Morgunblaðið - 24.03.2009, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009
Systkinin Seth (Ludwig) ogSara (Robb) eru í klípu. Þaueru frá plánetu úti í geimn-um þar sem ástandið í um-
hverfismálum er jafnvel verra en hér,
allir að kafna í eigin úrgangi. Til
stendur að hefja allsherjar búferla-
flutninga til jarðar – þar sem loftslag
er svipað, og útrýma okkur görm-
unum svo við séum ekki að flækjast
fyrir nýbúunum.
Þessu má afstýra með hjálp systk-
inanna, en þau eiga erfitt með að ná
inn fyrir skrápinn á okkur. Á hælum
þeirra er m.a. drápglatt vélmenni frá
stjörnunni þeirra, leyniþjónustan
CIA með möppudýrið Burke (Hinds)
við stjórn. Hann hefur tekið geim-
skipið þeirra traustataki og sett í
rammgera geymslu í Nornafjalli.
Eini maðurinn sem getur hjálpað
þeim að komast aftur heim og bjarga
framtíð Jarðar er enginn annar en
hinn skrápþykki leigubílstjóri, Bruno
(Johnson). Hann endasendist með
systkinin um Nevada-fylki, eftir að
hann fer að trúa þeim.
Disney hefur dustað rykið af fjöl-
skylduvænum vísindaskáldskap frá
því á áttunda áratugnum, poppað
hann upp með stafrænum brellum og
glímustirninu sem hlýddi til skamms
tíma viðurnefninu The Rock, sem
hann notaði í hringnum. Nú vill hann
aukna virðingu og láta kalla sig sínu
rétta nafni og komast á launaskrá
kvikmyndaveranna til frambúðar
sem e.k. Schwarzenegger barnanna.
Það reynir ekki mikið á leikhæfileika
buffsins, mestur tími hans fer í að
rússa með geimverurnar um mörkina
og jagast í þeim. „Kunnið þið annan“?
er dæmigert tilsvar ökuþórsins, við
kvabbi systkinanna, mjög vantrúaður
á geimverur þó hann sé ýmsu vanur
úr aftursætinu. Það er góðlátleg
spenna í gangi, CIA-menn, vélmennið
og landherinn ætla allt lifandi að
drepa og móðir Jörð á ekki langt eftir
á ögurstundu.
Hollywood þarf á kjötfjöllum að
halda til að skemmta gestum sínum,
ungum sem öldnum, sjálfsagt þrauk-
ar Kletturinn ekki lengi, hefur ekki
mörg tromp uppi í erminni fyrir utan
skírnarnafnið. En þetta var líka sagt
um Jean Claude Van Damme, samt
er hann víst enn að. Johnson getur þó
stært sig af því í ellinni að hafa fengið
stærra hlutverki en gæðaleikarinn
Hinds í Kappakstrinum til Norn-
arfjalls, það er undarleg rós í hnappa-
gat hinnar bosmamiklu kjöt-
kveðjuhátíðar.
Krakkarnir gera það sem af þeim
er krafist, sömuleiðis Gugino (Watch-
men) og gamla hasshausnum Cheech
Marin bregður fyrir ásamt leikstjór-
anum Gerry Marshall (Pretty Wom-
an).
Brellurnar eru ekki beint fram-
úrstefnulegar en leigubíllinn slær
ekki af í akstrinum og það er brand-
araskotin spenna á köflum sem höfð-
ar til yngri áhorfenda og þolinmóðra
eldri meðlima vísitölufjölskyldunnar.
Meinlaus, fljótgleymd og fyr-
irsjáanleg.
Bílstjórinn sem
afstýrði stjörnustríði
Sambíóin
Race to Witch Mountain
bbmnn
Leikstjóri: Andy Fickman. Aðalleikarar:
Dwayne Johnson, Anna Sophia Robb,
Alexander Ludwig, Carla Gugino, Ciarán
Hinds. 99 mín. Bandaríkin. 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
Nornafjall Vöðvabúntið The Rock fær óvænta gesti í leigubílinn.
