Morgunblaðið - 24.03.2009, Blaðsíða 29
Minningar 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009
inn að aðstoða ef okkur börnin van-
hagaði um eitthvað. Þú varst mikill
reglumaður, lifðir heilbrigðu lífi og
stundaðir vinnu vel, það mætti telja á
fingrum annarrar handar hversu oft
þú varst frá vinnu. Golfáhugi þinn var
mikill eins og allir sem þekktu þig
vita. Golfið átti hug þinn allan og má
segja að allir í fjölskyldunni hafi smit-
ast af áhuga þínum á þessari
skemmtilegu íþrótt, bæði börn og
barnabörn. Það var ekki nóg með að
þú spilaðir mikið golf heldur varstu
einnig liðtækur í því að dytta að golf-
skálanum sjálfum. Þú hikaðir ekki við
að ganga í ýmis verk hvort sem það
var að mála glugga eða grindverk,
hreinsa órækt í kringum skálann eða
eitthvað annað sem þurfti að gera.
Þegar mót voru haldin í Leirunni
varst þú ætíð mættur á svalirnar með
kíkinn og fylgdist með öllu því sem
fram fór. Oft heyrði maður að menn
voru að koma og spyrja þig hvernig
þessum og hinum gengi, vitandi það
að þú fylgdist vel með öllu sem fram
fór á vellinum. Það má eiginlega
segja að þú hafir verið eitt af hús-
gögnunum í Leirunni. Vitna ég í orð
ungs drengs sem vanur var að spila
golf þegar hann spyr frænku sína
einn daginn „Hvar er maðurinn sem
var alltaf uppi á svölunum með kík-
inn?“ en þá voru veikindin þín farin
að ágerast og komur þínar út á golf-
völl urðu færri og færri.
Elsku pabbi, með þessum orðum
vil ég kveðja þig og þakka þér fyrir
allt það sem þú hefur gert fyrir mig
og mína.
Hvíldu í friði, elsku pabbi.
Þín dóttir
Íris.
Elsku pabbi, nú ertu farinn,eftir
nokkurra ára baráttu við hinn ógn-
vekjandi sjúkdóm Alzheimer. Og hér
sit ég og hugsa til baka með mikinn
söknuð í huga.
Í gegnum árin varst þú mikið
hraustmenni, þangað til þú fékkst al-
varlegt hjartaáfall fyrir allmörgum
árum. En þú komst í gegnum það af
þínum alkunna dugnaði, hörku og
samviskusemi. En þú réðst ekki við
Alzheimerinn frekar en aðrir sem
þann skelfilega sjúkdóm fá.
Þegar þú uppgötvaðir golfið þá tók
það næstum allan þinn tíma hvort
sem það var að spila eða fylgjast með
öðrum. Eins varstu duglegur ef
þurfti að mála eða dytta að einhverju
öðru í kringum skálann. Þú fylgdist
vel með okkur bræðrum í golfinu og
hvattir okkur áfram, ekki varstu allt-
af sáttur við árangurinn og léstu okk-
ur þá vita af því, en hrósaðir okkur ef
vel gekk. Þú varst ótrúlega næmur á
að sjá hvar hvíta kúlan lenti og þegar
þú var á svölunum eða á horninu þínu
í bílnum með kíkinn að fylgjast með,
ef maður sló kúluna ekki í alveg í
rétta átt og þurfti að leita utan braut-
ar þá vísaðir þú manni oftar en ekki á
rétta staðinn. Minning þín lifir.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Hvíl í friði, elsku pabbi
Ástþór Arnar.
Elsku afi, þessi síðustu ár horfðum
við á veikindi þín ágerast og þú varðst
fjarlægari með tímanum. Nú ertu
farinn og kominn á stað þar sem þér
líður betur. Við munum alltaf minn-
ast góðu stundanna sem við áttum
með þér.
