Morgunblaðið - 24.03.2009, Qupperneq 31
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009
✝ Bergljót Vikt-orsdóttir fæddist
á Siglufirði 5. nóv-
ember 1957. Hún
lést á krabbameins-
lækningadeild Land-
spítalans við Hring-
braut 12. mars 2009.
Foreldrar hennar
voru Ólöf Anna
Ólafsdóttir versl-
unarkona, f. á Ísa-
firði 6. nóvember
1929, d. 22. janúar
2005, og Viktor Þor-
kelsson apótekari, f.
í Siglufirði 25. mars 1923, d. 13.
júlí 1994. Systkini Bergljótar eru
Ólafur Guðlaugur, f. 9. janúar
1949, Steinar, f. 30. mars 1952, og
Hafsteinn, f. 13. janúar 1965.
Eiginmaður Bergljótar er Ey-
steinn Þórir Yngvason atvinnurek-
andi, f. í Reykjavík 8. maí 1955.
Foreldrar hans eru Guðrún Jó-
hanna Helgadóttir prestsfrú, f. í
Keflavík 7. september 1927, og
séra Yngvi Þórir Árnason, f. í
Reykjavík 17. september 1916, d.
4. febrúar 1991.
Bergljót og Eysteinn eignuðust
þrjá syni, þeir eru: 1)
Ægir Þór fréttamað-
ur, f. 3. nóvember
1977, sambýliskona
Margrét Hannesdóttir.
2) Gísli Jóhann við-
skiptafræðingur, f. 30.
september 1980, sam-
býliskona Margrét
Reynisdóttir, þau eiga
nýfætt stúlkubarn. 3)
Yngvi Þórir útvarps-
maður, f. 2. nóvember
1987, sambýliskona
Jónína Berta Stef-
ánsdóttir.
Bergljót og Eysteinn bjuggu alla
tíð í Reykjavík. Fyrstu árin á
Laugavegi í miðbæ Reykjavíkur og
síðar í Breiðholti. Þau fluttu svo á
Kleppsveg í Laugarneshverfi og
bjuggu þar um árabil, þar til þau
fluttu á Sunnuveg 17 í Langholts-
hverfi vorið 1996. Bergljót starfaði
hjá Innkaupastofnun Reykjavík-
urborgar í nokkur ár, eða þar til
hún og eiginmaður hennar hófu
sjálfstæðan atvinnurekstur.
Útför Bergljótar verður gerð frá
Langholtskirkju í dag, og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Elsku mamma mín.
Orð fá ekki lýst hversu þungan
harm ég ber í brjósti vegna fráfalls
þíns, enda bar andlát þitt svo ótrúlega
skjótt að. Það er svo sárt að hugsa um
allt það sem þú áttir eftir að upplifa
og gera á lífsleiðinni, en margar fagr-
ar minningar sem ég geymi um þig
sefa sorgina.
Ég var oft kallaður mömmustrákur
þegar ég var að vaxa úr grasi og þó ég
hafi neitað því á þeim tíma, gengst ég
fúslega við því í dag. Ég var og verð
mömmustrákur alla tíð, því betri
mömmu er ekki hægt að hugsa sér.
Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur
sama hvað bjátaði á og gættir okkar
strákanna eins og sjáaldurs augna
þinna. Þú huggaðir mig og studdir og
stappaðir í mig stálinu þegar mér
fannst veröldin ósanngjörn.
Sem ungur maður vissi ég sjaldan í
hvorn fótinn ég átti að stíga né hvert
ætti að stefna. Þú hélst í höndina á
mér á óvissutímunum og leiðbeindir
mér og ef ekki hefði komið til leiðsögn
þín, umhyggja og viska hefði ég aldrei
sótt mér menntun á því sviði sem ég
starfa á í dag. Það var nefnilega þann-
ig að þú þekktir mína hæfileika og
eiginleika betur en ég sjálfur.
Betri og fallegri kona en þú er
vandfundin hér á jörðu. Þú tókst á
móti öllum með opnum örmum og án
fordóma og vildir alltaf láta gott af
þér leiða. Þú hafðir ríka réttlætis-
kennd og komst eins fram við alla, af
virðingu og tillitssemi. Ég gerði
stundum grín að óbilandi áhuga þín-
um á hvað hinn og þessi var að gera í
fjölskyldunni, en það var þér bara eðl-
islægt, því þér þótti svo vænt um alla.
Þú bræddir hjörtu allra sem urðu á
vegi þínum með einlægni þinni og
umhyggju.
