Morgunblaðið - 24.03.2009, Page 24

Morgunblaðið - 24.03.2009, Page 24
24 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009 ÞAÐ er flestum al- kunna að umræðan um Evrópusambandið ætl- ar að verða þjóðinni erfið. Það er enginn einhugur um hvaða leið er þjóðinni fyrir bestu og afstaðan til ESB sundrar þjóðinni í fylkingar. Þeir sem vilja ganga lengst vilja gerast aðilar að Evrópusambandinu sem allra fyrst en þeir sem vilja ganga skemmst vilja sig hvergi hræra. Á meðan hlustar almenn- ingur á hvern sérfræðinginn á fætur öðrum um ágæti þess að gera ekkert, fara í aðildarviðræður (leggja inn að- ildarumsókn) eða að Ísland gerist að- ili að Evrópusambandinu. Hver reiknar með sínum reiknistokki og útkoman er alltaf þeim í hag sem reiknar. Miðað við afstöðu stjórn- málaflokkanna í dag þá stefnir í erf- iðar stjórnarmyndunarviðræður eft- ir kosningar sem við megum síst við í dag. Þjóðstjórn þarf að mynda að loknum kosningum. Rök fyrir endurskoðun EES- samnings Í fyrsta lagi eru allir sammála að samningurinn um Evrópska efna- hagssvæðið (EES-samningurinn) hafi reynst Íslendingum farsæll ef undanskilið er klúðrið með innleið- ingu á bankalöggjöf og samkeppn- islögum. Örugglega hefði mátt vanda betur til þeirrar innleiðingar og nýta betur ákvæði um eftirlit o.þ.h. Inn- leiðingin á matvælalöggjöf ESB hef- ur sýnt okkur að mikið vantar upp á að stjórnsýslan nýti sér til fullnustu þau ákvæði sem löggjöfin felur í sér í raun. Að taka við löggjöf frá ESB án þess að heimfæra hana upp á að- stæður hérlendis getur reynst hættulegt. Það þarf alltaf á frumstigi reglusetningar að gera athugasemdir og leita strax leiða fyrir und- anþágur byggðar á sér- stöðu með vísun í sátt- mála og reglur ESB. Í öðru lagi er allir sammála um að EES- samningurinn þarfnast endurskoðunar með til- liti til þeirra breytinga sem annars vegar hafa orðið á sáttmála ESB og hins vegar breytinga sem orðið hafa á að- stæðum í EES löndunum þremur. Ég á von á að fullur skilningur sé á þessu innan ESB og hjá öllum aðild- arríkjum EES. Hér þarf að huga að þeirri grundvallarbreytingu sem orðin er á valdakerfi ESB með aukn- um völdum ráðherraráðsins og Evr- ópuþingsins á kostnað framkvæmda- stjórnar ESB. Þegar EES samningurinn var gerður var fyrst og fremst hugað að samskiptum við framkvæmdastjórnina sem hafði mestu völdin á þeim tíma. Þess vegna þarf að endurskoða alla stofn- anauppbyggingu EES-samningsins varðandi samskipti við ESB- stofnanir. Jafnframt þurfa EES- ríkin að knýja á um að myntsamstarf bætist við samninginn vegna aukins vægis gjaldmiðils ESB (evru) á innri markaðnum. Kemur til greina að taka upp evru og njóta skjóls af Seðlabanka Evrópu? Það hlýtur að vera eðlileg krafa þar sem eðli innri markaðarins hefur breyst vegna sterkrar stöðu evrunnar á kostnað gjaldmiðla EES-landanna (Íslands og Noregs). Í þriðja lagi þarf að gera ESB grein fyrir því að ekkert hafi breyst í EES-löndunum hvað varðar and- stöðu við afsal fullveldis og mikla andstöðu innan landanna við hina sameiginlegu sjávarútvegsstefnu og sameiginlegu landbúnaðarstefnu ESB. Þetta ætti ekki að koma ESB á óvart enda hefur þetta alltaf legið Jón Baldur Lorange skrifar um Evrópumál Jón Baldur Lorange » Allt stefnir í erfiðar stjórnarmynd- unarviðræður eftir kosningar