Er mér (Berglindi) minnisstætt
þegar ég var að vinna í golfbúðinni í
Leirunni eitt sumarið. Þú varst alltaf
á vappinu þarna í kring og komst allt-
af við hjá mér. Einu sinni komst þú
inn og ég ákvað að prófa að dressa þig
upp og lét ég þig máta hinar ýmsu
golfpeysur og jakka. Þú áttir ekki
aukatekið orð yfir þessum yfirgangi í
mér en lést þó undan. Þegar þú varst
alklæddur labbaðir þú að speglinum,
virtir þig fyrir þér og spurðir: „Á
þetta að vera eitthvað flott?“ Þér leist
ekkert á þetta og varst sko feginn að
komast í þín eigin föt aftur.
Eru okkur einnig ofarlega í minni
þau skipti þegar við komum inn göt-
una á Vörðubrúninni og á móti okkur
tók tónlist sem ómaði frá bílskúrnum.
Við kíktum auðvitað inn til þín og þú
varst svo spenntur að sýna okkur
hulstrin af hinum og þessum geisla-
diskum sem þú hafðir nýlega keypt.
Eyddir þú miklum tíma þarna niðri
ásamt öllum golfkúlunum og öðrum
gömlum munum sem þú hafðir safnað
í gegnum tíðina.
Elsku afi, þú varst okkur alltaf svo
góður og kær og munt alltaf lifa í
minningu okkar. Við elskum þig og
vonandi líður þér vel á himnum.
Hvíldu í friði.
Þín barnabörn,
Berglind Ýr, Sindri og Einar Þór.
Elsku afi minn, nú ertu farinn, við
fengum ekki langan tíma saman en
ég var þó svo heppinn að ná rúmu ári
með þér.
Þú varst orðinn lúinn þegar ég kom
í heiminn en samt kom alltaf smá
auka þrek þegar ég kom í heimsókn
til ykkar ömmu. Þannig vissi ég að
þér þótti vænt um mig og mér þótti
vænt um þig. Þú komst alltaf fram til
okkar og kjáðir við mig og potaðir og
sagðir „kaða, kaða, duglegur dreng-
ur“.
Og að launum fékkstu lítið bros frá
mér og ég veit að það gladdi þig.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
(Ásmundur Eiríksson.)
Hvíldu í friði, afi minn,
Andri Snær.
Elsku afi minn, það fá engin orð
lýst hvað mér þótti vænt um þig.
Þú áttir þér hlið þar sem þú reyttir
af þér brandarana og varst svo góður.
Sú hlið sást ekki nógu oft en þegar
hún sást var eins og við værum stödd
á uppistandi.
Þú varst með þennan glampa í aug-
unum sem sýndi mér hvað þér þótti
vænt um mig og alla aðra, þú bara
kunnir ekki alveg að sýna það.
Þú varst nú samt alveg frábær.
Sterkustu minningarnar eru frá
golfskálanum sem var heimili þitt nr.
2. Og eyddir þú þar miklu af tíma þín-
um og hafðir gaman af.
Loksins fékkstu að fara á betri stað
af því þú varst orðinn svo veikur. Það
var það besta sem gat gerst fyrir þig
og vonandi líður þér betur.
Allar góðu minningarnar ætla ég
að geyma innst í hjartanu.
Sandra Lind Þrastardóttir
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Guðný (Didda).
stað á þessum fyrstu árum mínum
með Ingu dóttur þeirra. Ég minnist
Fríðu sem glæsilegrar og svip-
sterkrar konu sem sat við eldhús-
borðið á Ferjubakkanum með píp-
una sína sér í hönd. Hún var kvik og
snör í hreyfingum og því get ég
ímyndað mér að síðustu árin hafi
verið henni erfið. Erfið í þeim skiln-
ingi að þurfa að vera rúmliggjandi
og bundin hjólastól þó svo að aldrei
heyrði ég hana kvarta yfir því. Enda
leið henni vel í sínum fallegu vist-
arverum á Sóltúni.
Mig langar að þakka henni fyrir
ómetanlega aðstoð við pössun barna
okkar, bæði þegar þau voru lítil og
eins er við stóðum í húsbyggingu, þá
var oft gott að leita til Fríðu þegar
unnið var langt fram á kvöld við ým-
is störf.
