Morgunblaðið - 24.03.2009, Síða 1
STARFSMENN SPRON mættu í gærmorgun á starfsstöðvar sínar og sóttu
persónulega muni. Öll útibú, fyrir utan útibúið í Borgartúni, voru lokuð í
gær í þeim skilningi að engin viðskipti voru í útibúunum en viðskiptavinum
SPRON gafst kostur á að koma og kveðja starfsfólkið. Á myndinni sjást
starfsmenn útibús SPRON við Skólavörðustíg yfirgefa vinnustað sinn síð-
degis í gær.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kveðja eftir
langan starfsferil
Þ R I Ð J U D A G U R 2 4. M A R S 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
81. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«UNGIR GÍTARLEIKARAR
FÓRU PÍLAGRÍMSFÖR Á
HEIMASLÓÐIR GÍTARSINS
«ÍSLANDSMÓT FATLAÐRA
350 KEPPENDUR
Í FIMM GREINUM
segðu
smápestum
stríð á hendur!
Fæst í apótekum og
heilsubúðum um land allt.
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
ÞÖRFIN fyrir stóra kjölfestufjárfesta var ofmetin við
einkavæðingu bankanna segir Bjarni Benediktsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks. Hann vill reglur sem kveða á um
hámarkseignarhlut í fjármálafyrirtæki. „Það mætti hugsa
sér 20% hlut í þeim efnum.“ Jafnframt þurfi strangari
reglur um viðskipti eigenda fjármálafyrirtækja við þau.
Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi viðskiptaráðherra,
telur ljóst að einhver mistök hafi verið gerð við einkavæð-
inguna. „Hins vegar er ómögulegt að fullyrða að þau hafi
verið svo alvarleg að það hefði breytt einhverju um það
sem við stöndum frammi fyrir núna.“
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra telur hins
vegar ekki vafa á að rekja megi bankahrunið í haust að ein-
hverju leyti til einkavæðingar bankanna. | 15
Segja að mistök hafi verið gerð við einkavæðingu bankanna
Hámarkshlutur verði 20%
Valgerður
Sverrisdóttir
Bjarni
Benediktsson
Steingrímur
J. Sigfússon
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
MARGEIR Pétursson, stjórnarfor-
maður MP banka, segir það bera
vott um „ótrúlegt siðleysi“ að VBS
fjárfestingarbanki hafi sett sig í
samband við skilanefnd SPRON til
þess að hefja viðræður um kaup á
Netbankanum, nb.is, dótturfélagi
SPRON, þegar blekið er vart þornað
á samningi VBS við ríkissjóð vegna
26 milljarða skuldar sem varð til í
svokölluðum endurhverfum við-
skiptum VBS við Seðlabankann.
Hann segist orðlaus og á ekki von á
öðru en að þetta verði stöðvað, en
MP hefur lýst yfir áhuga á Netbank-
anum og hluta af útibúaneti SPRON.
Rétt eins og innstæður á reikning-
um hjá SPRON voru allar innstæður
Netbankans færðar yfir til Nýja
Kaupþings í gær. Þrjú önnur fjár-
málafyrirtæki hafa sett sig í sam-
band við skilanefnd SPRON og lýst
yfir áhuga á að kaupa eignir.
Jón Þórisson, forstjóri VBS fjár-
festingarbanka, segir að með kaup-
um á Netbankanum yrði styrkari
stoðum skotið undir rekstur bank-
ans. „Bætir það rekstrargrundvöll
VBS og verðmæti. Þá eykur það
möguleika okkar til að greiða lánið
frá ríkinu til baka. Ætti lánveitand-
inn að vera ánægður með það.“
Samdi um 26 milljarða lán
og vill kaupa Netbankann
MP gagnrýnir tilboð VBS harðlega
Eykur möguleika á að greiða lánið
Í HNOTSKURN
»SPRON verður ekki endurvakinn í núverandi
mynd.
»Fimm fjármálafyrirtækihafa sett sig í samband við
skilanefndina og lýst yfir
áhuga á eignum SPRON.
»Skilanefnd vill að áhuga-samir kaupendur hafi sam-
band fyrir kl. tólf í dag.
Ber vott um | 16
SÉRSTAKUR tekjuskattur sem
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
hefur hug á að taka upp að nýju
mun leggjast á þær tekjur ein-
staklinga sem fara yfir 500 þúsund
á mánuði en milljón hjá hjónum. 3%
skattur yrði innheimtur og síðan
8% hátekjuskattur á tekjur sem
fara yfir 700-800 þúsund kr.
Tekjur liðlega átta þúsund ein-
staklinga ná upp í efra skattþrepið.
Þingmenn VG áætla að þessar til-
lögur skili á ári um 3,5 milljörðum
kr. Líkur eru á því að skera þurfi
niður útgjöld hjá ríkissjóði um 35 til
55 milljarða á næsta ári. »| 2, 14
VG vill leggja aukaskatt á
tekjur yfir 500 þúsund kr.
VG Málin rædd á landsfundi.
HELSTU
hlutabréfa-
vísitölur heims
hækkuðu í gær
eftir að Banda-
ríkjastjórn
skýrði frá því að
hún hygðist í
samstarfi við
einkaaðila taka
yfir verðlitlar
eignir og lán sem
ekki er staðið í skilum við fyrir allt
að 1.000 milljarða dala, eða fyrir
sem svarar um 113.000 milljörðum
króna. Má þar nefna að Dow Jones-
hlutabréfavísitalan hækkaði um
tæp 7%. Á sama tíma er útlit fyrir
mesta samdrátt í heimsversluninni
frá síðari heimsstyrjöldinni. »17
Hlutabréfavísitölur hækka
í kjölfar bankaáætlunar
Markaðir tóku
við sér í gær.
AUGU jarðvísindamanna víða um
heim munu verða á Íslandi á næst-
unni því í dag hefst einstakt til-
raunaverkefni með djúpborun í
Vítismóum við Kröflu. Ætlunin er
að bora allt að 4.500 metra djúpa
borholu og í framtíðinni verður
hugsanlega hannað tilraunaorku-
ver ofan á hana. Kostnaður er um
2,3 milljarðar kr. »8
Byrjað á 4.500 metra djúpri
borholu í Vítismóum