
2 4 9 1 6 5 8 7 3
6 1 9 4 5 2 8 3 7
4 7 5 9 8 3 6 1 2
3 2 8 7 6 1 4 5 9
9 3 2 1 4 6 5 7 8
1 5 4 8 7 9 3 2 6
7 8 6 2 3 5 9 4 1
8 6 1 5 2 4 7 9 3
5 9 7 3 1 8 2 6 4
2 4 3 6 9 7 1 8 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
Í dag er föstudagur 20. mars, 79. dagur
ársins 2009
Orð dagsins: Kostið kapps um að kom-
ast inn um þröngu dyrnar, því margir,
segi ég yður, munu reyna að komast
inn og ekki geta. (Lk. 13, 24.)
Víkverji horfir oftast á Kastljóssér til mikillar ánægju. Þar er
ekki allt eins gott, en á dögunum
skipti heldur betur til hins verra,
þegar í Kastljós komu tvær konur
sem rifust um samskipti sín við eitt-
hvert fatafyrirtæki í útlöndum. Vík-
verji hélt fyrst að hann sæti undir
Spaugstofuauglýsingu, en svo gat
það auðvitað ekki verið; samtal
kvennanna var hundleiðinlegt og
hreint ekkert áhugavert, þótt Sig-
mar Guðmundsson sæti yfir þeim
eins og um alvöruefni væri að ræða.
Víkverji telur það satt að segja
hreina móðgun við sjónvarpsáhorf-
endur að bjóða þeim upp á svona
samræður, ef samræður skyldi kalla,
svo ekki sé nú talað um misnotkun á
nefskattinum, sem Víkverji borgar
hvort sem hann horfir á sjónvarpið
eða ekki. Reyndar gekk Víkverji frá
sjónvarpinu í miðjum samræðum
kvennanna, en þeir sem eftir sátu
sögðu þáttinn ekki hafa batnað í
restina.
x x x
Víkverji getur ekki skilið við sjón-varpið án þess að þakka fyrir
sig nú þegar Útsvarinu er lokið.
Þessi spurninga- og skemmtiþáttur
tók öllu öðru sjónvarpsefni fram að
mati Víkverja og þar í átti áð-
urnefndur Sigmar sinn þátt ásamt
meðstjórnanda sínum, henni Þóru
Arnórsdóttur. Víkverji hélt með liði
Fljótsdalshéraðs í úrslitunum og er
auðvitað klár á því að það vann, hvað
sem öllu líður. Víkverji er auðvitað
stoltur af sínum mönnum. Og nú er
bara að bíða Útsvarsins næsta vetur.
x x x
Víkverji var spurður að því ný-lega, hvort hann vissi hver væri
fleirtalan af þúsundkalli. Eftir mikil
heilabrot svaraði Víkverji að hún
væri þúsundkallar, en var tafarlaust
rekinn heim aftur með vitlaust svar.
Og mátti ekki hringja í vin. Á end-
anum játaði Víkverji sig sigraðan og
fékk þá að vita að fleirtalan er auð-
vitað: þiðsundkallar.
Svo var það ljóskan sem hætti við
að fara til London þegar hún komst
að því að Big Ben er klukka.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 spilabunka, 4
harpa, 7 tortímir, 8 ófag-
urt, 9 skolla, 11 þref, 13
þekkir, 14 fórnargjöf, 15
hranaleg, 17 bjargbúa,
20 heiður, 22 beygir sig,
23 látin af hendi, 24 fýld-
ar, 25 miður.
Lóðrétt | 1 persónulegt
mat, 2 heiðursmerki, 3
hrygluhljóð, 4 íþrótt, 5
hola, 6 að baki, 10 fljót,
12 pikk, 13 knæpa, 15
hirslu, 16 unir við, 18
meðalið, 19 niður, 20
gerir óðan, 21 beitu.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 ritvillan, 8 lýjan, 9 mygla, 10 dóm, 11 tinna, 13
annar, 15 skraf, 18 ataði, 21 jag, 22 líkna, 23 aldni, 24
ritlistin.