sem við meg- um síst við í dag. Þjóð- stjórn ætti að mynda að loknum kosningum. Höfundur er stjórnmálafræðingur. fyrir frá upphafi. Með endurskoðun og útvíkkun EES-samnings er sam- starfið við ESB endurnýjað á nýjum grunni og undirstrikað að EES- löndin vilja gott og náið samstarf við önnur Evrópuríki. Í fjórða lagi er ekki mikill áhugi á því innan ESB í dag að fara í við- ræður við ný ríki um aðild vegna þeirrar miklu óvissu sem er uppi í fjármálakerfum ríkja og alls heims- ins. Ríki sem eru í myntsamstarfinu (Euro-zone) eru í basli með að upp- fylla Maastricht-skilyrðin um stöð- ugleika og allt stefnir í að slakað verður á skilyrðunum a.m.k. um leyfilegan halla á ríkissjóði. Íslend- ingar eiga þess vegna að nýta sér tækifærið vegna millibilsástandsins innan ESB, svipað og við gerðum þegar EES-samningurinn var gerð- ur, og óska eftir endurskoðun EES- samningsins með útvíkkun hans í huga o.fl. til að efla samstarfið á hin- um innri markaði sambandsins. Það er ekki ESB í hag að eitt af EES- ríkjunum „falli“ vegna hugsanlega gallaðrar löggjafar um banka- starfsemi (innlánsreikninga) ESB. Látum ESB finna til ábyrgðar og losa okkur úr þeim vanda, sem þeir áttu stóran þátt í að skapa með ótraustri löggjöf. Sjálfstæðisflokkurinn á að marka þessa stefnu sátta um ESB á kom- andi landsfundi sínum. Það kallast að taka frumkvæðið í umræðunni – þjóðinni til heilla. Sáttaleiðin er endur- skoðun á EES-samningi SJÚKDÓMURINN cystik fibrosis eða slímseigjusjúkdómur er víkjandi erfðasjúk- dómur sem hefur áhrif á starfsemi út- kirtla líkamans. Eldri aðferð við greiningu sjúkdómsins var að gert var svitapróf. Sviti fólks með cystik fibrosis er saltari en meðalmanns- ins. Í dag er frekar notast við blóð- prufu til að skanna erfðamengið þó að svitaprófið sé einnig notað. Vegna truflana á starfsemi útkirtl- anna eru þeir margir stíflaðir eða starfa með óvirkari hætti. Þetta á við um brisið sem er að hálfu leyti útkirtill, (pancreas)-hlutinn. Vegna truflana eða stíflu á leiðum melt- ingarhvatanna þurfa sjúklingar að taka ensým með mat til að brjóta niður næringarefni, s.s. fitu. Án lyfjanna rennur næringin ómelt gegnum meltingarfærin. Þessar truflanir hafa þau áhrif að fólk með CF er oft eins og það sé vannært. Þó að það borði jafnvel meira en jafnaldrarnir skilar næringin sér ekki alla leið. Þá hefur sjúkdóm- urinn CF áhrif á starfsemi lungna. Slímið í lungum sjúklinganna er þykkara en í meðalmanninum. Einnig starfa bifhárin ekki eðlilega. Fylgjast þarf reglulega með sýklaf- lóru lungnanna. Vegna þessara truflana er auðvelt fyrir sýkla að setjast að í lungunum. Fólk með CF þarf reglulega, stundum stanslaust, að taka inn sýklalyf. Bæði í töflu- formi og í æð eða með innúðalyfjum. Þá er starfsemi lungna oft skert svo að úthald við leiki, störf og það sem fengist er við er minna en hjá þeim sem ekki hafa sjúkdóminn. Eins og áður seg- ir er CF víkjandi erfðasjúkdómur. Hann verður til vegna erfðagalla sem kemur frá báðum foreldrunum, sem báðir eru einkennalausir. Ekkert í líðan eða þekktum ein- kennum vísar á þennan erfðagalla foreldranna. Erfðagallinn er einna algeng- astur í indóevrópsku fólki. Um einn af hverjum 25 er með erfðagallann. Síðan þurfa tveir einstaklingar af þessum 1/25 að eiga saman barn til að