Ef mig hefði grunað að óveðursský
væru í vændum, hefði ég varið mun
meiri tíma hjá þér síðustu árin, en ég
hef verið svo mikið fjarri þér vegna
menntunar minnar og atvinnu á und-
anförnum misserum. Sá tími kemur
ekki aftur. Einmitt þess vegna var
tíminn sem ég átti með þér uppi á
spítala síðustu dagana mér svo ómet-
anlegur og kær, því þá voru orð sögð
sem löngu voru tímabær.
Þú hélst persónutöfrunum og
kímnigáfunni fram á síðustu stundu.
Segjandi brandara við hjúkrunarkon-
urnar rétt áður en þú lagðir þig í síð-
asta skipti. Það var líka svo lýsandi
fyrir þig, mamma mín, að þrátt fyrir
að dauðinn væri á næsta leiti, hafðir
þú mestar áhyggjur af því hvernig
okkur strákunum og pabba myndi
reiða af. Þú kvaddir líka ekki fyrr en
ég hafði fullvissað þig um að við
myndum spjara okkur og allt yrði í
lagi.
Þú tókst af mér loforð á dánarbeð-
inum að ég myndi gæta strákanna og
það loforð mun ég ætíð heiðra. Heim-
urinn er fátækari eftir að þú fórst, því
með andláti þínu fækkaði í hópi engla
hér á jörðu.
Farðu í guðs friði, elsku mamma
mín, laus við allan sársauka og kvalir.
Guð geymi þig, verndi og vaki yfir
þér. Þú lifir áfram í hjarta mínu.
Þinn sonur,
Ægir Þór Eysteinsson.
Elsku mamma mín.
Það fá engin orð því lýst hve mikið
ég sakna þín og hve heitt ég óska þess
að geta haft þig hér hjá okkur á þess-
um tilfinningaþrungnu tímum. Dóttir
okkar Möggu kom í heiminn hinn 18.
mars, einungis sex dögum eftir að þú
kvaddir hann. Ljósmæðurnar sem
tóku á móti Bellu litlu lýstu fæðing-
unni sem draumafæðingu og erum við
Magga ekki í nokkrum vafa um að þú
eigir þinn þátt í því hversu farsællega
allt gekk.
Ég veit varla hvort okkar var
spenntara fyrir fæðingunni, ég eða
þú, enda var þetta fyrsta barnabarnið
og biðin því búin að vera löng hjá ykk-
ur pabba. Sársaukinn yfir fjarveru
þinni nú er því gífurlegur en ég veit að
þú munt fylgjast náið með okkur og
halda í hönd okkar og leiða í gegnum
uppeldið. Ég vona innilega að Bella
litla fái alla þá góðu kosti sem amma
hennar bjó yfir og ef mér finnst eitt-
hvað uppá vanta mun ég reyna að
miðla því ástkæra, hlýja og um-
hyggjusama uppeldi sem ég fékk frá
ykkur pabba. Betri foreldra er vart
hægt að hugsa sér.
Að lokum langar mig að þakka þér
fyrir allar þær yndislegu stundir sem
við áttum saman, elsku mamma mín.
Þér var alltaf mest umhugað um
hvernig aðrir í kringum þig hefðu það
og breyttist það ekkert þótt þú værir
komin inn á spítala með illvígan sjúk-
dóm. Þér tókst alltaf að láta öllum líða
vel í kringum þig og vona ég af öllu
hjarta að þú hafir notið stundanna
með mér eins vel og ég naut stund-
anna með þér.
Þú varst minn besti vinur og ég
mun hugsa til þín og sakna á hverjum
degi.
Þinn sonur,
Gísli.
Mamma er konan sem heldur í
höndina á manni fyrstu árin, en hjart-
að alla ævi.
Um leið og ég kveð elsku bestu
mömmu mína rifjast upp sætar og
ljúfar minningar. Þegar við skruppum
til Portúgals, kíktum á Sibbu frænku í
Köben, þegar hún studdi mig í fótbolt-
anum þegar ég var polli og síðast en
ekki síst, þegar við keyrðum hringinn
í kringum landið á nokkrum dögum
með pabba.
Mamma mín var ótrúlega skemmti-
leg, klár og kærleiksrík kona. Þegar
það var kalt og dimmt úti var alltaf
hlýtt og bjart hjá mömmu. Ég gat allt-
af leitað til hennar með mín vandamál.
Alltaf tók hún utan um örverpið sitt
og reyndi að sannfæra mig um að allt
yrði í himnalagi. Aldrei hefði mig
grunað að þessi yndislega kona, sem
aldrei hafði gert neinum illt, myndi
hverfa með jafn skjótum hætti og
raun varð. Hvernig á ég að kveðja
þegar mér finnst eins og ég átti mig
ekki á þessu? Lífið er ekki alltaf sann-
gjarnt en ég er svo ríkur að hafa lært
það af elsku mömmu minni. Maður
verður að taka staðreyndunum og
halda áfram með lífið. Mamma kenndi
mér margt. Næstum allt sem ég kann.
