Morgunblaðið - 24.03.2009, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 24.03.2009, Qupperneq 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009 ÞINGMENN og ráðherrar leggja áherslu á að sparisjóðakerfinu í landinu verði viðhaldið, og það haldi áfram að þjóna sérstaklega ein- staklingum og smærri fyrirtækjum. Þetta kom fram við utandagskrárumræður á Alþingi í gær er Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra gerði grein fyrir atburðum helgarinnar þegar FME tók yfir SPRON og Sparisjóðabankann. Gylfi sagðist ekki eiga von á að atbeina rík- issjóðs þyrfti til að tryggja laun starfsfólks SPRON. Kvaðst hann telja að sparisjóðurinn ætti fyrir slíkum forgangskröfum. Gylfi sagði að af tæknilegum ástæðum hefði þurft að færa innistæður viðskiptavina SPRON til Kaupþings aðfaranótt sunnudags og því hefði orðið að skýra frá niðurstöðunni með stuttum fyrirvara. „Ég held að við munum reyna að standa vörð um stofnfjárkerfið. Það er einfaldlega hægt að draga þá ályktun af því sem gerst hefur und- anfarin misseri að hlutafélagavæðing spari- sjóðanna var mjög misráðin,“ sagði Gylfi. Fram kom í máli Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra að ekki væri ólíklegt að ríkið þyrfti að leggja aukið eigið fé til Kaupþings, en innistæður voru færðar þangað. Sumir þingmanna voru gagnrýnir á hvernig staðið var að yfirtökunni um helgina. Það væri ekki fólki bjóðandi að þurfa að heyra af örlög- um sínum í beinni sjónvarpsútsendingu. Krist- inn H. Gunnarsson vék einnig að ábyrgð Seðla- banka Íslands sem hefði vísvitandi og af ráðnum hug notað Sparisjóðabankann til að koma út peningum til viðskiptabankanna. Sparisjóðabankinn hefði verið notaður sem milliliður til að koma milljörðum til viðskipta- bankanna til að „viðhalda blekkingarleiknum“. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Umræða Þingmenn ræddu fall SPRON og Sparisjóðabankans. Hf-væðing sparisjóða mistök  Gagnrýndu hvernig yfirtakan fór fram  Vilja viðhalda sparisjóðakerfinu  Starfsfólki verði tryggð laun  Sparisjóðabankinn notaður sem milliliður SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur skilað Neyðarlínunni 300 þús- und króna styrk sem hann þáði í að- draganda kosninga 2007. Segir í til- kynningu frá flokknum að flestir stjórnmálaflokkar hafi farið á svig við lög með því að þiggja framlög frá fyrirtækjum eða félögum í op- inberri eigu. „Sjálfstæðisflokknum urðu á nokkur slík mistök árið 2007 og veitti flokkurinn þannig viðtöku framlögum sem hann hefði með réttu átt að hafna þar sem um var að ræða félög í meirihlutaeigu hins opinbera. […] Munu öll framlög sem stangast á við lögin verða end- urgreidd til þeirra sem þau greiddu á sínum tíma.“ Íslandspóstur sem er að fullu í eigu íslenska ríkisins var meðal þeirra sem styrktu stjórn- málaflokka árið 2007. Fengu Sjálf- stæðisflokkur, Samfylking, VG og Framsóknarflokkur 150 þúsund króna framlag hver frá félaginu. Endurgreiðir Neyðarlínu styrkinn Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is JÓHANNA Sigurðardóttir forsætis- ráðherra ítrekaði við utandagskrár- umræður á Alþingi í gær ummæli sín um siðleysi ákvörðunar stjórnar HB-Granda að leggja til við hlut- hafafund að hluthöfum yrði greiddur 8% arður. „Þeir sem stunda atvinnu- rekstur verða að bera gæfu til þess að finna jafnvægi á milli vinnu- framlags hins almenna launafólks annars vegar og hagnaðar eigenda hins vegar og ofurlaunakjara sem eru og hafa verið á umliðnum árum úr öllum tengslum og samhengi við það sem stærstur hluti þjóðarinnar býr við og aðbúnað hans,“ sagði hún. Jóhanna sagði að ríkið hlyti að skoða sérstaklega hvernig fyrirtæki, sem þiggja ríkisaðstoð, verja sínum fjármunum. „Ég tel að þau, og raun- ar öll fyrirtæki sem skila hagnaði um þessar mundir, hljóti að horfa til þess að verja hagnaði sínum til at- vinnuuppbyggingar og að fjölga störfum frekar en til arðgreiðslna og stuðla þannig að uppbyggingu til framtíðar í þessum fyrirtækjum.