Morgunblaðið - 28.04.2009, Síða 1

Morgunblaðið - 28.04.2009, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 8. A P R Í L 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 113. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 08 -0 08 0 NÝJAR OG HANDHÆGARI UMBÚÐIRostur.is «HLIÐ VIÐ HLIÐ Í NÁMI COMENIUSARVERK- EFNI Í FRAMKVÆMD «RÚNAR RÚNARSSON STUTTMYNDIN ANNA KEPPIR Í CANNES ENN er ósætti um Evrópumálið milli stjórnarflokkanna en for- menn þeirra lýstu þó bjartsýni á að málið verði leitt til lykta að loknum stjórnarmyndunarvið- ræðum um kvöldmatarleytið í gær. Þingflokkar Samfylking- arinnar og Vinstri grænna veittu í gær Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni fullt um- boð til þess að halda áfram sam- starfi í ríkisstjórn. Á fundi í Norræna húsinu síð- degis í gær ákvað forystufólk flokkanna að skipa 4 starfshópa sem hafa til umfjöllunar Evr- ópumál, ríkisfjármál, atvinnu- og efnahagsmál og endurskipulag á stjórnarráðinu. Vilji er til þess hjá báðum flokkum að fækka ráðu- neytum og færa verkefni milli annarra. Sérstaklega er horft til þess að vera með eitt ráðuneyti atvinnuvega og síðan eitt þar sem efnahagsmál heyra undir. | 4 Segjast bjartsýnni Starfshópar verða skipaðir til að ræða mikilvæg mál stjórnarinnar Morgunblaðið/Golli Jóhanna fundaði með forseta Íslands. Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hækkaði í gærkvöldi við- búnaðarstig sitt úr þremur stigum í fjögur vegna útbreiðslu svínaflensu. Viðbúnaðarstig fjögur þýðir að vír- usinn hafi þróað með sér hæfileika til að berast á milli fólks og geti valdið staðbundnum faraldri. Ákvörðunin um aukið viðbún- aðarstig var ákveðin á neyðarfundi sérfræðinga WHO sem haldinn var í gær. Kerfi WHO er í sex stigum og því vantar aðeins tvö stig upp á að lýst verði yfir heimsfaraldri. Haraldur Briem, sóttvarn- arlæknir hjá Landlæknisembætt- inu, segir að þessi breyting hjá WHO þýði að íslensk sóttvarnaryf- irvöld muni íhuga hækkun viðbún- aðarstigs hérlendis af undirbún- ingsstigi og upp á hættustig. „Við reynum að vera samstiga Evrópuþjóðunum og þetta verður endurmetið í fyrramálið [í dag]. Við erum í miklum samskiptum við Sóttvarnarstofnun Evrópu og höf- um með þeim náin samskipti,“ seg- ir Haraldur. Hættustig felst m.a. í því að reynt verði að koma í veg fyrir að sýkt fólk komi til landsins. Þeir sem komi frá sýktum svæðum fari í læknisskoðun á flugvöllum eða höfnum. Talið er að 149 manns hafi látist úr svínaflensu í Mexíkó en aðeins 20 tilfelli hafa verið staðfest. Væg- ari tilfelli inflúensunnar hafa verið staðfest í Bandaríkjunum, Kanada, á Spáni og Bretlandi. Yfirmaður heilbrigðismála hjá Evrópusam- bandinu hefur ráðið fólki frá því að ferðast til Mexíkó.  Svínaflensa er farin | 14-15 Aukinn viðbúnaður Reuters Innilokuð Mexíkóar hafa verið hvattir til að halda sig inni við og forðast að sækja fjöldasamkomur. Skólum hef- ur verið lokað í Mexíkóborg til að sporna við smiti og ekki er búist við að börn snúi aftur í skóla fyrr en 6. maí.  WHO hækkaði í gærkvöldi viðbúnaðarstig vegna svínaflensu úr þremur stigum í fjögur  Líklegt að viðbúnaðarstig á Íslandi verði fært upp á hættustig Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN verð- ur af um 56 milljónum króna frá ríki og sveitarfélögum á næsta ári vegna fylg- istapsins í kosningunum á laugardag, á þeim forsendum að framlögin verði þau sömu og þau eru í ár. Þær stjórn- málahreyfingar sem fá að minnsta kosti 2,5% kjörfylgi fá hlutdeild í greiðslum frá hinu opinbera og skiptist upp- hæðin eftir at- kvæðamagni þeirra. Um áramótin var 371,5 millj- ónum króna úthlutað, samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins. Stjórn- málaflokkar sem ná manni inn á þing skipta einnig með sér 65 milljónum króna af fjárlögum þingsins. Borgarahreyfingin fékk 7,2% fylgi í kosningunum og miðað við sömu for- sendur fær hún um 27,5 milljónir króna um áramótin auk 2,5 milljóna frá þinginu á þessu ári og fimm milljónir á því næsta. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, segir að brugðist verði við stöðunni. „Augljóslega munu tekj- urnar minnka og við munum einfaldlega bregðast við því með því að draga úr kostnaði,“ sagði Bjarni. | 20 Verða af milljóna greiðslum Fjárhagur versnar Formenn Í kappræðum fyrir kosn- ingar. Fylgistap minnkar tekjur. Í HNOTSKURN » Frjálslyndaflokkinn vantaði 0,3% at- kvæða svo hann fengi framlag frá ríkinu. » Lög um fjár-mál stjórn- málaflokkanna tóku gildi 1. jan- úar 2007. Morgunblaðið/Kristinn  Einkenni svínaflensu er skyndilegur hiti, vöðva- verkir og einkenni frá öndunarfærum. Náið er fylgst með þróun mála hér á landi þó ekkert tilfelli hafi komið upp hér.  Afbrigði svínainflúensu- veiru, sem inniheldur svína-, fugla- og manna- inflúensu, hefur greinst í mörgum ríkjum Banda- ríkjanna og Mexíkó.  Svínainflúensa hefur verið þekkt í a.m.k. 50 ár. Hún hefur þá borist í menn frá svínum og hafa einkennin verið hefðbundin inflú- ensueinkenni.  Það sem er óvenjulegt við þessa svínainflúensu er að hún getur borist milli manna og virðist valda skæðum sjúkdómi í Mexíkó en vægari annars staðar. Fylgjast með útbreiðslunni „Þetta er eins og að vera í kvikmynd, það eru allir úti á götu með bláar andlitsgrímur og fólk tekur þetta mjög alvarlega,“ segir Elín Ingvarsdóttir sem hefur búið í Mexíkó um 30 ár. Hún segir að það hafi verið athyglisvert að fylgj- ast með því hversu auðvelt það hafi verið í 20 millj- óna stórborg að fá borgarbúa til að hlýða tilskip- unum til að reyna að sporna við útbreiðslu svínaflensunnar. Ofan á svínaflensuógnina hafi svo bæst jarð- skjálfti í gær sem hafi mælst 5,6 á Richter sem hafi valdið skelfingu margra í borginni. | 17 Elín Ingvarsdóttir Fólk tekur þetta mjög alvarlega

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.