Morgunblaðið - 24.03.2009, Page 2

Morgunblaðið - 24.03.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is FRESTUR til að skila skatt- framtölum einstaklinga rann út á miðnætti síðastliðnu. Fyrr á árum var örtröð við skattstofur landsins þegar fólk var að skila framtölum á síðustu stundu. Það er liðin tíð og má segja að tölvuver ríkisskatt- stjóra hafi tekið við af bréfalúgum skattstjóranna, því nær 95% fram- teljenda skila nú framtölum sínum rafrænt. Að sögn Karls Ó. Magnússonar, deildarstjóra álagningardeildar RSK, hefur hlutfall þeirra sem skila rafrænt vaxið hröðum skrefum und- anfarin ár. Á skattskrá að þessu sinni eru um 266 þúsund manns en framtöl eru færri, því hjón telja fram saman. Reynslan er sú, að um 7% af þessum hópi skila ekki fram- tölum, og eru skattar áætlaðir á þennan hóp. Margir skiluðu um helgina Um miðjan dag í gær voru um 80 þúsund framteljendur búnir að skila inn framtölum sínum, bæði ein- staklingar og hjón. Karl segir að gríðarlega margir hafi skilað fram- tölum um helgina, eins og ætíð ger- ist þegar fresturinn er að renna út. Nefndi Karl sem dæmi, að frá klukk- an 17 á sunnudag til jafnlengdar í gær hafi um 15 þúsund framtöl bor- ist. Hann segir að einn og einn fram- teljandi kjósi að skila framtalinu á pappír eins og áður tíðkaðist enda hafi ekki allir landsmenn aðgang að tölvum. Nú eru innistæður í bönkum og öðrum fjármálastofnunum forrit- aðar í framtölin í fyrsta sinn. Það þýðir að margir framteljendur þurfa ekki að gera annað en renna yfir framtalið, staðfesta að upplýs- ingarnar séu réttar, og senda það síðan til ríkisskattstjóra. Karl kveðst reikna með að tugþúsundir framtelj- enda þurfi ekki að leggja meiri vinnu í framtalsgerðina en þetta. Skattstofur eru þegar byrjaðar að vinna í framtölum sem borist hafa. Tölvan hefur tekið við af lúgum skattstjóra Morgunblaðið/Golli Nútíminn Karl Ó. Magnússon við tölvubúnað ríkisskattstjóra sem geymir framtölin sem landsmenn hafa verið að senda undanfarna daga.  Nær 95% skila skattframtölum sínum rafrænt Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is LÍKLEGT er að tveir af nýju bönkunum þremur verði samein- aðir á næstu vikum eða mánuðum, samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins. Hugmyndir þess efnis hafa að undanförnu verið ræddar innan viðskipta- og fjármálaráðu- neytis og Fjármálaeftirlits og Seðlabanka Íslands. Helst er talið að Íslandsbanki og NBI, sem stofnaður var utan um innlenda starfsemi gamla Landsbankans, verði sameinaðir en kröfuhafar gamla Kaupþings, með þýska bankann Deutsche Bank sem einn stærsta einstaka kröfuhafann, eignist Nýja Kaup- þing að öllu leyti eða a.m.k. að stærstum hluta. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins hefur skila- nefnd Kaupþings greint stjórn- völdum frá því að það væri skynsamlegast að kröfuhafarnir eignuðust Nýja Kaupþing að fullu. Staða NBI er verst af bönk- unum þremur en fyrir liggur að ekki eru til eignir í bankanum sem duga upp í forgangskröfur. Ekki er því eftir miklu að slægjast fyrir kröfuhafa í þeim banka, miðað við hina. Þá er staða nokkurra fyr- irtækja sem eru viðskiptavinir NBI erfið en bankinn hefur lítið svigrúm til þess að koma til móts við þá viðskiptavini sem eiga í mestu vandræðunum. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er talið nauðsynlegt að gefa bönkunum meira svigrúm til þess að þjónusta viðskiptavini sína sem eiga í vandræðum og það er helst gert með því að sameina tvo af bönkunum í einn stóran banka. Þá er einnig talið óumflýjanlegt að lækka rekstrarkostnað veru- lega við þessar breytingar til að styrkja bankana. Það yrði helst gert með því að fækka starfsfólki og lækka laun. Rætt hefur verið sérstaklega hvernig mögulegt verði að stíga þessi skref, með tilliti til sam- keppnissjónarmiða en endanlegar útfærslur liggja ekki fyrir. Tveir bankar í stað þriggja Tveir af nýju bönkunum líklega sameinaðir Í HNOTSKURN » NBI, sem stofnaður var ágrunni innlendrar starf- semi gamla Landsbankans, er með stærsta efnhagsreikning- inn af bönkunum þremur. » Stefnt er að því að efna-hagsreikningar nýju bank- anna þriggja liggi fyrir 15. apríl, þegar mati á eignum og skuldum er lokið. Ríkið hefur heimild til að leggja bönk- unum til 385 milljarða eigið fé. Hafa margir fengið frest? Búið var að sækja um viðbót- arfrestfrest fyrir nálægt 43 þúsund framtöl í gær og þar að baki gætu verið um 55 þúsund framteljendur. Hugmyndin bak við þennan frest er sú að allir fá aukahelgi en skilin munu dreifast á mánudag til mið- vikudags í næstu viku, svo ekki séu allir að skila á sama tíma. Þjónustuver ríkisskattstjóra svar- ar fyrirspurnum um skattframtölin alla virka daga klukkan 9-16. Fyrstu þrjá dagana í næstu viku verður fyr- irspurnum svarað til klukkan 19. Símanúmer þjónustuvers ríkisskatt- stjóra er 511-2250. S&S Meiri þægindi og aukið geymsluþol Nú er MS rjóminn í ½ l umbúðum með tappa. 