Morgunblaðið - 24.03.2009, Page 19

Morgunblaðið - 24.03.2009, Page 19
Daglegt líf 19ÚR BÆJARLÍFINU MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009 Heldur rysjóttur öskudagur, með átján jafnleiðinlegum bræðrum, rann sitt skeið hér á Sauðárkróki, en síðan þá hefur verið blíða uppá hvern einasta dag og hiti náð jafnvel tveggja stafa tölu. Allur snjór horf- inn innanbæjar nema þau fannafjöll sem mokað var af götunum og hlaðin upp hvar sem opið svæði var að finna, en þau eru nú sem óðast að hverfa líka.    Hinsvegar er nægur snjór í skíða- löndum Skagfirðinga í vesturhlíðum Tindastóls, og segir Viggó Jónsson, framkvæmdastjóri svæðisins, að þessi vetur sé einn sá besti síðan svæðið var opnað, gríðarlega góð að- sókn og fari sífellt batnandi. Aðeins hefði verið lokað fimm daga vegna veðurs frá því að opnað var í lok október og ánægjulegt að segja frá því að sívaxandi fjöldi gesta kæmi nú frá nágrannabyggðunum, einkum frá Skagaströnd, og Blönduósingum fari mjög fjölgandi. Einnig væri skemmtilegt að nefna það að milli fimmtíu og sextíu börn og unglingar æfðu svig reglulega, þar af um tutt- ugu og fimm frá Skagaströnd. Þá sagði hann vinsældir svæðisins færu vaxandi meðal skíðadeilda Reykja- víkur-félaganna og hefði Helgi Geir- harðsson þjálfari skíðafólks úr KR til dæmis verið nú um síðustu helgi með sitt fólk við æfingar í Stólnum og lýst ánægju með dvölina.    Í byrjun marsmánaðar var Hús frí- tímans opnað við Sæmundargötu og hefur þar verið komið upp glæsilegri aðstöðu fyrir alla þá sem koma vilja saman til hverskonar frístunda- starfa, allt frá unglingum til eldri borgara, þar sem hver og einn getur fundið aðstöðu til að sinna sínu áhugamáli. Að sögn Áskels Heiðars Ásgeirssonar hefur aðsókn verið mjög góð og almenn ánægja með þessa glæsilegu aðstöðu.    Atvinnuástand er nokkuð gott, þó vissulega hafi fækkað um eina vakt í Steinullarverksmiðjunni vegna al- menns samdráttar í byggingariðn- aði. Þá vænta menn fjölgunar í nýj- um störfum meðal annars hjá Matís og fleiri stofnunum sem hafa haslað sér völl á Sauðárkróki.    Skagfirðingar eru nú komnir í fullan gang með undirbúning árlegrar Sæluviku, sem hefst hinn 26. apríl og ljóst að hún verður ekki íburðar- minni en stundum áður. Á vegum Listasafnsins verður í Safnahúsinu sýning sem tileinkuð verður skag- firska listamanninum Jóhannesi Geir, en fjölmörg verk hans, skissur, teikningar og málverk voru að hon- um látnum gefin til safnsins. Mun þessari höfðinglegu gjöf verða gerð ítarleg skil á sýningunni.    Söngur og tónlist mun setja svip sinn á Sæluviku svo sem venja er og gert er ráð fyrir að taka aftur í notk- un félagsheimilið Miðgarð, sem lok- að hefur verið á fjórða ár, en þar hafa nú verið gerðar viðamiklar við- gerðir og endurbætur, þannig að þar er aðstaða öll orðin eins og best verður á kosið og segja þeir sem vit hafa á að þar sé komin hin besta að- staða til leik- og tónlistarflutnings.    