Lóðrétt: 2 iðjan, 3 vanda, 4 lumma, 5 augun, 6 hlýt, 7
saur, 12 nía, 14 nit, 15 sull, 16 rukki, 17 fjall, 18 agans,
19 Andri, 20 iðin.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. Rc3 Rc6 4. d4
cxd4 5. Rxd4 Dc7 6. g3 a6 7. Bg2
Rf6 8. O-O Bc5 9. Rb3 Be7 10. a4 d6
11. a5 Rd7 12. Be3 b5 13. axb6 Rxb6
14. Rd4 Hb8 15. Rxc6 Dxc6 16. e5
Dc7 17. Dg4 g6 18. exd6 Bxd6 19.
Bh6 Be5 20. Hfe1 Rc4
Staðan kom upp fyrir skömmu í
efstu deild þýsku deildarkeppn-
inniar. Stórmeistarinn Sergei Mov-
sesian (2.751) hafði hvítt gegn hol-
lenska alþjóðlega meistaranum Daan
Brandenburg (2.446). 21. Hxe5!
Rxe5 22. Df4 Hg8 23. He1 Hxb2 24.
Rd5! og svartur gafst upp enda ræð-
ur hann ekki við margvíslegar hót-
anir hvíts. Movesian er í Taflfélag-
inu Helli og e.t.v. teflir hann fyrir
félagið í síðari hluta Íslandsmóts
skákfélaga sem hefst í kvöld á Ak-
ureyri.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Að bíða og hlusta.
Norður
♠Á754
♥85
♦K10872
♣52
Vestur Austur
♠DG10 ♠93
♥Á2 ♥DG103
♦D5 ♦G3
♣D98764 ♣ÁKG103
Suður
♠K862
♥K9764
♦Á964
♣–
Suður spilar 4♠ doblaða.
Eistinn Aavo Heinlo er boðberi
þeirrar sagnstefnu að bíða og hlusta.
„Láttu andstæðingana segja söguna,“
er hans framlag í heilræðakeppni
BOLS. Heinlo var með spil suðurs og
þurfti að glíma við opnun austurs á
1♥. Hvað á að gera?
„Passa, til að byrja með,“ segir
Heinlo: „Suður þarf meiri upplýs-
ingar.“ Vestur svaraði á 1G og austur
sagði 2♣, canapé (lengri liturinn sagð-
ur síðar). Enn passaði Heinlo og vest-
ur reyndi við geim með 2G. Austur af-
þakkaði það boð með því að taka út í
3♣, en nú var Heinlo nóg boðið og
hann stökk í 4♠ á fjórlitinn! „Ég sá að
makker átti spaðalengd og mjög lík-
lega tígul til hliðar úr því að A-V vildu
ekki í 3G.“
Vestur doblaði og gaf yfirslag með
♥Á út.
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Hafðu öll þín samskipti á tæru
svo að ekki komi til misskilnings sem
getur spillt fyrir. Nýttu þér tækifærið
en sýndu hógværð.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er ágætt að staldra við, líta
yfir sviðið og reyna að gera sér grein
fyrir því hvort málin þokast áfram eða
ekki. Hlustaðu eftir þeim góðu hug-
myndum sem eru á sveimi í kringum
þig.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Brátt verður þér ljóst hvort þú
ert á réttri braut eður ei. Taktu stefn-
una á menningarlegar og háfleygar
samræður og samskipti sem vekja að-
dáun.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Að elska og vera elskaður er það
sem máli skiptir í lífinu. Sýndu umburð-
arlyndi en haltu þínu striki.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það gæti verið rétt í stöðunni að
leyfa hlutunum að þróast af sjálfu sér.
Hroki er að halda að maður geti gert
eitthvað vel sem maður getur ekki.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Einhver þér nákominn er að
reyna að segja þér eitthvað, en þú
hlustar ekki nægilega vel. Trú þín er
ekki heimskuleg.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Hikaðu ekki við að leita aðstoðar
við verkefni, sem þú verður að ljúka.