Eitt hefði ég þó verið til í að læra bet-
ur. Að vera þolinmóður og umburð-
arlyndur. Engin manneskja hafði jafn
mikla þolinmæði og umburðarlyndi
gagnvart öðrum og elsku mamma.
Hún tók öllum með opnum örmum og
lagði sig fram við að láta öðrum líða
vel í kringum sig. Hún var með svarta
beltið í því. Það var mikið áfall þegar
mamma veiktist. Elsku mamma sýndi
ótrúlegan styrk í sinni baráttu og hún
lagði sig alla fram við að reyna að gera
okkur hinum þetta auðveldara. Mig
langar að þakka öllu því frábæra
starfsfólki Landspítalans sem sá um
elsku mömmu. Ótrúlega gott fólk sem
vinnur erfitt starf á hverjum degi.
Elsku mamma. Ég trúi því að þú sért
ekki horfin að eilífu. Þú ert bara
lengra komin.
Það þarf fólk eins og þig fyrir fólk
eins og mig.
Þinn sonur að eilífu,
Yngvi Þórir Eysteinsson.
Elsku Bella.
Það er svo ótrúlegt að þú sért farin.
Nú sitjum við allar saman og minn-
umst þín, rifjum upp sögur og minn-
ingar okkar um þig. Allar eiga þær
það sameiginlegt að vera lýsandi um
hversu hlý og góð kona þú varst.
Að hitta tengdamömmu sína í
fyrsta skipti getur reynst mörgum
ógnvænlegt. En að hitta þig var eins
og að hitta gamla vinkonu, við spjöll-
uðum eins og við hefðum alltaf þekkst.
Það var svo gaman að sitja í sófanum í
stofunni á Sunnuveginum og spjalla
um lífið og tilveruna, þú gafst okkur
ráð, sama hvort það varðaði syni þína
eða annað í okkar lífi. Bak við glettn-
ina og kátínuna bjó gömul sál sem
hafði svo mikið að gefa. Þú tókst öllum
með opnum örmum, það kemur best
fram í öllum sögunum sem strákarnir
hafa sagt okkur. Þú elskaðir strákana
þína svo heitt og þekktir þá svo vel.
Við munum taka okkur það til fyrir-
myndar, elsku Bella. Strákarnir þínir
eru einstakir, enda fellur eplið sjaldan
langt frá eikinni.
Við munum aldrei geta fyllt það
skarð sem nú hefur myndast hjá
Steina og strákunum. En við munum
gera okkar besta til að hjálpa þeim að
komast yfir þennan erfiða missi.
Þær stundir sem við áttum með þér
eru okkur svo dýrmætar. Síðustu
dagarnir voru einstakir, þú kvartaðir
aldrei heldur hafðir meiri áhyggjur af
okkur hinum, en það var einmitt svo
einkennandi fyrir þig. Þú barst ætíð
hag annarra frekar fyrir brjósti held-
ur en þinn eigin.
Það er svo erfitt að kveðja þig, því
við áttum eftir að upplifa svo margt
saman. En þú ert alltaf með okkur í
hjartanu. Við skulum passa vel upp á
strákana þína, elsku Bella okkar.
Guð geymir nú yndislega konu,
tengdamömmu okkar og vinkonu.
Margrét Hannesdóttir,
Margrét Reynisdóttir og
Jónína Berta Stefánsdóttir.
Það er sárt að sjá á eftir systkini
langt fyrir aldur fram og það gerir
það enn erfiðara þegar kallið kemur
snöggt og líf ástvinar er hrifsað úr
faðmi fjölskyldunnar á ógnarhraða og
hvorki læknavísindi né fyrirbænir
hafa þar nokkur áhrif á. Þó samveran
hafi ekki verið mikil undanfarin ár er
söknuðurinn mikill og ég get ekki
annað en horft yfir farinn veg með eft-
irsjá að hafa ekki notað tímann betur.
En það er eðli mannsins að falla í þá
gildru að trúa á ódauðleika sinn og
halda að tíminn einhvern veginn
standi í stað, allt sé óbreytanlegt, og
gleyma sér í argaþrasi hversdagsins í
stað þess að einbeita sér að því sem
skiptir raunverulega máli.
