Morgunblaðið - 24.03.2009, Page 6

Morgunblaðið - 24.03.2009, Page 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009 SVEFNSÓFA 20 - 30% AFSLÁTTUR! H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS AF SVEFNSÓFUM! Verð frá 37.840 kr. Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is ÁSTÆÐAN fyrir því að lyfið tysabri var ekki gefið jafn- mörgum MS-sjúklingum í fyrra og áætlað var er sú að farið er varlega í sakirnar vegna hættu á alvarlegum aukaverkunum. Ástæðan er hvorki fjárskortur né menntunarstig sjúklingsins. Þetta segir Björn Zoëga, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum. Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kvaðst í viðtali við Stöð 2 um helgina hafa heyrt að menntun gæti verið atriði sem tæki einstakling fram fyrir annan í röð- inni. „Þetta er mjög alvarleg aðdróttun og það er furðu- legt að segja svona sögu sem engin rök eru fyrir,“ segir Björn. Þegar innleiðing meðferðarinnar með tysabri, sem MS-sjúklingar binda miklar vonir við, hófst í janúar í fyrra hafði verið áætlað gróflega að um 50 einstaklingar, sem samkvæmt rannsóknum voru taldir hafa gagn af lyfinu, gætu fengið það á árinu. Nú hafa um 45 fengið lyfið. „Á meðan á innleiðingu á meðferð- inni hefur staðið hafa komið ýmsar upplýsingar að utan, meðal annars frá Lyfjastofnun Evrópu, um að fara eigi varlega. Lyfjastofnunin hefur verið með þetta lyf í skoðun vegna lífs- hættulegra aukaverkana. Það gerði það að verkum að við ákváðum að fara varlega og gera þetta vel og fag- mannlega. Það hafa komið upp auka- verkanir í sjúklingum hér þannig að þeir hafa þurft að hætta meðferð og svo hafa líka aðrir hætt meðferð vegna þess að lyfið hefur ekki haft áhrif,“ greinir Björn frá. Miðað við höfðatölu er meira gefið af tysabri á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndunum, að sögn Björns. „Núna er gefið tvisvar sinna meira af lyfinu hér en þar sem mest er gefið af því en það er í Danmörku. Þegar fyrsta áfanga verður náð, það er að 50 manns fái lyfið, verður þörfin endurmetin og það er unnið að því að bæta aðstöðuna með það í huga.“ Alvarleg aðdróttun  Lyfjagjöf MS-sjúklinga tengist ekki menntun þeirra, að sögn framkvæmda- stjóra lækninga  Varlega farið í sakirnar vegna hættu á aukaverkunum Í HNOTSKURN »MS er taugasjúkdómur semgetur valdið fötlun. »Vonir eru bundnar við aðlyfið tysabri taki öðrum lyfjum við sjúkdómnum fram. Komið hafa upp dæmi um lífs- hættulegar aukaverkanir af lyfinu. »Í upphafi var gert ráð fyrirað kostnaður vegna tysabri fyrir 50 sjúklinga á ári yrði um 120 milljónir króna. Nú er hann um 250 milljónir króna vegna gengishrunsins. Kostn- aður hefur ekki verið hindrun hér, að sögn Björns Zoëga. Björn Zoëga ÞÝSKA skólaskipið Gorch Fock sigldi út Ísa- fjarðardjúp í gær og kemur til Reykjavíkur á fimmtudag. Skipið er 90 metra langt, þriggja mastra seglskip sem tekið var í notkun 1958. Um borð er um 60 manna áhöfn og 145 liðsfor- ingjaefni. Það hefur nokkrum sinnum áður kom- ið hingað til lands. Skipið kom frá Bergen og áð- ur en það sigldi inn í Ísafjarðardjúp fór það norður fyrir heimskautsbaug til að sjóa mann- skapinn. Skólaskipið er væntanlegt til Reykja- víkur klukkan 10 á fimmtudag og mun liggja við Miðbakka. Það verður opið almenningi um helgina frá 14-17. Verið er að skipuleggja knatt- spyrnuleik milli