“ Njóta ívilnana ríkisins Umræðan fór fram að beiðni Kristins H. Gunnarssonar sem sagði mjög gagnrýnivert þegar hluthafar litu svo á að þeir gætu tekið og tækju í reynd til sín arðgreiðslur án tillits til framlaga annarra, bæði launa- manna og ríkissjóðs. Kristinn sagði að hagnaður HB Granda hefði verið 2,3 milljarðar. Arðgreiðsla út af fyrir sig væri ekki óeðlileg en það væri sérstaklega gagnrýnivert að fyr- irtæki sem gengi vel nyti marghátt- aðrar ívilnunar af hálfu ríkissjóðs, sem sparaði fyrirtækinu hundraða milljóna kr. útgjöld á ári. „Og gefur því á sama tíma tækifæri, sem það nýtir sér, til að afla sér tekna upp á hundruð milljóna króna á hverju ári í leigu veiðiheimilda, sem það á ekki og fær afhent frá ríkinu án þess að borga krónu fyrir,“ sagði hann. Ragnheiður Elín Árnadóttir, Sjálfstæðisflokki, sagði að stóra spurningin sem þyrfti að svara um arðgreiðslur í atvinnulífinu væri hver ætti að vera ávöxtun fjárfesta sem legðu atvinnulífinu til fjármagn. Sagði hún forsætisráðherra reka fleyg á milli atvinnurekenda og launafólks með ummælum sínum um fyrirtækið. Birkir Jón Jónsson, Framsókn- arflokki, sagði sjálfsagt að fólk fengi arð af sparifé sínu almennt. Við mættum ekki fordæma arðgreiðsl- urnar sem slíkar. Hins vegar þyrfti að horfa á þetta mál í samhengi við erfiðleikana í þjóðfélaginu. Sam- hengi þyrfti að vera á milli launa og arðgreiðslna. Barbabrellur í bókhaldi Grétar Mar Jónsson, Frjálslynda flokknum, sagði að í dag gætu menn teiknað eignir inn í fyrirtæki í sjáv- arútvegi. Reiknað veiðiheimildir á 4.200 kr./kg af þorski þó að gang- verðið væri jafnvel innan við 1.000 kr./kg. Mörg sjávarútvegsfyrirtæki væru tæknilega gjaldþrota en beittu Barbabrellum í bókhaldi sínu. Hagnaður í fleiri störf fremur en arð ATLI Gíslason, Vg, segir við- skiptabankana og sparisjóðina hafa hækkað við- skiptavild í bók- haldi sínu jafn vel upp í 30-50% af ársveltu. Myndað þannig tekjur í bókhaldi og hækkað eigin fé, sem var grundvöllur lánstrausts. Þann- ig hafi þeir búið til loftbóluhagnað og í kjölfarið loftbóluarðgreiðslur, búið jafnframt til loftbólueigiðfé, sem þeir fengu svo lánað út á. Rík- isstjórnin eigi að hafa þetta vel í huga áður en hún reiði fram 20% aðstoð við sparisjóðina. Hefur hann beint því til rannsóknarnefndar Al- þingis og sérstaks saksóknara að þetta verði skoðað sérstaklega. Rannsaka loftbóluhagnað KRISTINN H. Gunnarsson stóð fyrir utandagskrárumræðu á Alþingi í gær um arðgreiðslur í atvinnulífinu. Kristinn gagnrýndi m.a. ívilnanir sem fyr- irtæki í sjávarútvegi nytu frá ríkinu þegar vel gengur og þau skila góðum hagnaði. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra var til andsvara. Morgunblaðið/Árni Sæberg Arðgreiðslur og ívilnanir Atli Gíslason STARFSMENNTASJÓÐUR úthlut- aði nýlega styrkjum að upphæð 35 milljónir króna til 35 verkefna. Hæstu úthlutunina upp á 1,7 millj- ónir króna hlaut verkefnið „Hann- að í málm“ sem skapar atvinnu- tækifæri næsta hálfa árið fyrir þrjá hópa hönnuða og þrjú málmiðn- aðarfyrirtæki. Á meðal annarra verkefna sem fengu úthlutað úr sjóðnum má nefna námskeið um heimavinnslu mjólkurafurða og stofnun matvæla- fyrirtækja, menntasmiðju karla, störf án staðsetningar og þróun málms í steinlagna- og umhirðu- tækni. Úthlutað úr Starfs- menntasjóði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.