Morgunblaðið - 24.03.2009, Qupperneq 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
„ÞAÐ er ljóst að íslensku bankarnir,
Kaupþing og Glitnir alveg sér-
staklega, hafa stefnt sér og það sem
verra er, íslensku fjármálalífi, í mikla
hættu, jafnvel hreinar ógöngur.“
Þetta er meðal þess sem segir í minn-
isblaði starfsmanna Seðlabanka Ís-
lands eftir fundi þeirra með fulltrúum
erlendra banka og matsfyrirtækja í
London í febrúar 2008.
Og áfram segir í minnisblaðinu:
„Hættulegt er að hafast ekkert að í
þeirri von að markaðir opnist óvænt
og allur vandi verði þá úr sögunni.
Nauðsynlegt er að hefjast þegar
handa við að vinda ofan af stöðunni
svo hún verði ekki óleysanleg. Ekki
er hægt að útiloka að miklu fyrr ræt-
ist úr markaðsaðstæðum og aðgengi
að fjármagni en nú er talið. Ekkert
bendir þó enn til þess og ef menn láta
sér nægja að lifa í voninni verður of
seint að bregðast við þegar ljóst verð-
ur að vonin rætist ekki.“
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrver-
andi viðskiptaráðherra, sagði í sam-
tali við blaðamann í gær að honum
hefði aldrei verið sýnt þetta minn-
isblað og það hefði ekki verið lagt
fram í ríkisstjórn. „Að því er mér
skilst var því aldrei dreift til annarra
ráðherra. Aðrir verða að gera grein
fyrir því hvernig þetta var kynnt fyrir
þeim, einhverjir sem það þó sáu,“
sagði Björgvin.
Seðlabankamenn vörðu Icesave
Í minnisblaðinu segir eftir fund
starfsmanna Seðlabankans með
fulltrúum matsfyrirtækja, að ljóst sé
að áhyggjur af Íslandi litist eingöngu
af áhyggjum af íslensku bönkunum.
Talið sé að fyrirferð þeirra í fjármála-
lífi Íslendinga sé slík að verði þeim
hált á svelli þá detti aðrir með.
Fulltrúar Moody’s hafi haft áhyggjur
af öllum bönkunum en þó einna mest
af einum þætti sem snýr að Lands-
banka Íslands vegna Icesave-
innlánsreikninga bankans. „Seðla-
bankamenn fóru yfir þau rök sem
væru gegn því að þessi innlánsreikn-
ingur væri jafn ótraustur og Moody’s
hefði áhyggjur af, en ekki er líklegt
að öllum efasemdum þeirra hafi verið
eytt,“ segir í minnisblaðinu.
Varðandi fundi með fulltrúum
stórra erlendra banka segir meðal
annars í minnisblaði starfsmanna
Seðlabankans, „að íslenska banka-
kerfið væri í mikilli hættu, ekki síst
vegna þess hvernig það hefur þanist
út, skipulagslítið og ógætilega á und-
anförnum árum, í því trausti að láns-
fjárútvegun yrði ætíð leikur einn.“
Stefnt í ógöngur
Morgunblaðið/Ómar
Minnisblað Starfsmenn Seðlabankans ræddu við fulltrúa erlendra banka
og matsfyrirtækja í London í febrúar 2008 og greindu frá áhyggjum þeirra.
Í minnisblaði Seðlabankans frá því í
febrúar 2008 var varað við mikilli hættu
Meira á mbl.is
● Sparisjóðurinn í Keflavík (SpKef)
hefur selt Íbúðalánasjóði (ÍLS) safn
skuldabréfa, að fjárhæð um 10 millj-
arða króna, tryggt með veði í íbúðar-
húsnæði. Er þetta gert í samræmi við
heimild til slíkra kaupa samkvæmt lög-
um, sem sett voru í vetur um kaup á
skuldabréfum fjármálafyrirtækja. ÍLS
mun greiða 80% af uppreiknuðu virði
safnsins með afhendingu íbúðabréfa.