líkur verði á að barn með CF fæðist. Að meðaltali eru fjórðungs- líkur (¼) á að fólk eignist veikt barn. 2/4 að barn þess verði arfberi en ¼ að að verði einkenna og ekki arfberi. Nú á tímum síaukinnar þekkingar á erfðum og hverju erfðagallar valda hafa verið bundn- ar vonir við að lækning eða úrbæt- ur á líkamlegri starfsemi CF sjúk- linga batni. Um 1990 fannst erfðagallinn sem veldur sjúkdómn- Um cystik fibrosis eða slímseigjusjúkdóm Njörður Helgason skrifar um víkjandi erfðasjúkdóm » Cystik fibrosis er al- gengasti víkjandi erfðasjúkdómur í indó- evrópska kynstofninum. Stöðugar rannsóknir sjúkdómsins eru í gangi í Evrópu og Ameríku. Njörður Helgason Höfundur er húsasmiður og er faðir 18 ára stúlku með cystik fibrosis. um. Síðan hafa fundist fleiri gerðir gallans. Þó allir á sama litningnum en hver með sínu nafninu. Þessa þekkingu vona allir, þar á meðal Gordon Brown forsætisráðherra Englands, sem á soninn Fraser, tveggja ára, er hefur cystik fibrosis að verði hægt að nota til að hjálpa til við að finna lækningu á sjúk- dómnum. Stofnfrumurannsóknir eru ein leiðanna að takmarkinu. Fólk lítur með vonaraugum til framtíðarinnar. Vonar að hægt verði að finna úrbót fyrir sjúk- lingana, til að þeir lifi áhyggju- minna lífi. Þó að við búum við mjög gott heilbrigðiskerfi og góðan skiln- ing stjórnvalda á nauðsyn þess að bregðast vel við, þá er það ekki alls staðar. Í fátækari löndum eru sýklalyf dýr og heilbrigðisþjónustan ekki jafn góð og við þekkjum. Ég bendi á þessa heimasíðu til frekari upplýsinga: http://www.cyst- iskfibrose.dk HINN 12. mars sl. lagði borgarráðsfulltrúi Samfylkingar, Dagur B. Eggertsson, fram bókun í borgarráði vegna kaupa Reykja- víkurborgar á húsunum Laugavegi 4-6. Bókun og málflutningur borg- arráðsmannsins felst í að allt of miklu fé hafi verið sóað í kaup húsanna Laugaveg- ar 4-6. „Að fórnarkostnaður Reykja- víkurborgar verður töluvert yfir hálfum milljarði króna vegna vegna hinna makalausu kaupa á Laugavegi 4 og 6. Allt vegna þess að Sjálfstæð- isflokkurinn vildi stöðva friðun húsanna sem þá var í óformlegu ferli.“ Þegar menn slá sig til riddara sjálfir á þann hátt sem borgarráðs- maðurinn gerir tilraun til og ekki í fyrsta sinn, minnir það lítið eitt á hinn hugumprúða riddara don Kí- kóta frá Manca á Spáni sem ákvað sjálfur að verða riddari. Misskilningur borgarráðsmanns- ins virðist einkum felast í að friðun húsanna hefði sparað borginni stórfé þar sem Húsafriðunarsjóður hefði borgað brúsann. Ekki er sjálfgefið að friðun húsa skapi bótaskyldu fyrir Húsafriðunarsjóð eða ríkissjóð nema síður sé. Borgarráðsfulltrúinn þyrfti að kynna sé betur VI. kafla 33. gr. skipulags- og byggingarlaga, sem fjallar um bótaskyldu sveitarfélaga vegna ákvarðana um verndun eða friðun húsa. Ef húsin hefðu verið friðuð hefði Reykjavíkurborg borið skylda til að endurskoða deiliskipu- lagið í samræmi við friðunar- ákvæðin. Hvað halda menn að eig- endur lóðar með samþykkt byggingarleyfi hótels upp á 4 hæðir mundu þá gera? Er ekki líklegt að borgin ætti yfir höfði sér skaðabóta- mál? Svo virðist vera að borgarráðsmað- urinn telji að þjóðin þ.e. ríkissjóður eigi að standa straum af mis- tökum sem hann og samherjar hans eru ábyrgir fyrir og friðun húsanna hefði tryggt það. Þá virðist lagaskylda