RACE TO WITCH... kl. 8 LEYFÐ
DUPLICITY kl. 10 LEYFÐ
WATCHMEN kl. 8 B.i. 16 ára
AKUREYRI
RACE TO WITCH... kl. 8 - 10:10 LEYFÐ
GRAN TORINO kl. 10:10 B.i. 12 ára
MARLEY AND ME kl. 8 LEYFÐ
SELFOSSI
RACE TO WITCH... kl. 8 LEYFÐ
DEFIANCE kl. 10:10 B.i. 16 ára
PINK PANTHER kl. 8 LEYFÐ
HE´S JUST NOT... kl. 10 B.i. 12 ára
KEFLAVÍKKRINGLUNNI
DUPLICITY kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
RACE TO WITCH MOUNTAIN kl. 5:50D - 8D LEYFÐ DIGITAL
WATCHMEN kl. 10:10D B.i. 16 ára DIGITAL
GRAN TORINO kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
SHOPAHOLIC kl. 5:50 LEYFÐ
RACE TO WITCH... kl. 5:50D - 8D - 10:20 LEYFÐ D
RACE TO WITCH... kl. 5:50 - 8 VIP
DUPLICITY kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
WATCHMEN kl. 8 - 10:10D B.i. 16 ára D
WATCHMEN kl. 10:10 VIP
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
FRÁ TONY GILROY, EINUM AF
HÖFUNDUM BOURNE MYNDANNA
KEMUR FRÁBÆR MYND Í ANDA-
OCEANS ÞRÍLEIKSINS.
NEW YORK POST
90/100
VARIETY
YFIRNÁTTÚRULEG SKEMMTUN
FYRIRALLA FJÖLSKYLDUNA!
“ENN EITT DISNEY
MEISTARAVERKIД“
JAFNSKEMMTILEG
FYRIR UNGA SEM
ALDNA
”S.O.-FOX TV,
CINCINNATI
P.H.-HOLLYWOOD.COM
“FRÁBÆR FJÖLSKYDU-
SKEMMTUN Í ANDA
DISNEY HEFÐAR-
INNAR. DWAYNE “THE
ROCK”JOHNSON ER
FRÁBÆR.”
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
ELEGY kl. 8 B.i. 12 ára
GRAN TORINO kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
CHIHUAHUA kl. 5:50 LEYFÐ
DESPERAUX kl. 5:50 LEYFÐ
ÁLFABAKKA
MYNDIN ER BYGGÐ Á SÖGU SEM TIMES HEFUR M.A. VALIÐ
SEM EINA AF BESTU ENSKU SKÁLDSÖGUM SÍÐUSTU ALDAR
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
STÆRSTA OPNUN Í USA Á ÞESSU ÁRI!
FRÁ LEIKSTJÓRA 300 KEMUR
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS 2009!
ÓSKARSVERÐLAUNALEIKARARNIR
PENÉLOPE CRUZ OG BEN KINGSLEY FARA
Á KOSTUM ÁSAMT DENNIS HOPPER OG
PATRICIA CLARKSON Í ÞESSARI MÖGNUÐU
MYND FRÁ SPÆNSKA LEIKSTJÓRANUM
ISABEL COIXET
“BRILLIANT AÐLÖGUN Á EINNI
VIRTUSTU MYNDASÖGU ALLRA
TÍMA. GEFUR MYNDUM EINS OG
DARK KNIGHT LÍTIÐ EFTIR.”
TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
“VAKTMENN ER EIN ATHYGLISVERÐASTA
BÍÓMYND SÍÐARI ÁRA.”
“ÞESSI BANDARÍSKA YFIRBURÐA-BÍÓMYND
LÆTUR EKKI LÝSA SÉR Í ORÐUM.”
ÓHT, RÚV RÁS 2
“WATCHMEN ER AUGNAKON-
FEKT, VEL KLIPPT OG TEKIN...
PUNTUÐ MEÐ TÓNLIST
SNILLINGA...“
- S.V. MBL
KRINGLUNNI OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA,SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI,
SÝND Í ÁLFABAKKA
SAMbio.is
Reykjavík • Akureyri • Keflavík • Selfoss
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALIBYGGT Á
METSÖLUBÓKINNI
EKKI MISSA
AF ÞESSARI!SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND MEÐ ÍSLENSKUOG ENSKU TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA
Empire - Angie Errigo
VINSÆLASTA OG ÁN EFA
EIN ALLRA BESTA KVIKMYND
CLINT EASTWOOD FYRR OG SÍÐAR!
