Morgunblaðið - 24.03.2009, Side 18
18 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009
Eftir Alfons Finnsson
Ólafsvík | Netavertíð er nú í fullum
gangi í sjávarbyggðum landsins og
hefur verið mikið um að vera í
Ólafsvík að undanförnu.
Síðustu ár hefur þeim bátum
sem róa með net fækkað umtals-
vert og segja sjómenn að öll ver-
tíðarstemning sé horfin eftir að
kvótinn var settur á og með
síminnkandi aflaheimildum. Á ár-
um áður þegar best lét reri tals-
vert af netabátum af öllu landinu
frá Snæfellsnesi og skapaðist
skemmtileg stemning og nóg var
að gera í fiskvinnsluhúsum. Var þá
oft löng löndunarbið og biðu bátar
úti undir bauju eftir löndun og
þurftu hafnarverðir að gefa bátum
númer.
Ennþá koma nokkrir aðkomu-
bátar á Snæfellsnes. Mest eru það
dragnótabátar sem koma hingað til
veiða.
Einn þeirra átta báta sem róa
með net frá Ólafsvík í vetur er
Arnar í Hákoti SH 37. Hann er 76
tonna eikarbátur sem var smíð-
aður í Þýskalandi árið 1959.
Morgunblaðið fór í netaróður
með Arnari nýverið, leiðindaveður
var á Breiðafirði en netin voru í
sjó og þurfti að draga þau. Farið
var út frá Ólafsvík um áttaleytið
en stutt stím var á miðin. Fimm
menn eru um borð í Arnari í Há-
koti, allt þaulvanir sjómenn sem
kalla ekki allt ömmu sína. Gekk
vel að draga fyrstu trossuna, afl-
inn í henni var um 700 kíló af
boltaþorski. Haldið var áfram fram
eftir degi og menn kepptust við að
draga netin og var ekkert slegið
af. Trossurnar ruku inn fyrir með
ógnarhraða, fiskurinn var greiddur
úr og trossurnar lagðar aftur, en
ein trossan var full af sprelllifandi
síld, en ekki kom mikið af þorski í
hana. „Andsk … þetta er ekki
gott,“ sagði Sigurður Garðarsson.
„Þetta kvikindi er að tefja okkur.“
Um leið og trossurnar voru bún-
ar var farið í að blóðga fiskinn og
svo var hann ísaður. „Allt fyrir
gæðin,“ sögðu skipverjar.
Aflinn í þessum róðri var fimm
tonn og voru skipverjar ánægðir
með þann afla, við erum með svo
fá net, sögðu þeir, og pössum alltaf
að draga einnar nætur og svo tök-
um við trossurnar upp þegar spáir
leiðinlega.
Jón Guðmundsson hafnarvörður
segir að vertíðin í ár sé betri en í
fyrra. „Netabátar hafa verið að
koma með allt að 30 tonnum að
landi eftir daginn og dragnótabát-
ar hafa mokfiskað en heldur hefur
dregið úr veiði línubáta eftir að
loðnan kom hingað vestur, það er
allt krökkt af loðnu hér,“ segir
Jón.
Ekkert slegið af við veiðarnar
Morgunblaðið/Alfons
Snör handtök Golþorskur kominn um borð og þegar netin eru bunkuð af slíkum þorski þurfa handtökin að vera eldsnör svo hægt sé að leggja netin aftur.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | notadir.brimborg.is
lifðu í öryggi. fáðu þér notaðan volvo.
Við erum á tánum fyrir þig í dag. Semdu við okkur um verð.
Endurnýtum gjaldeyrinn með því að nýta það sem við
eigum. Kauptu notaðan Volvo. Lifðu í öryggi.
Komdu í Brimborg og skoðaðu Volvo í dag.
Komdu í rjúkandi kaffi.
Við erum á tánum
fyrir þig í dag
seljagamla
nkaupanýja
notaðan
Eingöngu notaðir bílar sem sérfræðingar Volvo mæla með
`
çÜå
C
t
çäÑÉ
m
ìÄäáÅ
o
Éä~íáçåë
ðëä~åÇá
-18%-16%-16%
Volvo S40 SE (AM395)
2,4 bensín sjálfskiptur 4 dyra
Leðurinnrétting ofl.
Skrd. 04/2005. Ek. 74.000 km.
Ásett verð 2.740.000 kr.
Afsláttur 490.000 kr.
Tilboðsverð 2.250.000 kr.
Volvo S60 SE (OS921)
2,0 Turbo bensín sjálfskiptur 4 dyra
Sport leðurinnrétting, Xenon gasljós,
rafdrifið ökumannssæti ofl.
Skrd. 07/2005. Ek. 43.000 km.
Ásett verð 3.420.000 kr.
Afsláttur 550.000 kr.
Tilboðsverð 2.870.000 kr.
Volvo XC70 SE AWD (LY707)
2,5 Turbo bensín sjálfskiptur station
Leðurinnrétting, rafdrifin sæti, GSM
sími, Dolby hljómkerfi, dráttarbeisli ofl.
Skrd. 12/2003. Ek. 112.000 km.
Ásett verð 3.440.000 kr.
Afsláttur 550.000 kr.
Tilboðsverð 2.890.000 kr.