Morgunblaðið - 24.03.2009, Page 43

Morgunblaðið - 24.03.2009, Page 43
Sýningar Fyrirlestrar Opin hús Innsetningar Skoðunarferðir www.honnunarmidstod.is í samstarfi við: 30 vöruhönnuðir glæða tóm rými nýju lífi 26.03 / 27.03 / 28.03 / 29.03 30 vöruhönnuðir glæða tóm rými nýju lífi með innsetningum á Laugaveginum og teygja anga sína inn í verslanir í Bankastræti. Hönnuðirnir taka á móti gestum og fræða þá um það sem fyrir augu ber. Skipulag og lýðheilsa 26.03 / 27.03 / 28.03 / 29.03 Málþing Arkitektafélags Íslands í Ráðhúsi Reykjavíkur um skipulagsmál og lýðheilsu. Framtíðarsýn: Borgin í heild, infrastrúktúr, vöxtur Sjálfbærni vistvæni Borgarrýmið, heilbrigt líf borgarinnar Pecha Kucha 26.03 / 27.03 / 28.03 / 29.03 Í samvinnu við Ráðuneytið efnir Hönnunar- miðstöð til Pecha Kucha kvölds í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Þessi nýstárlega aðferð byggir á knöppum og fjölbreyttum fyrirlestrum. Sérstök áhersla er lögð á hönnun að þessu sinni. Gullinsnið, samsýning skartgripahönnuða 26.03 / 27.03 / 28.03 / 29.03 Það er engu líkara en fjársjóður hafi verið grafinn við Aðalstræti. Samsýningu skart- gripahönnuða hefur verið komið fyrir inn af Landnámssýningunni. Þessi einstaka sýning stendur einungis yfir í HönnunarMars. Kúlan, húsgögn og hönnunargripir frá 1962 26.03 / 27.03 / 28.03 / 29.03 Framlag Listasafns Íslands í HönnunarMars er Kúlan. Kúlan var húsgagnaverslun í Reykjavík, stofnuð í apríl 1962, sem hafði það að markmiði að selja ódýr og nýstárleg húsgögn og list- muni. Stofnendurnir voru Manfreð Vilhjálms- son, Magnús Pálsson og Magnús Jóhannsson. Dieter Roth er talinn hafa verið hvatamaðurinn að stofnun Kúlunnar. Í húsakynnum kaffistofu Listasafns Íslands verða til sýnis húsgögn og myndir er varpa ljósi á Kúluna. Sýning á verðlaunaverkum FÍT 26.03 / 27.03 / 28.03 / 29.03 Viðurkennd og verðlaunuð verk úr keppninni FÍT 2009 / Grafísk hönnun á Íslandi, sýnd í Saltfélagshúsinu. Íslensk sjónabók 26.03 / 27.03 / 28.03 / 29.03 Útgáfa nýrrar íslenskrar Sjónabókar er mikið ánægjuefni. Bókinni, sem kemur út í Hönnunar- Mars, er ætlað að blása nýju lífi í þennan auðuga formheim sem gömlu sjónabækurnar geyma. Á þessari sýningu í Þjóðminjasafni Íslands gefst gestum tækifæri til að skoða bókina og vinnuna á bak við útgáfuna sem og upprunalegu sjónabækurnar. Arkitektúr á hvíta tjaldinu 26.03 / 27.03 / 28.03 / 29.03 Sýndar verða myndir þar sem arkitektúr er í brennidepli, hvort heldur sem er aðal- viðfangsefni eða í bakgrunni. Fös: Kynnir Guðmundur Oddur Magnússon, Koolhaas Houselife (2008) Mon oncle (1958) Lau: Kynnir Guja Dögg Hauksdóttir, My architect (2003) The Fountainhead (1949) Íslenskir bollar og fylgihlutir 26.03 / 27.03 / 28.03 / 29.03 Kaffihús Kaffitárs taka höndum saman við Leirlistafélags Íslands. Íslenskir kaffibollar og kökudiskar verða teknir í notkun. Erró samkeppni 26.03 / 27.03 / 28.03 / 29.03 Hönnunarmiðstöð Íslands, verslunin Kraum og Listasafn Reykjavíkur stóðu fyrir nýstárlegri hönnunarsamkeppni sem fólst í því að hanna nytjahlut með innblæstri eða tilvísun í listaverk eftir Erró. Á þessari sýningu í Hafnarhúsinu eru vinningstillögur og aðrar valdar tillögur sýndar. 7 gluggar 26.03 / 27.03 / 28.03 / 29.03 Í samstarfi við Nordic Fashion Bianale opnar Fatahönnuðafélag Íslands stórsýningu sína, 7 gluggar. Á henni sýna sjö fatahönnunar- fyrirtæki vörur sínar. Samhliða sýningunni er mikil dagskrá í Norræna húsinu tengd fatahönnun. Brot af þeim 150 viðburðum sem eru á dagskrá HönnunarMars

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.