12 daga geymslu - þol H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 9 – 0 4 8 7 FRÉTTASKÝRING Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is ÁLAGNING sérstaks hátekju- skatts, samkvæmt hugmyndum VG, gæti skilað ríkissjóði 3,5 milljörðum kr. á ári. Mikil óvissa er þó um tekju- auka vegna lækkunar tekna í landinu og svo hafa tillögurnar ekki verið að fullu útfærðar. Áætlað er að skatt- urinn leggist á um 25 þúsund manns. Samþykkt var á landsfundi VG um helgina að berjast fyrir því í komandi kosningum að breyta sköttum. Til- gangurinn er að dreifa skattbyrðinni með réttlátum hætti og nota skatt- kerfið markvisst til tekjujöfnunar, eins og fram kemur í yfirlýsingunni. Rætt er um 3% sérstakan tekju- skatt í milliþrepi og 5% að auki í há- tekjuþrepi, samtals 8%, til viðbótar almennum tekjuskatti sem nú er lagður á. Nánari útfærslu á þessum hugmyndum má finna í frumvarpi sem þingmenn VG hafa flutt árlega um álagningu sérstaks tekjuskatts, síðast í desember sl. Þar er miðað við að hátekjuskatturinn leggist á launa- tekjur sem eru yfir 500 þúsund kr. á mánuði hjá einstaklingi og tvöfalt hærri fjárhæð hjá hjónum. Milli- þrepið er hugsað upp í 700 þúsund kr. og að 8% leggist ofan á tekjur sem fara yfir þá fjárhæð. Lilja Mós- esdóttir, frambjóðandi VG, nefndi raunar 800 sem mögulegt viðmið, þegar hún kynnti tillögurnar á lands- fundinum um helgina. Lilja segir að það vanti forsendur til að útfæra tillögurnar, meðal ann- ars upplýsingar um tekjudreifingu. Þó er ljóst að hlífa á þeim sem eru með meðaltekjur og þar undir. Sam- kvæmt tölum Hagstofu Íslands voru landsmenn með að meðaltali um 368 þúsund kr. í laun á mánuði 2007. „Við vitum ekki hver skattaþörfin er eða hverjir geta borgað,“ segir Jón Bjarnason, þingmaður VG, og bætir því við að vega þurfi þessar breytingar saman við breytingar á fjármagnstekjuskatti. VG er með hugmyndir um að greiddur verði 14% fjármagnstekju- skattur, í stað 10% nú, en á móti verði ekki lagður skattur á fyrstu 120 þúsund krónurnar. Útreikningar sem fylgja frum- varpi VG benda til að 17.400 einstak- lingar myndu lenda inn í 3% hátekju- skattinum og 8.200 í 8% í hærra þrepinu og þaðan kemur meginhluti teknanna. Í heildina er þetta svip- aður fjöldi og greiddi gamla hátekju- skattinn þegar hann var lagður af. 25 þúsund greiða skattinn  VG endurnýjar tillögur um sérstakan tekjuskatt  3% viðbótarskattur lagður á tekjur yfir 500 þúsund og 8% á tekjur sem fara yfir 700-800 þúsund á mánuði                                   !  "## "$%    !  &&' &$'    !      !    HÁTEKJUSKATTUR var inn- heimtur á árunum 1993 til 2005. „Sérstakur tekjuskattur manna“, eins og skatturinn hét í upphafi var liður í efnahagsráðstöfunum rík- isstjórnar Sjálfstæðisflokks og Al- þýðuflokks. Átti að styrkja atvinnu- lífið og auka vinnu með því að færa skattbyrði af fyrirtækjum á ein- staklinga. Skatturinn átti einungis að leggjast á tekjur áranna 1993 og 1994 en svo fór að erfitt reyndist að afnema hann, eins og aðra skatta sem lagðir eru á. Skatturinn var í upphafi 5%, en var svo 7% þar til rík- isstjórn Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks ákvað að afnema hann. Var það gert í þremur áföngum. Skatturinn var einkum gagn- rýndur vegna þess að laun hækkuðu meira en skattþrepið þannig að sí- fellt fleiri þurftu að borga. Þá var hann sagður leggjast þungt á ungt fólk sem þyrfti að auka tekjur sínar á meðan það væri að koma sér þaki yfir höfuðið. helgi@mbl.is „Sérstakur tekjuskattur manna“ Steingrímur J. í Zetunni, nýjum viðtalsþætti á mbl.is MBL.IS | SJÓNVARP

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.