liðs áhafnar skipsins og starfs- fólks Landhelgisgæslunnar. Gengur fyrir seglum út Djúpið Ljósmynd/Ágúst G. Atlason VEGAGERÐIN hefur auglýst útboð Bræðratunguvegar frá Skeiða- og Hrunamannavegi að Biskupstungnabraut. Verkið felst í nýbyggingu Bræðratunguvegar frá Skeiða- og Hrunamannavegi og vestur fyrir brú á Tungufljóti ásamt tilheyrandi tengingum og smíði nýrrar brúar á Hvítá. Lengd útboðskaflans er 7,16 km. Þetta er ný leið sem tengir saman þjónustusvæðin Flúðir og Reykholt. Til þessa hefur þurft að fara um Skálholt eða um gamla og lélega brú við Brúarhlöð. Nýja tengingin styttir þessa leið um 20 kílómetra og er því ljóst að hún verður mikil samgöngubót fyrir þá sem leið eiga um Suðurland. Nýja Hvítárbrúin verður 270 metra löng, steypt eft- irspennt bitabrú í 6 höfum, 25 metra endahöf, og fjögur millihöf 55 metra löng. Tvær akbrautir verða á brúnni og er rýmd þeirra með öxlum 9,0 metrar. Auk þess verður tveggja metra breið göngu- og reiðleið yfir brúna. Skila á tilboðum í verkið fyrir klukkan 14 þriðjudaginn 5. maí nk. og verða tilboðin opnuð þann sama dag. Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Verkinu á að skila fullbúnu fyrir 15. júní 2011 . sisi@mbl.is Ný brú yfir Hvítá boðin út Tölvumynd/Brúardeild Vegagerðarinnar Hvítárbrúin Nýja brúin yfir Hvíta verður mikið mannvirki, alls 270 metrar að lengd og borin uppi af fimm stöplum. Brúin á að verða tilbúin til notkunar um mitt sumar 2011 VERIÐ er að endurskoða regl- ur um utanlands- ferðir hjá Sam- einaða lífeyris- sjóðnum og Gildi þannig að boðs- ferðir verði úr sögunni. Þetta segir Guðmundur Ragnarsson, for- maður Félags vélstjóra og málmtæknimanna (VM). Guðmundur hefur fengið svör frá lífeyrissjóðunum tveimur um boðs- ferðir, gjafir og annað sem stjórn- endur sjóðanna þáðu á undanförnum árum. Í svari Sameinaða lífeyris- sjóðarins kemur fram að stjórn- endur sjóðsins hafi samtals farið 62 sinnum til útlanda á vegum sjóðsins á sex ára tímabili, og var um helm- ingur ferðanna boðsferðir. Sama fólk þáði sex veiðiferðir síðastliðin þrjú ár. Guðmundur segist sáttur við svör- in og telur þau heiðarlega unnin. „Þetta endurspeglar tíðarandann sem gilti þarna. Við kölluðum eftir þessu því það er alltaf verið að gefa í skyn að forystumenn lífeyrissjóð- anna hafi verið að taka þátt í hinu og þessu, þiggja golfferðir og skíðaferð- ir og fleira í þeim dúr. Mér sýnist af þessum svörum að þarna hafi ekki verið um slíkt að ræða.“ Hann segir að þegar hafi verið hafist handa við endurskoðun reglna er lúta að slíkum ferðum hjá lífeyr- issjóðunum tveimur. „Þar er búið að ákveða að ef framkvæmdastjórnin telur það þjóna hagsmunum lífeyr- issjóðsins að maður sé sendur til út- landa verði það eftirleiðis á kostnað sjóðsins.“ Þannig verði slíkar boðs- ferðir úr sögunni. ben@mbl.is Boðsferðir verði úr sögunni Formaður VM sáttur við svör lífeyrissjóða Guðmundur Ragnarsson BRIM hefur líkt og HB-Grandi ákveðið að greiða starfsfólki launa- hækkun sem átti að taka gildi 1. mars sl. Samtök atvinnulífsins og ASÍ sömdu um að fresta þessari hækkun vegna erfiðleika í íslensku atvinnulífi. Launin hækka því um 13.500 krónur. Samkvæmt upplýsingum frá Ein- ingu-Iðju eru fleiri fyrirtæki í Eyja- firði að velta fyrir sér að fara sömu leið. Brim hækk- ar launin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.