Eftirstöðvarnar, eða 20%, er krafa
SpKef á ÍLS sem mun verða gerð upp
að 8 árum liðnum. Til ársins 2010 er
SpKef óheimilt að lána eða selja íbúða-
bréfin á eftirmarkaði.
ÍLS kaupir lán af SpKef
()
()
*
*
()
+)
*
*
,-.
/- 0
*
*
345
,6)
*
*
()
$
()
'
*
*
ÞETTA HELST ...
● KAUPMÁTTUR
launa dróst um
9,3% á tólf mán-
aða tímabili fram
til febrúar á þessu
ári. Þetta kemur
fram samkvæmt
mælingu Hagstofu
Íslands á launa-
vísitölunni fyrir
febrúarmánuð síðastliðinn.
Launavísitalan í febrúar var óbreytt
frá fyrra mánuði. Síðastliðna tólf mán-
uði hefur vísitalan hins vegar hækkað
um 6,7%.
Kaupmáttur launa í febrúar lækkaði
um 0,5%, en vísitala neysluverðs
hækkaði sem því nemur á milli mánaða.
Yfir tólf mána tímabil dróst kaupmátt-
urinn saman um 9,3%. gretar@mbl.is
Kaupmáttur launa
dróst saman um 9,3%
● STRAUMUR-Burðarás fjárfesting-
arbanki, sem hefur fengið greiðslu-
stöðvun til 11. júní næstkomandi, sagði
síðastliðinn föstudag upp 68 starfs-
mönnum sem störfuðu á skrifstofu
bankans í London undir formerkjum
Teathers.
Síðastliðinn fimmtudag sagði
Straumur upp 79 starfsmönnum, þar
af 38 á Íslandi og 41 í Bretlandi og Dan-
mörku.
Lítil starfsemi hefur að undanförnu
verið í útibúi Straums í London, Teat-
hers. Útibúið og vörumerkið, sem
Straumur keypti af Landsbankanum á
síðasta ári, hefur verið í söluferli.
gretar@mbl.is
Uppsagnir hjá Teathers
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ neitar
að gefa upp á hvaða kjörum samið
var við Saga Capital og VBS fjár-
festingarbanka, en samningar hafa
náðst milli ríkissjóðs og beggja fyr-
irtækja vegna skuldar sem varð til í
svokölluðum endurhverfum við-
skiptum fyrirtækjanna við Seðla-
banka Íslands.
Saga Capital skuldaði ríkissjóði
15 milljarða króna og VBS skuldaði
26 milljarða, samkvæmt upplýs-
ingum Mbl. Samningarnir fela í sér
að fyrirtækin greiða skuldirnar til
baka á sjö árum. „Með samningnum
er tryggt að ríkissjóður og þar með
skattgreiðendur fái að fullu greitt,“
segir í tilkynningu frá VBS. Þór-
hallur Arason, sérfræðingur í fjár-
málaráðuneytinu, segir að aðeins
tveir kostir hefðu verið í stöðunni;
að ganga að fyrirtækjunum þar
sem þau gátu ekki veitt frekari veð-
tryggingar vegna skuldanna eða að
reyna að semja um skuldirnar.
Hann segir að ríkissjóður myndi
veikja samningsstöðu sína gagn-
vart öðrum með því að gefa upp
vaxtakjör eða önnur ákvæði samn-
inganna. thorbjorn@mbl.is
Vilja ekki gefa upp kjör
lána til VBS og Saga
Gæti veikt samningsstöðu, segir ríkið
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„MÉR finnst þetta bera vott um
ótrúlegt siðleysi,“ segir Margeir
Pétursson, stjórnarformaður MP
banka, um þá ákvörðun VBS fjár-
festingarbanka að óska eftir viðræð-
um við skilanefnd SPRON um kaup
á Netbankanum nb.is, dótturfélagi
SPRON.
