Morgunblaðið - 24.03.2009, Blaðsíða 36
36 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009
Söngleikurinn sem allur heimurinn elskar!
FORSALA HEFST
KL.10 Á MORGUN!
Tryggðu þér miða strax!
7/5, 8/5, 9/5, 10/5, 13/5, 14/5, 16/5, 17/5,
21/5, 22/5, 23/5, 24/5, 28/5, 29/5, 30/5, 31/5
1000 króna afsláttur ef greitt er
með VISA kreditkorti* Eftir það býðst VISA
korthöfum 500 kr afsláttur af hverjum miða,
meðan birgðir endast, á fyrstu 20 sýningarnar.
Fyrstur kemur – fyrstur fær!
Tryggðu þér miða strax og forsalan hefst!
8/5, 9/5, 10/5, 13/5, 14/5, 15/5, 16/5, 17/5, 20/5, 21/5,
22/5, 23/5, 24/5, 28/5, 29/5, 3/6, 4/6, 6/6, 7/6, 11/6
Sími 568 8000 / borgarleikhus.is
*gildir á opnunardegi forsölu fyrir allt að 10 miða
Einstakt t
ilboð
á opnunar
degi
forsölu!
Sérstakt
tilboð!
Sett upp í samstarfi við
Miðasala í síma 568 8000
eða á borgarleikhus.is
Morgunblaðið/Ómar
Ánægðar mæðgur Sigrún ásamt dóttur sinni, Melkorku Ólafsdóttur flautuleikara, sem lék við afhendinguna í gær.
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
SIGRÚN Helgadóttir, líf- og um-
hverfisfræðingur, hlaut í gær árlega
viðurkenningu Hagþenkis fyrir bók-
ina Jökulsárgljúfur – Dettifoss, Ás-
byrgi og allt þar á milli, sem bóka-
forlagið Opna gaf út.
Hagþenkir hefur frá árinu 1986
veitt viðurkenningu fyrir fræðirit,
námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs
efnis. Frá árinu 2006 hefur Við-
urkenningaráð ennfremur kynnt
lista tíu framúrskarandi fræðirita og
námsgagna er koma til greina.
Í umsögn Viðurkenningaráðs um
verk Sigrúnar segir: Lykill að stór-
brotnu svæði, þar sem afar vel er
fléttað saman sögu, náttúrufræði og
bókmenntum.
„Það er ótrúlega hvetjandi á allan
hátt að fá svona viðurkenningu,“
sagði Sigrún. Hún sagði að við-
urkenningin væri jafnvel enn meira
virði en ella sökum þess að það væru
kollegar í hópi fræðimanna sem
veittu hana. „Ég var nógu glöð með
að vera ein af þeim tíu sem voru til-
nefndir, það var frábært. Ég ætlaði í
raun varla að trúa því, kannski
vegna þess hve bókin lætur lítið yfir
sér.“
Sigrún segist hafa verið í fjögur ár
með bókina í smíðum, en á þeim tíma
hafi hún líka verið í ýmsu öðru. Hún
var meðal annars í vinnu hjá Land-
vernd og stýrði verkefninu Græn-
fáninn – Skólar á grænni grein.
„Í vor ákvað ég að einbeita mér að
því að skrifa,“ segir Sigrún, en hún
hefur skrifað talsvert af námsefni
fyrir Námsgagnastofnun og er rit-
stjóri bókar sem Heimilisiðn-
aðarfélag Íslands hyggst gefa út um
gamla íslenska faldbúninginn.
Þegar Sigrún hófst handa við rit-
un bókarinnar um Jökulsárgljúfur
þekkti hún svæðið vel.
„Ævi mín er samtvinnuð þessu
svæði. Ég kom þangað fyrst með
móður minni þegar ég var á öðru ári
og var sem barn í sveit á aust-
urbakka Jökulsár. Þegar auglýst
var eftir „gæslumanni“ eftir að þjóð-
garðurinn var stofnaður árið 1973
sótti ég um og var ráðin. Ég var þar
landvörður í fimm sumur; þetta
svæði hefur alið mig upp og agað
mig,“ segir Sigrún. Síðar starfaði
hún hjá Náttúruverndarráði og
skrifaði þá svokallaða vernd-
aráætlun um þjóðgarðinn.
Sigrún Helgadóttir hlaut árlega viðurkenningu Hagþenkis fyrir bók sína um Jökulsárgljúfur
„Ótrúlega hvetjandi á allan hátt“
LEIKLISTARSAMBAND
Íslands og Félag íslenskra
listdansara standa fyrir
þriðja fundinum í fundaröð
Listaháskóla Íslands, Á
hverfanda hveli, þar sem
rætt er um ábyrgð lista-
mannsins á umrótatímum.
Fundurinn verður í Ný-
listasafninu við Grettisgötu.
Þátttakendur á fundinum
eru Ingibjörg Björnsdóttir,
Lára Stefánsdóttir, Helena Jónsdóttir og
Katrín Gunnarsdóttir. Fundarstjóri er Karen
María Jónsdóttir og opnar umræður verða að
loknum framsögum. Aðgangur er ókeypis.
