Morgunblaðið - 24.03.2009, Qupperneq 9
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
EFNAHAGS- og skattanefnd Al-
þingis hefur til umfjöllunar frum-
varp Steingríms J. Sigfússonar fjár-
málaráðherra um breytingar á
ákvæðum laga um tekjuskatt og
ákvæðum laga um staðgreiðslu op-
inberra gjalda. Markmið frumvarps-
ins er að styrkja skattaframkvæmd
og vinna gegn skattundanskoti.
Nefndin hefur leitað umsagna við
frumvarpið og fengið gesti á sinn
fund. Nokkrir aðilar, þar á meðal
Samtök fjármálafyrirtækja, vilja að
Alþingi gefi sér góðan tíma í þessa
mikilvægu lagasmíð og afgreiðslu
málsins verði frestað fram á næsta
þing. Segja samtökin að frestun
málsins eigi ekki að koma að sök
vegna þess að gildistaka helstu
ákvæða frumvarpsins miðist al-
mennt við tekjur ársins 2010.
Leyna eignum sínum
Í greinargerð með frumvarpinu
segir m.a. að lagt sé til að lögfest
verði ákvæði um skattlagningu aðila
sem eiga beina eða óbeina eignarað-
ild að félögum, sjóðum eða stofn-
unum sem eru heimilisföst í lág-
skattaríkjum. Löggjöf af þessum
toga sé til staðar annars staðar á
Norðurlöndum og í flestum löndum
hins vestræna heims. Markmið
slíkrar löggjafar sé að hamla gegn
skattasniðgöngu sem fram fer með
þeim hætti að innlendir aðilar leyna
eignum sínum og flytja tekjur úr
landi í félög sem þeir stofnsetja í lág-
skattaríkjum án þess að hafa í reynd
nokkra starfsemi þar. Aukið frjáls-
ræði í flutningi fjármagns á milli
landa kalli á breytingar á íslenskri
löggjöf hvað þetta varðar. „CFC-
löggjöf (CFC = Controlled Foreign
Corporation) er algengasta ráð-
stöfun ríkja gegn undanskoti skatta
með framangreindum hætti,“ segir í
greinargerðinni.
Í skýrslu um umfang skattsvika á
Íslandi, sem kynnt var á Alþingi í
desember 2004, var CFC-löggjöf ein
þeirra ráðstafana sem talin var
brýnust í þeim tilgangi að draga úr
skattsvikum. Í þeirri skýrslu er gerð
grein fyrir ýmsum leiðum til skatt-
svika sem viðgangast í skjóli svokall-
aðra lágskattaríkja eða skattapara-
dísa og eins kemur fram í henni að í
fjölmörgum skattsvikamálum á und-
anförnum árum hafa komið fram til-
vik, sem sýna að þessar leiðir eru
notaðar í stórum stíl af íslenskum
skattaðilum.
Í athugasemdum Samtaka fjár-
málafyrirtækja segjast samtökin
styðja það heilshugar að skattalög-
gjöfin verði endurbætt. Til að vel
takist til sé nauðsynlegt að fylgjast
vel með straumum og stefnum í ná-
grannaríkjunum og velja það sem
best gerist í þeim ríkjum. Sameig-
inlegt markmið stjórnvalda, almenn-
ings og fjármálageirans sé að endur-
vekja traust á Íslandi. „Ljóst er að
frumvarpið hefur verið unnið í flýti
Ræða skattaskjól
Frumvarpinu ætlað að vinna gegn skattaundanskoti
Samtök fjármálafyrirtækja vilja nefnd í málið
Morgunblaðið/Ómar
Alþingi Björgvin G. Sigurðsson stefnir að því að afgreiða málið í dag.
og það varðar mikilsverð og flókin
fagleg málefni. Þann lærdóm má
draga af fjármálakreppunni að regl-
ur um flókin málefni sem tengjast al-
þjóðlegum viðskiptum hafa ekki ver-
ið nægilega vel unnar og hafa því
ekki haldið þegar á reyndi. Því er
lagt til að frumvarpið sem hér er
lagt fram verði unnið betur í sam-
vinnu við sérfræðinga atvinnulífsins
og fagaðila. Nýja Ísland þarf að
vanda sig. Það er ljóst að þeir er-
lendu skattaðilar sem hafa reynt að
telja fram á Íslandi hafa lent í erf-
iðleikum með það vegna þess að
skattyfirvöld ráða ekki yfir kerfum
og ferlum til að ráða við það,“ segir í
greinargerðinni.
Samtökin hvetja til þess að skip-
aður verði starfshópur um skatt-
lagningu vaxta og CFC-reglur.
Starfshópurinn eigi að geta unnið
hratt og vel.
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009
LISTI Sjálfstæðis-
flokksins í Suður-
kjördæmi var sam-
þykktur í fyrradag.
4.428 greiddu at-
kvæði í prófkjöri
flokksins í kjör-
dæminu. Efstu fjór-
ir frambjóðendur
hlutu bindandi
kosningu, en alls
tóku 17 frambjóðendur þátt.
Í 1. sæti listans er Ragnheiður El-
ín Árnadóttir, þingmaður, í 2. sæti
Árni Johnsen, þingmaður, í 3. sæti
Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitar-
stjóri, í 4. sæti Íris Róbertsdóttir,
kennari, í 5. sæti Kjartan Ólafsson,
alþingismaður og í 6. sæti Vil-
hjálmur Árnason, lögreglumaður.
Listinn í Suðurkjör-
dæmi samþykktur
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
FRAMBOÐSLISTI
Framsóknarflokks-
ins í Norðaustur-
kjördæmi hefur
verið samþykktur.