„VBS hefur ekki leyfi til að taka
við innlánum. Þeir gátu ekki staðið
við skuldbindingar sínar og voru
dregnir að landi með 26 milljarða
króna láni frá ríkissjóði. Blekið er
ekki þornað á þeim gjörningi og þeir
ætla að reyna að yfirbjóða aðila sem
eru með viðskiptabankaleyfi og hafa
ekkert lán fengið,“ segir Margeir og
vísar til þess að VBS hafi í gær samið
við ríkissjóð vegna skuldar sem varð
til í svokölluðum endurhverfum við-
skiptum við Seðlabankann. Margeir
segir það liggja í hlutarins eðli að
VBS muni ekki geta greitt upp sín
lán hjá ríkissjóði nema taka „gríð-
arlega áhættu í rekstri.“ Hann segist
vera orðlaus yfir því að menn láti sér
detta nokkuð svona lagað í hug og
segist ekki trúa öðru en að þetta
verði stöðvað. Þess ber að geta að
MP banki hefur einnig lýst yfir
áhuga á að taka yfir Netbankann og
hluta af útibúaneti SPRON.
Kaupa fremur en að byggja upp
VBS hafði samband við skilanefnd
SPRON í gær með það í huga að
kaupa Netbankann. Jón Þórisson,
forstjóri VBS, segir að Netbankinn
falli vel að stefnu og framtíðarsýn
VBS. „Netbankinn hefur öll tilskilin
leyfi til að taka við innlánum og þjón-
usta viðskiptavini í gegnum netið.
Það er þrautreyndur netbankabún-
aður til staðar og ferlar og kerfi sem
eru tiltölulega aðgengileg. Það er
einfaldara [...] að fjárfesta í fyrirtæki
sem er þegar í starfsemi í stað þess
að byggja upp,“ segir Jón. Að sögn
Jóns hafa engar verðhugmyndir ver-
ið nefndar á þessu stigi málsins. Auk
VBS og MP banka hafa þrjú önnur
fjármálafyrirtæki haft samband við
skilanefnd SPRON og lýst yfir
áhuga á að kaupa eignir.
Yfirfærsla innstæðna gekk vel
Yfirfærsla innstæðna frá SPRON
til Nýja Kaupþings í gær gekk að
mestu leyti vel að undanskildum
smávægilegum hnökrum, sem tókst
að kippa fljótt í liðinn. Starfsmenn
SPRON mættu í gærmorgun á sínar
starfstöðvar og sóttu persónulega
muni. Öll útibú SPRON, fyrir utan
útibúið í Borgartúni, voru lokuð í
gær í þeim skilningi að engin við-
skipti voru í útibúunum en viðskipta-
vinum gafst kostur á að koma og
kveðja starfsfólkið. Margir við-
skiptavinir hafa átt viðskipti við
sama þjónustufulltrúann árum sam-
an og því var andrúmsloftið tilfinn-
ingaþrungið á nokkrum stöðum,
samkvæmt upplýsingum frá
SPRON.
Ber vott um „ótrúlegt siðleysi“
Stjórnarformaður MP gagnrýnir harðlega að VBS ætli að kaupa fyrirtæki stuttu
eftir að hafa verið bjargað af ríkissjóði Báðir hafa áhuga á Netbankanum, nb.is
Margeir
Pétursson
Jón
Þórisson
Munu útibú SPRON
verða opnuð aftur?
Nei, öllum útibúum hefur verið lok-
að og sparisjóðnum lokað í núver-
andi mynd.
Nú hafa allar innstæður á reikn-
ingum SPRON og Netbankans
verið færðar til Nýja Kaupþings.
Hvað um áunna vexti?
Allar innstæður fluttust yfir miðað
við stöðu og áunna vexti á yf-
irtökudegi. Allir skilmálar lána um
tímalengd, vaxtakjör, mynt og
fleira halda sér óbreytt gagnvart
Nýja Kaupþingi.
Viðskiptavinir SPRON hafa
fengið ný viðskiptaútibú.
Í hvaða útibú voru innstæður
viðskiptavina SPRON færðar?
Á vefsíðu SPRON, spron.is geta
viðskiptavinir nálgast ítarlegar
upplýsingar um hvert viðskipti og
innstæður voru færðar.
S&S