Dans
Danslistin á
hverfanda hveli
Helena
Jónsdóttir
VÍDEÓ- og kvik-
myndahátíðin 700.is
Hreindýraland er nú
haldin í fjórða sinn á
Fljótsdalshéraði og
nágrenni. Sjónum er
beint að vídeóinnsetn-
ingum og 7 listamenn,
eða pör listamanna,
hafa nú unnið slíkar innsetningar í Sláturhúsið
á Egilsstöðum. Einnig hafa gestasýn-
ingastjórar valið fjögur önnur verk, sem sýnd
verða í nágrenninu meðan hátíðin stendur; á
Eiðum, í Skaftfelli á Seyðisfirði, á Skriðu-
klaustri og í Þekkingarsetri Austurlands á Eg-
ilsstöðum. Nánar á www.700.is.
Myndlist
Hreindýraland
700.is á Héraði
Úr verki eftir Evu Olsson
og Jonas Nilsson.
KVIKMYNDASAFN Ís-
lands sýnir Crimes and
Misdemeanors eftir Woody
Allen í Bæjarbíói í Hafn-
arfirði í kvöld kl. 20.
Í myndinni fylgjast
áhorfendur með persónum
tveggja ólíkra sagna sem
tengjast ekki við fyrstu sýn.
Í annarri sögunni glímir
augnlæknirinn Judah Ro-
senthal við afleiðingar
framhjáhalds en í hinni segir af heimild-
armyndagerðarmanninum Cliff Stern sem á
erfitt með að hafa ofan í sig og á þrátt fyrir
listræna hæfileika.
Kvikmyndir
Glæpir og glappa-
skot í Bæjarbíói
Úr
myndinni.
HREFNA Róbertsdóttir
sagnfræðingur heldur fyr-
irlestur á Landnámssýning-
unni í Aðalstræti 16 í dag kl.
17. Fyrirlesturinn nefnist
Vefsmiðjur Innréttinganna
við fyrstu götu bæjarins.
Þar verður fjallað um starf-
semi vefsmiðjanna í Að-
alstræti, en þar voru um
tíma starfræktar tvær vef-
smiðjur. Lífið í Reykjavík
breyttist mikið við tilkomu þeirra, enda varð
bærinn fyrst til sem þéttbýlisstaður í tengslum
við verksmiðjuþorpið sem þróaðist í kringum
þessa starfsemi.
Fræði
Vefsmiðjur
Innréttinganna
Hrefna
Róbertsdóttir
NICHOLAS Hughes, sonur skáld-
anna Ted Hughes og Sylviu Plath,
féll fyrir eigin hendi á heimili sínu í
Alaska í síðustu viku, 46 árum eftir
að móðir hans framdi sjálfsmorð á
meðan Nicholas og Frieda systir
hans sváfu, eins og tveggja ára göm-
ul, í næsta herbergi. Hann var
ókvæntur og barnlaus og hafði glímt
við þunglyndi um hríð.
Þar til fyrir skömmu var Hughes
prófessor í sjávarútvegsfræðum við
Alaskaháskóla í Fairbanks. Hann
sagði upp stöðunni til að einbeita sér
að leirmunagerð á heimili sínu.
Mikið hefur verið fjallað um skáld-
skap Sylviu Plath og Teds Hughes,
hjónaband þeirra og sjálfsvíg henn-
ar. Ótal bækur og greinar hafa verið
skrifaðar og kvikmyndir gerðar um
þetta fræga samband og um verkin
sem urðu til meðan á því stóð.
Í The Times
kemur fram að
hvorki Ted Hugh-
es né börnin hafi
komist undan
skugganum sem
sjálfsvíg Plath ár-
ið 1963 varpaði á
líf þeirra. Árið
1969 framdi þá-
verandi sambýlis-
kona Hughes
sjálfsmorð er hún skrúfaði frá gasi á
sama hátt og Plath, og lést ung dótt-
ir þeirra einnig.
Frieda Hughes hefur skrifað
barna- og ljóðabækur og greinar í
blöð en Nicholas forðaðist hinsvegar
sviðsljósið og einbeitti sér að rann-
sóknum á laxfiskum í Nýja Sjálandi
og í Alaska, þar sem hann bjó síð-
ustu tvo áratugi.
Sonur Plath fellur
fyrir eigin hendi
Plath með
Nicholas eins árs.
Auk verðlaunabókar Sigrúnar
Helgadóttur voru þessi verk til-
nefnd. Aðalsteinn Ingólfsson:
Elías B. Halldórsson; Guð-
mundur Eggertsson: Leitin að
uppruna lífs; Guðný Helga
Gunnarsdóttir og Guðbjörg
Pálsdóttir: Átta-tíu, námsefn-
isflokkur í stærðfræði; Hjörleif-
ur Stefánsson: Andi Reykjavík-
ur; Jón Ma. Ásgeirsson og
Þórður Ingi Guðjónsson: Frá
Sýrlandi til Íslands; Krist-
mundur Bjarnason: Amtmað-
urinn á einbúasetrinu; Ragn-
heiður Kristjánsdóttir: Nýtt
fólk. Þjóðerni og íslensk verka-
lýðsstjórnmál 1901-1944; Sig-
urður Ægisson og Jón Baldur
Hlíðberg: Íslenskar kynjaskepn-
ur; Vilhjálmur Árnason: Farsælt
líf, réttlátt samfélag.
Tíu verk voru
tilnefnd