Hann skipa: 1. sæti
Birkir Jón Jónsson,
alþingismaður, 2.
sæti Höskuldur Þór
Þórhallsson, al-
þingismaður, 3.
sæti Huld Aðalbjarnardóttir, menn-
ingar- og fræðslufulltrúi, 4. sæti
Sigfús Karlsson, framkvæmda-
stjóri, 5. sæti Svanhvít Aradóttir,
forstöðuþroskaþjálfi og 6. sæti
Hallveig Höskuldsdóttir, leiðtogi í
málmvinnslu.
Listi Framsóknar
í NA-kjördæmi
Birkir Jón
Jónsson
KJÖRDÆMISRÁÐ
Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðaustur-
kjördæmi hefur
samþykkt tillögu
kjörnefndar um
skipan framboðs-
lista.
Listann skipa:
1. Kristján Þór
Júlíusson,
2. Tryggvi Þór Herbertsson,
3. Arnbjörg Sveinsdóttir,
4. Björn Ingimarsson,
5. Anna Guðný Guðmundsdóttir,
6. Jens Garðar Helgason.
Kristján Þór efstur
í NA-kjördæmi
Kristján Þór
Júlíusson
KJÖRDÆMISÞING
Samfylkingarinnar
í Norðvesturkjör-
dæmi samþykkti
framboðslista
flokksins fyrir
komandi alþingis-
kosningar.
Listann skipa:
1. Guðbjartur
Hannesson
alþingismaður,
2. Ólína Þorvarðardóttir
þjóðfræðingur,
3. Arna Lára Jónsdóttir
verkefnastjóri,
4. Þórður Már Jónsson
viðskiptalögfræðingur,
5. Anna Kristín Gunnarsdóttir
nemi og varaþingmaður,
6. Ragnar Jörundsson bæjarstjóri.
Guðbjartur efstur
í NV-kjördæmi
Guðbjartur
Hannesson
„Ég stefni að því að ná frumvarp-
inu út úr nefndinni á morgun,
þriðjudag,“ segir Björgvin G. Sig-
urðsson, formaður efnahags- og
skattanefndar. Hann segir að
nefndin hafi farið vel yfir málið á
fundum sínum undanfarna daga.
Björgvin segist vera algerlega
ósammála því að setja málið í
nefnd eins og Samtök fjármálafyr-
irtækja vilja. „Ég tel sjálfur að
þessi löggjöf muni auðvelda mjög
að sækja fé í skattaskjól. Að tefja
málið með því að setja það í ein-
hverja nefnd gæti eyðilagt slíka
möguleika og því kemur það ekki
til álita,“ segir Björgvin. Hann seg-
ist ekki vita á þessari stundu hvort
nefndin muni leggja fram sameig-
inlegt álit.
Ósammála því að setja málið í nefnd
Ný frímerki með
kynjaskepnum
KYNJASKEPNUR úr íslenskum
þjóðsögum eru myndefni á nýjum
frímerkjum sem Íslandspóstur gaf
út í síðustu viku. Jafnframt komu
út tvö sérhefti þar sem myndefnin
eru íslenskar farþegaflugvélar,
bæði gamlar og nýjar.
Í íslenskum þjóðsögum er fjöldi
frásagna um furðuverur í lofti, á
láði og legi. Í bók Sigurðar Æg-
issonar og Jóns Baldurs Hlíðberg,
Íslenskar kynjaskepnur, sem kom
út sl. haust, eru rifjaðar upp
helstu þjóðsögur og sagnir um 30
slík dýr.
Tíu slíkar furðuskepnur prýða
frímerkin, m.a. skoffín, sem sagt
er afkvæmi tófu og kattar, og
fjörulalli, sjávarskepna sem gat
verið skaðlegur kindum á fengi-
tímanum. Einnig skeljaskrímsli
sem er margfætt skepna, mórauð
og loðin og hringlar í henni þegar
hún hreyfir sig. Þá silungur sem
var öfuguggi því allir uggarnir á
honum sneru fram. Frímerkin
hannaði Hlynur Ólafsson, grafísk-
ur hönnuður. Jón Baldur Hlíðberg
teiknaði myndirnar. Flugvélafrí-
merkin voru einnig hönnuð af
Hlyni Ólafsyni en teiknuð að Wil-
fred Hardy.
Samfylking og Vinstri hreyfingin
grænt framboð hafa komið sér
saman um að Alþingiskosningar
fari fram laugardaginn 25. apríl
næstkomandi. Morgunblaðið
mun daglega birta fréttir sem
tengjast framboðum, próf-
kjörum, kosningafundum o.fl.
Kosningar
2009
STUTT
Hótel í miðbænum. Góður aðbúnaður.
295 dkr. fyrir manninn í 2ja manna herb. með
wc og sturtu
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20. www.loeven.dk
Sofðu vel! Í Kaupmannahöfn
str. 36-56
Bæjarlind 6 sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
Opið virka daga 10-18
Síðar
skyrtur
Litir: Svart og hvítt
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Nýjar vörur
Nýjar vörur
Str. 38-56
FRÁBÆR BUXNASNIÐ
NÝ SENDING
KVARTBUXUR, GALLABUXUR (margir litir)
SPARIBUXUR, MÖRG SNIÐ, 2 SÍDDIR
BREIÐARI OG GRENNRI MJAÐMIR (Slim style)
Fræðslufundur ÍSÍ
Hreyfing og heilbrigði, fræðslufundur fyrir fólk á
besta aldri verður haldinn á ÍSÍ fimmtudaginn 26.mars frá
kl. 13.00-15.30. Fyrirlestrar um hreyfingu, næringu og
lífsgæði. Skráning og upplýsingar í síma í 514-4000.
Sjá einnig á www.isi.is