sveitarfélaga sbr. III. kafla 9. gr. skipulags- og byggingarlaga sem fjallar um skipulags- skyldu hafa verið þverbrotin í valda- tíð borgarráðsmannsins, en þar seg- ir: Ef innan marka skipulagssvæðis eru einstakar byggingar, mannvirki, húsaþyrpingar, náttúruminjar eða trjágróður sem æskilegt er talið að varðveita vegna sögulegs, nátt- úrulegs eða menningarsögulegs gild- is, án þess að um lögformlega friðun sé að ræða, skal setja í viðkomandi skipulagsáætlun ákvæði um hverf- isvernd. Þar kemur fram að varðveisla húsa þarf ekki endilega að þýða frið- un heldur hverfisvernd. Árið 2000 lá fyrir húsakönnun Árbæjarsafns þar sem mælt var með verndun götu- myndar umræddra hús við gerð deiliskipulagsins. Þá höfðu sumir starfsmenn borgarskipulags einnig stutt málið ásamt Torfusamtök- unum. Ekki var farið eftir því. Það er hins vegar rétt hjá borgarráðs- fulltrúanum að lítið heyrðist frá húsafriðunarnefnd á þessum tíma og er það miður. Sem þáverandi for- stöðumaður hlýt ég að taka á mig nokkra sök þar. Ólafur F. Magnússon, þáverandi borgarfulltrúi og síðar borgarstjóri, kom til skjalanna árið 2005 og lagði til að húsin yrðu varðveitt. Ef farið hefði verið eftir hans tillögum hefði kostnaðurinn orðið umtalsvert minni. Í tíð meirihluta borgarstjórnar undanfarin ár þar sem borgarráðs- Magnús Skúlason skrifar um skipu- lagsmál Magnús Skúlason Dagar riddaranna eru ekki taldir VEGNA greinar viðskiptaráð- herra í Mbl. 20.3. sl. Gefum okkur að fjórir menn eigi í viðskiptum. Köllum þá Tryggva, Þór, Herbert og Gylfa. Tryggvi, Þór og Herbert skulda Gylfa 10 milj. kr. hver. Tryggvi er vel stæður með góðar tekjur og á ekki í neinum vandræð- um með að standa í skilum. Þór getur ekki staðið í skilum nema hann fái 20% afslátt á skuldum sín- um. Herbert mun ekki geta greitt til baka sitt lán, hvort sem hann fær afsláttinn eða ekki. Ef Gylfi gefur 20% afslátt á skuldum sínum fær Gylfi til baka 2 x 8 miljónir kr. í staðinn fyrir 1 x 10 miljónir kr. ef hann gæfi engan afslátt. Að auki fær Tryggvi tvær miljónir kr. í sinn vasa sem hann notar í að kaupa sér vélsleða eða mótorhjól. Þeir pen- ingar eru þannig komnir í veltuna hjá sölumanninum sem seldi Tryggva vélsleðann eða mót- orhjólið og gat hann þá frestað upp- sögn á einum starfsmanna sinna. Gefum okkur að Gylfi hafi fengið framangreinda peninga fyrir sölu á íbúð fyrir rúmu ári. Frá þeim tíma hefur verð á íbúðum staðið í stað á meðan verðtrygging hefur hækkað lán um 20%. Verðtryggingin ein og sér hefði þannig fært Gylfa um 20% stærri fasteign en hann seldi fyrir ári miðað við að lántakendur hefðu staðið í skilum og lánin öll verið greidd til baka með verð- tryggingu. Niðurstaða þessara hugleiðinga er að hag allra aðila væri best borgið með 20% afslætti á lánum og þar með hag þjóðarinnar í heild. Meira að segja þeir sem lánað hafa peninga fá sömu verðmæti til baka þó að 20% afsláttur sé gefinn ef allt borgast til baka, eins og sést á þessu dæmi. Hér er vissulega um einföldun að ræða, en þannig var það einnig í grein ráðherra. Brenndu þig ekki á því Gylfi, að gleyma öðrum aðila málsins, þegar lán eru annars vegar. Sigurður Ingólfsson Gleymdirðu ekki einhverju Gylfi? Höfundur er framkvæmdastjóri. AUGLÝSINGASÍMI 569 1100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.