www.veggfodur.is
Barátta Bubba Morthensgegn niðurhali á hug-verkum listamanna á net-
inu, sem hann segir hreinan og
kláran þjófnað, hefur verið mikið
til umræðu í fjölmiðlum eftir að
viðtal við Bubba birtist í Morg-
unblaðinu í síðustu viku. Á meðan
Bubbi fór mikinn í morgunspjalli
við Óla Palla á Rás 2 rifjaðist upp
fyrir mér einkennilegt samtal sem
ég átti við konu eina mér kunnuga
fyrir um ári eða svo. Kona þessi
hafði séð myndverk eftir mig á
netinu, ljósmynd af myndlist-
arverki nánar tiltekið og sagðist
hafa áhuga á því að kaupa það. Ég
tók ágætlega í þetta þó svo mynd-
verkið hafi í raun ekki verið til
sölu og sagðist vilja fá 40.000
krónur fyrir. Konunni þótti það
alltof hátt verð og vildi helst fá
verkið fyrir helming upphæð-
arinnar. Ég benti henni á að verk-
ið væri einstakt, þ.e. bara ein út-
gáfa til og miðað við stærð
verksins, efnivið og mína myndlist-
armenntun þætti mér verðið sann-
gjarnt. Ég sagðist ekki ætla að
prútta við hana, annaðhvort keypti
hún verkið á uppsettu verði eða
ekki. Mér til mikillar furðu svaraði
konan því að hún gæti allt eins
halað ljósmyndinni af því niður og
prentað út. Þess ber að geta að
þessi ágæta kona er myndlist-
armenntuð.
Þetta útspil hennar kom mér íopna skjöldu. Ekki nóg með
að hún gerði lítið úr verðmati
mínu á eigin verki heldur hótaði
hún að hala niður mynd af því,
prenta út og hengja upp á vegg
heima hjá sér eins og ekkert væri.
„Já, gerðu það bara ef þér finnst
það sambærilegt því að eiga frum-
myndina,“ svaraði ég og hló,
reyndi að gera gott úr þessu und-
arlega samtali. Myndlistarkonan
glotti og þóttist greinilega sniðug,
sagði vel mögulegt að hún léti af
þessu verða. Henni var fúlasta al-
vara, fannst þetta greinilega í lagi
og ósköp eðlilegt, yppti bara öxl-
um og glotti. Mér varð ljóst að lítið
þýddi að ræða þessi mál frekar og
kvaddi hana pent. Eflaust á þessi
ágæta kona útprentanir af ýmsum
íslenskum myndlistarverkum uppi
á vegg hjá sér, jafnvel í 72 punkta
upplausn á þumlung. Verði henni
að góðu.
Eftir á að hyggja hefði þaðkannski verið fínt að þessi
ágæta listakona næði í myndina á
netið og prentaði út til að hengja
upp á stofuvegg. Myndin hefði í
það minnsta fengið að hanga á
vegg í stað þess að liggja í möppu
með öðrum myndum eftir þann
óvirka myndlistarmann sem hér
skrifar. Hugsanlega hefði gestur
komið í heimsókn og rekið augu í
myndina, spurt hvaðan hún væri
fengin og þar með væri komin
auglýsing. Jafnvel möguleiki á því
að gestinum líkaði myndin svo vel
að hann hefði samband við höfund-
inn og keypti af honum verkið á
uppsettu verði. Hver veit?
Sagan af myndlistarkonunnisýnir að einhverju leyti breytt
viðhorf fólks til listaverka og höf-
undarréttar. Þó dytti fáum í hug
að ganga upp að tónlistarmanni,
t.d. Bubba, og segja honum að nýja
platan hans væri alltof dýr og því
hefði hann gripið til þess ráðs að
ná í hana ókeypis á netið. Stór
hluti fólks lítur greinilega ekki á
það sem þjófnað að ná í listaverk
sem einhver annar en höfundurinn
hefur sett á netið. Hvort það kem-
ur niður á sölu skal ósagt látið en
líklegt má telja að sá sem sækir
efnið ókeypis hefði hvort eð er
ekki keypt það úti í búð, eða hvað?
Baráttan gegn niðurhalinu er,að því er virðist, vonlaus.
Risaflóðbylgjan fór af stað fyrir
löngu og fullseint að reisa flóð-
garða. Því hlýtur lausnin að felast
í því að fá sér brimbretti og læra á
ölduna, að listamenn færi sér
þessa tækni í nyt í stað þess að
berjast gegn henni. En baráttan er
skiljanleg. Ég giska þó á að flestir
niðurhalarar myndu borga hóflegt
gjald fyrir listaverk í skiptum fyrir
öryggi og gæði, þ.e. að ná í verkið
í mestu mögulegu gæðum án þess
að eiga hættu á vírusum og öðrum
tölvuviðbjóði. „If you can’t beat
them, join them,“ eins og segir
einhvers staðar.
helgisnaer@mbl.is
Flóðbylgjan tamin
AF LISTUM
Helgi Snær Sigurðsson
»Eftir á að hyggjahefði það kannski
verið fínt að þessi ágæta
listakona næði í mynd-
ina á netið og prentaði
út til að hengja upp
á stofuvegg.
Mona Lisa Má bjóða þér frumgerðina eða veggspjaldið?