Síðastliðið ár voru eitthundrað og tuttugu ár frá því að Leikfélag Sauð- árkróks hið eldra var stofnað, en fé- lagið var stundum nefnt Comedíu- félagið eða Sauðárkrókur Theater, og starfaði það allt til ársins 1907 er það tók höndum saman við Ung- mennafélagið Tindastól um þessa list- og skemmtiiðju, en 1941 var fé- lagið endurvakið og hefur starfað óslitið síðan. Þessara merku tíma- móta vildi félagið minnast á verð- ugan hátt og setur því nú á svið sýn- ingu sem ber nafnið: Frá okkar fyrstu kynnum – 120 ár í sögu leik- félags. Höfundur og leikstjóri verks- ins er Jón Ormar Ormsson en hon- um til aðstoðar er Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson. Að sögn Sigurveigar Daggar Þormóðsdóttur, formanns félagsins, samanstendur verkið af völdum köflum úr íslenskum leik- verkum sem sett hafa verið á svið í áranna rás, og mikill fengur væri að því að fá aftur til liðs við félagið fólk sem ekki hefur sést á sviði um árabil ásamt með yngri félögum. Sagði Sig- urveig að nú gætu menn aftur end- urnýjað kynnin við Skugga Svein, Kalla á saumastofunni, Málfríði á símstöðinni og ýmsar aðrar persón- ur sem glatt hefðu leikhúsgesti á ár- um áður. Hér væri á ferðinni gaman og alvara, söngur, glens og grín sem engan mundi svíkja, en í sýningunni eru um tuttugu leikarar.    Þannig að mannlíf er gott og Skag- firðingar horfa glaðbeittir til góðs vors og betra sumars. SAUÐÁRKRÓKUR Björn Björnsson fréttaritari Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Jóhannes Geir Á vegum Listasafnsins verður bráðlega sýning í Safnahús- inu, sýning sem tileinkuð verður skagfirska listamanninum Jóhannesi Geir. ÞAÐ var fyrir sex og hálfu ári að bandarísk yfirvöld hófu að veita vottorð um að matvæli væru lífræn. Síðan hefur mikil vakning átt sér stað. Salan hefur tvöfaldast og er nú svo komið að þrjár af hverjum fjórum mat- vöruverslunum í landinu selja líf- rænt ræktuð matvæli. Það sem áður var jaðariðnaður er orðið að stóriðnaði. Því fer hins vegar fjarri að þorri Bandaríkjamanna hafi tileinkað sér heilbrigt neyslumynstur á fæðu. Tölurnar tala sínu máli. Bandaríkjamenn fá sjö prósent hitaeininga sinna úr gosdrykkjum eða meira en úr grænmeti. Þriðj- ungur landsmanna er of þungur og það dugar þessum hópi ekki að auka hlut lífrænnar fæðu, að mati rithöfundarins Mark Bittman, sem þekktur er fyrir umfjöllun sína um kosti grænmetisfæðis. Að hans mati þarf fleira að koma til. Minni neysla á afurðum sem unnar eru úr dýrum er ofarlega á blaði; hver Bandaríkjamaður borð- ar að meðaltali kíló af slíkum afurð- um á dag með tilheyrandi álagi á vistkerfin. Þá gæti neytendur ekki endilega að því hvort lífrænt rækt- aðar vörur eru úr nágrenninu eða fluttar um langan veg með tilheyr- andi mengun. Til að gera illt vera hafi margir bændur sem framleiði lífrænar vörur ekki efni á að fá vottorð fyrir framleiðslu sinni. Betra að borða rétt en lífrænt Smelltu á notadir.brimborg.is og veldu notaðan bíl fyrir þig – farðu síðan á bgs.is og sannreyndu tilboð dagsins. Komdu í Brimborg í dag. Fjöldi annarra Volvo bíla í boði. Hringdu núna í síma 515-7000. Notað Volvo XC90 V8 SE AWD (AT402) 4,4 bensín sjálfskiptur 7 manna Rafdrifin framsæti, sóllúga, dráttarbeisli ofl. Skrd. 02/2006. Ek. 40.000 km. Ásett verð 6.490.000 kr. Afsláttur 1.300.000 kr. Tilboðsverð 5.190.000 kr. -20% -17%-12%-20% Volvo V50 SE (TT668) 2,4 bensín sjálfskiptur station Leðurinnrétting ofl. Skrd. 09/2006. Ek. 33.000 km. Ásett verð 3.690.000 kr. Afsláttur 440.000 kr. Tilboðsverð 3.250.000 kr. Volvo C30 T5 SE (JSB20) 2,5 Turbo bensín beinskiptur 3 dyra Spoilerakitt, 17" álfelgur, leðurinnrétting ofl. Skrd. 08/2007. Ek. 16.000 km. Ásett verð 4.200.000 kr. Afsláttur 710.000 kr. Tilboðsverð 3.490.000 kr. Volvo S40 SE (JL071) 1,8 bensín beinskiptur 4 dyra Skrd. 03/2005. Ek. 49.000 km. Ásett verð 2.430.000 kr. Afsláttur 490.000 kr. Tilboðsverð 1.940.000 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.