Skoðaðu mál þín á raunsæjan hátt og þá
skilurðu betur viðbrögð þín og getur
breytt þeim.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Nú skaltu bretta upp erm-
arnar og taka til hendinni heima hjá
þér. Þér mun finnast einhver vera að
reyna að draga úr þér kjarkinn í dag.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert farin/n að sjá sam-
bönd þín í jákvæðara ljósi. Einstakar
gjörðir leiða af sér einstakar nið-
urstöður.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það mun hugsanlega koma
upp misskilningur á milli þín og vinar
þíns í dag. Stattu vörð um heilsu þína
og hamingju.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er engin ástæða til þess
að láta hugfallast þótt eitthvað blási á
móti. Treystu því og íhugaðu stöðu þína.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert í brennidepli í dag og fólk
á auðvelt með að segja þér allt. Ham-
ingjan er smitandi – fólk vill alltaf vera
nálægt þeim sem eru hamingjusamir.
Þetta gerðist …
20. mars 1939
Þýsk sendinefnd kom til
Reykjavíkur, tæpu hálfu ári
áður en síðari heimsstyrjöldin
hófst. Ósk Þjóðverja um að fá
að koma upp flugbækistöð á
Íslandi var hafnað.
20. mars 1991
Ásgeir Hannes Eiríksson hélt
stystu ræðu í sögu Alþingis:
„Virðulegi forseti. Álverið
rísi!“ Þá stóðu yfir umræður
um byggingu álvers á Keil-
isnesi.
20. mars 1994
Guðmundur Stephensen varð
Íslandsmeistari í einliðaleik
karla í borðtennis, aðeins 11
ára. Síðan hefur hann varið
titilinn margoft. „Ætli ég hafi
ekki byrjað þriggja eða fjög-
urra ára,“ sagði Guðmundur í
samtali við Morgunblaðið.
20. mars 2003
Á annað þúsund manns tóku
þátt í útifundi á Lækjartorgi
þar sem mótmælt var innrás-
inni í Írak. Rauðri málningu
var skvett á Stjórnarráðs-
húsið. Daginn áður kom fram
að Ísland væri í hópi þrjátíu
ríkja sem styddu tafarlausa af-
vopnun Íraka.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
SNÆVAR Ingi Hafsteinsson segist ekki ætla að
fagna afmælisdeginum sérstaklega nema kannski
borða góðan kvöldverð með fjölskyldunni og lík-
lega kíkja í miðbæ Reykjavíkur þar sem mikið sé
um að vera, t.d. tónleikar Diktu á hinum nýopnaða
stað Sódómu Reykjavík.
Aðspurður segist Snævar Ingi hafa fengið ein-
staklega góða og eftirminnilega gjöf í ár en kær-
asta hans, Guðrún Alma Einarsdóttir, bauð honum
í snjóbrettaferð til Austurríkis í byrjun mánaðar-
ins. Þar dvaldi hann rétt fyrir utan Salzburg í tíu
daga og skemmti sér afar vel.
Hvað áhugamál varðar nefnir Snævar Ingi ljósmyndun og íþróttir
en þar er snjóbrettaiðkun efst á blaði. Hann segist þó vera mikill
áhugamaður um íþróttir af öllu tagi og æfir t.a.m. handbolta með Aft-
ureldingu. Snævar Ingi vinnur í Lágafellslaug í Mosfellsbæ en hann
kláraði Verslunarskóla Íslands síðasta vor. Hann ákvað að taka sér
árshlé frá námi og stefnir á háskólanám í haust þó hann hafi ekki gert
upp við sig hvað hann langi að læra. Foreldrar Snævars Inga eru Haf-
steinn Pálsson og Lára Torfadóttir og á hann tvær eldri systur, þær
Guðrúnu Ernu og Hönnu Rut. ylfa@mbl.is
Snævar Ingi Hafsteinsson er 21 árs í dag
Fékk utanlandsferð í gjöf
Nýirborgarar
Reykjavík Guðbjörg Líf
Ólafsdóttir Nielsen fædd-
ist 25. júlí kl. 9.28. Hún
vó 3.825 g og var 15,3
merkur. Móðir hennar er
Jakobína Ólöf Ólafs-
dóttir.
Reykjavík Hildur Lena
fæddist 15. desember kl.
16.29. Hún vó 4.050 g og
var 53,5 cm löng. For-
eldrar hennar eru Helga
María Alfreðsdóttir og
Hjalti Kristinsson.
Reykjavík Hrafntinna
Rán fæddist 21. janúar kl.
13.50. Hún vó 3.330 g og
var 50 cm löng. Foreldrar
hennar eru Elva Björk
Sverrisdóttir og Ingimar
Karl Helgason.