Börnin mín þau Einar Már, Odd-
geir og Fríða Sóley sakna ömmu
sinnar. Öll minnast þau hennar sem
skemmtilegrar ömmu sem oft gat
komið þeim á óvart með tilsvörum
eða athöfnum, hún var stríðin og
alltaf stutt í hláturinn. Ég veit að
það verður nöfnu hennar erfitt að
geta ekki verið hér í dag og kvatt
ömmu sína, en hún gerir það þó á
sinn hátt frá Frakklandi.
Þó leiðir hafi skilið, þótti mér allt-
af gott að koma í heimsókn til henn-
ar í Sóltún, setjast hjá henni og
spjalla bara um daginn og veginn.
Það eru margar góðar minningar
sem koma upp í hugann en hér ætla
ég að nema staðar og segi takk fyrir
mig, Fríða mín.
Hjörtur Ólafs.
✝
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir,
EIÐUR ÁRNASON,
dvalarheimilinu Sæborg,
Skagaströnd,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar sunnudaginn 22. mars.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Elfar Eiðsson, Jóhanna Benný Hannesdóttir,
Sævar, Daði Snær, Eiður Smári, Birkir,
Guðrún Árnadóttir.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁGÚSTA ÓSKARSDÓTTIR,
Hrafnistu,
áður til heimilis í Fannafold 89,
lést á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn 22. mars.
Magnús Sigurðsson,
Sigurður Örn Magnússon, Kristín Guðbjörg Haraldsdóttir,
Haraldur Ágúst Sigurðsson, Auður Brynjólfsdóttir,
Magnús Sigurðsson,
Einar Þór Sigurðsson, Þrúður Maren Einarsdóttir,
Kristín Jónsdóttir,
Ragnar Magnús Einarsson, Linda E. Skaug
og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar,
HALLDÓR VIÐAR PÉTURSSON
bryti,
Hrafnistu í Hafnarfirði,
áður til heimilis í Gullsmára 8,
Kópavogi,
lést laugardaginn 21. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Vilhjálmur Örn Halldórsson, Svanfríður Ásgeirsdóttir,
Kolbrún Halldórsdóttir, Ágúst Pétursson,
Elín Huld Halldórsdóttir, Gunnar Theodór Þorsteinsson,
Sigrún Halla Halldórsdóttir,
Pétur Már Halldórsson, Sigurlína Margrét Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir mín, dóttir okkar, systir, mágkona
og frænka,
JÓHANNA SIGRÍÐUR EYJÓLFSDÓTTIR,
Andrésbrunni 3,
Reykjavík,
lést á heimili foreldra sinna að morgni mánudagsins
23. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Sigurður Ívar Sigurðsson,
Kristjana I. Heiðdal, Eyjólfur Högnason,
Ásta Eyjólfsdóttir, Þorgeir Ástvaldsson,
Högni Eyjólfsson
og frændsystkini.
✝
Ástkær móðir okkar, amma, langamma og systir,
UNNUR JÓHANNSDÓTTIR,
Háholti 13,
Keflavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð Grindavík
laugardaginn 21. mars.
Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn
26. mars kl. 14.00.
Oddný Björgólfsdóttir,
Björgólfur Stefánsson yngri,
Jóhann Björgólfsson,
Þórólfur Beck,
Ólöf Oddný Beck,
Eiríkur Beck,
Kristín Jóhannsdóttir.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
MARGRÉT EINARSDÓTTIR,
Hlíðarhúsum 7,
áður til heimilis
Stigahlíð 30,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 19. mars.
Fyrir hönd aðstandenda,
Einar Ásbjörnsson.
✝
Sambýlismaður minn, sonur minn og bróðir okkar,
BJÖRN ÞÓR BJÖRNSSON,
verður jarðsunginn frá Hjallakirkju í Kópavogi
fimmtudaginn 26. mars kl. 13.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hans er bent á SOS-barnaþorpin.
Jóhanna Hafliðadóttir,
Björn Jónatan Emilsson,
Eilífur Björnsson,
Birgir Örn Björnsson,
Katrín Björnsdóttir,
Einar Björnsson.