Bella naut sín í góðra vina hópi og
var frændrækin en hvorttveggja erfði
hún frá móður okkar, en þær mæðgur
deildu miklum áhuga á öllu sem gerð-
ist í stórfjölskyldunni. Þær voru mjög
nánar og samrýmdar alla tíð og völdu
gjarnan að eyða tíma saman þegar
færi gafst. Í veikindum móður okkar,
sem lést fyrir fjórum árum, var Bella
stoð hennar og stytta í baráttu hennar
við krabbameinið sem hún sjálf þurfti
að takast á við svona stuttu seinna. Ég
veit að það hafa verið fagnaðarfundir
þegar þær mæðgur hittust handan
móðunnar miklu og margt skrafað og
skeggrætt og þar gleðjast þær sjálf-
sagt saman yfir fæðingu nýrrar
ömmu- og langömmustelpu.
Síðustu stundirnar sem ég átti með
Bellu á Landspítalanum voru ómet-
anlegar og það var aðdáunarvert að
sjá hvað hún tók veikindum sínum af
miklum kjarki og æðruleysi, enda var
það eðli Bellu að berjast og gefast
ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Það
var ekki síður aðdáunarvert að fylgj-
ast með hvað strákarnir hennar, sem
hún var svo óendanlega stolt af, hugs-
uðu vel um hana og sáu til þess að síð-
ustu dagar Bellu meðal okkar væru
eins þægilegir og ánægjulegir eins og
þessar erfiðu aðstæður leyfðu.
Eysteinn, Ægir, Gísli og Yngvi, ég
votta ykkur öllum mína innilegustu
samúð og óska þess að góður Guð gefi
ykkur kjark og æðruleysi til að takast
á við þennan sára missi.
Elsku Bella, Guð varðveiti þig og
blessi.
Að kvöldi dags er kveikt á öllum
stjörnum,
og kyrrðin er þeim mild, sem vin sinn
tregar,
og stundum skýla jöklar
jarðarbörnum,
og jafnvel nóttin lýsir þeim til vegar.
(Davíð Stefánsson.)
Hafsteinn og fjölskylda.
Bella, yndislega frænka mín, er far-
in frá okkur. Þetta gerðist allt svo
hratt, og eftir situr mikið tómarúm.
Við vorum systkinabörn, alltaf verið
gott samband milli okkar, hún var
þremur árum eldri en ég. Á unglings-
árum hennar dróst aðeins í sundur
með okkur eins og gengur og gerist,
litla frænka var ekki mjög spennandi
þá. Bella var svo snemma komin með
kærasta, hún kynntist honum Ey-
steini sínum svo ung. Vááá hvað mér
fannst hún vera orðin gömul þá. Eftir
að fyrsti prinsinn kom í heiminn þá
færðumst við nær hvor annarri aftur,
litla frænka var ekki lengur svo mikill
krakki. Síðustu 10 árin vorum við
meira en frænkur, við vorum systur.
Alltaf var gaman að heyra í frænku,
hún var létt í lund, við gátum gert
óspart grín hvor að annarri og hlegið
mikið saman. Það má með sanni segja
að við höfum gengið saman í gegnum
súrt og sætt síðustu árin.
Bella mín var alltaf svo fín og flott í
pilsi, svo smart. Annað en ég. Við vor-
um ekki líkar þar enda hlógum við oft
að því, hún var líka mun röskari en ég.
Ég hef stundum sagt: „Nú þarf ég að
taka Belluna á þetta“ ef ég þarf að
vera snögg að gera hluti.
Frænka mín eignaðist þrjá gull-
mola, strákarnir voru hennar líf og
yndi, það kom alltaf viss glampi í aug-
un hennar þegar hún talaði um þá,
þótt ég væri að tala við hana í símann
þá sá ég þennan glampa.
Bella mín náði ekki þeim tíma að
sjá fyrsta barnabarnið, þessi litli sól-
argeisli kom í heiminn sex dögum eft-
ir lát hennar og kemur þessi litla
prinsessa með mikla birtu inn í fjöl-
skylduna á þessum erfiðum tímum.
Elsku Eysteinn, strákar mínir og
stelpur mínar, ég sendi ykkur mínar
innilegustu samúðarkveðjur, megi
góður guð blessa minningu frænku
minnar.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Þín frænka
Sigríður Gísladóttir.
Komið er að kveðjustund, en í dag
kveð ég elsku Bellu mína, svilkonu og
góða vinkonu. Ekki bjóst ég við að
þurfa að kveðja hana svo fljótt. Það
var svo margt sem hún átti eftir að
gera með Steina sínum, strákunum
þeirra og fjölskyldum. Þeir feðgar
syrgja ekki bara eiginkonu og móður
heldur einnig góða vinkonu. Það var
einstakt samband á milli hennar og
sonanna. Hún talaði oft um þá og með
svo mikilli hlýju í röddinni. Hún sagði
mér frá því þegar þeir komu með eitt-
hvað til að gleðja hana eða þegar þeir
höfðu gert eitthvað fyrir hana. Svo
þegar hún hafði fengið fréttir af því að
von væri á fyrsta barnabarninu sínu
þá hringdi hún í mig sama kvöld. Hún
var svo glöð og tók af mér loforð um
að ég myndi ekki segja neinum. Bella
beið spennt eftir litlu ömmustelpunni
sinni en náði ekki að sjá hana hér í lif-
andi lífi. Ég trúi því að hún muni fylgj-
ast með og passa upp á litlu Bellu sína
þaðan sem hún er.
Ég kynntist Bellu fyrir 20 árum
þegar ég kom inn í fjölskyldu manns-
ins mín. Bella tók vel á móti mér og
ekki leið á löngu þar til ég fór að venja
komur mínar til hennar og Steina. Við
höfum í gegnum tíðina farið í ferðir
um landið. Á ferðum okkar spilaði
Bella og matur stórt hlutverk. Það var
t.d. á boðstólum grafið læri, gúllas-
súpa, gómsætar sósur og fræga hum-
arsúpan hennar sem er sú besta sem
ég hef smakkað. Við Maggi fórum
ekki bara í útilegur með henni og
Steina heldur var líka skroppið í utan-
landsferðir og einnig oft út að borða.
Þetta þótti okkur fjórum gaman að
gera saman en minningarnar frá sam-
verustundum okkur munu sefa sorg-
ina. Bella elskaði að sóla sig í útlönd-
um, fara út að borða og njóta
frístundanna með Steina sínum. Ég
dáðist oft að þeim, hvað þau voru sam-
rýmd og kunnu hvort á annað. Það var
alltaf líf og fjör í kringum þau enda
leiddist okkur Magga aldrei þegar við
vorum með þeim.
Bella reyndist mér, Magga og son-
um okkar alltaf vel og viljum við
þakka henni það. Hún sýndi mér ein-
stakan stuðning þegar systir mín lést
úr krabbameini fyrir einu og hálfu ári.
Þá var Bella sjálf búin að ganga í
Bergljót Viktorsdóttir
SJÁ SÍÐU 32
Auðbjörg Pétursdóttir
✝ Auðbjörg Péturs-dóttir fæddist á
Tjörn á Vatnsnesi 11.
apríl 1933. Hún lést á
Dvalarheimilinu
Nausti á Þórshöfn
mánudaginn 16. mars
2009. Foreldrar
hennar voru hjónin Auðbjörg Gunn-
laugsdóttir, f. 3. október 1911, d. 18. maí
1980 og Pétur Gunnarsson, f. 21. júlí
1889, d. 19. september 1946. Systkini
Auðbjargar eru María, f. 23. mars 1932,
Sigurlaug Erla, f. 8. maí 1934, Gunn-
laugur, f. 21. júní 1935, Guðrún, f. 28.
ágúst 1939 og Soffía 3. desember 1941.
Auðbjörg giftist Snorra Gunnlaugs-
syni, f. 11. ágúst 1903. Þau slitu sam-
vistum. Börn þeirra eru: Oddný, f. 21.
febrúar 1951, maður Jakob Jónsson,
hún á 2 börn, býr á Akranesi. Gunn-
laugur, f. 29. nóvember 1952, hann á 3
börn, býr á Akureyri. Stefanía Jónína, f.
19. maí 1957, hún eignaðist 7 börn, eitt
er látið, hún býr á Akureyri, Auðbjörg
María, f. 25. júní 1959, d. 8. október
1959.
Auðbjörg giftist Stefáni Þórarinssyni,
f. 11. janúar 1927. Þau slitu samvistum.
Börn þeirra eru: Hólmfríður, f. 18. ágúst
1966, sambýlismaður Sigurður Krist-
jánsson, hún á 2 börn, býr á Akureyri.
Þórarinn Jónas, f. 8.apríl 1969, sam-
býliskona Erla Baldursdóttir, hann á 4
börn, býr í Kópavogi.
Auðbjörg var í sambúð með Kristjáni
Sigurðssyni, f. 22. júlí 1942. Þau slitu
samvistum.
Barnabörn Auðbjargar eru 18 og
barnabarnabörn eru 9.
Auðbjörg verður jarðsungin frá
Hvammstangakirkju í dag, 24. mars, og
hefst athöfnin kl. 14.
Meira: mbl.is/minningar
Minningar á mbl.is